Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 27
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
27
DV
Helgarblað
Nokkrir Portenos, eins og íbúar
Buenos Aires nefna sig, brostu
breiöu brosi og fullyrtu að vorið
vœri komið þegar Halldór Ás-
giimssón utanríkisráðherra lagði
stóra blómaskreytingu aó stalli
minnismerkis San Martins herfor-
ingja, frelsishetju Argentínu. Þetta
var tiltölulega snemma dags sam-
kvœmt tímaskyni Portenosa. í
borginni fara menn ekki að taka
við sér fyrr en síðla dags. Fjöl-
skylduboð hefjast jafnvel ekki fyrr
en um lágnœttið og standa fram
til morguns.
Hitinn var kominn upp í rúm-
lega 20 stig þrátt fyrir að sumar-
dagurinn fyrsti væri ekki fyrr en
þann 25. september. Hitinn virtist
eiga vel við íslendingana í fylgd-
arliði ráðherrans. Þeir stóðu
sperrtir og brjóstuðu sig, eins og
giímumenn á ungmennafélags-
móti, á meðan heióursverðir hers-
ins svitnuóu undan stórum og
skrautlegum hjálmunum.
Draumurinn sem brást
Á fánastöngum umhverfis minnis-
merkið um San Martin voru fánar
Argentínu og íslands við hún en að-
eins neðar blakti fánaborði með mynd
af bláum fugli með útbreidda vængi.
Neðan við fuglsmyndina voru funm
kunnuglegir hringir, Ólympíu-
hringimir. Þetta var merki Ólympíu-
andans og bjartsýni Portenosa í sam-
bandi við keppnina um að fá leikana
til Buenos Aires árið 2004.
Á torginu sögðu menn að þetta allt
væri dæmigert fyrir Argentmu. Á sól-
ardögum opinberra hebnsókna væri
allt bjart og fallegt - jafnvel Ólympíu-
leikamir væm taldir vera hinum meg-
in við torgið. En á morgun húrraði
hitastigið niður í 5 stig og Portenosar,
sem væm nú að bjóða í leikana í
fimmta sinn, tryðu því ekki sjálflr að
leikamir kæmu nokkm sinni til borg-
arinnar, þó svo að Argentína væri
einn af stofnendum Alþjóða Ólympíu-
nefndarinnar árið 1894 og eina stofn-
landið sem ekki hefði staðið fyrir
Ólympíuleikum á heimavelli.
Svartsýni, tregi og hæðni
Þessi hugsunarháttur er dæmigerð-
ur fyrir Argentínubúa og sérstaklega
Portenosa. Þeir velta sér upp úr svart-
sýni, trega og hæðni. Til dæmis má
nefna hæðnina sem má finna á Plaza
del Liberator, þar sem annars vegar
stendur hár klukkutum, „Enski tum-
inn“, sem Bretar gáfu borgarbúum
þegar þeir yfirgáfu landið fyrr á öld-
inni. Hins vegar hefur verið reist
skeifulaga minnismerki sem gætt er af
heiðursvörðum hersins dag og nótt. í
skeifuvegginn em greyptar tuttugu og
sex granítplötur með nöfhum þeirra
sem féllu í styrjöld Argentínu um
Maldíveyjar við Breta sem nefiia eyj-
amar Falklandseyjar.
Þama á torginu blasir við breiðasta
breiðgata heims, Avenida del
Liberator, en Portenosar segja að
breiðgatan þeirra sé fimm sentímetr-
um breiðari en þær breiðustu í Evr-
ópu! í raun og vem er Buenos Aires
sjálf eins konar minnismerki um gaml-
ar evrópskar hefðir, bæði í skipulagi
og byggingarlist.
Portenosamir era 12,5 miiljónir tals-
ins og er ekki hægt að segja annað en
þeir búi vel. Borgin þeirra er mjög fal-
leg hvar sem á hana er litið. Nýtt kerfi
neðanjarðarlesta verður tekið í notkun
innan þriggja ára en samgöngur innan
borgarinnar em tæknilega mjög fuil-
komnar.
Buenos Aires telst vera ein af ömgg-
ustu stórborgum heims en svokölluð
glæpatíðni er tiltölulega lág - sé miðað
við borgir með sambærilegan fólks-
fjölda.
