Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 31
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
31
DV
Höfuðhögg á Bónstöð
Ég er alveg ofboðslegur frétta-
fíkill. Byrja að hlusta á útvarps-
fréttir klukkan sjö á morgnana
og síðan á klukkutímafresti til
hádegis - og alltaf sömu fréttirn-
ar.
í hádeginu les ég svo dagblöðin
en í þeim fæ ég fréttirnar síðan í
gær, já eða jafnvel eldri fréttir og
á kvöldin fæ ég svo fréttir frá
tveim sjónvarpsstöövum, síðan
tíufréttir og svo miðnæturfréttir
sem eru endurteknar útvarps-
fréttir í sjónvarpinu.
Ætla mætti að slík fréttaflkn
bæri þann árangur að flkillinn
yrði svona einsog dálítið hagvanur
í gangi heimsmála, blóðugum átök-
unum í öllum heimshornum,
flöldamorðum og útrýmingu heilla
þjóða, kennaradeilum, útstreymi
gjaldeyris og lækkandi gengi krón-
unnar, svo nokkuð sé nefnt.
En nú kemur það skrýtna.
Mér finnst stundum að ég sé
öngvu nær um fréttnæma við-
burði sem berast mér í fjölmiðl-
um, þó ég marglesi hverja frétt.
Fréttum af svindli og svínaríi
botna ég ekkert í, en verð þó
stundum var við örlítinn öfund-
arvott útí þá sem komast upp
með skepnuskapinn. Fréttir af
stórstyrjöldum, fjöldamorðum og
manndrápum vekja mér afturá-
móti öngva öfund enda eru frétt-
ir af slíkum umsvifum mér ger-
samlega óskiljanlegar.
Hvers vegna? Vegna þess að
það vantar - góðir hálsar -
fréttaskýringar; greinargóðar út-
listanir á því um hvað mál snú-
ast.
Já - það vantar fréttaskýring-
ar.
Þaö bar til tíðinda í hinni vik-
unni að einn ástsælasti þingmaö-
ur okkar, Árni Johnsen, rotaðist
á bónstöð. Frá þessu var skýrt á
útsíðu DV enda ekki lítil tíðindi,
þar sem þingmaðurinn lá í roti
dágóða stund og ekki síður vegna
hins að hann jafnaði sig snarlega
eftir að hann vaknaði. Slysið
vildi til með þeim hætti að mað-
ur var að vinna í stiga sem reist-
ur hafði verið upp við hurð „og
þegar Árni gekk um dyrnar féll
stiginn að sjálfsögðu <lbr. mín)
niður á Árna.“ „Árni rotaðist en
maðurinn í stiganum handleggs-
brotnaði." Og áfram segir í frétt-
inni:
„Ég skil ekki hvernig honum
datt í hug að reisa stiga upp við
hurð sem opnast inn,“ sagði Páll
á Bónstöðinni, sem hlúði að
Árna og kom honum svo niðurí
Alþingishús.
Sjálfur vildi Árni Johnsen sem
minnst gera úr þessari heimsókn
sinni á Bónstöðina þegar eftir
því var leitað. Athygli vekja þó
orð hans þegar hann lyfti höfði,
raknaður úr öngvitinu:
„Maður hefði meitt sig ef mað-
ur hefði ekki fengið þetta í höf-
uðið.“
■
■
Þessi frétt er einsog svo marg-
ar aðrar því marki brennd að
hún vekur upp fleiri spurningar
en hún svarar. Fréttin er einsog
sveipuð dulúð. Lesandinn er vak-
inn til mikillar forvitni um það
hvað var eiginlega á seyði þarna
á Bónstöðinni á miðvikudags-
morguninn í hinni vikunni. Hér
vantar rannsóknarblaða-
mennsku; fréttaskýringar. Brýnt
er að fá teiknaða afstöðumynd af
vettvangi. Sýna Bónstöðina og
feril þátttakenda í harmleiknum.
Var nefndur Árni að fara inní
Bónstööina eða koma útúr henni
þegar hann fékk höfuðhöggið. Og
þó umfram allt að fá á orðum
þingmannsins skýringu þegar
hann segir (að vísu skömmu eftir
að hann hafði fengið höfuðhögg-
ið):
„Maður heföi meitt sig ef mað-
ur heföi ekki fengið þetta í höf-
uðið“.
