Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2000, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2000, Blaðsíða 3
Þessar bækur „Afrek“ Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra nánast samfleytt frá 1983-1991 og síðan seðlabankastjóri um nokkurra ára skeið. í bók þeirra Dags B. Eggertssonar, Forsætisráðherrann, fjallar Steingrfmur um þessi viðburðaríku ár; greinir frá baktjaldamakki við stjórnarmyndanir, sögulegum stjórnarslitum, harðvítugum átökum við andstæðinga og samherja og opnar lesendum dyr að heimi stjórnmálanna sem hingað til hafa verið luktar. „Mjög áhugaverð saga og gaman að lesa hana. Dagur gerir þetta mjög vel.... Á eftir að vekja mikla athygli og mikla umræðu." Kolbrún Bergþórsdóttir, ísland í bítið „Helsti kostur þessarar ævisögu er að Steingrímur er lausmáll og sér enga ástæðu til að þegja yfir ýmsu sem hingað til hefur veríð óstaðfest... ævisaga þessi er óvenju vönduð og efnismikil. Hún hlýtur að einhverju leyti að verða fyrirmynd annarra ævisagna stjórnmálamanna sem á eftir koma ..." Ármann Jakobsson, DV „Það er ekki frítt við að ég fái snert af fortíðarfíkn við að lesa bókina." Egill Helgason, strik.is „Afrek ... í hnotskurn: Mjög áhugaverð og vel unnin frásögn af litríkum stjórnmálamönnum á umbrotatímum." Hrafn Jökulsson, Kastljós Tír i 7 „Skemmtileg aflestrar“ Hér ræða fimm þjóðkunnir forystumenn opinskátt um líf sitt og feril í meðvindi og mótbyr: Vigdís Finnbogadóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttír, Davíð Oddsson, Hörður Sigurgestsson og Kári Stefánsson. í lok bókarinnar fjallar höfundurinn, Ásdís Halla Bragadóttir, um listina að vera leiðtogi og leitar meðal annars svara við spurningunum: Hvað þarf til að verða leiðtogi? Hvernig nær leiðtoginn árangri? „Úttektin á leiðtogaeiginleikum út frá viðtölum í lokin er gagnleg og skynsamleg. Viðtölin sjálf eru skemmtileg aflestrar og þar kemur margt fram sem ég man ekki eftir að hafa séð á prenti áður.“ Ármann jakobsson, DV VAKA- HELGAFELL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.