Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2001, Page 22
34
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001
Ættfræði__________________
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára
Guömundur Árnason,
Sunnuvegi 1, Hafnarfiröi. Hann veröur
að heiman.
80 ára_______________________________
Hjörtur Hannesson,
Sfei Skaftárvöllum 7,
BjyB Kirkjubæjarklaustri.
mv Hjörtur veröur aö heiman
'W á afmælisdaginn.
Elín Friöjónsdóttir,
Miövangi 16, Hafnarfiröi.
75 ára__________________________________
Guömundur Finnbogi Halldórsson,
Torfnesi Hlíf 1, ísafirði.
Helga Jóna Jensdóttir,
Lyngbergi 39b, Hafnarfiröi.
Ingigeröur Karlsdóttir,
Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi.
Ingólfur Ólafsson,
Smárahlíö 9a, Akureyri.
Lilja Halldórsdóttir,
Höfðagrund 18, Akranesi.
70 ára__________________________________
Guömundur Theódórsson,
Húnabraut 9, Blönduósi.
Lilja Jónsdóttir,
Aöalstræti 124, Patreksfiröi.
Ólöf Runólfsdóttir,
Álakvísl 126, Reykjavík.
Siguröur Jónsson,
Lerkilundi 20, Akureyri.
60 ára__________________________________
Áslaug Freysteinsdóttir,
Kotárgerði 6, Akureyri.
Jónína G. Kjartansdóttir,
Jöklaseli 23, Reykjavík.
Sigurlaug Bjarnadóttir,
Efri-Miöbæ, Neskaupstað.
50 ára__________________________________
Aöalbjörn Þórhallur
Jónsson,
Traöarstíg 6, Bolungarvík,
\ \ varð fimmtugur í gær.
Hann og eiginkona hans,
Anna Torfadóttir, taka á
móti gestum á heimili
sínu laugard. 17.3. kl. 20.00.
Anna Sigurbjörg Jóhannesdóttir,
Vallartröö 3, Kópavogi.
Guöný Júlíusdóttir,
Brekkubæ 38, Reykjavík.
Gunnar Árnason,
Þrastanesi 1, Garðabæ.
Jóhannes Árnason,
Starengi 90, Reykjavík.
Logi Þormóösson,
Háteigi 20, Keflavík.
Ragnheiður Gísladóttir,
Njörvasundi 14, Reykjavík.
Sveinn Guömundsson,
Kársnesbraut 37a, Kópavogi.
40 ára__________________________________
gStefán Sturla Svavarsson
Grundarhúsum 19,
Eiginkona hans er Inga
hjúkrunarfræðingur.
Stefán Sturla veröur meö opið hús að
heimili sínu föstud. 16.3. kl. 20.30.
Ewa Maria Krzeczkowska,
Freyjugötu 2, Suöureyri.
Guðfinnur Steinar Eyjólfsson,
Strandgötu 6, Stokkseyri.
Gunnar Gunnarsson,
Galtalind 6, Kópavogi.
Kristín Ósk Egilsdóttir,
Túngötu 14, Suðureyri.
Ragna Sverrlsdóttir,
Beigalda, Borgarnesi.
Ragnar Bragason,
Veghúsum 31, Reykjavík.
Ragnhildur F. Þorsteinsdóttir,
Miöbraut 11, Hrisey.
Steiney Björk Halldórsdóttlr,
Ölduslóö 5, Hafnarfiröi.
Steingrímur R. Friðriksson,
Fannafold 125, Reykjavík.
Andlát
Höröur Björnsson byggingatæknifræð-
ingur, Skólatröö 2, Kópavogi, er látinn.
Jaröarförin verður auglýst síöar.
Sigurgeir S. Sveinsson, Furugrund 41,
Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness
miðvikud. 28.2. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey aö ósk hins látna.
Kristín Júlíusdóttir, fyrrum kennari í
Hafnarfirði, lést sunnud. 4.3. á elliheim-
ilinu Grund. Útförin hefur fariö fram í
kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Ragnar Jónsson, Hraunbæ 154, Reykja-
vík, lést á heimili sínu sunnud. 11.3.
Hjálmar Gunnarsson útgeröarmaður,
Grundarfiröi, lést á Kanarieyjum
sunnud. 11.3.
Anne Marie Bjarnason lést á Sólvangi
aö morgni sunnud. 11.3.
Björn Gígja, Grænumörk 3, Selfossi,
lést á sjúkrahúsi Selfoss 28.2.
