Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Page 17
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
Helgarblað
17
DV
Stund milli stríða
Róbert og Valdimar Leifsson í fjörunni viö Kolbeinsá í Hrútafiröi þar sem
myndin um bát veiöimannsins var tekin.
hrifinn af öllu sem hann sér í
veiðimennskunni.
„Ég hugsa stöðugt meira um
siðfræðina í veiðimennskunni. Ég
tek mikið af myndum og fer oft
leiðangra þar sem ég eyði mestum
tíma í að mynda lífríkið áður en
ég tek smátoll af því í lokin. Ætli
ég endi ekki í því að hætta að
veiða nema með myndavél þegar
ég verð gamall.
Mér finnst við hlusta alltof mik-
ið á þessa friðunarumræðu því
það eru sjálfsögð mannréttindi að
mega veiða sér til matar. Við
erum aö fjarlægjast uppruna okk-
ar að þessu leyti. Hins vegar er ég
lítið hrifinn af veiðimönnum sem
fara þungvopnaðir um fjöll og
firnindi og gefa bráð engin grið.
Það er hægt að kaupa sér góð
tæki og allt til alls en það er ekki
hægt að kaupa sér skynjun á nátt-
úrunni, þekkingu og þá nálægð
við hana sem er svo mikilvæg.
Það dýrmætasta af öllu er frels-
ið.“ -PÁÁ
Fugl í sigtinu
Kajakveiðimenn stilla byssunum upp á statíf framan á kajaknum og róa síö-
an í dauöafæri viö skarfa og hávellur.
Tom Hanks kærður fyrir stuld á efni:
Uppiskroppa með brandara
Það er ekkert óeðlilegt við það að
leikarar sem þurfa að fara i mörg
viðtöl verði einhvern tíma kjaft-
stopp og hafi ekki hugmynd um
hvað þeir eiga að segja. Tom Hanks
er einn af þessum mönnum sem
aldrei er látinn í friði fyrir Ósk-
arsverðlaunaafhendinguna og ekki
að furða þó hann þurfi kannski að
sækja í brandarasmiðju annarra til
þess að vera alltaf ferskur.
Nú hefur Tom verið kærður fyrir
stuld á efni frá grínaranum David
Rubin, en sá segir að Tom hafi
stolið tíu mínútna löngu uppi-
standsatriði frá sér og farið með það
frá orði til orðs þegar hann kom síð-
ast fram í þættinum hjá Jay Leno.
Tom neitar að tjá sig um málið en
það er þungt hljóð í David Rubin og
segist hann hafa verið þrjú ár að
semja dagskrána sem leikarinn hafi
svo stolið miskunnarlaust úr.
Enn sem komið er, þá höfum við
einungis orð Rubins að byggja á, en
það stendur til bóta. Grínarinn seg-
ist eiga þriggja ára gamla upptöku
með sjálfum sér að fara með atriðið
sem um er rætt og útvarpsmaður-
inn Howard Stern hafi samþykkt að
útvarpa bæöi henni og upptöku af
þætti Jay Lenos til samanburðar.
Skyldi Tom hafa hreina samvisku?
Little Caesars býður stóra pizzu með 3 áleggsteg
að eigin vali á aðeins 899 kr.
Komið ocf gleðjist með oUUur!
í Borgartúni
I tilefni opnunar nýrrar Esso-stöðvar
í Borgartúni efnum við til veislu
og þér er boðið!
2
fyrír
l j
Subway býður
tvo kafbáta
fyrir verð eins í
tilefni dagsins.
Borgað er fyrir þann dýrari.
Ferskleiki er okkar bragð.
í tilefni dagsins veitir Esso-stöðin Borgartúni
4 kr. afslátt af eldsneytislítra auk 80 aura í
formi punkta inn á Safnkortið.