Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 61
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
69
DV
Tilvera
Mumford
Kæri sáli
+++■ Það þykja alltaf tíðindi þeg-
ar Lawrence Kasdan gerir nýja
mynd enda spennandi leikstjóri og
handritshöfund-
ur þótt mis-
tækur sé.
Bestu kvik-
myndir hans, á
borð við Body
Heat og The
Big Chill, eru
eftirminnileg-
ar myndir þar
sem frásagnar-
mátinn er sér-
lega markviss
og skemmtileg-
ur. Svo er einnig um nýjustu kvik-
mynd hans, Mumford, sem er
virkilega góð mynd þótt ekki
standist hún samanburð við tvær
þær fyrrnefndu.
í myndinni segir af sálfræðingn-
um Mumford sem starfar i bænum
Mumford. Þetta er ungur og við-
kunnanlegur maður sem verður
fljótt vinsæll hjá hrjáðum bæjar-
búum. Mumford tekur líflnu létt
og fer frjálslega með þagnareið sál-
fræðinga gagnvart sjúklingum.
Þetta breytist þegar hann kynnist
ungri stúlku sem þjáist af sí-
þreytu. Hann verður ástfanginn af
henni og tekur meira en góðu hófi
gegnir þátt í lífl hennar. Auk
hennar vingast hann við einn
sjúklinginn sem er margmilljónari
og ferðast um á hlaupabretti.
Fleiri skrautlegar persónur eru
sjúklingar Mumfords og allar eiga
sín leyndarmál og það á Mumford
einnig eins og síðar kemur í ljós.
Mumford er einkar skemmtileg
og lífleg mynd þar sem tekið er á al-
vörunni á léttum nótum. Leikarar,
sem margir hverjir eru þekktir, eru
upp til hópa góðir og öllum ætti að
líða vel eftir að hafa horft á hana.
-HK
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri:
Lawrence Kasdan. Bandarísk, 2000.
Lengd: 111 mín. Leyfö öilum aldurshóp-
um.
This Year’s Love íjpra
Allir með öllum
icitir Á undanfomum árum hafa
nokkrar breskar myndir gert það
að verkum að visst breskt bíó er
að veröa til. Þetta eru myndir á
borð við Four Weddings and a
Funeral, Trainspotting og A Full
Monty. This Year’s Love sækir
nánast í alla flóruna og tekst það
bara nokkuð vel. Myndin er fynd-
in með gráglettnum húmor sem er
misgóður aö vísu en lunkinn þeg-
ar á heildina er litið.
í upphafi fylgjumst við með ung-
um brúðhjónum, Hönnu og Danny,
í brúðkaupi þeirra. Þetta hjóna-
band endist í nákvæmlega 35 mín-
útur. Þá sturtar brúðguminn brúð-
artertunni niður
og heldur á
brott. Ástæðan
er að hann hef-
ur frétt að hans
heittelskaða
hefur haldið við
svaramann
hans. Brúðhjón-
in fara hvort i
sína áttina og
hitta fjórar per-
nHIULA»iOUS..
''MMwvncagL'^ún cr nw
Years
Love
sónur sem eiga eftir að hafa mikil
áhrif á líf þeirra næstu sex árin.
Þegar flókin saga á í hlut þar
sem sex persónum er gert jafn hátt
undir höfði er oft erfitt að fá rétta
stígandi. Það tekst leikstjóra
myndarinnar, David Kane, með
ágætum þótt stundum verði botn-
fall í atburðarásinni. Leikarar eru,
að ég held, flestir skoskir og passa
vel í þær persónur sem þær túlka,
sérlega vel lék Ian Hart hlutverk
nörds sem nánast enginn þolir til
lengdar.
-HK
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: David
Kane. Bresk, 1999. Lengd: 104 mín.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
Auðhildur í gamla
Isafoldarhúsinu
Auður Sturludóttir og Ragnhildur
Magnúsdóttir opna sýninguna Auð-
hildi í Þingholtsstræti 5 laugardaginn
2. desember, kl. 17. Á sýningunni verða
bæði olíu- og akrýlmálverk.
Auður er ættuð úr Húnavatnssýslu
og málar myndir af fjöllum og hestum
þaðan. Hún málar með oliulitum á
jútustriga. Auður var 2 ár i Myndlista-
skólanum á Akureyri en útskrifaðist
úr Myndlista- og handiðaskóla Islands
árið 1999. Hún hélt sýningu í Kaupfé-
lagi Austur-Húnvetninga á Blönduósi í
sumar. Ragnhildur er uppalin á Akur-
eyri og útskrifaðist úr málunardeild
Myndlistaskólans á Akureyri vorið
1999. Hún var gestanemi í grafíkdeild
MHÍ 1997 og skiptinemi í listaskóla í
Lahti í Finnlandi 1998. Myndir hennar
eru af Öskjuvatni og Víti, málaðar með
akrýllitum á bómullarstriga. Ragnhild-
ur hélt einkasýningu í gallerí Ash í
Varmahlíð sumarið 1999.
Þetta er fyrsta sýning þeirra beggja
eftir skóla á höfuðborgarsvæðinu. Sýn-
ingarhúsnæðið er í Þingholtsstræti 5
en þar var verslunin Spaksmanns-
spjarir áður til húsa. Sýningin stendur
til 10. desember og er opin alla daga frá
14-18.
Auður og Ragnhlldur
Myndlistarkonur sem sýna undir yfirskriftinni Auöhildur.
Hvaða dekk er betra í snjó
en nagladekk?
Svarið er: Bridgestone Blizzak
Þegar þú velur þér vetrardekk, snýst sú ákvörðun fyrst og fremst um öryggi.
Dekkið sé það fjölhæft að eiginleikar þess dekki allar aðstæður, en ekki bara
undantekningatilvik. Bridgestone Blizzak er sérstaklega hannað fyrir norðlægar slóðir
og hin einstaka tækni, sem var notuð við hönnun þess, gefur ótvíræða kosti:
Betri aksturseiginleika, meiri stöðugleika, minni eldneytiseyðslu, betri endingu,
auk þess sem þau eru hljóðlátari og afburðargóð í snjó og hálku.
Þar fyrir utan veldur notkun þess ekki hávaða- og loftmengun og gríðarlegum kostnaði
og óþægindum við lagfæringu gatnakerfisins á hverju ári.
Sparaðu naglana og sparaðu aurinn
- veldu dekkið sem var hannað fyrir þær aðstæður sem við búum við.
bliL
b.irrt CnlAr Quntl
/ grafínu eru bomar saman tvær gerðir dekkja frá
Brídgcstonc. Nagladekkln hefa vlnnlnglnn f mlkllll
hálku en fmmmlstaða þeirra er að öðru leyti ábemndl
slök I samanburðl vlð BLIZZAK dekkln.
• Frábær I snjó og hálku
• Meiri stööugleiki
• Miklu hljóölátari
• Betri aksturseiginleikar
• Minni eldsneytiseyösla
• Aukin þæglndi og betri ending
• Gói allt áriö
StMDGESTOnE
UMBOÐSAÐILI:
BRÆÐURNIR
^MSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is