Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Qupperneq 32
32
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Helgarblað
I>V
Christine Jennings hafði mætt mótlæti í lífinu:
Taldi sig loks-
ins komna í
örugga höfn
Christine Jennings var að nið-
urlotum komin. Hún var með mis-
heppnað hjónaband að baki, hún
þurfti að sjá fyrir tveimur ungum
börnum, reikningarnir hrúguðust
upp og hún bjó i hrörlegri ibúð í
skuggalegu hverfi. Það var ekki
hægt að bjóða henni meira.
Það þótti því ekkert undarlegt
að Christine, sem var 28 ára göm-
ul, dökkhærð og lagleg, skyldi
taka geðlyf. Hún var svo svartsýn
að hún kom ekki auga á nokkra
leið sér til bjargar. Lækninum
hennar hugkvæmdist þá að vísa
henni til leigumiðlunar bæjarins í
þeirri von að hún kæmist að
minnsta kosti úr fátækrahverfinu
sem hún bjó I eitthvert betra
hverfi í hafnarbænum Sout-
hampton.
Það var þannig sem fundum
Christine og yfirmanns leigumiðl-
unarinnar, Alans Kershaws, bar
saman i fyrsta sinn í ágúst 1991.
Hann var hálfflmmtugur og leit
alls ekki út fyrir að starfa hjá
hinu opinbera. Hann var vel
klæddur og snyrtilegur og leit eig-
inlega frekar út fyrir að vera
kaupsýslumaður. Hann var vin-
gjamlegur og viðmótsþýður og
hlustaði vinsamlega á harmasögu
Christine Jennings.
Draumurinn breyttist í
martröð
Saga hennar var í raun frá-
brugðin sögu margra annarra.
Hún var læknisdóttir og fyrrver-
andi eiginmaður hennar var
skipamiðlari. Þau höfðu kynnst
þegar hún var 20 ára og var við
nám i háskólanum. Það leið ekki á
löngu þar til þau giftu sig og fluttu
til bæjarins Chester þar sem þau
voru hamingjusöm og lifðu þægi-
legu lífi. Þetta var draumahjóna-
band sem breyttist hins vegar í
martröð þegar bömin, John og
Francis, komu í heiminn. John
Jennings missti allan áhuga á eig-
inkonu sinni og fjölskyldu og
varði meiri tíma utan heimilisins
en innan þess. Að lokum flutti
hann heim til ritarans síns og lét
Christine og börnin sjá um sig
sjálf.
Rómantík í loftinu
Alan Kershaw var ákaflega
skilningsrikur. Hann kvaðst sjálf-
ur eiga misheppnað hjónaband að
baki og búa í leiguhúsnæði vegna
slæms efnahags. Samræður þeirra
gengu vel og það var ekki laust
við að rómantík svifl yfir vötnun-
um. Kershaw lofaði að útvega
Christine Jennings raðhús á einu
af grænum svæðum bæjarins og
hún sveif næstum þvi út af skrif-
stofunni.
Sama kvöld hringdi síminn
heima hjá henni. Alan Kershaw
var í símanum. Hann vildi gjarn-
an bjóða henni upp á drykk kvöld-
ið eftir. Kvöldið varð mjög róman-
tískt og Christine hlustaði gjam-
an á þjáningarsögu Alans. Þegar
hann keyrði hana heim í nýja
Heimili Kay Kennedy
Viö þetta hús geröist örlagaríkur
atburöur aö næturiagi.
Á brúðkaupsdaginn
Christine Jennings og Alan Kershaw á brúökaupsdaginn. Þau voru gefin
saman í ráöhúsinu í Southampton.
Benzinum sínum bauð hann
henni út að borða næsta kvöld.
Tilfinningar þeirra urðu heitari
og heitari. Fljótlega voru þau far-
in að hittast á hverjum degi, þau
fóru í stutt ferðalög með bömin og
höguðu sér í einu og öllu eins og
fjölskylda. Einum mánuði eftir
heimsókn Christine til leigumiðl-
unarinnar bað Alan Kershaw
hennar og hún tók bónorði hans.
Þau voru gefln saman í ráðhús-
inu í Southampton í september
1991. Þrátt fyrir aldursmuninn
virtust þau fullkomið par. Sam-
band þeirra varð innilegt og
ástríðufullt.
Ári seinna fluttu Kershaw og
litla fjölskyldan hans út á land í
hús frá 18. öld sem var með útsýni
yfir hafið. Þar var einnig pláss
fyrir smáhesta barnanna. Svo
virtist sem Christine Jennings
væri komin i örugga höfn eftir all-
ar hrellingarnar. Hún var svo
upptekin af nýja lífinu sínu að
hún tók ekki eftir hægfara breyt-
ingu á eiginmanni sínum.