I>V
Hundrað ára
Stefán Sigurðsson
fyrrv. skólastjóri í Reykholti í Biskupstungum
Stefán Sigurðsson, Hveramörk 4,
Hveragerði, er hundrað ára í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist á Reyðará í Lóni i
Austur-Skaftafellssýslu. Hann tók
kennarapróf 1923 og var siðan far-
kennari í átthögum sínum í flmm
vetur. Stefán stundaði nám í
Gymnastikhojskolen i Danmörku
1928-29 og dvaldi við nám í Kiel í
Þýskalandi vorið 1929.
Stefán var skólastjóri i heimavist-
arskóla í Reykholti í Biskupstung-
um 1929M6. Hann flutti þá til
Reykjavíkur og gerðist kennari við
Melaskólann þar sem hann var fast-
ur kennari til 1966 og síðan stunda-
kennari til 1968. Á sumrin var Stef-
án m.a. starfsmaður í Pósthúsinu í
Reykjavík.
Stefán var formaður Ungmenna-
félags Biskupstungna í nokkur-ár og
hefur verið heiðursfélagi þess frá
1968. Hann sat í stjórn Kennarafé-
lags Árnessýslu í nokkur ár, i stjórn
Byggingafélags barnakennara um
árabil frá 1951 og var formaður
Sjúkrasamlags Biskupstungna frá
stofnun, 1941^6. Hann sat í stjórn
Esperantistafélagsins Auroru í
Reykjavík um skeið, hefur tekið
þátt i fimmtán alþjóðaþingum
Esperantosambandsins og er heið-
ursfélagi Islenska esperantosam-
bandsins.
Stefán hefur fengist töluvert við
þýðingar og má þar m.a. nefna
sautján bækur eftir norska höfund-
inn Anne Cath. Vestly en auk þess
hefur hann þýtt nokkuö úr esper-
anto á íslensku og úr íslensku á
esperanto. íslensk ljóð sem hann
þýddi úr esperanto voru gefm út i
sambandi við níræðisafmæli hans.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 25.6. 1940 Vil-
borgu Ingimarsdóttur, f. 22.11. 1902,
d. 22.8. 1974, kennara á Húsavík.
Hún var dóttir Ingimars Guðmunds-
sonar, bónda á Efri-Reykjum í Bisk-
upstungum, og k.h., Ingibjargar
Guðmundsdóttur frá Kjarnholtum i
Biskupstungum.
Dætur Stefáns og Vilborgar eru
Þóra Ingibjörg, f. 12.6. 1941, píanó-
kennari og félagsráðgjafi, nú búsett
á Öland í Sviþjóð, var gift Ingvari
Ingvarssyni; Ánna Jórunn, f. 21.12.
1942, tónmenntakennari og talkenn-
ari, búsett í Hveragerði, gift Þór-
halli Hróðmarssyni kennara, syni
Hróðmars, bróður Stefáns.
Bræður Stefáns: Geir, f. 1898, d.
1974, bóndi á Reyðará, átti Margréti
Þorsteinsdóttur húsmóður; Ás-
mundur, f. 26.5. 1903, nú látinn,
kennari og fyrrv. alþm. og starfs-
maður við Búnaðarbankann, átti
Guðrúnu Árnadóttur hjúkrunar-
konu; Hlöðver, f. 1906, d. 1982, skóla-
stjóri á Siglufirði, átti Katrínu Páls-
dóttur hjúkrunarkonu; Þórhallur, f.
1907, d. 1933, átti Guðrúnu Jónsdótt-
ur húsmóður; Hróðmar, f. 1912, d.
1957, kennari, síðast í Hveragerði,
átti Ingunni Bjarnadóttur tónskáld.
Foreldrar Stefáns: Sigurður Jóns-
son, f. 6.6. 1868, d. 1.3. 1917, bóndi á
Reyðará í Lóni, og k.h., Jórunn
Anna Lúðvíksdóttir Schou (Anna
Hlöðversdóttir), f. 29.9. 1876, d. 14.4.
1953, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Jóns, söðla-
smiðs á Setbergi i Nesjum Jónsson-
ar, og Sesselju Sigurðardóttur.
Anna var dóttir Lúðviks J.
Christian Schou, verslunarmanns í
Vallaneshjáleigu og faktors á Húsa-
Stefán Sigurðsson, fyrrv. kennari og skólastjóri.
Stefán var skólastjóri í Reykholti í Biskupstungum á árunum 1929-46. Hann
kenndi síöan viö Melaskólann í Reykjavík til 1968. Hann er ern og viö góöa
heilsu miöaö viö aldur. Þessi mynd sýnir Stefán viö upplestur á niöjamótl en
hún var tekin í lok janúar sl.
vík Hermannssonar Schou, verslun-
armanns á Siglufirði.
