Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2001, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 Fréttir DV Hærra síldarverð í Noregi næst til baka: Norðmenn vigta vitlaust - allt að þriðjungur aflans hverfur Hátt verö en léleg vigt Beitir NK er eitt þeirra skipa sem lartdaö hafa í Noregi. Ekki eru þær feröir til fjár. Um 17 íslensk skip eru á veiðum í Síldarsmugunni og er veiðisvæðið um 600 sjómílur frá íslandi. En mikið þarf að kasta og t.d. var Hólmaborg frá Eskifirði búin að fá um 950 tonn og Jón Kjartansson 450 tonn. Nokkur skip hafa landað í Trom- sö í Noregi, m.a. Beitir NK frá Nes- kaupstað sem fór þangað með 200 tonn en upp úr skipinu vigtuðust aðeins 160 tonn eða aðeins 80 pró- sent aflans sem skipstjórinn taldi sig vera með. Staðreyndin er sú að Norðmenn borga hátt verð en það kemur hins vegar á móti að þeir vigta aflann mjög illa, dæmi eru um allt að 30 prósent skerðingu og það hefur tíðkast um langt árabil. Þessar tölur staðfestir Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, útgerðar Beitis, sem segir að þetta hafi Norðmenn stundað um árabil og hafi því tekið mun meira úr sild- arstofninum en þeir hafi haft kvóta til. Það skýrir einnig að hluta af hverju nýting norskra síldarverk- smiðja hefur yfirleitt verið talin mun betri en hjá íslenskum verk- smiðjum. Björgólfur segir að á íslandi fari frávik aldrei upp fyrir 5% og oftast skili verksmiðjumar sömu tölum og skipstjóramir telji sig vera með, enda fari þeir alinærri um aflann. Síldarkvóti Beitis er 2.200 tonn og ef hann landaði öllum sínum afla í Noregi mundi afli hans verða 2.750 tonn, þ.e. 550 tonn færu fram hjá vigt. Dæmi eru þess að Norðmenn hafi verið að greiða allt að 82 krón- ur fyrir kílóið fyrir síld til vinnslu en það er frekar undantekning. Meðalverð til vinnslu mun vera þar um 40 kr/kg og á íslandi um 38 kr/kg. Hjá SR-mjöli á Seyðisfirði eru greiddar 9.000 krónur fyrir tonnið til bræðslu en 10.000 krónur í Noregi. Ef tekið er tillit til þessar- ar miklu skerðingar er verðið á Seyðisfirði í raun hærra. -GG Staða Kristins í heita pottinum ræða menn nú um stöðu Kristins H. Gunnarssonar í Fram- sðknarflokknum og sýnist sitt hveijum. Kristinn hefur sem kunnugt er nokkuð aðra línu í sjávarútvegsmálum en forasta flokksins og telja margir að hann hafi við það veikt mjög stöðu sína. Hann hafi ek vitað hvenær full- reynt var og hafi \ haldið uppi and- spymu lengur en klókt var. Aðrir telja hins vegar að Kristinn hafi náð að styrkja stöðu sína og benda á að hörm- ungamar sem fram koma i ráðgjöf Hafró muni hjálpa og styrkja máiflutning Kristins. Ljóst er að bakland Kristins á Vestfjörðum hefur heldur veikst þrátt fyrir smábátaumræðuna og afstöðu hans þar og ráða þar áhyggjur manna af því að þingmaðurinn sé að missa stöðu sína innan flokksins og sérstaklega gagnvart forustunni. Hins vegar er ljóst að Krist- inn hefur verið að styrkja sig í ákveðn- um kreðsum í Reykjavík og á hriflu.is, vef reykviskra framsóknarmanna, er Kristinn t.a.m. maður vikunnar fyrir sannfæringu sina og afstöðu í máiefnum smábáta... DV-MYND VALDIMAR Snjókarl í júní Vestfiröirtgum brá rtokkuö í brún annan dag hvítasunnu þegar snjókoma brast á. Súgfirðingurinn Alexander Pálmi var fljótur að bregðast viö breyttum aöstæöum og gerði snjókarl í snatri. Úr glaða sólskini í snjókomu Námaskarð: Vörubíll valt Stór vöruflutningabíll valt neðst í norðanverðu Námaskarði í Mý- vatnssveit síðdegis á mánudag. Bíl- stjórinn, sem var að koma að aust- an, var meö fulllestaðan bíl og svo virðist sem það hafi lagt bílinn á hliðina í neðstu beygju skarðsins sem er kröpp og varasöm eftir því. Björgunarsveitarmenn í Mývatns- sveit voru fengnir til að laga til farm bílsins, en hann var svo dreg- inn á réttan kjöl. Bíllinn er nokkuð skemmdur eftir óhappið. Bílstjórinn kenndi til eymsla í handlegg og hné eftir byltuna og var fluttur til að- hlynningar og skoðunar á Fjórö- ungssjúkrahúsið á Akureyri, að sögn lögreglu á Húsavík. -sbs Borgarfjörður: Hundrað of hratt Lögreglan í Borgamesi tók um helgina nær eitt hundrað ökumenn fyrir of hraðan akstur. Flestir voru teknir á hringveginum sem liggur um umdæmið endilangt, það er frá munna Hvalfjarðarganga upp á Holtavörðuheiði. Lögreglumenn segja að þetta sé í ríflegra lagi eftir sambærilega helgi. Þá voru fimm ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur. Sjö umferðaróhöpp urðu í Borgar- flrði um helgina, það versta á sveitabæ í