Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Side 60
Tilvera LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 A/hat Planet Are You From? V íðáttuvitleysa Gamanmyndin What Planet Are You From er nýjasta kvik- mynd leikstjórans Mike Nichols sem m.a. er þekktur fyrir The Graduate, Birdcage og Primary Colors. Handritið er skrifað af grínist- anum Garry Shandling , sem sjálfur íeikur sitt fyrsta aðal- hlutverk í kvikmynd. í stuttu máli fjallar myndin um geimveru, íeikna af Shandling sem er sendur til jarðar í líki manns að nafni Harold Anderson, í þeim tilgangi ið geta barn með konu. Það reyn- ist að sjálfsögðu hægara sagt en gert og Harold þarf að yfirstíga nargar hindranir áður en yfir lýk- Allt lofar þetta svo sem góðu en oað er hins vegar umhugsunarefni ivers vegna gamanmynd, mjög yndin á köflum, er jafn vond og nyndin What Planet Are You ’’rom. Shandling beitir dökkum úmor, svipuðum og er að finna í ónvarpsþáttum á borð við Sein- ld og Everybody Loves Raymond, iida eru þar kollegar hans á ferð. [yndin byrjar bráðvel á skemmti- agu atriði á plánetu í öðru sólkerfi ■n eftir því sem líður á kemur í jós að söguþráðurinn er klisja sem /art verður við jafnað og þegar ipp er staðið er ekkert eftir sem oöfðar til meðalgreindra áhorf- /nda. Handritið er hugsunar- og lugsjónalaust og líklegasta ástæð- an að of margir handritasérfræð- ngar hafi fengið að þynna það út. Þegar svo er í pottinn búið skiptir leikaravalið engu og þrátt fyrir heiðarlega tilraun Annette Bening, Johns Goodmans og Bens Kingsley fá þau ekki bjargað þessari mynd. Svartur sjónvarpshúmorinn, hversu fyndinn sem hann er, dugir heldur ekki til að halda þessari gömlu lummu á floti. -aþ .elkstjórl: Mike Nichois. Útgefandi: Skif- an. Bandaríkin 2000 Lengd: 107 mínút- jr. Öllum leyfö. Rupert Everett: Man tímana tvenna „Þaó hefur tekió mig langan tíma að ná aftur vinsœldum og ég held að ég hefói ekki þrek í aó taka dýfu einu sinni enn. Frœgö kemur og fer og er svo miskunnarlaus að hún getur gjörbreytt persónuleika þínum. Þeg- ar svo frœgðin er horfin er nióurlœg- ingin mikil. Ég get ekki hugsað þá Ferill Ruperts Everetts í kvikmyndum: Another Country, 1984 Arthur The King, 1984 Dance With a Stranger, 1985 Chronicle of a Dead Foretold, 1987 Duetsfor One, 1987 Hearts of Fire, 1987 Tolerance, 1989 The Comfort of Strangers, 1991 Shooting Angels, 1993 Lies, 1994 The Madness of King George, 1994 Prét-a-Porter, 1994 Dunstons Checks In, 1996 My Best Friend’s Wedding, 1997 Shakespeare In Love, 1998 A Midsummer Nights Dream, 1999 An Ideal Husband, 1999 Inspector Gadget, 1999 B Monkey, 1999 The Next Best Thing, 2000 hugsun til enda ef ég þarf sjötíu og tveggja ára gamall að fara í leikprufu fyrir lítið hlutverk. “ Þetta eru orð Ruperts Everetts, sem leikur á móti Madonnu í The Next Best Thing, sem er vi sæl á myndbandamarkaðin- um í dag. Everett man tímana tvenna. í dag er hann eftirsóttur leik- ari, kominn í hóp stjarnanna, þar sem hann segist kunna ákaflega vel við sig. Þessa frægð á hann að þakka frammi- stöðu sinni í My Best Friend’s Wedding. Endurkomu Everetts má líkja við endur- komu John Travolta í Pulp Fiction. Báðir höfðu verið vinsælir ungir en lent í mik- illi lægð. Everett fæddist 29. maí 1959 og var faðir hans háttsettur for- ingi í breska hem- um sem fór út í við- skipti með góðum árangri þegar herþjónustu lauk. Everett ólst upp í lúxus og fór hefðbundna leið í gegn- um skólanám með viðkomu í góð- um háskólum. Hann byrjaði í kvik- myndum með miklum stæl í Another Country árið 1984 og var talað um hann sem efnilegasta leik- ara Breta. í nokkur ár var hann áberandi og lék í góðum breskum kvikmyndum. Hann var þó óafvitandi að vinna gegn sér með alls konar óhentug- um athugasemdum um blaðamenn og kollega auk þess sem hann þótti sjálfselskur í meira lagi. Eftir að hafa farið til Hollywood og leikið í Hearts of Fire, sem enginn man eftir í dag, fjaraði ferill hans nánast út og þegar hann lék í My Best Friend’s Wedd- ing var hann nánast öllum gleymdur. Að- allega var hann í frétt- um vegna þess að hann leyndi því aldrei að hann var hommi og svaraði blaðamönnum fullum hálsi þegar hann var spurður hvort það væri ekki að eyðileggja feril hans að vera „opin- ber“ hommi. Þegar leikferillinn virtist vera kominn í strand reyndi Rupert Ev- erett fyrir sér sem poppsöngvari með skelfilegum árangri og sem módel og tókst þar betur upp. Leik- stjóri My Best Frend’s Wedding, PJ Hogan, var á báðum áttum hvort hann