Hershófðingjar og frimúrarar
Argentínumenn halda minningu
San Martins mikið á lofti. Hershöfð-
inginn vann sér það meðal annars til
ágætis að reka Spánverja frá Suður-
Ameríku, eftir því sem sagt er. íslenski
ræðismaðurinn í Argentínu, Snr. Walt-
er r Itonski, bráðskemmtilegur sögu-
maður og stórvinur margra ágætra
landa okkar, segir að það hafi í raun
verið Símon Bolivar og San Martin
Olafur Stephensen jassleikari heilsar lifandi myndastyttu í Buenos Aires
Viö nðna athugun kom í Ijós að hér voru argentínskir og ítalskir leikarar í samstarfi um myndastyttu-
leik. Leikurinn var geröur til þess að safna peningum til styrktar sjúkum börnum.
Hann hefur aldrei
sungið betur
- um Ara Alexander og þjóðhetjur í Buenos Aires
sem skiptu með sér verkum í brott-
rekstri Spánverja.
„Þegar þetta þarfaverk var á enda
mættust þeir hershöfðingjamir í Úrú-
gvæ og öll álfan stóð á öndinni. Nú var
búist við blóðugri styrjöld á milli herja
þessara mUdu hershöfðingja," sagði
ræðismaðurinn um leið og hann bauð
mér lútsterkt espresso-kaffi.
„Hershöfðingjamir hittust, tókust í
hendur á dálítið sérkennUegan máta,
klöppuðu hvor öðrum á bakið og
sögðu: „Helv... var þetta gott hjá okk-
ur, bróðir!“ Síðan héldu þeir hvor sína
leið og herliðamir vora sendir heim.
Þetta sýnir greinUega hvað Frímúrara-
reglan getur látið gott af sér leiða. Þeir
voru nefnUega frímúrarabræður, karl-
amir!“ sagði ræðismaðurinn og glotti.
íslenski Jakútinn og skáldið
Borges
Athöfiiin við minnismerki San
Martins, hershöfðingja og frelsishetju
þjóðarinnar, tók ekki nema nokkrar
minútur. Að henni lokinni bauð utan-
rikisráðherra Argentínu, Snr. DiTella,
tU hádegisverðar tU heiðurs utanríkis-
ráðherra íslands. Meðal gesta var Mar-
ía Kodena, ekkja þjóðskáldsins og ís-
landsvinarins J.L. Borges. Frú María
Kodena bauð síðan íslenskum gestum
í heimsókn í stofnun sem ber nafn
skáldsins.
Vinir mínir og ferðafélagar, þeir
Tómas og Guðmundur, vom svo skotn-
ir í frúnni að Tómas setti upp hom-
spangagleraugu og þverslaufu og fékk
að fara með sem túlkur. Guðmundur
setti aftur á móti myndavélina um
hálsinn og lék ljósmyndara af mikilli
innlifun.
Á sama tíma var íslenski Jakútinn
Ari Alexander Ergis Magnússon
myndlistarmaður að paufast við upp-
stiUingu á málverkum sínum i menn-
ingarmiðstöð Buenos Aires í Recoleta.
Þessi óvænti hiti að vetrarlagi bætti
ekki úr skák en Ari Alexander var bú-
inn að ganga í gegnum miklar hremm-
ingar í sambandi við flutning rúmlega
þrjátíu málverka frá íslandi tU Argent-
ínu. Sýningin í Recoleta var fyrsta sýn-
ing íslensks listamanns í Árgentínu
eftir því sem best er vitað.
Fingraför Peróns
í Recoleta búa auðugustu fjölskyld-
ur borgarinnar. Þar em dýrustu veit-
ingastaðfrnir, faUegustu húsin, fínustu
verslanfrnar og obbinn af þotuliðinu
svokaUaða sem býr ekki í Recoleta
nema að nafninu tU. Það er aUtaf á
ferðinni á mUli helstu heimsborganna,
veisluhótelanna og skemmtistaðanna.
Við sýningarsal Ara Alexanders var
útsýni yfir grafreit hinna auðugu. Þar
geta ekki aUir fengið sína hinstu hvUu
- síður en svo.
Eina undantekningin, ef svo mætti
segja, er vel smurður líkami Evu nokk-
urrar Perón sem gerði sitt besta tU að
ná peningum af hinum ríku!
Perón hershöfðingi, eiginmaður
Evítu, hvUir aftur á móti í La
Chacarita, þar sem hans er vandlega
gætt. Ekki er það nú stjómmálalegt
stofufangelsi eins og ætla mætti heldur
er það vegna þess að fyrir nokkrum
árum bmtust einhverjir dónar inn i
líkhús Peróns og stálu af honum hönd-
unum. Ekki hefur tekist að hafa uppi á
höndum Peróns né að finna ástæðu
þessa óhugnanlega glæps. Ein af
kjaflasögunum sem gengur meðal Por-
tenosa er að höndunum hafi verið
stolið til þess að nota fingraforin við
úttektir af leynireikningum í Sviss.
