Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
Helgarblað
x>v
Eg fékk að fylgjast með æfingu
á leikritinu Fífl í hófi sem
verður frumsýnt í íslensku
Óperunni í næstu viku. Verkið fjall-
ar um vinahóp í París sem í hverri
viku heldur boð sem nefnd eru vit-
leysingaboð. í vitleysingaboðin
bjóða þeir með sér vitleysingum
sem hafa orðið á vegi þeirra, ein-
vörðungu til þess að hafa af þeim
gaman. í boðinu sitja fíflin í röð fyr-
ir framan þá og tala um áhugamál
sín, sem vitaskuld eru stórundarleg,
en vitleysingaboðin eru jafnframt
keppni þar sem sá vinanna vinnur
sem kemur með mesta vitleysing-
inn. En allt fer öðruvísi en ætlað er,
svo ekki sé meira sagt.
Baldur Trausti Hreinsson leikur
hálfgerðan uppa sem tekur þátt í
þessum ljóta leik og „finnur" flflið
sem Laddi leikur. Grunlausan
starfsmann skattheimtunnar.
-Þú leikur ekki sérlega nærgæt-
inn mann. Hvernig kanntu við
þennan karakter?
„Jah...“ segir Baldur og hlær.
„Hann er ekki vondur maður, en
hann kemst upp með það að haga
sér svona og hneigist til að gera það
aftur og njóta þess. Þegar upp er
staðið fer ég samt flatt á þvi að fara
illa með fólkið í kringum mig. Minn
karakter situr ekki einungis uppi
með karakter Ladda heldur lendir
alltaf í þvi sem hann hefur lent í -
missir t.a.m. konuna sína í fangið á
öðrum manni. Hann er það ósjálf-
bjarga að hann verður að lokum að
treysta á fiflið vegna þess að það er
enginn annar sem getur hjálpað
honum. Þetta er gamanleikur en
gamanið er ansi grátt.“
- Þetta er þá kannski frekar
spurning um það hver er mesta
fiflið?
„Já oft eru fiflin ekki fifl heldur
einlægar og hjálpsamar manneskj-
ur,“ segir Baldur og brosir góðlega.
Allar persónur með gleraugu
Gervin í verkinu eru ekki flókin
en Baldur nefnir þó að allir karakt-
eramir séu með gleraugu.
Táknar það eitthvað?
„Nei, sú hugmynd kom bara upp
að allir yrðu með gleraugu til þess
að gera karakterana sterkari. Það
liggur heilmikill karakter í gleraug-
um,“ segir Baldur og handfiatlar
gleraugun sín - sem eru með rúðu-
glerjum og við tölum um allar
Hollywoodstjörnurnar sem flíka
gleraugum í viðtölum þó að þau sjá-
ist ekki með þau í hlutverkum eða á
skemmtunum. Ég hef þá kenningu
að þær geri þetta til þess að sýnast
greindarlegri, minnug þess að hafa
séð Amold Schwarzenegger skarta
nördagleraugum í viðtölum en Bald-
ur segir að Hollywoodstjörnur séu
oft eldri en maður heldur og það sé
vitað að fiarsýni aukist með aldrin-
um.
„Þetta er ekki farsi þar sem verk-
ið byggist ekki á misskilningi," seg-
ir Baldur eins og til að fyrirbyggja
misskilning. „Fífl í hófi er frekar
gamanleikur þó að gamanið sé ansi
grátt. Það má hugsa sér að menn
gætu lent í þessu ef þeir eru að
skemmta sér of mikið og leika sér
með líf fólks."
Löggan Baldur
Ég hverf að því að hnýsast um lif
Baldurs.
- Mér var sagt að þú hafir verið
lögreglumaður á ísafirði um nokk-
urra ára skeið. Ætlaðirðu að gera
það að ævistarfi?
„Nei,“ segir Baldur og honum er
sýnilega brugðið yfir hnýsninni.
„Samt getur lögreglustarfið verið
skemmtilegt þó að það sé jafnframt
mjög vanþakklátt. Ég minnist þess
ekki aö nokkurn tíma hafi fólk kom-
ið til mín og þakkað mér fyrir störf
mín og ég held að það gerist ekki
hjá löggunni. Það sem maður gerði
var álitið skyldustörf og litið á þau
sem slík.“
- Og fannstu þig ekki í því?
„Nei, alls ekki. Það þarf að velja
vel mennina í þetta starf. Og þegar
maður er búinn að vera í starfinu í
fiögur, fimm ár hefur maður kynnst
öllu því sem maður á eftir að koma
nálægt. Ég hef oft líkt lögreglustarf-
inu við það að fara í leikhús og
kíkja bak við tjöldin eftir sýningu.