Hættumerkin voru samt nógu
áberandi. Alan Kershaw var orð-
inn lokaður og þögull. Vinnudag-
ur hans varð lengri og lengri og
þegar hann kom heim settist hann
fyrir framan sjónvarpið. Christine
„Hún var svo upptek-
in af nýja lífinu sínu
aö hún tók ekki eftir
hægfara breytingu
hjá eiginmanni sín-
um. Hættumerkin
voru samt nógu áber-
andi. Alan Kershaw
var oröinn lokaöur
og þögull. Vinnudag-
ur hans varð lengri
og lengri..."
neitaði aö trúa þvi að eitthvað
gæti verið að. Ef til vill leiö hon-
um illa yfír því að hafa orðið að
taka stór lán til húsnæðis-
kaupanna. Ef til vill var fjárhag-
urinn ekki nógu góður.
í janúar 1993 var orðið stirt á
milli hjónanna. Christine var far-
in að sofa í gestaherberginu. Hún
vissi enn ekki hvað amaði að og
maðurinn hennar neitaði að tala
um það. Hið fullkomna hjónaband
virtist vera farið út um þúfur.
Christine, sem var þjökuð af
áhyggjum, greip nú til bragðs sem
hún hafði ekki átt von á að hún
væri fær um. Hún leigði einka-
spæjara til að fylgjast með ferðum
Alans. Hún fékk fljótlega skýrslu
þar sem sagði að nýja Benzinum
hans Alans væri oft lagt við hús
Kay Kennedy, 37 ára gamallar
skrifstofustúlku hjá bænum.
Aðfaranótt 4. mars 1993 lá
Christine svefnlaus. Hugur henn-
ar var þungur. Um þrjúleytið fór
hún á fætur og ók að húsi Kay
Kennedy í Colinstræti. Benzinn
var fyrir utan húsið. Christine
sagði siðar frá því sem gerðist fyr-
ir rétti í Southampton.
„Dómgreindin brást mér. Ég
hugsaöi bara um að særa Alan og
Christine Jennings
Christine taldi sig hafa höndlaö hamingjuna þegar hún giftist Alan Kershaw.
Hann var bæöi viömótsþýöur og skilningsríkur.
Draumahúsið
Christine og Alan fluttu í þetta 18. aldar hús úti á landi ári eftir aö þau voru
gefin saman í ráöhúsinu.
skyndilega kom mér í hug hvem-
ig ég gæti hrellt hann.“
Christine var með aukalykil að
Benzinum. Hún læddist að bílnum
og setti hann í gang. Það var strax
kveikt ljós í íbúð Kay Kennedy og
Alan, sem alltaf hafði sofið létt, sá
út um gluggann hvað var að ger-
ast. Hann gerði sér strax grein fyr-
ir að þvi sem honum þótti vænst
um, bílnum hans dýra, var mikil
hætta búin. Þegar Christine bakk-
aði út úr stæðinu komu bæði Alan
og Kay Kennedy þjótandi á nátt-
sloppum.
„Ég setti bílinn í gír og ók
áfram. En það var eins og ég væri
bara áhorfandi að því sem gerðist.
Ég stefndi beint á Alan, augljós-
lega í þeim tilgangi að aka á
manninn sem hafði svikið mig svo
gróflega."
Bíllinn lenti með braki og brest-
um á húsveggnum samtímis því
sem sársaukaóp barst út í nátt-
myrkrið. Það kom ekki frá Alan
Kershaw sem hafði tekist að
stökkva til hliðar. Bíllinn hans
skemmdist reyndar og sjálfur fékk
hann nokkrar skrámur. Kay
Kennedy var hins vegar ekki jafn
heppin. Billinn hafði rekist á hana
með öllum sínum þunga og hún
lést einni klukkustund seinna á
sjúkrahúsi af völdum innvortis
meiðsla.
Christine Kershaw játaði sig
seka um manndráp. Hún mætti þó
skilningi vegna kringumstæðn-
anna og hún slapp meö skilorös-
bundinn dóm gegn því að hún
færi í meðferð hjá geðlækni.
Hún sagði síðar að hún hefði
sagt skiliö við karlmenn fyrir fullt
og allt. Og hún bætti því við að
hún myndi aldrei framar leita að-
stoðar hjá húsnæðismiðlun bæjar-
yfirvalda.
Systirin fann morðingjann
Terasa fann strax á sér að eitthvað hræðilegt hafði
komið fyrir tvíburasystur hennar.