Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Síða 29
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Helgarblað
29
DV
og gat m.a.s. hlustað á leik á lútu,
tamborínur og miðaldahörpu á með-
an ég skrifaði þennan kafla.
Sama gilti um vopnaburð og
hernaö þessa tíma sem miklar upp-
lýsingar er að finna um á Netinu.
Þar fann ég lýsingu á gerð her-
brests sem er nokkurs konar há-
vaðasprengja sem menn voru að ná
valdi á um þessar mundir. Þar er
blandað saman brennisteini, viðar-
kolum og saltpétri í tilteknum hlut-
föllum til að fá mikinn hvell og eld-
glæringar. Á þessum tíma var
brennisteinn mikilvæg útflutnings-
vara frá íslandi, en hann var aðal-
lega notaður til púðurgerðar, svo
segja má að íslendingar hafi verið í
hergagnaframleiðslu fyrir Evrópu á
þessum tíma.“
Ekki unglingabók
Tvær fyrstu bækur Vilborgar,
Við Urðarbrunn og Nornadómur,
gerast á landnámsöldinni og voru
samstæðar. Þær voru skrifaðar fyr-
ir unglinga og hafa raunar notið
mikilla vinsælda fólks á öllum aldri.
Síðan skrifaði Vilborg bókina Eld-
fórnina 1997, sem er einnig söguleg
skáldsaga, byggð á þjóðsögum og
heimildum, en er ekki unglingabók.
Þessi nýja bók heitir Galdur og hef-
ur undirtitilinn skáldsaga og kom
því nokkuð á óvart að sjá fjallaö um
hana í ritdómi i Morgunblaðinu
undir flokkuninni „Unglingabók".
„Þetta voru auðvitað ekki fagleg
vinnubrögð og ég er reyndar nokk-
uð undrandi á þeim. Þetta voru
mannleg mistök og blaðið hefur
beðist velvirðingar á þeim en þetta
kom sér ekki sérlega vel fyrir mark-
aðssetningu bókarinnar þótt dómur-
inn sjálfur væri glimrandi góður og
jákvæður."
Gerir menn ekki ríka
Vilborg skrifaði fyrstu tvær bæk-
urnar meðfram fullu starfi við
fréttamennsku en hefur undanfarin
ár notið starfslauna úr Launasjóði
rithöfunda sex mánuði í senn ár
hvert, en segir að það sé sjóður í
hálfgerðri kreppu, umdeilanlegur
en þó lífsnauðsynlegur.
„Starfslaunin gera manni auðvit-
að kleift að skrifa en sex mánaða
laun eru ekki nóg til að helga sig
skriftum eingöngu í svo fámennu
landi. Það verða fáir ríkir af því að
skrifa skáldsögur enda er það yfir-
leitt ekki hvatinn að því að fólk
leggur það fyrir sig. Kannski er
þessi sjóður svona rýr vegna þess að
mýtan um að besti skáldskapurinn
verði til í skorti og þjáningu undir
saggafylltri súð lifir enn með þjóð-
inni...“
Bertelsmann kaupir
Risaútgáfufyrirtækið Bertels-
mann i Þýskalandi keypti í sumar
útgáfurétt á skáldsögunni Eldfóm-
in. Bertelsmann hefur gefið út bæk-
ur eftir tvo íslenska rithöfunda, þá
Einar Má Guðmundsson og Einar
Kárason, og má ætla að reynslan
hafi verið svo góð að fyrirtækið hafi
ákveðið að gera næst samning við
íslenskan höfund sem héti ekki Ein-
ar.
„Bókin kemur út á þýsku á næsta
ári og þetta er mikill áfangi fyrir
mig. Þetta tryggir dreifmgu um allt
Þýskaland og Bertelsmann er leið-
andi fyrirtæki á sínu sviði sem aðr-
ir útgefendur lita til, svo það er
aldrei að vita hvaða dyr þetta getur
opnað.“
Alin upp við ást á bókum
Vilborg, sem er fædd árið 1965, er
alin upp á Þingeyri við Dýrafjörð i
hópi sex systkina. Hún fór 12 ára að
vinna í frystihúsi og hver króna fór
inn á bók til að greiða fyrir heima-
vist í Menntaskólanum á ísafirði,
enda voru kostirnir í augum ungra
Dýrfirðinga aðeins tveir: menntun
eða frystihúsið. Þannig var frysti-
húsið menntunarhvetjandi.
