Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2001, Blaðsíða 20
24
^Tilvera
MIDVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001
DV
Úrslit í ljóðasamkeppni DV og MENOR:
. Töluverður vandi að
þurfa að velja og hafna
- sagði Kristín Árnadóttir, formaður dómnefndar
Bernska
efdr
Njörð P.
Njarðvik
Þegar ég snerti
bemsku mína með augunum
afturluktum i þögn
vitjar mín lognið í fjöranni
logn ilmandi af þangi
þar sem lækurinn hverfur í sæ
með lokkandi hjali
DV-MYND W
Á tröppum Zonta-hússinins
Hópurinn talinn frá vinstri: Sigríður Hjaltested, Emelía Baldursdóttir, Hjalti Finnsson og Roar Kvam, stjórnarmaður
MENOR, gægist yfir öxlina á honum, Björn Þorláksson, fulltrúi DV, sr. Ólafur Þ. Hallgrímsson, formaður MENOR, Krist-
ín Árnadóttir og Svanhildur Ólafsdóttir, einnig í stjórn MENOR.
Tekið við verðlaunum
Sr. Ólafur afhenti Hjalta Finnssyni og Sigríði Hjaltested verðlaunin en Sigríður
tók við verðlaununum fyrir hönd tengdadóttur sinnar, Hallgerðar Gísladóttur,
sem ekki gat verið viðstödd, sem og sigurvegarinn Njörður P. Njarðvík.
Ágæt þátttaka var í ljóðasam-
keppni Menningarsamtaka Norð-
lendinga, MENOR, og DV sem nú
var haldin í 6. sinn en keppnin er
framhald þeirrar hefðar sem borin
<*■ hefur verið uppi frá árinu 1989 und-
ir merkjum MENOR og Dags. Ann-
að hvert ár hefur verið efnt til ljóða-
samkeppni en hitt árið til smá-
sagnakeppni og hefur þátttaka auk-
ist ár frá ári og í ljóðasamkeppnina
að þessu sinni bárust vel á annað
hundrað ljóð. Skilafrestur í ljóða-
samkeppnina var 1. maí sl. en þá
tók dómnefnd til starfa en hana
skipuðu þau Sigmundur Emir Rún-
arsson fyrir hönd Dy, Emelía Bald-
ursdóttir og Kristín Árnadóttir, sem
jafnframt var formaður dómnefndar
fyrir hönd MENOR. Fram kom í
ræðu Kristínar, þegar úrslitin voru
kynnt sl. fóstudag í Zontahúsinu á
Akureyri, að dómnefndinni hefði
vissulega verið töluverður vandi á
höndum að þurfa að velja og hafna
þannig að eftir stæðu einungis þrjú
ljóð til verðlauna. Á endanum hefði
nefndin þó komist að sameiginlegri
niðurstöðu. Þess má geta að í síð-
ustu ljóðasamkeppni, sem haldin
var árið 1999, lenti enginn í fyrsta
sæti þar sem, að sögn sr. Ólafs Þ.
Hallgrímssonar, formanns MENOR,
miklar kröfur eru gerðar til ljóð-
anna og enginn í dómnefnd treysti
sér til að velja vinningsljóðið, jafn-
vel þótt yfir 100 ljóð hefðu borist í
*-keppnina.
Allt þekkt nöfn
Fyrstu verðlaun hlaut Njörður P.
Njarðvík fyrir ljóðið Bernska, í
öðru sæti varð ljóðið Kveðja eftir
Hallgerði Gísladóttur, þjóðhátta-
fræðing hjá Þjóðminjasafni íslands,
og í því þriðja Snáði eftir Hjalta
Finnsson, bónda í Ártúni í Eyja-
fjarðarsveit. „Nöfn allra þessara
höfunda eru þekkt, ýmist meðal full-
trúa MENOR eða annars stað-
ar,“sagði Kristín enn fremur í ræðu
sinni. „Hjalti hefur áður hlotið verð-
laun fyrir ljóð sín á þessum vett-
vangi og er í senn fulltrúi heima-
manna og alþýðumenningar eins og
hún gerist best. Hallgerður er
óþekkt nafn hjá MENOR að því er
ég kemst næst en þeim mun þekkt-
ari sem sérfræðingur á sínu sviði og
ég get ekki stillt mig um að rifja upp
söguna af því þegar hún fór út að
borða í Naustinu og pantaði sér há-
karl bæði í forrétt og eftirrétt og það
þótti þjónunum þar hraustlega gert.
Njörður er búinn að vera í bók-
menntaumfjöllun þjóðarinnar lengi
og hefur þegar gefið út bæði skáld-
sögur, ljóðabækur og fræðirit, auk
þess að ala upp upprennandi menn-
ingarvita á undanfórnum áratug-
um,“ sagði Kristín að lokum um
leið og hún óskaði verðlaunahöfun-
um til hamingju. Hvorki Hallgerður
né Njörður gátu verið viðstödd
verðalaunaafhendinguna, en Sigríð-
ur Hjaltested á Tjöm, tengdamóðir
Hallgerðar, veitti verðlaununum
viðtöku fyrir hennar hönd.
