Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001_______________________________________________________________
X>V___________________________________________________________________________Helgarblað
Fyrirtækin flæða í burtu:
Eg skal dansa á þorrablótinu
- Óli Már Aronsson, oddviti á Hellu, ræðir viö DV um erfitt atvinnuástand og erfiða lífsreynslu
DV-MYNDIR HILMAR PÓR
Óli Már Aronsson, sveitarstjóri á Hellu
Óli telur útlitiö í atvinnumálum Hellubúa uggvænlegt ef rúmlega 100 manns munu missa vinnuna. En hann er vanur
aö takast á viö erfiöleika og þekkir af eigin raun baráttu upp á líf og dauöa.
Ég get gengið svona að nafninu til
hjálparlaust en er negldur saman með
teinum. Ég býst við að ég megi vel við
una enda var ég býsna ákveðinn í því
að komast aftur á fæturna. Ég hét því
á sínum tíma að dansa á þorrablótinu
í vetur og gat staðið við það þótt ég
væri með hækjur.
„Eruð þið að leita að dánarbúinu á
Hellu,“ spurði miðaldra kona í mat-
vöruversluninni á Hellu þegar DV
spurði hvar væri hægt að finna odd-
vitann. Þessi tilraun til gálgahúmors
endurspeglar óneitanlega þær áhyggj-
ur sem íbúarnir á Hellu hafa vegna
ótryggs ástands í atvinnumálum.
Þeim finnst bærinn vera dáinn og að-
eins eftir að skipta upp reytunum.
Við hittum svo Óla Má Aronsson,
oddvita Rangárvallahrepps, á skrif-
stofu hans á hæðinni fyrir ofan versl-
unina þar sem konan var svo fyndin.
Hann sá ekki fyndnina í þessari at-
hugasemd konunnar.
í fyrsta lagi bendir flest til þess að
kjúklingasláturhús, sem Reykjagarð-
ur hefur starfrækt á HeUu um árabil,
verði tekið upp og flutt í MosfeUsbæ,
að frumkvæði Búnaðarbankans sem
hefur keypt eignir Reykjagarðs. Flest
bendir til að bankinn vilji selja
Reykjagarð til fjárfesta sem eiga slát-
urhús í MosfeUsbæ.
Reykjagarður hefur verið einn
stærsti vinnuveitandinn á Hellu, með
70-80 ársverk.
í öðru lagi hefur fyrirtækið Vélar
og þjónusta sagt upp nokkrum starfs-
mönnum sem hafa unnið hjá fyrirtæk-
inu á HeUu og enn fremur hefur Goði
ákveðið að hætta starfrækslu stór-
gripasláturhúss á HeUu og við það
missa tugir manna vinnuna. Samtals
eru því störf 90-100 manna í hættu á
„Fólk hefur áhyggjur af
þessu og er uggandi um sinn
hag. Ég vil ekki vera mjög
svartsýnn í dag en maður
verður að vera raunsœr. Við
þurfum að sýna samtaka-
mátt en við ráðum auðvitað
engu um þessi mál.“
Hellu en á staðnum búa um 600
manns og tæplega 800 í hreppnum öU-
um.
„íbúum hefur í raun ekki fækkað
mjög mikið undanfarin ár. Hér bjuggu
811 manns þegar flest var en eru nú
770. Þrátt fyrir jarðskjálftana í fyrra
varð ekki vart við neinn brottflutn-
ing. í dag er hér ekkert atvinnuleysi
og hefur ekki verið að undanförnu,"
segir Óli Már og kveðst vissulega hafa
töluverðar áhyggjur af þessu ástandi
en bendir þó á að. ekkert hafi endan-
lega verið ákveðið í þessum efnum.
Hann segir að í eftirmálum skjálft-
anna hafi nokkur hús skipt um eig-
endur og brottfluttir Hellubúar jafn-
vel snúiö heim aftur.
Engir stórgripir meir
„Stórgripasláturhúsið hefur verið
rekið hér í 35 ár með ágætum árangri.
Það er rætt um að stórgripaslátrun
verði þá engin á Suðurlandi nema á
vegum Sláturfélags Suðurlands og
þyrfti þá að flytja gripi héðan til Borg-
arness að minnsta kosti. Þetta finnst
fólki hér skjóta skökku við þar sem
þetta er það hérað á landinu sem
framleiðir mest af mjólk og nauta-
kjöti.
