Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 58

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 58
átik Tilvera LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 DV Uti ad boröa ~ Þjóðlega íslenzk Ítalía Viö Laugaveg 11 er feiknarlega vinsælt veitingahús, þar sem hvert borö er setið hálfátta á kvöldin og biðröð komin hálfníu. Staðurinn er ekki italskur og heitir samt Ítalía, en ætti að heita ísland. Þar sitja sáttir menn og konur afar þröngt í básum við glerplötur á borðum og borða pítsur og pöstur, þjóðarrétti kol- vetnisærðra íslendinga nútímans. Af því að þetta er þjóð- lega íslenzk- ur staður, er flski lítt hampaö og fúslega viður- kennt, að rauðsprettan sé fryst. Að- eins ein matreiðsla er á ferskum fiski og rjómahvítvínssósan flæðir um allan disk. Kjötmatreiðsla er mun betri, en staðlað meðlæti er ná- kvæmlega hið sama og með fiskin- um. Að islenzkum hætti er boðið upp á tiramisu i eftirrétt og hér er hún þeirra fjarlægust upprunanum Bologna, minnir á krem- og rjóma- tertu í erfídrykkju. Ég gafst upp í henni miðri. Skelflleg jólahlaöborð Jólahlað- borð höfða til afkomenda langsoltinna forfeðra. Fólk, sem nánast aldrei fer út að borða, flykkist í veitingahús, sem hafa orðið undir i hefð- bundnum veit- ingum og bjóða -»'jélahlaðborð i atvinnubóta- skyni. Matur- inn á jólahlað- borðum er fremur vondur í saman- burði við venjulegan veitingahúsa- mat, en það er nóg af honum, eins og forfeður okkar töldu mundu verða í himnaríki. Þegar við höfum áttað okkur á, hvað af matnum er ætt, erum við orðin svo södd, að við getum ekki hagnýtt okkur lærdóminn. Matarsið- aðar þjóðir nota ekki hlaðborð. Venjuleg matreiðsla leggst niður á hlaðborðsstöðunum í desember og •^fcrir þá ónothæfa. Sem betur fer er nóg til af ágætum stöðum i öllum verðflokkum, sem ekki bjóða nein jólahlaðborð, svo að enginn er skyld- ugur til að ögra heilsu sinni. En viss- ara er að hringja á undan til að full- vissa sig um, að ekki hafi í laumi ver- ið komið upp jólahlaðborði á staðn- um. Jónas Kristjánsson Kokkarnir á Kaffi List Sergio Rodriguez, Jesus Rodriguez og José Luis Picazo matreiða mat í spænskum anda á Kaffi List. Sergio, Jesus og José Luis á Kaffi List: Paella frá Baskalandi * Kf - v * a * Á Kaffi List er töluð spænska og spænskur andi svífur þar yfir vötn- um. Þrír kokkar annast matreiðsl- una á staðnum og eru þeir allir frá Baskahéraði Spánar, nánar tiltekið nágrenni borgarinnar Bilbao. Þeir bræður Sergio og Jesus Rodrigues og José Luis Picazo luku allir matreiðslunámi sínu á Spáni í fyrra. Þeir segjast matreiða spænsk- an mat á Kaffi List, sem þó er lagað- ur að þeim hráefhum sem fáanleg eru hér á landi. Þeir segjast stundum nota saffran til að krydda matinn, og þá aðallega paell- urnar sem oft er í boði um helgar. Paellan er upp- runnin á Suður- Spáni, þar sem hrís- grjónin vaxa. Mat- reiðslan er upprunnin hjá fiskimönnum þar sem fjall og fjara mæt- ast og er því oftast bæði sjávarfang og t.d. kjúklingur eða kanínu- kjöt í henni. Krokusinn, sem gefur af sér saffran- ið, vex mikið í Baskalandi, þannig að nokk- uð algengt er að nota kryddið á þeim slóðum. Það lá því nokk- uð beint við að bjóða upp á ljúf- fenga paellu með saffrani. „Hin dæmi- gerða spænska paella er hér lög- uð að eldhúsi okkar í Baska- landi, með afurð- um úr sjó og fjöllum, smokkfiski úr sjónum, saffrani úr fjallinu Gorbeia og dæmigerðu grænmeti úr matjurtagörð- um okkar.