Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2001, Blaðsíða 28
NISSAN ALMERA FR ETTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fulirar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 Veðurklúbburinn: Veðrið skánar Frá og með morgundeginum geta Norðlendingar farið að vonast eftir sumrinu, en siðustu tvo daga hefur verið afar vetrarlegt um að litast á norðanverðu landinu. Samkvæmt upplýsingum veðurfræðings á Veður- stofunni í morgun er spáð kulda í * dag norðanlands en strax á morgun ætti að snúast í vestlæga átt og hæð- arhryggur þá að ganga yfir landið. Það þýðir vaxandi hlýindi, jafnvel einar 10 gráður á morgun, og það mun væntanlega létta til og snjóinn sem lagt hefur yfir þá væntanlega taka upp. Þessi spá er í þokkalegu samræmi við júníspá veðurklúbbsins eldri borgaranna á Dalvík sem segir að nú fari veður smám saman hiýnandi en til þess að hann hlýni þá þarf að fá úrkomu. Á fullu tungli i dag, 6. júní, muni hefjast ágætiskafli en sumarið komi þó ekki af alvöru fyrr en 21. júní og þá með fullum dampi. Þá kviknar nýtt tungl á mjög góðum 4» stað í suösuðaustri og voru félagar al- mennt hrifnir af tunglinu. „En viö getum sagt að hann hlýni hægt og bítandi fram að því og kannski líkur á einhverri smáúrkomu, bændum og öðrum áhugasömum um gróður til mikillar gleði,“ sögðu þeir Dalbæjar- menn. -HÍÁ/BG DV með GO-tilboð: Feiknaviðbrögö DV kynnti í fyrri viku tilboð fyr- ir lesendur blaðsins i tilefni ársaf- ^mælis flugs á vegum flugfélagsins Go til íslands. Tilboðið hljóðaði upp á flug til London fyrir 13.000 ^Pj j., 1 krónur. Þurftu lesendur ILTiI einungis að safna saman Vyteív fiórum tilboðsmiðum sem ™ - birtust í blaðinu frá 29. maí til 1. júní og skila þeim inn til að eiga möguleika á miða. Viðbrögðin urðu gríðarleg og 400 manns skil- uðu inn tilboðsmiðum í tæka tíð þó fyrirvari væri skammur. -HKr. Bensínverð: ESSO hækkar Olíufélagið hefur ákveðið að hækka verð á bensínlítranum um v kr. 5.00 og kostar 95-oktan bensín í dag hjá ESSO 107.90, en 98 oktana bensín 112.60. Eftir hækkunina verður eldsneytisverðið hjá Esso það sama og hjá Olís og Skeljungi, svo sælutíð dulbúinnar samkeppni þessara félaga er liðin undir lok. Gasolíutegundir fyrir bifreiðar og skip hækka um 4 krónur, i 54,60, en svartolía hækkar einnig. Flotolía fyrir skip mun kosta 40,80. Olíufé- lagið segir hækkanir þessar stafa af hærra meðalverði á heimsmarkaði í maí en í apríl og vegna stöðu krón- unnar gagnvart Bandarikjadollar. Verðákvörðunin nú er ekki nægjan- leg til að leiðrétta gengistap vegna eldsneytisinnkaupa að mati Olíufé- lagsins. -GG DV-MYND BRINK Tjaldbúar Það var hráslagalegt um að litast á tjaldstæöinu við Þórunnarstræti í morgun og tjaldbúar höfðu ekki mikinn áhuga á að drífa sig á fætur og fara að taka saman. Lái þeim hver sem vill. Kristinn H. gegn tillögu ráðherra Kristinn H. Gunnarsson, varafor- maður sjávarútvegsnefndar Alþingis, telur aflatillögurnar fyrir næsta fisk- veiðiár afleitar. Hann hefði viljað sjá auknar afla- heimildir frá því sem nú er, enda bendi margt til þess að sókn í fiskistofna hafi ekki jafnmikil áhrif og menn hafa talið. „Við eigum að draga úr takmörk- unum á veiði og ég held að best væri að byrja á þvi að auka frelsi hjá þeim sem nota þau veiðarfæri sem ólíkegust eru til að valda skaða á stofni." Ágúst Einars- son, prófessor og varaþingmaður