ætti að ráða Everett í hlut- verk vinar Juliu Ro- berts sem er hommi en lét slag standa þrátt fyr- ir aðvar- anir. Þetta var happa- drjúg ákvörðun fyrir hann og þá ekki síður fyrir Rupert Ever- ett, sem hefur vaðið í tilboðum síðan og lætur fara vel um sig í hinum fallvalta heimi kvik- myndastjarnanna. -HK Talnapúk- inn á myndband Talnapúkinn er þjóðþekkt teiknimyndapersóna eftir Berg- ljótu Amalds, sem kom fyrst út á bók 1998 og fór sú bók strax á met- sölulista. Ári síðar var gerður margmiðlunardiskur upp úr sama efni, en þar lifnar sagan við með tónlist, talsetningu og hreyfimynd- um. Á disknum eru líka fimm sjálf- stæðir leikir sem hafa fjögur þyngdarstig. Þá hefur TáLnapúkinn komið fram í ævintýraþættinum 2001 nótt á Skjá 1 og er hann fyrsta íslenska teiknimyndapersónan sem hefur tekið að sér umsjón á barnaþætti í sjónvarpi. Nú gerir talnapúkinn enn frekar víðreist því nú er hann kominn á myndband með tali og tónum og er það samruni á bókarforminu og teiknimyndum. Persónurnar öðl- ast líf og tala beint til krakkanna en bókarformið heldur sér að því leyti að sagan er síðuskipt og er flett með fjölbreyttum aðferðum. Þá birtist textinn áfram neðst á skjámyndinni, en það hvetur böm- in til að þjálfa sig í lestri og auð- veldar heymarskertmn að fylgjast með. Þess má geta að fyrir margmiðl- unardiskana Talnapúkann og Stafakarlana hlaut Bergljót Am- alds Auðar-verðlaunin í ár, en þau eru veitt konum fyrir frumkvöðla- starf. lilfgMfi VI Hvaleyrarbraut 18-20 220 Hafnarfjörðui. Sími: 565-S05S / Fax: 565-5056 Einkaumboð fyrir SCM á ÍSLANDI *** 26 ára traust samstarf við íslenskan iðnað.*** Höfum til sýnis tölvustýrðan yfirfræsara og dílavél á staðnum. Einnig mikið úrval af nýjum og notuðum véium. Allt að 30% afsláttur af notuðum vélum. Opið Laugardag Klassísk myndbönd The Apartment **** Fyndin og fordómalaus Rómantíska gamanmyndin The Apartment er ein af perlum leik- stjórans Billy Wilder. Myndin var frumsýnd árið 1960 og þrátt fyrir aldurinn stendur hún fyllilega fyrir sínu. Wilder sópaði líka til sín ósk- arsverðlaunum fyrir myndina, alls fimm, og þess utan voru Jack Lemmon og Shirley MacLaine bæði útnefnd fyrir bestan leik í aðalhlut- verki. Billy Wilder fæddist í Austur- ríki árið 1906 og hóf að vinna við kvikmyndir i Þýskalandi á þriðja áratugnum. Við valdatöku Hitlers árið 1933 ákvað Wilder að venda sínu kvæði í kross, flutti til Parísar og síöar til Kaliforníu þar sem hann átti eftir að gera stórmyndir á borð við Sunset Boulevard, The Seven Year Itch, Some Like It Hot og The Lost Weekend þvi til stuðnings. Sögusvið The Apartment ef New York í lok sjötta áratugarins og að- alsöguhetjan er skrifstofumaðurinn C. C. Baxter sem starfar hjá trygg- ingafélagi. Baxter á við þann óvenjulega vanda að etja að geta ekki dvalið i íbúð sinni nema endr- um og eins. Ástæðan er sú að hann fyrir tilviljun lánaði yfirmanni sín- um ibúðina svo sá síðarnefndi gæti átt þar fund með ástkonu sinni. Vin- argreiðinn hefur undið upp á sig þegar myndin hefst og hærra settir starfsmenn þurfa sífellt að fá íbúð- ina lánaða. Baxter er sannfærður um að þetta sé leið til stöðuhækkun- ar og lætur því undan. Fyrir utan „húsnæðisleysið” bætist sá vandi við aö Baxter verður yfir sig ást- fanginn af ástkonu yfirmannsins. Jack Lemmon fer hreint á kostum í hlutverki sínu sem Baxter skrif- stofumaður og sömu sögu er að segja um leikkonuna Shirley MacLaine sem sýnir stjömuleik í hlutverki sínu sem ástkonan, Fran Kubelik. Því hefur enda stundum verið haldið fram að hvorki fyrr né síðar hafi MacLaine verið jafngóð og í umræddri mynd. Sagan er trúverðug og nokkur at- riði sem benda til að Wilder hafi verið töluvert á undan sinni samtíð. Það er til dæmis merkilegt hvemig tekið er á þeirri staðreynd að per- sóna Shirley MacLaine á í ástar- sambandi við giftan mann. Hún er ekki gerð að léttúðardrós eins og kannski hefði verið viðbúið og raunar er fjailað á ótrúlega hispurs- lausan hátt um framhjáhald og af miklu fordómaleysi um kynferðis- mál almennt. Það er ekki erfiöleikum bundið að mæla með The Apartment sem afbragðsgóðri gamanmynd. Kannski sannar það líka hversu vel myndin hefur staðist tímans tönn að enn virðist engum hafa dottið í hug að endurgera hana eins og títt hefur verið um margar kvikmyndir frá sama tíma. -aþ Lelkstjóri: Bllly Wilder. Aóalhlutverk: Jack Lemmon, Shirley MacLaine, Fred MacMurray og Ray Walston. Bandaríkin 1960. Svart/hvít.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.