■
Svo dularfullt er þetta mál að
þjóðin er farin að gera því
skóna að hatursmenn Árna hafi
þarna séð sér leik á borði að
vinna þingmanninum miska eða
jafnvel ganga frá honum.
Það er ekki einleikið, raunar
fáheyrt og á sér áreiðanlega
engin fordæmi að menn láti sér
detta í hug að reisa stiga upp
við hurð sem opnast inn. Og ef
útí það er farið - Hversvegna
opnast hurð á bónstöð yfirleitt
Helgarblað
Wc V PWf í
si
inn? Hún á samkvæmt lögum að
opnast út svo maður brenni
ekki inni ef kviknar í Bónstöð-
inni.
Og þegar fullyrt er að þing-
maðurinn sé orðinn „algóður" í
höfðinu, er þá verið að gefa i
skyn að hann hafi verið eitt-
hvað vanheill í höföinu fyrir
höfuðhöggið?
Þetta dularfulla mál verður að
upplýsa strax en það verður
ekki gert nema rannsóknar-
blaðamennska komi til og að í
markvissri fréttaskýringu verði
frá þvi greint hvað það var sem
Árni fékk í höfuðið og varð til
þess að hann meiddi sig ekki.
Flosi
Nýbreytni í jólabókaflóðinu:
Einn íslenskur úr-
valskarl á mánuöi
- dagatal Sölku árið 2001
T ölvumegrunarkúr ?
- appelsínuhúðin hvarf
Sharon Stone:
Megrunar- og útlitskúrar eru
mismunandi en sá auðveldasti er
eflaust sá sem Sharon Stone tókst
á við fyrir skömmu þegar hún sat
fyrir hjá Elle. Margir þekkja kúr-
inn undir nafninu Photoshop, en
þaö er tölvuforrit sem getur
breytt útliti fólks til hins óendan-
lega. Þrálátur orðrómur þessa
efnis hefur gengið á Netinu und-
anfarið en Elle hefur neitað öllum
ásökunum um að hafa fjarlægt
appelsínuhúð og slitna húð af
maga Sharonar með tölvutækn-
inni. Segja sumar beittar tungur
að tölvudeild tímaritsins hafi ver-
ið i yfirvinnu við að bjarga því
sem bjargað varð.
Á myndunum er Sharon klædd
í bikini og heldur á ungum syni
sínum, Roan Joseph, í fangi sér.
Sést vel í maga og læri og
þykir það með ólíkindum
hversu vel hún er á sig kom-
in þrátt fyrir aldur og fyrri
störf. Fullyrða menn að lær-
in á henni hafi auk þess ver-
ið minnkuð nokkuð. Tals-
menn Elle-tímaritsins segja
að Sharon sé einfaldlega
mjög vel á sig komin líkam-
lega, hún líti stórkostlega út
og ekkert hafi þurft að laga
með hjálp tölvunnar. En
hvað með það, þegar Basic
Instinct 2 kemur í kvik-
myndahús fáum við væntan-
lega að sjá jafn mikið og í
fyrri myndinni. Þá getum við
séð allt sem við viljum og
kannski meira.
íslensk dagatalahefð hefur eink-
um markast af íslenskum landslags-
myndum og nú í seinni tíð hafa
haldið innreið sína á verkstæða-
markaðinn dagatöl með konum sem
starfa á íslandi eða eru íslenskar.
Nú er hins vegar komin sérstök ný-
breytni í jólabókaflóðinu. Bókafor-
lagið Salka hefur einbeitt sér að
konum varðandi markaðssetningu;
bækur þess eru um konur, eftir kon-
ur eða fyrir konur. Þess vegna kem-
ur það kannski ekki á óvart að
Salka taki sig til og gefi út dagatal
með íslenskum karlmönnum.
Ljósmyndarinn sem tekur mynd-
ir af karlmönnunum fongulegu er
Gréta S. Guðjónsdóttir. Fyrirsæt-
urnar eru ekki af verri endanum en
þar má nefna Andra Snæ Magnason
rithöfund, Stefán Mána rithöfund,
Matthías Viðar Sæmundsson og
Thor Vilhjálmsson, svo einn þriðji
sé nefndur. Rétt er að taka fram að
allir eru þeir fullklæddir nema Thor
sem reyndar er hálfur niðri í vatni.
-sm
Desember 2001
Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson
Sviðsljós
Janúar 2001
Fræöimaöurinn Matthías Viöar Sæmundsson
Grýlukertasería
200 Ijósa útisería
2.690 kr.
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is