Stafholtstungum þar sem dráttarvél rann á mann, með þeim afleiðingum að hann lærbrotnaði. -sbs DV, SUDUREYRt:_____________________ Þokkalega hefur viðrað vestra í vor. Á hvítasunnudag var indælis veður, glaðasólskin og um 10 stiga hiti. Þá notuðu sumir tækifærið og leituðu hvíldar frá önnum hvers- dagsins við störf í garðinum, reyttu arfa og slógu blettinn. Daginn eftir gerði hríð á norðan og varð hvítt ofan í fjöru. Alexander Pálmi nýtti sér snjóinn til að gera myndarleg- asta snjókall. Þegar hlýna tók í veðri rýrnaði snjókallinn er líða tók á dag. „Hann var miklu stærri í morgun,“ sagði Alexander Pálmi og var augljóst að honum leist ekkert á blikuna. -VH Kristján Pálsson alþingismaður: Sýndarmennska og hræsni Kristins H. Gunnarssonar „Kristinn H. Gunnarsson hefur uppi algera sýndarmennsku í smá- bátamálinu þar sem hann geir- negldi niður kvótakerfið með því að samþykkja veðsetningu kvóta fyrir fjórum árum,“ segir Kristján Páls- son, alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi, um framgöngu Kristins H. Gunnarsson- ar, alþingismanns Framsóknar- flokks og varaformanns sjávarút- vegsnefndar Alþingis. I helgarviðtali í DV lýsti Kristinn því að „kvótinn eigi ekki að vera eign, heldur atvinnutæki". Kristján segir þessi orð lýsa hræsni því sjálf- ur hafí Kristinn árið 1997 greitt at- kvæði með lögum þess efnis að veð- Kristján Kristinn H. Pálsson. Gunnarsson. setning á kvóta yrði leyfð. Þá var hann þingmaður fyrir Alþýðu- bandalagið og greiddi einn flokksfé- laga sinna frumvarpinu atkvæði á meðan aðrir Alþýðubandalagsmenn sátu hjá. Baráttu hans nú gegn lög- um um að smá- bátar verði sett- ir undir kvóta segir Kristján vera hræsni. „Það þýðir ekki fyrir hann nú að segja að sumir eigi að vera í kvóta en aðrir ekki. Hann er búinn að koma sér í kaþólskt hjónaband við kvótakerfið og hlýtur ekki af- lausn nema á löngum tíma. Með því að leyfa veð- setningu kvótans var því komið þannig að ekki verður hreyft við kvótakerfinu án þess að þjóðin þurfi að endurgreiða kvótann sjálf. Við þessu var- aði ég á sínum tíma,“ segir Kristján. -jtr Jafnræði verði tryggt Reykjavíkurlistamál munu nú vera að fara af stað og einkennist umræðan, bæði hjá vinstri grænum og framsóknar- mönnum, af því að raða verði upp á væntanlegan R-hsta á jafnréttisgrundvelh" eins og það er orðað. í hvorugum þessara flokka vilja menn una því að hlutfóllin miili samstarfsflokkanna endi eins og þau eru nú - VG ekki með neinn borgarfuiltrúa, Framsókn með tvo og Samfylkingin með sex. í pottinum segja menn því að líkleg- ast sé að krafa verði gerð um að hver flokkur fái að lágmarki tveggja sæta kvóta í átta efstu sætin þannig að tryggt sé að væntanlegt prófkjör riðh ekki hlutfóllum meira en bráðnauðsynlegt er. Þetta kvóta- kerfi mun þannig njóta mun meiri hylli þessa dagana en að hverjum flokki sé tryggður einn fúiltrúi í átta efstu sætin og restin raðist inn samkvæmt prófkjöri, en ýmsir talsmenn eru innan R-listans fyrir síðamefhda kerfmu... Góðídönsku Öldur eru nú að lægja í Brekkuskóla á Akureyri eftir snörp viðbrögð skóiayf- irvalda við þvi að nokkrir unglingar í 10. bekk voru sendir heim úr skólaferða- lagi i Danmöku á dögunum en sú aðgerð olh nokkru fjaðrafoki sem kunn- j ugt er. Fyrir helgina vora 10. bekkingar útskrifaðir úr skól- 4- anum ems og raunar 10. bekkingar úr skólum um land allt og kom þá í ljós í skólashtaræðu Bjöms 1 Þórleifssonar skólastjóra að 10. bekking- ar í Brekkuskóla vora langt yfir lands- meðaltali i samræmdu dönskuprófi - eins og raunar í flestöllum prófgreinun- um. Bjöm skólastjóri, sem þekktur er fyrir kímnigáfu, orðaði það sem svo þeg- ar hann greindi frá góðri einkunn í dönsku að það væri von að hún væri há, því bömin hefðu jú verið svo dugleg að undirbúa DanmerkurferðL. Eldhúshjálp í pottinum hafa jafhréttismál verið til umræðu upp á síðkastið mest í tilefhi af tali um súlustaði og úrsúlur. Pottveijar hafa þó mest velt fyrir sér lítilh þátttöku karbnanna í heimilisstörfum, enda era það þeim kunnug- legri mál en súlustað- imir. Það þótti þó saga til næsta bæjar þegar sannfréttist af konu i Bandaríkjun- um sem missti mann- inn sinn og lét brenna líkið - eins og gengur. Öskuna setti hún hins vegar í htið stundaglas sem hún geymir í eldhúsinu og notar til að mæla timann þegar hún sýður egg. Með því móti segir hún að sér hafi loksins tekist að fá hann til að hjálpa til í eldhúsinu!...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.