Móðir önnu var Elín, systir Hjör-
leifs, pr. á Undirfelli, föður Einars
H. Kvaran rithöfundar, afa Ævars
Kvaran, leikara og rithöfundar.
Bróöir Elínar var Jón í Saurhaga á
Völlum, afi Guðmundar Sveinsson-
ar, skólameistara Fjölbrautaskólans
í Breiðholti og langafa Einars Jóns-
sonar, pr. á Kálfafellsstað. Elín var
dóttir Einars, pr. í Vallanesi Hjör-
leifssonar, pr. á Hjaltastöðum Þor-
steinssonar, bróður Guttorms, pró-
fasts á Hofi, langafa Þórarins á
Tjöm, föður Kristjáns Eldjárn for-
seta. Móðir Elínar var Þóra Jóns-
dóttir Schjölds, vefara á Kórreks-
stöðum og ættfoður Vefaraættarinn-
ar Þorsteinssonar.
Stefán tekur á móti gestum að
heimili sínu, Hveramörk 4, Hvera-
gerði, í dag.
Attræður
Jóhann Björnsson
fyrrv. forstjóri í Vestmannaeyjum
Jóhann Björnsson, fyrrv. for-
stjóri, Vestmannabraut 42, Vest-
mannaeyjum, er áttræður í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Veturhúsum á
Jökuldalsheiði en ólst upp á Vopna-
firði. Hann hvarf frá menntaskóla-
námi vegna fjárskorts en lauk prófi
frá Samvinnuskólanum 1942.
Jóhann starfaði hjá Kaupfélagi
Vopnfirðinga 1938-45, hjá Almenna
byggingafélaginu hf. á Skagaströnd
1945-46, var póst- og símstöðvar-
stjóri á Vopnafirði 1947-52, póstfull-
trúi í Vestmannaeyjum 1952-71 og
forstjóri Sjúkrasamlags Vestmanna-
eyja 1971-81.
Jóhann starfaði í ungmennafélagi
og sinnti leikstarfsemi á Vopnafirði,
starfaði með Leikfélagi Vestmanna-
eyja 1953-72 og er heiðursfélagi
þess, söng með kirkjukór á Vopna-
firði í áratug og með kór Landa-
kirkju frá 1953, sat í sóknamefnd í
Eyjum tuttugu ár og var safnaðar-
fulltrúi Ofanleitissóknar í nokkur
ár, bæjarfulltrúi í Eyjum 1966-70 og
varabæjarfulltrúi í þrettán ár og sat
í skólanefnd, framfærslunefnd og
náttúruverndarnefnd, í ritnefnd
Framsóknarblaðsins í Eyjum á ann-
an áratug og var ritstjóri þess um
árabil, hefur starfað í Oddfellow-
reglunni frá 1956 og er heiðurfélagi
stúkunnar Herjólfs, er félagi í
Rótarýklúbbi Vestmannaeyja frá
1970, forseti hans 1976-77 og er heið-
ursfélagi hans, er Paul Harris-félagi
og sat í stjórn Austfirðingafélagsins
um árbil, var stjórnarmaður í Kaup-
félagi Vestmannaeyja 1956-89 og for-
maður þess í nokkur ár, og stjórnar-
maður i Sparisjóði Vestmannaeyja í
fimmtán ár.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 11.10. 1947
Freyju Stefaníu Jónsdóttur, f. 24.6.
1924, fyrrv. fiskvinnslukonu og með-
hjálpara í Landakirkju. Hún er dótt-
ir Jóns Sveinssonar, verkamanns í
Vestmannaeyjum, og k.h., Jennýjar
Jakobsdóttur húsmóöur.
Böm Jóhanns og Freyju Stefaníu
eru Bjöm, f. 13.2. 1949, apótekari á
Patreksfirði, kvæntur Gunni P.
Þórsdóttur hjúkrunarfræðingi;
Jenný, f. 26.4. 1950, meinatæknir í
Reykjavík, var gift Sigmundi Ein-
arssyni jarðfræðingi; Inga, f. 27.12.
1951, verslunarmaður í Reykjavík;
Jón Freyr, f. 17.5. 1962, tölvunar-
fræöingur MS og lektor í tölvu-
fræði, búsettur i Hafnarílrði, kvænt-
ur Valgerði Halldórsdóttur, stjóm-
málafræðingi og kennara.
Barnabörn Jóhanns og Freyju
Stefaníu eru átta en bamabama-
börnin eru fjögur talsins.
Systkini Jóhanns: ívar, f. 11.2.
1916, d. 30.12. 1990, búfræðingur á
Vopnafirði; Ragnheiður Jóhanna, f.
6.3.1917, d. 13.3.1917; Ragnar, f. 30.3.
