Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Page 63
I
w
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Tilvera
DV
Tvær plötur og tónleikar hjá Tómasi R. Einarssyni:
Fjölbreytni kemur í
veg fyrir leiða
Tómas og félagar
Tómas R. Einarsson ásamt félögum sínum sem leika meö honum á sunnudagskvöld. Honum á hægri hönd er Jóel
Pálsson saxófónleikari og honum á vinstri hönd eru Eyþór Gunnarsson píanóleikari og Matthías
Hemstock trommuleikari.
Kontrabassaleikarinn og eitt okkar
afkastamesta djasstónskáld, Tómas R.
Einarsson, er stórtækur á hinum
harða plötumarkaði fyrir þessi jól og
sendir frá sér tvær plötur, sem hafa
þegar vakið verðskuldaða athygli.
Plötumar eru í draumum var þetta
helst, þar sem hann leikur ásamt
kvartett frumsaminn djass við ljóða-
flutning Einars Más Guðmundssonar
á eigin ljóðum, og Undir4, þar sem
Tómas hefur fengið til liðs við sig
danska trompetleikarann Jens
Winther, Eyþór Gunnarsson, Matthí-
as Hemstock og Jóel Pálsson í flutn-
ingi á nýjum verkum eftir hann.
Verkin voru flutt á konsert á síðustu
Djasshátíð í Reykjavik. Á sunnudags-
kvöldið ætlar hann að fylgja plötun-
um eftir með tónleikum í Kaffi
Reykjavík á vegum Djassklúbbs Múl-
ans.
í stuttu spjalli sagði Tómas að á
tónleikunum myndi hann leggja
áherslu á Undir4 og væru þeir sem
spiluðu með honum á plötunni fyrir
utan Jens Winther, með honum:
„Einar Már mun síðan koma til liðs
við okkur í lokin og lesa nokkur
ljóð.“
Það vekur athygli hversu þessar
tvær plötur eru ólíkar: „Það er nú
einmitt ástæðan fyrir því að þær
koma báðar út. Ég og útgefandi minn
vorum sammála um að þær myndu
ekki rekast á hvora aðra. Þó má segja
að þær hafi ýmislegt sameiginlegt,
meðal annars það að ég og félagar
mínir Eyþór Gunnarsson og Matthías
Hemstock eru á báðum plötunum.
Fyrir mig sem tónskáld var þetta
tvennt ólíkt. Á plötunni með Einari
Má tók ég mið af kveðskap hans, en
ég samdi lögin á Undir4 án nokkurra
utanaðkomandi áhrifa."
Það er orðið langt síðan Tómas hef-
ur sent frá sér plötu þar sem áhersla
er lögð er á blásturshljóðfæri: „Það
voru blásarar í einstökum lögum á
Landsýn, en Undir4 er fyrsta plata
mín þar sem blásarar eru í fremstu
víglínu frá því ég sendi frá mér ís-
landsfór 1991, þar sem básúnuleikar-
inn Frank Lacy og Sigurður Flosason
voru í aðalhlutverki. Ég hef alltaf
reynt í mínum verkum að sýna fjöl-
breytni, ef ég gerði það ekki yrði ég
fljótt leiður á sjálfum mér.“
Þegar þessari tónlistarskorpu lýk-
ur hjá Tómasi ætlar hann að hugsa
sér til hreyfmgs: „Ég ætla að setjast
að í Sevilla á Spáni og dvelja þar í
hálft ár. Þar ætla ég að leggjast í híði
með kontrabassann og semja.“
Má þá ekki búast við að næsta
plata Tómasar verði undir sterkum
flameco-áhrifum?: „Ég kem kannski
steppandi heim, en varla með fla-
menco í farangrinum, þvi það er mjög
lítil hefð fyrir kontrabassanum í
slíkri tónlist."
-HK
JolatiWoö
Leðursófasett - margír litir
Sófasett 3+1+1 Sófasett 3+2+1
kr. 159.000.-stgr.
kr. 179.000.-stgr.
Opið laugardag 10 - 16 og sunnudag 14-16
□ □□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100