Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Side 64
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 Tilveía JOV Hjarta bæjarins Café Amour myndar skemmtilega tengingu viö Ráöhústorgiö, hjarta Akureyrar. Café Amour - nýjasti veitingastaðurinn á Akureyri: í hjarta bæjarins Viöur, gter og stál Inngangshurö staöarins er voldug, tæpir þrír metrar á hæö og iýsandi fyrir efnisvaliö þar sem viöur, gler og stál vinna saman. Rjótandi barlýsing Barinn er klæddur blámuöu stáli. Bar- borð er úr~ gleri og lýs- ingin gerir þaö aö verk- um aö hún viröist fljóta fyrir ofan bar- inn. 81 i ii j|- ó ; iiKji. • , Hl H', > , ! ■ NK :,í $ d DV, AKUREYRI:_______________________ Fyrir skömmu var opnað nýtt kafííhús við Ráðhústorgið á Akur- eyri. Staðurinn ber nafnið Café Am- our og er aðlaðandi kaffihús þar sem boðið er upp á léttar veitingar á daginn en breytist síðan í rólegan bar á kvöldin. Neðri hæðin myndar skemmtilega tengingu við Ráðhús- torgiö sem lifnar við á kvöldin þeg- ar gestir fylla staðinn. Á efri hæð- inni er hægt að vera meira út af fyr- ir sig og möguleiki að leigja þann sal út til fyrirtækja og hópa. Vekur athygli Þegar komið er inn á Café Amour er gengið inn um glæsilegar háar dyr og þegar inn er komið vekur fyrst athygli málverk sem þekur loft jarðhæðarinnar. Málverkið er eftir listamanninn Birgi Rafn Friðriks- son og sækir hann innblásturinn í nafn staðarins. Hönnun er nútíma- leg, með rómantískum blæ þar sem efnisval og samsetningar leika stórt hlutverk. Stál og gler spilar á móti gamalli eik og einnig fanga mynd- verk og lýsing augað. Spegill sem þekur enda- vegginn stækkar rýmið um helm- ing. Textar í sandblásnum flötum í gluggum og öðru gleri eru teknir úr ljóðum íslenskra skálda. Þegar upp á næstu hæð er komið taka við stórir djúpir leð- ursófar og þykk flauelsglugga- tjöld; stemningin býður upp á kaffi og koníak. Innar er að finna lítinn sal með stólum og borðum þar sem stórt myndverk eft- ir Tolla prýöir einn vegginn. Arki- tektamir sem sáu um hönnun stað- arins eru þau Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson hjá EON-arkitektum. Tónlistinni stillt í hóf „Okkur fannst vanta stað eins og DV-MYND GK Framkvæmda- maöurinn Elís Árnason einn af eigend- um og fram- kvæmdastjóri Café Amour. Ustaverk í loftlnu Listamaöurinn Birgir Rafn Friöriks- son á heiöurinn af málverkinu í loftinu oggefur það staönum listrænan blæ. þennan á Akureyri og þess vegna ákváðum að setja upp stað þar sem fólk getur haft það huggulegt í skemmtilegu umhverfi. Við leggj- um áherslu á að fólk geti talað sam- an og tónlistin taki ekki öll völd,“ segir Elís Ámason, framkvæmda- stjóri og einn af eigendum veitinga- staðarins Café Amour sem var opn- aður á Akureyri fyrir skömmu. Fólk hefur haft orð á því að loks- ins sé komið kaffihús á Akureyri þar sem tónlistin sé þannig stillt að hægt sé að tala saman án erfiðleika á meðan veitinga er neytt. Eftir klukkan 23 um helgar breytist and- rúmslóftið hins vegar nokkuð og kráarstemningin tekur við, þó þess sé gætt að stilla tónlistinni þannig í hóf að hún sé ekki alveg ráðandi. „Staðurinn er léttur og skemmti- legur og mjög vel vandaö til bæði innréttinga og húsgagna. Við lögð- um talsvert í þetta,“ segir Elís. Hann segir húsnæðið vera um 220 fermetra. Þar er rými fyrir 90-100 gesti og von er á stækkun áður en langt um líður. -gk/aþ ■ Dodge Carauan BASE Fjöllin, haustið og peran á borðinu: Falsaði mynd eftir Ásgrím skr. '97,ekinn 47 þús. km, sjálfsk., 4 dyra, 7 manna. Gullfallegur bíll. Verð kr. 1.790.000,- tilboð kr. 1.490.000,- Sjón er 'U ríkari. EVROPA BILASALA tákn um traust Faxafen 8 / Simi 581 1560 / Fax 581 1586 www.evropa.is Opid alla helgina. Undanfarið hefur Jón Axel Egilsson myndlistarmaður sýnt vatnslitamyndir í Bókasafni Seltjamar- ness. Þetta er fyrsta einkasýning Jóns Axels en hann er þekktur fyr- ir auglýsingar og teiknimyndir. Jón segir að sýningin nefnist Fjöllin, haustið og per- an á borðinu. „Á henni er meðal annars að flnna myndir af fjalla- hringnum eins og ég sé hann af Seltjamames- Tilvaliö að læra af gömlu meisturunum Jón Axel Egilsson myndlistarmaður sýnir vatnslita- myndir í Bókasafni Seltjarnarness. inu. Ég mála einnig haustið og lífið í kringum mig eins og ég sé það. Verk gömlu meistaranna eru mér mjög hugleikin svo ég gerði það að gamni mínu að „falsa“ mynd af Svínafelli í Öræfum eftir Ásgrím Jónsson sem er í eigu Listasafns ís- lands. Erlendis er algengt að sjá mynd- listarnema mála eftir myndum á listasöfnum en þetta er nánast óþekkt hér á landi og mér finnst að fólk eigi að gera meira að því til að þjálfa sig. Ég er enn að læra að mála með vatnslitum og tel mig hálfnað- an með námið þannig að þetta er eins konar halv-vej fest hjá mér.“ Sýningin stendur tÚ 9. desember og einnig má skoða hana á Netinu á www.greendoor.is. Medea Nýstárleg uppfærsla. Nýstárleg uppfærsla Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu leikfélagsins Fljúgandi Fiska á nýrri leikgerð á gríska harmleiknum Medeu eftir Evrípídes í leikstjóm Hilmars Oddssonar í Iðnó. Medea var framsýnd við frábærar undirtektir þann 17. nóvember. Uppsetningin er nýstárleg, notast er við margmiðlun þar sem kvikmynd, ljós og leikur mynda sterka heúd og mögnuð tónlist hins breska Jonathans Cooper leikur þar stórt hlutverk. Jonathan leikur einnig lifandi tónlist í sýningunni en hann verður því miður að hverfa af landi brott vegna annarra verkefna í London. Þar af leiðandi verða sýningar á Medeu ekki fleiri á íslandi. Tveir leikarar fara með hlutverk i sýningunni, Þórey Sigþórsdóttir og Valdimar Öm Flygenring. Síðasta sýn- ing verður í Iðnó annað kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.