Vegleg bókaverðlaun voru veitt
og fengu allir verðlaunahafarnir
Píslarsögu sr. Jóns Magnússonar
sem Edda bókaforlag gefur út og
Dagbók Anne Frank sem gefin er út
af Hólum. En auk þess voru í fyrstu
verðlaun 20. öldin - brot úr sögu
þjóðar sem Nýja bókaforlagið gefur
út og Nærmynd af nóbelskáldi sem
einnig er gefin út af Hólum.
Að verðlaunaafhendingunni lok-
inni var gestum boðið að gæða sér á
veitingum i boði Zonta-kvenna sem
höfðu borið á borð ilmandi bakkelsi
að ekta íslenskum sið svo það svign-
aði undan þunganum.
-W
og lognið fyllist ljósi
skinandi birtu sem sindrar
á sjónum
og liðast hægt
yfir lognölduna
flýtur til mín
og fyllir mig ljósstöfum
þá opna ég augun
í einmuna birtu
Kveðja
efdr Hallgerði
Gísladóttur
Netta slæðu
úr bringudúni hvítra engla
hefur Guð lagt á leiðið hans afa
í tilefni páskahátíðar
og sáldrað örstjömum yfir
við bautarsteininn
era fór
eftir tvo litla lófa
Snáði
eftir Hjalta
Finnsson
Háleggjuð flfan kinkar ljósum kolli
kvöldblærinn strýkur létt
um sikisbakkann.
Skýst undan steini lonta í lækjarpolli
lágþokuhnoðrar sveima um
mýrarslakkann.
Niður með læknum eigrar
ungur drengur
uppgötvað hefúr margt á þessu vori.
Leiragum fótum móans götu gengur
gutlast í skónum vatn í hverju spori.
Troðið í vasa hagalögðum hefur
húfunni einhversstaðar glutrað niður.
Sólheitan daginn seiðir margt og tefur
söngur í runni, bunulækja kliður.
Góðviðris kvöldin gengur seint
til náða
glókollur hnýsinn. Úr þvf
draumlaust sefur
þar til að morgni mamma
vekur snáða.
Mamma sem skilur allt og fyrirgefur.
J. R. BÍLASALAN
www.jrbilar.is
M. BENZ 300 4MATIC (4x4), árg.^
1991, ekinn 183.000 km, ssk.,
rafdrifnar rúður, topplúga, álfelgur.
Nýlega upptekinn millikassi af
Ræsi. Verð 1.390.000. Ath. skipti.
Til sölu og sýnis á JR Bílasölu.
Bíldshöfða 3,
567-0333, 897-2444.
ATH.! Getum bætt á okkur húsbilum, hjól- og fellihýsum,
a svæðið og á skrá.
Visa/Euro radgreiðslur.
Norðlendingar kjördæmameistarar í bridge:
Dramatík á lokamínútunum
Bridgemenn á Hvanneyri
Sveit Noröurlands eystra var í forystu allan tímann.
Sveit Norðurlands
eystra varð um helgina
kjördæmameistari í sveita-
keppni í bridge á stórmóti
sem fram fór á Hvanneyri.
Sveitin náði forystu frá
fyrstu umferð og hélt óslit-
ið fram á lokamínútur. Þá
virtist sem liðsmenn Suð-
urlands hefðu náð að
„stela" sigrinum með góð-
um árangri í lokaumferð
en eftir mikla rekistefnu
og endurútreikning úr-
skurðaði keppnisstjóri að
Norðlendingar hefðu unn-
ið mótið með eins stigs
mun. Alls fengu eystri
Norðlendingar 484 stig,
Sunnlendingar 483 stig en
Reykvíkingar urðu þriðju
með 472 stig.
Sigursveit Norðurlands eystra
skipuðu: Pétur Guðjónsson, Grettir
Frímannsson, Skúli Skúlason,
Jónas Róbertsson, Stefán Stefáns-
son, Sveinn Pálsson, Reynir Helga-
son, Björn Þorláksson, Stefán Vil-
hjálmsson fyrirliði, Frímann Stef-
ánsson, Þórólfur Jónasson, Sveinn
Aðalgeirsson, Hermann Friðriks-
son, Hlynur Angantýsson, Jón A.
Jónsson, Jóhannes Jónsson, Hákon
Sigmundsson, Kristján Þorsteins-
son, Árni Bjarnason og Stefán
Sveinbjömsson.
Keppt var á fjórum borðum og
náðist bestur árangur á 2. borði hjá
sigursveitinni eða 144 stig alls. Þá
höfðust 128 stig upp úr baráttunni á
1. borði hjá Norðurlandi eystra en
af lægri borðum varð bestur árang-
ur á 3. og 4. borði Sunnlendinga.
Mótið tókst með ágætum og var
gestgjöfum Vesturlands til sóma í
hvívetna. -BÞ