Ekki er öll vitleysan eins.
Rétt við La Chacarita er einn fræg-
asti tangóklúbbur landsins. Portenosar
taka tangódansinn alvarlega. Það þóttu
því mikil tíðindi þegar einn af ferðafé-
lögum okkar tók sig tU eitt kvöldið og
sýndi argentínsku þjóðinni hvemig
ætti að dansa tangó! Fagnaðarlætin í
tangóklúbbnum, sem stóðu í rúmlega
tíu mínútur, vom þau mestu sem
heyrst hafa þar um slóðir.
Tveir pakkar á dag!
Það er ekki hægt að skUja við spjaU
um grafreiti í Buenos Aires án þess að
minnast lítUlega á hina ástsælu
stjömu og tangósöngvara Carlos Gar-
del. Gardel hefur því sem næst verið
tekinn í guðatölu. Ef rætt er um Gar-
del á almannafæri er það gert í hálfum
hljóðum og af mUcUli virðingu, líkt og
eiturlyfjafikiar lækka róminn inni í
apótekum.
Tangósöngvarinn, sem lést í flug-
slysi fyrir 65 ámm, er enn þá meðal
þeirra sem selja flestar hljómplötur í
Suður-Ameríku. Hann er enn þá vin-
sælasti alþýðulistamaður Argentínu,
án nokkurs vafa.
Við grafhýsi Gardels, sem er fagur-
lega skreytt með lUcneski af grátandi
gyðju tónlistarinnar, er sífeftt verið að
leggja blómvendi og skilaboð með
þakklæti fyrir að bregðast skjótt við
áheitum o.s.frv.
Gardel var mikUl reykingamaður. Á
sínum tima var hann svo að segja
aUtaf með vindling á milli fingranna.
Við grafhýsið er stytta af Gardel í
fullri líkamsstærð. Við styttuna stóð
ungur pUtur, varla meira en 14 ára,
sem kom logandi sígarettu fyrir í
hægri hendi goðsins.
„Hann reykir næstum því tvo pakka
Ferðafélagar í Suður-Ameríku
við útflutning á jassi
Tómas R. Einarsson á bassa og
Guömundur Steingrímsson á
trumbur. Heit tónlist í heitu
loftslagi.
á dag,“ sagði pUturinn hróðugur - „og
hann hefur aldrei sungið betur!“
Gamlar heföir, pitsubotnar og
myndastyttur
Annars er Recoleta eins og volgt
vatnsrúm, sagöi góður Portenosi.
„Maður sekkur ofan í umhverfið
eins og í mjúkt rúm sem því næst
gleypir mann. Þess vegna eigum við
svona erfitt með að fara á fætur fyrri
hluta dags!“
Recoleta minnir mig, þrátt fyrir
ríkidæmið, aUtaf á gamlar og jafnvel
úreltar evrópskar hefðir sem enginn
hefur not fyrir. Þegar maður fer í
burtu gerir enginn sér grein fyrir því
að maður er farinn og þegar maður
kemur aftur hefur enginn áhuga á því
að vita hvar maður hefur verið. Meiri-
hluti íbúanna er af ítölsku bergi brot-
inn og þess vegna em pitsubotnamir
betri hér en annars staðar! Sannarlega
mikilsverðar upplýsingar fyrir þá sem
ætla að heimsækja Buenos Aires.
Samband Portenosa og ítala er nán-
ara en flesta grunar. Allmargir tala
ítölsku og spænskan þeirra er með
syngjandi framburði sem líka á rætur
sínar að rekja til ítölskunnar. Á Flór-
ídastræti, helstu verslunargötu Buen-
os Aires, þar sem hver tískuverslunin
tekur við af annarri, líkt og á 5th
Avenue i New York, vom snjóhvítar
myndastyttur á öðm hveiju homi. Við
nána athugun kom í ljós að hér vom
argentínskir og ítalskir leikarar í sam-
starfi um myndastyttuleik. Leikurinn
var til þess gerður að safna peningum
til styrktar sjúkum bömum. Ef til vill
er hér góð hugmynd fyrir Félag ís-
lenskra leikara. Það væri ekki ónýtt að
fá til dæmis þá Rúrik Haraldsson og
Róbert Amfinnsson til að leika mynda-
styttur í Lækjargötunni einhvem tim-
ann í vetur!
Ólafur Stephensen