Samdráttur eins og sá sem hér
stefnir í hefur síðan áhrif á aðra þjón-
ustustarfsemi og verslun á svæðinu."
- Verður vart við svartsýni og
áhyggjur af ástandinu?
„Fólk hefur áhyggjur af þessu og er
uggandi um sinn hag. Ég vil ekki vera
mjög svartsýnn í dag en maður verð-
ur að vera raunsær. Við þurfum að
sýna samtakamátt en við ráðum auð-
vitað engu um þessi mál.“
Óli Már hefur verið oddviti í sínu
sveitarfélagi í rúm ellefu ár. Er
ástandið verra en hann hefur áður
séð?
„Þangað til fyrir 4-5 vikum fannst
mér atvinnuástandið hér vera gott og
sá enga ástæðu til annars en bjartsýni
fyrir hönd Hellu. En þetta hefur
breyst mikið og mér finnst það veru-
lega skuggalegt ef rúmlega 100 manns
missa vinnuna hér. Þetta fólk býr
ekki allt á Hellu eða í Rangárvalla-
hreppi en málið er jafn alvarlegt þrátt
fyrir það.“
Vantar aðstoð
- Finnst þér koma til greina að op-
inberar stofnanir eða stjórnvöld grípi
með einhverjum hætti inn í ástandið?
„Ég sé ekki í fljótu bragði hvemig
það ætti að gerast. Það væri mjög vel
þegið ef stjórnvöld hjálpuðu okkur við
að auka fjölbreytni í atvinnu. Það er
oft rætt um að færa ríkisstofnanir út
á land og við myndum fagna þvl. Það
var rætt um að færa Innheimtustofn-
un sveitarfélaga hingað en það rann
út í sandinn. Slík aðstoð er sú sem
mér sýnist vera vænlegust."
Milli lífs og dauða
Óli hefur persónulega og erfiða
reynslu af því sjálfur að takast á við
mótlæti og erfiða tíma. Hann slasaðist
mjög alvarlega í harkalegu umferðar-
slysi rétt austan við Hveragerði fyrir
fáum áram og lá lengi milli heims og
helju. Haldin var meðal annars bæna-
stund í kirkjunni í Odda til þess að
veita honum styrk i erfiðum meiðsl-
um. Hvað var það sem gerðist?
„Þetta gerðist í nóvember 1998. Ég
var á leið til Reykjavíkur og það var
tómur mjólkurflutningabíll á leið
austur með tóman tengivagn. Það var
krapi og hálka á veginum og við Gljúf-
urholtsá í Ölfusi snerist mjólkurflutn-
ingabíllinn, tengivagninn lenti þvers-
um á veginum en dráttarbillinn fór
ofan í ána.
Það var fólksbíll á undan mér en ég
var á stórum jeppa og við lentum báð-
ir undir tengivagninum. Maðurinn
sem var í fólksbílnum lést i árekstrin-
um. Bíllinn minn mun hafa kastast
aftur á bak um 20 metra við árekstur-
inn en þegar ég rankaði við mér var
tengivagninn eiginlega ofan á fram-
rúðunni hjá mér,“ segir Óli og rifjar
þessar stundir upp af nokkurri rósemi
þótt skammt hafi verið milli lífs og
dauða þennan nóvemberdag við Gljúf-
urholtsá.
Svaf í hálfan mánuð
„Ég man ekkert eftir árekstrinum
sjálfum. Ég man eftir að hafa rankað
við mér skömmu eftir slysið og þá var
ég fastur í flakinu, illa klemmdur,
enda hafði stýrið og allur framendi
bílsins kýlst saman. Nágranni minn,
sem var á eftir mér í bfl, kom að mér
og gat losað sætið örlítið svo það varð
rýmra um mig.
Ég var illa brotinn á brjóstkassa og
fótum á mörgum stöðum. Eftir þetta
datt ég að mestu leyti út úr heiminum
en man eftir mér eftir frumskoðun á
sjúkrahúsinu og þá var konan mín
komin til mín og ég talaði við hana og
man að ég bað hana að hringja í fólk
og fresta til morguns fundi sem ég átti
að hafa síðar um daginn.