Samfylkingarinnar, ver fiskifræðing- ana sem legið hafa undir ámæli vegna þorskaflabrestsins. Ágúst segir mikil- vægt að landsmenn haldi ró sinni. „Staðan er áhyggjuefni en við eig- um að taka mark á fiskifræðingunum, sem við höfum alls ekki alltaf gert. Þeir vita ekki allt en þó mest allra um fiskistofna og afkastagetu," segir Ágúst. Nánar á bls. 5 -BÞ Kristinn H. Gunnarsson Agúst Einarsson prófessor. Með stórbrotnar hugmyndir um uppbyggingu háskólasvæðisins: Kári í byggingariðnað - rektor stígur varlega til jarðar Kári Stefánsson. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, og Hjörleifur bróðir hans eru með stór- brotnar hugmyndir um uppbyggingu há- skólasvæðisins og hafa kynnt þær fyrir Páli Skúlasyni há- skólarektor á óform- legum fundum. Þykja hugmyndir Kára um uppbyggingu á svæðinu ekki síður stórbrotnar en upphaflegar hugmyndir hans um landvinninga á erfðafræðisviðinu. Ef stjóm Háskóla íslands gengur til samstarfs við Kára og hrindir hug- myndum hans í framkvæmd verður Kári meðal umsvifamestu einstak- linga í islenskum byggingariðnaði. Lykilmaður í áformum Kára er Hjörleifur bróðir hans sem er arki- tekt og var einn af stjórnendum Þjóðminjasafnsins þar til nýr þjóð- Hjörleifur Stefánsson. minjavörður var ráðinn fyrir skemmstu. „Við höfum verið að byggja hús íslenskrar erfðagreiningar á há- skólasvæðinu og það hefur stækkað í meðförum okkar,“ segir Hjörleifur Stefánsson, spurður um áform Kára bróður síns. „Við höfum lagt fram hugmyndir um kröftuga uppbygg- ingu á háskólasvæðinu. Við sjáum fyrir okkur dínamískt umhverfi fyr- irtækja og stofnana sem eru að vinna að rannsóknum í þekkingar- Háskólasvæðið Hugmyndir Kára um uppbyggingu ekki síður stórbrotnar en upphaflegar hugmyndir hans á erfðafræðisviðinu. iðnaðinum,“ segir Hjörleifur en bætir því við að viðræður við stjórnendur Háskólans hefðu enn ekki skilað neinum árangri. Páll Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, stígur varlega til jarðar þegar hann er spurður út í hugmyndir Kára Stefánssonar um uppbyggingu á háskólasvæðinu: „Við erum sjálflr með hugmyndir Rúta valt við Bláa lónið í gær: Einn liggur á gjörgæslu um uppbyggingu á svæðinu og þær hugmyndir munum við væntanlega kynna í haust.“ - Eru þær í einhverju frábrugðn- ar hugmyndum Kára? „Ég hef ekki séð neinar teikning- ar hjá Kára en ég ræði við hann eins og alla aðra sem vilja vinna að uppbyggingu á háskólasvæðinu," segir háskólarektor. -EIR Kemísk WC frá 10.900 Þrír voru fluttir slasaðir á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi eftir að rúta valt á mótum Grindavíkur- vegar og Bláa lónsins skömmu fyrir klukkan 19 í gær. Að sögn læknis á slysadeild voru tveir hinna slösuðu útskrifaðir i gærkvöld. Sá þriðji liggur á gjörgæsludeild en hann skarst illa. Sex farþegar voru í rútunni auk ökumanns þegar slysið varð en talið er að vindhviða hafi feykt henni. Lögreglan í Keflavík kom á vettvang ásamt björgunarsveitar- mönnum úr Grindavík og gekk EVRÓ Grensásvegi 3 s: 533 1414 DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON BJörgunarstörf Rúta með sjö manns innanborðs valt við Bláa lónið í gær. ágætlega að ná fólkinu úr rútunni. Rútan var að koma frá Þingvöllum og ætlaði fólkið að heimsækja Bláa lónið. -aþ Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • simi 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.