Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001
Fréttir
DV
„2ja gáma“ smyglmáliö sem kennt hefur verið við Jenkins-vodka frá Ameríku:
„Ekki ögn“ af sönnun-
um gegn tollverðinum
Dómkirkjan
Dýr viðgerö hvílir á sóknarnefndinni.
- segir verjandi. Saksóknari bendir á „stöðugt símasamband“ við innflytjanda
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi
fyrrum tollvarðar sem ákærður er fyr-
ir að hafa aðstoðað félaga sinn við
innílutning á tveimur gámum af
áfengi, samtals 17 þúsund lítrum árið
1996, segir að ákæruvaldið hafi ekki
sýnt fram „á ögn“ af sönnunum gagn-
vart skjólstæðingi sínum. Hann krafð-
ist sýknu til handa tollverðinum fyrr-
verandi fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Maðurinn, sem er 37 ára, sat
í mánaðar gæsluvarðahaldi á sínum
tíma.
Óþolandi tafir - sjónarspil
Verjandi aðalsakborningsins í
smyglmálinu, sem hefur viðurkennt
innflutninginn í meginatriðum, lagði
áherslu á í varnarræðu sinni í gær að
óþolandi væri með hiiðsjón af réttar-
farsreglum að sakborningar hafi þurft
að bíða í fjögur ár eftir rannsóknar-
niðurstöðum. Ríkistollstjóri krefur
umbjóðanda hans um 41 milijón
króna i vangreidd aðflutningsgjöld
vegna beggja áfengisgámanna. Toll-
vörðurinn fyrrverandi og þriðji aðili
eru krafðir um 8 milljónir króna af
þeirri upphæð ásamt aðalákærða.
Jón Snorrason, saksóknari hjá rík-
Ottar Sveinsson
blaðamaður
islögreglustjóraembættinu, hélt því
fram í sóknarræðu sinni að tollvörð-
urinn fyrrverandi hefði vitað að
gámaflutningar frá Eimskip yfir í
Tollvörugeymslu og þaðan yfir á
geymslusvæði við Langholtsveg hefði
verið sjónarspil. Hann talaði um
skeytingarleysi tollvarðarins í starfl
sínu og benti dómnum á að í málinu
verði að byggja á atburðum sem snúa
að tollvörðum og starfsfólki Eimskips
sem þótti framkoma tollvarðarins
grunsamleg á vinnusvæðum í Sunda-
höfn.
Þetta telur verjandi tollvarðarins
Fyrrum tollvörður og félagi hans ákærðir vegna tveggja áfengisgáma
Sækjandinn í áfengissmyglmálinu heldur því fram að tollvörðurinn fyrrverandi
hefði vitað að flutningur á gámi frá Eimskip yfir á svæði Tollvörugeymslunnar
hefði verið sjónarspil. Verjandinn segir ákæruvaidið hins vegar engar sannan-
ir hafa lagt fram um sekt tollvarðarins.
fyrrverandi hins vegar á engan hátt
sýna fram á sekt mannsins - beinar
sannanir skorti.
„Einhverjir varahlutir"
Sækjandinn sagði að með hliðsjón
af símaútskriftum, sem sýna fram á
samtöl á milli aðalákærða og tollvarð-
arins fram til miðnættis og strax að
morgni þegar verið var að flytja gám-
inn á milli svæða, sýni að þar hafi far-
ið fram samræður um gáminn - ekki
einungis um „einhverja varahluti frá
Ameríku“ eins og ákærðu hafi haldið
fram.
Þessu mótmælir verjandinn einnig
og leggur áherslu á að ekki hafi verið
sýnt fram á að í þessum samtölum,
sem vissulega voru ekki hleruð, hafi
átt sér stað eitthvað sem saknæmt er
í sambandi við umræddan gám sem
kom frá New York. Hinn gámurinn
kom hálfu ári fyrr til íslands frá
Frakklandi. Þar er aðalasakborning-
urinn einn ákæröur fyrir innflutning-
inn 'en tollvörðurinn fyrir að hafa
veitt honum liðsinni innan starfs-
svæðis síns.
Sumt fer eftir þorsta!
í málinu eru sjö menn ákærðir.
Þriðji maðurinn, sem gefið er að sök
að hafa staðið að innflutningnum á
gámnum frá New York, sagðist fyrir
dómi hafa tekið við 6-7 kössum af
áfengi fyrir 3-4 klst. vinnu við að bera
gáma á milli og yfir í bíla á framan-
greindu geymslusvæði við Langholts-
veg. Að öðru leyti kæmi hann hvergi
nálægt málinu.