Síðan lá ég meðvitundarlaus i önd-
unarvél í hálfan mánuð. Þetta voru
slæm bijóstmeiðsli og menn héldu
kannski að ósæðin væri sködduð.
Fyrst átti aðeins að láta mig sofa í 2-3
daga en þegar átti að vekja mig þá
brást líkaminn illa viö. Konan mín
var þarna milli steins og sleggju því
allan tímann vissi enginn hvort ég
myndi hafa það af eða ekki.
Ég vaknaði síðan og þá svífur mað-
ur bara í morfínvímu og hefur það i
sjálfu sér ágætt en veit mest lítið um
það sem fram fer.“
Ég skal dansa á blótinu
- Að frumkvæði sóknarprestsins í
Odda var haldin bænastund í kirkj-
unni og var þátttaka geysilega mikil
og segist Óli alltaf vera þakklátur fyr-
ir þann hlýhug sem þar birtist. í dag
eru liðin tæplega þrjú ár síðan slysið
varð. Hefur þú náð fullri heilsu á ný?
„Nei, fæturnir eru ekki nógu góðir.
Ég get gengið svona að nafninu til
hjálparlaust en er negldur saman með
teinum. Ég býst við að ég megi vel við
una, enda var ég býsna ákveðinn í því
að komast aftur á fæturna. Ég hét því
Það varfólksbíll á undan
mér en ég var á stórum
jeppa og við lentum báðir
undir tengivagninum. Mað-
urinn sem var í fólksbíln-
um lést í árekstrinum. Bill-
inn minn mun hafa kastast
aftur á bak um 20 metra
við áreksturinn og þegar ég
rankaði við mér var tengi-
vagninn eiginlega ofan á
framrúðunni hjá mér. “
á sínum tíma að dansa á þorrablótinu
veturinn 1998 og gat staðið við það
þótt ég væri með hækjur. Ég var í
hjólastól um tima fyrst eftir slysið en
þegar ég fór á Reykjalund 1 endurhæf-
ingu í febrúar þá ók ég sjálfur til
Reykjavikur."
- Hvekkjast menn ekkert gagnvart
því að aka eftir svona slys?
„Ég hef ekki fundið fyrir því og satt
að segja man ég ekki alltaf eftir því
þegar ég ek um slysstaðinn hvað þar
gerðist. Það eru stórir partar sem ég
man mest lítið eftir og það kemur
áreiöanlega aldrei aftur.“
- Breytir svona lífsreynsla manni
mikið?
„Maður hugsar öðruvísi á eftir.
Einhvern veginn verða hvers konar
vandamál hversdagsins léttvægari og
maður lætur þau ekki pirra sig eins
mikið og áður. Það verður einhvern
veginn auðveldara að greina aukaat-
riðin frá aðalatriðunum á ■ eftir en
áður var.“ -PÁÁ
Vettvangur slyssins
Þaö var hér viö Gljúfurholtsá í Ölfusi sem bíll meö tóman mjólkurtank sner-
ist í hálku og fór þversum á veginum. Óli Már var aö koma á móti honum
ásamt öörum bíl. Ökumaöur þess bíls lést en Óli var hætt kominn.
23
Suzuki Bateno Wagon, ssk.Skr.
6/97, ek. 56 þús.
Verð kr. 940 þús.
Suzuki Baleno GL, 3 d.,
ssk.Skr. 6/99, ek. 15 þús.
Verð kr. 995 þús.
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 7/97, ek. 51 þús.
Verð kr. 740 þús.
Suzuki Baleno Wagon, bsk.
Skr. 12/97, ek. 74 þús.
Verð kr. 860 þús.
Suzuki Wagon R+ 4wd,
5 d.Skr. 8/00, ek. 12 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Hyundai Sonata GLS, ssk.
Skr. 6/97, ek. 63 þús.
Verð kr. 890 þús.
Subaru Impreza Wag. 4x4
Skr. 11 /99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1580 þús.
Suzuki Jimny, 3 d., bsk.
Skr. 5/99, ek. 47 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Swift GLS, 3 d„ bsk.
Skr. 12/99, ek. 27 þús.
Verð kr. 830 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---✓//>*■............
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, slmi 568-5100