Baldur Trausti Hreinsson
Var lögga á ísafiröi áöur en hann hellti sér í leiklistina. Nú leikur hann mann sem starfar viö bókaútgáfu og kemur illa fram viö
starfsmann skattheimtunnar.
minn - og gefur auga leiö að and-
stæðurnar skerpast. Það er fráhært
að vinna með Ladda. Hann er ein-
stakur maður; þolinmóður, rólegur
og laus við stæla.“
Baldur talar einnig um hæfi-
leika Maríu Sigurðardóttur leik-
stjóra en hún hefur sett upp ófá
stykkin sem malað hafa gull - og
ber þar hæst Sex í sveit sem var
sýnt oftar en menn hafa tölu á. Á
hann von á því að Fífl í hófi verði
vinsælt?
„Af hverju ætti það ekki að
verða það?“ spyr Baldur á móti.
„En í dag er ekki hægt að segja
neitt þar sem maður veit aldrei
neitt. Framboðið er mikið - en þó
má segja aö það sé ekkert verk á
Þykir vænt um Che Guevara
„Ég ætlaði alltaf að gera eitthvað
annað en að vera í löggunni," segir
Baldur. „Svo kom að því að ég flutt-
ist til Reykjavíkur vegna þess að
konan mín var að fara í nám og
fékk þá hugdettu að fara í Leiklist-
arskólann."
Baldur komst inn i skólann um
leið, þó að það hafi reynst mörgum
þungt í gegnum tíðina, og árið sem
hann útskrifaðist fékk hann stórt
tækifæri þegar honum var boðið
hlutverk Che Guevara í Evitu og
upphrópanir á borð við „Hinn nýi
Banderas“ tóku að hljóma meðal
áhorfenda. Á fiórum árum hefur
Baldur síðan farið með ein tuttugu
hlutverk. En hvert þeirra þykir
honum vænst um?
„Það hlýtur að vera það hlutverk
sem ég er að fást við hverju sinni,
en ef til vill þykir mér vænst um
Che Guevara. Það var fyrsta hlut-
verkið mitt og kom mér skemmti-
lega á óvart."
Við ræöum áfram um hlutverk,
gaman og dramatik og Baldur segist
aldrei fyrr hafa leikið í gamanleik-
riti. En hvert er dramatískasta hlut-
verk sem hann hefur leikið?
„Án alls vafa er það þegar ég lék
Helmer í Brúðuheimili Ibsens. Það
var spennandi og eins og allir vita -
veruleg dramatík. Baltasar Kormák-
ur hafði farið með hlutverkið en var
hættur í húsinu. Ég æfði það upp
þremur vikum áður en farið var í
leikferðalag til Grænlands. Ég
þurfti sem sagt að læra allan text-
ann fyrir eina sýningu. Þaö var
óneitanlega sérstakt, líka vegna
þess að allt sem við sögðum var
túlkað bæði á dönsku og græn-
lensku. En þetta var flott sýning og
Af æfingu á Fífl í hófi
„ Verkiö er gamanleikrit þó aö stundum sé gamaniö grátt, “ segir Baldur.
bæði erfitt og spennandi að stökkva
inn í hana.“
Laddi léttir líflð
- Fyrsta gamanleikritið. Hvað
reynir mest á?
„Að klára hlutverkið," segir
Baldur og brosir. „Þegar komið er
á sviðið gefst annars ekki mikill
tími til vangaveltna. Þetta er eins
og að syngja lag. Það er talið inní
og svo er að halda sér á flugi þar til
maður klárar lagið.“
- Nú leikurðu á móti Ladda. Er
það erfiðara eða hjálpar það til að
leika á móti svo vönum gamanleik-
ara?
„Það léttir mér lífið til muna.
Eftir því sem hann fer lengra inn í
sinn karakter - sem Laddi er auð-
vitað þekktur fyrir - þá get ég
seilst lengra í hina áttina - inn í
sviði núna sem er á þessum skala.“
Baldur Trausti er fastráðinn hjá
Þjóðleikhúsinu og hefur verið að
æfa verkið Vilji Emmu eftir David
Hare en því mun vera frestað til
hausts. Annars sér hann fram á að
vera í fríi í sumar og er hæstánægð-
ur með það. Hægt er að ímynda sér
að fríið sé langþráð. -þhs
Fíflin eru
ekki dlltaf ftfl
Þá sérðu hvernig leikurunum líður
og þeim liður ekki alltaf vel. Að
vera í löggunni byggist á því að
maður er að skipta sér af lífi fólks
og kíkja á bak við tjöldin. Það er
ekki alltaf skemmtilegt. Manni kem-
ur þetta ekki við en maður þarf
samt að gera það.“
Baldur Trausti Hreinsson leikur
í hófi