Þetta segir Jón Snorrason saksókn-
ari „vel í lagf‘ að fá slík kynstur af
áfengi í vinnulaun fyrir ekki lengri
tíma. „En það fer auðvitað eftir þorsta
manna,“ sagði sækjandinn og hélt því
fram að vafi léki ekki á að með hlið-
sjón af þessu væri umræddur maður
einnig ásamt hinum aðalaðili að inn-
flutningi á gámnum.
Gögn máttl ekki afhenda
Lögreglumenn sem komu fyrir dóm,
tveir fyrrum starfsmenn RLR, stað-
festu að ástæða þess að málið dróst
eins og raun bar vitni hefði verið sú að
lögreglan hefði óskað eftir því að fá í
hendur rannsóknargögn frá Bandarikj-
unum vegna áfengiskaup-anna þar.
Þetta var gert i því skyni að varpa ljósi
á hvort tollvörðurinn fyrrverandi hefði
staðið að innflutningi á gámnum líka
og framangreindur þriðji maður. Fyrir
tæpum tveimur árum barst lögreglu
síðan bréf frá flármálaráðuneytinu þar
sem fram kom að gögn frá Bandaríkj-
unum varðandi umrætt mál hefðu
borist til iandsins - hins vegar mætti
ráðuneytið ekki afhenda þau í ljósi tví-
sköttunarsamnings á milli landanna.
„Ég hef ekki hugmynd um hvað hún
leiddi í ljós,“ sagði iögreglumaður frá
ríkislögreglustjóra spurður um hver
rannsóknarniðurstaðan frá Bandaríkj-
unum hefði verið.
Þar með sagði lögreglumaðurinn að
útséð hefði verið með frekari rann-
sókn hvað þetta varðaði. Verjendur
gagnrýndu að miðað við þetta bréf -
sem barst i júní 1998 - hefði verið
hægt að ljúka rannsókn þessa máls
miklu fyrr. Annar lögreglumaður sem
kom fyrir dóminn sagði að burtséð frá
svörum sem vantaði frá Bandaríkjun-
um hefði smyglmál þetta í raun verið
fullrannsakað árið 1997.
Mér þykir vodki góður
Bróðir eins sakborninganna -
sem ákærður er fyrir að hafa keypt
280 kassa af áfengi - sagði dóminum
frá því í gær að hann viðurkenni að
hann hefði spunnið upp „frambæri-
lega lygasögu" í upphafl málsins -til
að taka sök á sig til að forða bróður
sínum frá því að fara halloka í við-
skiptum. Hann reyndar viður-
kenndi líka að sér þætti vodki góð-
ur og gagnrýndi ákæruvaldið fyrir
að vera að tyggja á hlutunum í dóm-
salnum. Hann gagnrýndi einnig lög-
reglu fyrir að hafa yfirheyrt föður
sinn, mann sem algjörlega væri
málinu óviðkomandi. Faðirinn kom
reyndar fyrir dóminn og sagðist
ekki kannast við neitt. Við svo búið
var honum leyft að fara enda hafði
hann enga þýðingu fyrir þetta saka-
mál fyrir dómi.
Áfengisgámamálið hefur nú verið
tekið til dóms. Niðurstöðu er að
vænta eftir þrjár vikur.
Dómkirkjan:
Ganga á milli
bankastofnana
„Nú verðum við að ganga á milli
banka og sækja um lán og styrki,“
segir Auður Garðarsdóttir, formaður
sóknarnefndar Dómkirkjunnar, en
viðgerð á kirkjunni sem átti að kosta
100 milljónir kostaði í raun um 200
milljónir. „Þetta eru miklir peningar
en við eigum góða að.“
Viðgerð á Dómkirkjunni er nú að
fullu lokið nema hvað eftir er að
ganga frá kantsteinum og ýmsu utan
við skrúðhús kirkjunnar. Vonast
sóknarnefndin til að Reykjavíkurborg
taki það verk að sér en að því loknu
er .kirkjan í toppstandi," eins og
Auður sóknarnefndarformaður orðar
það. -EIR
Tindastóll skuid-
ar 35 milljónir
DV, SKAGAFIRÐI:
Búið er að kjósa starfshóp á vegum
sveitarfélagsins Skagafjarðar til að
leita lausna á fjárhagsvanda Ung-
mennafélagsins Tindastóls á Sauðár-
króki, en skuldir þess munu nema um
35 milljónum króna. Starfshópinn
skipa Helgi Sigurðsson, Jón E. Frið-
riksson og Snorri Styrkársson, þ.e.
