Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Page 19
19
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001_______________________________________________________________
PV____________________________________________________________________________Helgarblað
Kvoslœkur er nœsti bcer
við Lambalæk og bústað-
ur Harðar Sigurgestsson-
ar og Áslaugar Ottesen
stendur rétt við landa-
merkin. Það er haft fyrir
satt að Hörður hafi viljað
hafa hönd í bagga með
því hverjir eignuðust
Kvoslœk svo hann fengi
ekki eitthvert pakk sem
nágranna. Uppboðinu á
Kvoslœk var frestað og
skömmu síðar varð heyr-
inkunnugt að Magnús
Leópoldsson fasteignasali
hefði keypt jörðina fyrir
rúmar 24 milljónir.
Bústaðirnir á Lambalæk dv-myndir njörður
Þarna búa Höröur Sigurgestsson, Brynjólfur Bjarnason og Stefán Ólafsson.
Vindás
Á Vindási búa Friörik Pálsson, fyrrum forstjóri SH, Þorleifur Pátsson, sýslu-
maöur /' Kópavogi, Stefán Pálsson bankastjóri og Kári Arnórsson hestamaöur.
Magnús seldi Kvoslæk hlutafélagi
sem var sérstaklega stofnað um
kaupin og er Hörður Sigurgestsson
formaður þess svo hann getur lík-
lega haft síðasta orðið þegar kemur
að þvi að velja nágranna. Nú er
komið á daginn að nokkrir virðu-
legir frammámenn í Sjálfstæðis-
flokknum eru meðal hluthafa í
Kvoslæk og verða því Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra, Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, og Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkjun-
ar og fyrrum ráðherra, meðal ná-
granna Harðar á Lambalæk.
Þannig má segja að i kringum
Lambalæk og Kvoslæk sé orðið til
nokkurs konar víghreiður Sjálf-
stæðisflokksins í Fljótshlíð, með
umtalsverðri samþjöppun pólitisks
valds á litlu svæði.
Þingmenn og flugstjórar
Nýlega bættist Óskar Magnús-
son, fyrrum forstjóri Hagkaups og
lögfræðingur, í hóp Fljótshlíðarelít-
unnar en hann og Hrafnhildur,
kona hans, byggðu sér hús á Sáms-
staðabakka en Hrafnhildur er alin
upp á Sámsstöðum.
Á Litla-Moshvoli á athvarf
Hreggviður Þorsteinsson endur-
skoðandi en í Tjaldhólum bjó til
skamms tima hinn litríki listamað-
ur, Benedikt Ámason, ásamt eigin-
Fljótshlíðin er eftirsótt
Hér er horft yfir land Kvoslækjar, frá bústaö Haröar Sigurgestssonar á Lambalæk. Hörður er formaöur sérstaks hluta-
félags sem keypti Kvoslæk en Björn Bjarnason, Kjartan Gunnarsson og Friörik Sophusson eru meöal hluthafa.
konu sinni, Agnesi Löve. Nú eru
Tjaldhólar í eigu Guðjóns Steins-
sonar og Særúnar Bragadóttur.
Á Uppsölum erú þeir, ísólfur
Gylfi Pálmason alþingismaður og
Jón Ólafur Tómasson skráðir eig-
endur og eru þau eigendaskipti ný-
lega orðin. Á Núpi í Fljótshlið hef-
ur Andrés Guðnason, þekktur skó-
kaupmaður í Reykjavík, haslað sér
völl ásamt afkomendum sinum. Á
Torfastöðum í Fljótshlíð á Þór Sig-
urbjömsson, flugstjóri hjá Flugleið-
um, talsvert land og sumarbústað.
Sögufrægasti staðurinn í Fljóts-
hlíð er svo að sjálfsögðu Hlíðarendi
þar sem Gunnar Hámundarson lifði
og dó í bardögum sem lýst er i
Njálu. Ekki verður séð að neinn
hafi fest kaup á þessu höfuðbóli enn
sem komið er en jörðin er í eigu
þriggja aldraðra systkina, Guðjóns,
Svövu og Gunnars Helgasonar.