1918, fyrrv. matsveinn i Hafnarfirði;
Hörður, f. 11.2.1920, byggingatækni-
fræðingur í Kópavogi; Magnús, f.
3.5. 1923, d. 7.1. 1990, húsasmiður í
Kópavogi; Sigurður, f. 15.8.1924, bif-
reiðarstjóri á Vopnafirði; Bjöm, f.
18.2. 1927, bókbindari og gullsmiður
í Reykjavík; Einar, f. 8.4. 1928, en
hann fórst meö vitaskipinu Her-
móði 18.2. 1959.
Foreldrar Jóhanns voru Björn Jó-
hannsson, f. 9.9. 1891, d. 28.6. 1968,
bóndi í Veturhúsum og síðar kenn-
ari og skólastjóri á Vopnaflrði, og
k.h., Anna Magnúsdóttir, f. 19.12.
1892, d. 17.10. 1967, ljósmóðir.
Ætt
Björn var sonur Jóhanns, frá
Hörghóli í Vestur-Húnavatnssýslu
Jóhannssonar, vinnumanns þar
Jónassonar. Móðir Jóhanns yngri
var María Sigvaldadóttir, systir Jó-
hanns, hreppstjóra í Mjóadal, og
Björns, b. í Aðalbóli í Miðfirði.
Móðir Bjöms Jóhannssonar var
Ragnheiður Bjömsdóttir, b. á Klúku
í Steingrímsflrði Bjömssonar, pr. í
Tröllatungu Hjálmarssonar, ættföð-
ur Tröllatunguættar Þorsteinsson-
ar. Móðir Ragnheiðar var Helga
Zakaríasdóttir frá Heydalsá, hálf-
systir Guðlaugar, konu Torfa í
Ólafsdal.
Anna var dóttir Magnúsar, b. í
Hjarðarhaga ívarssonar, b. á Vaði í
Skriödal Jónssonar. Móðir Magnús-
ar var Anna Guðmundsdóttir. Móð-
ir Önnu var Sólveig Þórðardóttir, b.
á Sævarenda í Loðmundarfirði.
Mcrkir íslendingar
Jón Eiríksson, skattstjóri í Vestmannaeyj-
um og síðan á Vesturlandi, fæddist í
Reykjavík 14. mars 1914. Hann ólst upp að
Hesti í Borgarfirði, sonur Eiríks V. Al-
bertssonar, doktors í guðfræði, skóla-
stjóra á Hvítárbakka og prófasts að
Hesti í Borgarfirði, og k.h., Sigríðar
Bjömdóttur kennara.
Jón lauk stúdentsprófum frá
Menntaskólanum á Akureyri 1937,
lauk embættiprófi í lögfræði frá HÍ1943
og öðlaðist hdl-réttindi haustið 1950.
Jón var skattstjóri í Vestmannaeyjum
1945-1962 og skattstjóri í Vesturlandsum-
dæmi, með búsetu á Akranesi á árunum
1962-1986. Þá lét hann af störfum fyrir aldurs
sakir.
Jón Eiríksson
Jón var einn af stofnendum Tónlistarfélags
Vestmannaeyja, starfaði mikið fyrir félagið
fyrstu árin og gegndi formennsku í því
frá stofnun og til 1961. Þá var hann
fyrsti formaður Skattstjórafélags ís-
lands frá 1960 og til 1968. Hann skrif-
aði blaðagreinar um ýmis efni og rit-
aði ásamt öðrum minningarrit um for-
eldra sína: Ár og dagur í víngarði
drottins.
Jón var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Anna Guðrún Jónsdóttir sem
lést 1952 en þau eignuðust eina dóttur.
Hann kvæntist síðan 1953 Bergþóru Guð-
jónsdóttur og eignuðust þau fjögur böm.
Jón lést 21. október 1997.
tuHlÍkiUiliH
Jón Ólafsson bóndi, Eystra-
Geldingaholti, Gnúpverjahreppi, lést á
hjartadeild Landspítalans fimmtud. 8.3.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju
laugard. 17.3. kl. 13.30.
Þorsteinn Þorgeirsson frá
Lambastöðum, Garöi, lést á
Landspltalanum Fossvogi þriðjud. 6.3.
Jarðsett veröur frá Útskálakirkju
fimmtud. 15.3. kl. 14.
Sigríður Hinriksdóttir frá Sigtúnum,
Öxarfirði, lést á Héraöshælinu
Blönduósi laugard. 10.3. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju föstud. 16.3. kl.
13.30.
Ingileif S. Zoéga, Skaftahlíð 31,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstud. 16.3. kl. 13.30.