„Ég er alin upp við mikla ást á
bókum. Vestfirskt sjávarþorp hefur
ekki alltaf skilning á slíku en samt
tókst foreldrum minum að ala okk-
ur upp við mikinn bóklestur. Við
fengum bækur við öll möguleg tæki-
færi: á afmælum, eftir próf í skólan-
um, á sumardaginn fyrsta og að
sjálfsögðu á jólunum. Á Þorláks-
messu fékk ég bók aukreitis til að
stytta biðina eftir jólunum.
Ástin og áhrifavaldarnir
Ég var sílesandi og sískrifandi
sem krakki og kannski flúði ég
veruleikann inn í ævintýraheim
bókanna. Þegar ég var 12 eða 13 ára
sendi ég smásögu í „blaðið okkar“
sem var Þjóðviljinn. Vilborg Dag-
bjartsdóttir, sem sá um bamasíð-
una, Kompuna, birti hana í heilu
lagi og sendi mér bókina um Hobbit
eftir J.R.R. Tolkien í ritlaun og
hvatti mig til dáða. Þetta hafði djúp
áhrif á mig,“ segir Vilborg þegar
hún er spurð um áhrifavalda sem
er leiðindaspuming númer eitt hjá
flestum rithöfundum, en bætir svo
Isabellu Allende, Umberto Eco, Ed-
ward Rutherford, Ellis Peters og
Jean Plaidy á listann yfir áhrifa-
valda sína fyrir utan Vilborgu.
Þeim nöfnum er ótrúlega oft ruglað
saman þrátt fyrir 35 ára aldursmun
og seinast fengu þær félagsskírteini
hvor annarrar í Rithöfundasam-
bandinu heimsent í pósti.
Vilborg er sjálfstæð móðir, á tvö
börn, sitt með hvorum Isfirðingn-
um, eins og hún orðar það, en er
nýtrúlofuð og ástfangin upp fyrir
haus af Þórarni Jóni Þórarinssyni
sem hún segir að sé fallegasti mað-
ur á íslandi, jafnt hið innra sem
ytra..Það er ekkert minna en upp-
örvandi fyrir blaðamann á hlaup-
um undan bókaflóði jólanna, sem
senn brotnar á sandströnd kaup-
getu alþýðunnar, að hitta ham-
ingjusaman rithöfund.
-PÁÁ
Rafmagnsgítar,
magnari m/effekt,
ól og snúra.
Áður 40.400 kr.
Nú 27.900 kr.
Kassagítarar
frá 7.900 kr. ^ v
Trommusett m/diskum + kjuðum, 45.900,-^“ .
☆☆☆☆☆☆
Nokkur sœti laus f jólaferðirnar:
Sól og hiti í Mexíkó og d Kanaríeyjum
Sól og snjór d skíðum d italiu
Puerto Vallarta í Mexfkó
Staður fyrir vandláta
18. desember í 14 nætur.
Kanarfeyjar
Örfá forfallasæti
19. eða 21. desember í 15 nætur
Skíðaferð til ltalíu
22. desember í 11 nætur
(aðeins 5 vinnudagar).
Aðventutilboð:
Kanaríeyjar 6. desember/13 nætur
Verð: 49.900 kr.
^jn.v. lágmark 2 í íbúð á Las Camelias
Lágmúla 4: sími 585 4000, grænt numer: 800 bSUOj
Kringlan: sími 585 4070, Kópavogi: sími 585 4100,
Keflavík: sími 585 4250, Akureyri: sími 585 4200,
Selfoss: sími 482 1666
- og hjá umboösmönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is