einn frá hverjum flokki sem á fulltrúa
í sveitarstjórninni. Hópnum er ætlað
að ljúka störfum og skila tillögum sín-
um í lok þessa mánaðar. Erfið Qár-
hagsstaða Tindastóls hefur verið ljós
um nokkurn tíma og í síðasta mánuði
barst sveitarfélaginu erindi um að það
kæmi félaginu til aðstoðar. -ÖÞ
Morðið á Einari Erni:
Rannsókn lokið
Lögreglan í Kópavogi hefur lokið að
fullu rannsókn á láti Einars Amar
Birgissonar sem ráðinn var bani 8.
nóvember síðastliðinn. Gögn málsins
voru send Ríkissaksóknara á mánu-
dag og mun embættið taka ákvörðun
um ákæru i málinu á næstu vikum.
Atli Helgason, viðskiptafélagi Einars
Arnar, hefur viðurkennt að hafa orð-
ið Einari Erni að bana. Hann situr
enn í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
-SMK
Veórið í kvöfd__________ g Sólargangur og sjávarföH
REYKJAVIK AKUREYRI
mmssm
Sólarlag í kvöld 19.26 17.34
Sólarupprás á morgun 07.46 09.17
Síödegisflóð 22.04 02.37
Árdegisflóö á morgun 10.25 14.58
Sfiýringar á veSurtáknum
iirr 10°4— HITI
VINÐSTYRKUR
í metrum á sekúndu
-io:
Nf
HBOSKÍRT
Viða léttskýjað á landinu
Norðaustlæg eða breytileg átt, 3 til 5 m/s og
dálítil él syðst á landinu og sums staðar við
austurströndina en annars víöa léttskýjað.
Frost 1 til 5 stig norðanlands yfir daginn en
hiti 0 til 5 stig syöra og talsvert næturfrost til
landsins.
-*D ;o
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SKÝJAÐ
RIGNING SKÚRIR SLYÐDA SNJÓKOMA
S =
ÉUAGANfiUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Hálka víða á vegum
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni er greiðfært um alla helstu
vegi landsins. Víða er þó hálka eöa
hálkublettir á fjallvegum á Vestfjörðum,
Norður- og Austurlandi^ Þá eru víða
hálkublettir á vegum í Árnes- og
Rangárvallasýslu.
SNJOR
ÞUNGFÆRT
0FÆRT
Hægviðri á landinu
Hægviðri og dálítil él syðst á landinu en annars yfirleitt léttskýjað. Frost 1
til 5 stig noröanlands en hiti O til 5 stig syðra.
Fóstutfa;
Vindur:
3-5 m/%
Hiti 5° til 1°
Austlæg átt, 3 tll 5 m/s
og skýjaO með köflum en
dálítil él syöst á landlnu.
Vægt frost nor&anlands en
hltl annars 1 tll 5 stlg.
Laugar
Vindur: V.
5—10 m/» \
Hiii S* til 2°
eeí?/>
Norðlæg átt, 5 tll 10 m/s
vestanlands en annars
hægarí og él víða um land.
Frost yfirleltt 0 tll 5 stlg
en frostlaust með
suðurströndinni.
Swntiutf
Vindur
3-8 m/»
Hiti-5“ tii 2°
Austlæg átt og él, elnkum
sunnan- og austanlands og
fremur svalt í veörl.
AKUREYRI alskýjaö
BERGSSTAÐIR skýjaö
BOLUNGARVÍK alskýjaö
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL. skýjað
KEFLAVÍK léttskýjaö
RAUFARHÖFN skýjaö
REYKJAVÍK léttskýjaö
STÓRHÖFÐI skýjaö
BERGEN skýjað
HELSINKI skýjaö
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ skýjaö
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN skúrir
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö
ALGARVE léttskýjað
AMSTERDAM skúrir
BARCELONA léttskýjaö
BERLÍN skýjað
CHICAGO skýjaö
DUBLIN léttskýjaö
HALIFAX skýjaö
FRANKFURT skúrir
HAMBORG skýjað
JAN MAYEN snjóél
LONDON skýjaö
LÚXEMBORG skúrir
MALLORCA léttskýjaö
MONTREAL
NARSSARSSUAQ alskýjaö
NEWYORK rigning
ORLANDO þokumóða
PARÍS rigning
VÍN rigning
WASHINGTON þokuruöningur
WINNIPEG skýjaö
1
0
0
-1
3
3
1
5
5
7
3
5
6
5
3
18
7
16
9
0
8
-4
8
9
-6
7
5
17
-5
5
3
23
10
9
4
-4