Jörðin Árkvörn, innarlega í
Fljótshlíð, er í eigu Jóns Kristins-
sonar, barnalæknis i Reykjavík,
sem keypti æskuheimili sitt þar fyr-
ir fáeinum árum.
Hér mætti bæta við þeim sem eru
aðeins frægir en ekki ríkir en
krydda vissulega samfélagið i
Fljótshlíð og nefna séra Önund
Bjömsson, sem situr á Breiðabóls-
stað, og Arthúr Björgvin Bollason
sem býr á Torfastööum.
Uppsalir
Á Uppsölum hefur ísólfur Gylfi Pálmason, ungur þingmaöur á uppleiö, haslaö
sér völl.
Lambalækur í Fljótshlíó
/ kringum Lambalæk og Kvoslæk er oröiö til nokkurs konar víghreiður Sjálf-
stæöisflokksins í Fljótshlíö, meö umtalsveröri samþjöppun pólitísks valds á
litlu svæöi.
Hefurðu efni á Fljótshlíð?
Hér að framan var nefnt að
Kvoslækur hefði skipt um eigend-
ur fyrir nærri 25 milljónir króna
og þótti mörgum dýrt þar sem um
er að ræða landlitla jörð, án
kvóta og illa húsaða. Af framan-
skráðu má þó ljóst vera að ekki
er í kot vísað að eiga jörð í Fljóts-
hlíð og mætti helst bera það sam-
an við að eiga einbýlishús eða lóð
í Arnarnesi.
Einhverjar jarðir i Fljótshlíð
munu vera falar og þannig er t.d.
Efri-Þverá, á besta stað í hlíðinni
fögru, föl um þessar mundir fyrir
20 milljónir.
Að lokum er rétt að geta þess
að hér er fjallað um Fljótshlíð
eins og það sé sveitin frá Hvols-
velli og inn alla hlíð, allt inn aö
Fljótsdal. Sá hluti þessa svæðis
sem næst er Hvolsvelli tilheyrir
þó Hvolhreppi en hreppamörk
hans og Fljótshlíðarhrepps eru
milli Núps og Uppsala, ekki langt
innan við Hvolsvöll.
-PÁÁ
Peir eru
þar líka
Oskar
Magnússon á
Sámsstaðabakka
Arthúr Björgvin
Bollason á
Torfastöðum.
Onundur
Björnsson á
Breiðabólsstað.
CHEVROLET SUBURBAN, 9
MANNA, ‘91, BLÁR, SSK., EK.
132 Þ. KM.
V. 1.190.000.
Greiðslukjör, Visa/Euro
raðgreiðslur,skuldabréf, öll skipti
möguleg, ódýrari. Komdu með bílinn,
skráð'ann og við auglýsum hannfrítt
á Netinu með mynd.
BILASALAN SKEIFAN
• BILDSHOFÐA 10 •
S: 577 2800 / 587 1000
Mnreyn: BiJasalaaóí - HjaltEyranptu 10 - Síira. 462 1430
DAEWOO NUBIRA II ST. '00,
SVARBLÁR, 5 GIRA, EK. 12 Þ. KM.
V. 1.490.000.
PEUGEOT 106 COLORLINE
07/98, BLÁR, SSK., EK. 20 Þ. KM,
5 DYRA.
V. 770.000.
SKODA FELICIA LXI, VSK.,
07/99, GRÆNN, 5 GÍRA, EK. 38
Þ. KM.
V. 590.000.
TOYOTA AVENSIS 1800
TERRA '99, GRÆNN, SSK., EK.
59 Þ. KM.
V. 1.395.000.
M. BENZ E-320 ELEGANCE,
4MATIC, '97, GRÆNN, SSK.,
EK. 70 Þ. KM.
V. 3.750.000.
DAEWOO MUSSO TDI
GR.LUXE 03/00, V-RAUÐ., EK.
71 Þ. KM.
V. 2.980.000.
MUSSO E-23 BENSÍN 98,
SILFURL., SSK., EK. 51 Þ. KM.
V. 1.950.000.
notaðir
mium
BETfíl