“ Paella de chlpiron y pollo con acelte de azafran 1 laukur 1 blaðlaukur 1 tómatur 2 litlir smokkfisk- 3-4 þræðir saffran fint salt jómfrúarpa- ar 1/4 kjúklingur 500 g hrísgrjón 2 1 kröftugt af soð Gult og glrnllegt Hinn rauðguli litur einkennir allan mat meö saffrani. prika Græn- meti corið smátt og hægsteikt á lágum hita í ólífuolíu á pa- ellapönnu. Hrísgrjón- um blandað saman við grænmetið og steikt í olíunni smá stund. Heitu soðinu hellt yfir hrísgrjóna- blönduna og afganginum af inni- haldinu bætt út í. Látið sjóða i 20 mínútur. Saffranolía Paellan er borin fram með saffra- nolíu, sem er bæði bragðgóð og ein- staklega falleg á litinn eins og allt sem kryddað er með þessu sérstæða kryddi. Um 10 strengir af saffrani eru þurrkaðir nokkrar min- útur í ofni og settir í 2 dl sólblómaolíu. Olían er lát- in standa um hálfan mán- uð áður en hennar er neytt. -ss pmh'niuuiulu Medferð á saffrani Saffran er dýrt og því er mikil- vægt að fara vel með það. Yfirleitt er safifran keypt í litlu magni en til þess getur þó komið að geyma þurfi kryddið. Þá þarf að geyma það á svölum og dimm- rnn stað vegna þess að það missir auöveldlega bæði lit og bragð. Ef saffran á að vera steytt er best að steyta það í mortéli og skola það svo að innan með vökva úr réttinum til að nýta kryddið sem best. í öðrum upp- skriftum er saffranið lagt í bleyti og skal þá gæta þess að nota lítið vatn. Loks ber að geta þess að saffrani er oftast bætt út í rétti undir lok matreiðslunnar vegna þess að kryddið missir fljótt bæði lit og bragð við suðu. Sænskt saffranbrauð Bleytið upp nokkra saffran- þræði í 2 msk. af vatni í 15 mín- útur. Steikið 1 smátt skorinn lauk og 2 pressuð hvítlauksrif í ólífuolíu þar til mjúkt en ekki dökkt. bætið 250 g af hrísgrjón- um á pönnuna og veltið upp úr olíu- og laukblöndunni. ÍJtbúið 750 ml af grænmetis- eða kjúklingasoði og bætið því í smáskömmtum út á pönnuna til skiptis við saffranblönduna. Látið hrísgrjónin draga í sig vökvann á milli. Áður en risottóið er borið fram er bætt í það 25 g smjörklípu, 25 g af rifnum parmesanosti og örlitl- um ferskum sítrónusafa. Tvelr flskar blómstra Nýjar heimsóknir á Tvo fiska við Geirsgötu 9 hafa fært mér vissu um, að staðurinn gefur ekki eftir Þrem- ur Frökkum og Tjöminni sem sjávar- réttastaður. Eldunartím- ar fiskjar vora hámá- kvæmir á keilu og rauðsprettu. Súpa dagsins var sérstætt *-iþávik frá ís- lenzkum hefðum, finleg tómat- minestrone, en ekki groddalega þykk créme. Sushi-matreiðsla fer nú aðeins fram á kvöldin, svo að Tveir fiskar hafa gefið Sticks 'n Sushi eftir Jap- ansréttamarkaðinn. Á móti kemur, að i hádeginu er einstaklega ódýrt að borða á Tveimur fiskum. Súpa dagsins og val af aðalréttum kostar þá ekki nema 1.100 krónur. Samt er allt eins og á kvöldin, hvitdúkuð borð og hvítar tauþurrkur, þjónusta fagfólks og matreiðslan í toppi. Mið- að við gæði er þetta eitt bezta há- degisverðið um þessar mundir. Saffran Mörgum Svíum þyk- ir saffranbrauð ómissandi á jólum og víst er að það er bæði góm- sætt og jóla- legt. í brauð- inu er 1 kg f hveiti, eitt . . bréf af þurr- " geri, 200 g smjör, 1/2 1 mjólk, 1/4 tsk. steytt saffran, 150 g sykur, 1 egg, salt. Blandið geri og hveiti. Bræðið smjörið og bætið mjólkinni út í og því næst öllu sem eftir er af innihaldinu, síðast hveitinu með gerinu, þangað til deigið er hæfilega biautt til að hnoða það. Eftir að brauðið hefur ver- ið hnoðað vel er það látið lyfta sér í u.þ.b. klukkutíma. Þá er mótað brauð úr deiginu, eða bollur, og látið lyfta sér aftur í u.þ.b. hálftíma. Brauðið eða bollurnar má skreyta t.d. með söxuðum möndlum eða perlu- sykri. bakað á 220‘C þar til fal- lega ljósbrúnt. Risottó frá Mílanó Saffran eru þræðir úr krókusum og eru um þrír í hverju blómi. Saffran er eitt dýrasta krydd sem til er, ef ekki það allra dýrasta, og sagt er að kílóverð þess sé talsvert hærra en á gulli, enda mun þurfa fræfla úr nokkur hundruð þúsund krókusum í eitt kíló af saffrani. Nafnið á kryddinu kemur úr arabísku, zaf- aran, sem merkir gulur, enda er hinn rauð- guli litur sem af saffraninu kemur aðalsmerki þess. Auk hins sterka litar gefur saffranið afar sérstæðan bragðkeim í þá rétti sem hann er notaður. Talið er að saffran hafi verið not- að frá því um 1000 fyrir krist. Það á uppruna sinn í Austurlöndum en barst með Aröbum til Spánar. Þar er kryddið einkum notað í hrís- grjónarétti, súpur og brauð og einnig bæði á Italíu og í Frakklandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.