Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2000, Qupperneq 65
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
Tilvera
X>V
Rokkkóngur í Noregi:
Elvis sár-
langar til
íslands
DV. GARDERMOEN: ____________
„Eg hef lengi haft áhuga á aö
koma til íslands og spila. Tækifærið
hefur bara ekki enn komiö,“ segir
Norðmaðurinn Kjell Elvis, 32ja ára,
sem heillað hefur landa sína upp úr
skónum með töktum að hætti
rokkkóngsins frá Memphis. Þá þyk-
ir Kjell sláandi likur fyrirmyndinni
á yngri árum.
Norski Elvis, sem reyndar er
stundum kallaður Kjelvis, segist lít-
ið vita um íslenskt tónlistarlíf.
„Ég veit aðeins um Björk en ekk-
ert umfram það. Það væri áhugavert
að kynna sér það,“ sagði Elvis sem
hafði nóg að gera við að gefa eigin-
handaráritanir á Gardermoenflug-
velli þar sem DV ræddi við hann.
Aðspurður sagðist Elvis, sem er
frá Lindesnes í Suður-Noregi, hafa
góða afkomu af því að spila.
„Ég byrjaði á þessu 19 ára og þéna
vel. Ég hef eöii á að vera með mann
í fullri vinnu við að skipuleggja tón-
leika og önnur mál,“ segir Elvis sem
er tíður gestur í norskum fjölmiðl-
um.
„Ég þarf að drífa í því að fara til
íslands," sagði Elvis í sömu svifum
og hann gaf enn eina eiginhandará-
ritunina. -rt
DV-MYNÐ REYNIR
Norskur Elvis
Á sér þanri draum aö spila á íslandi.
Kisan í Brynju
Efeigandinn þekkir kisuna sína á myndinni getur hann komiö og sótt hana í
verslunina.
Gaut fjórum kettlingum í bakhúsi verslunar:
Starfsmenn færa
kisu mat í rúmið
Það var óvenjuleg sjón sem mætti
starfsmanni litlu prentsmiðjunnar
sem er bak við verslunina Brynju
við Laugaveg. Fljótlega eftir að
hann kom til vinnu á mánudags-
morgun heyrði hann ámátlegt tíst
úr kompu sem er við innganginn.
Þegar maðurinn fór að athuga mál-
ið fann hann fjóra nýgotna kettlinga
í pappírshrúgu. Læðan hafði greini-
lega orðið hrædd þegar hún heyrði
umganginn og falið sig en kom fljót-
lega aftur þegar maðurinn færði sig
frá kettlingunum.
Starfsmenn Brynju hafa lagt sig
alla fram við að gera lífið sem auð-
veldast fyrir læðuna og kettlingana.
Þeir hafa útbúið fyrir hana kassa og
færa henni mat í rúmið. Jói kattar-
hirðir segir að hann sé viss um að
þetta sé heimilisköttur sem hafi
villst að heiman. „Ef eigandinn
þekkir kisuna sína á myndinni get-
ur hann komið og sótt hana til okk-
ar. Við erum reyndar búnir að finna
heimili fyrir tvo kettlinga en erum
enn í vandræðum með hina.“
-Kip
Laugardagar
eru nammidagar
^^Smáauglýsingar
sölutilkynningar
og afsöl
550 5000
IMÝ SENDING á rýmingarsöluna
Ulpur m/fleece:
Fleece-peysur:
íþr.gallar m/2 buxum:
Puma-skór, st. 39-42:
Inniskór m/frönskum rennilás:
Aöur 13.900
Áöur 8.900
Áöur 4.990
Áöur 7.990
Áöur 3.990
Nú 6*990 ^ Barnaúlpur kr. 1.190-3.990
NÚ 3*990 ^ Stakar stærðir 500-1.990
Nú 2.990
Nú 990
Nú 1.490
I
SPAR SPORT
TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI
Opið laugardag kl. 10-18,
sunnudag kl. 11-17
T
Nóatúni 17, sími 511 4747