Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Page 2
2
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001
E>V
Fréttir
Spenna á Vopnafirði vegna lottóvinnings:
Miður sín vegna
glataðs lottómiða
- einhver virðist vera að missa af 5,4 milljónum
Gott er fyrir þá sem eru að snúa
öllu við heima hjá sér þessa dagana
að vita að miðinn var keyptur fyrir
hádegi, þriðjudaginn 31. júlí. Ekki
má gefa upp nákvæmari tíma að
sögn Guðbjargar.
Fátítt er að stórvinningar gangi
ekki út og ekki er útséð um þennan
þótt horfurnar séu dökkar. „Það er
alveg hugsanlegt að einhver bíði
bara í holu og sé að hlæja okkur
núna,“ segir Guðbjörg.
Mörg ár eru síðan stórvinningur í
lottóinu kom síðast til Vopnafjarð-
ar. -BÞ
Taugatitringur hefur verið á
Vopnafiröi síðan um mánaðamót en
31. júlí sl. seldist þar miði í Víkinga-
lottóinu sem gaf af sér 5,4 milljónir
króna.
Hins vegar hefur enginn vinn-
ingshafi gefið sig fram og eru
heimamenn famir að óttast að mið-
inn góði hafi glatast.
Helga Ösp er starfsstúlka í Essó-
sjoppunni á Vopnafirði. Miðinn
seldist þar og hún segir að alla jafna
sé bara „einn og einn“ á staönum
sem kaupi lottómiða en dálítið var
um ferðamenn um mánaðamótin.
Grunur leikur þó á að kaupandi
miðans sé í hópi heimamanna.
„Ég kannast við eitt tilvik, þar
sem kaupendur glötuðu miða sem
keyptur var þennan dag,“ segir
Helga Ösp.
Guðbjörg Hólm, þjónustufulltrúi
hjá Islenskri getspá, segir að mikil
spenna hafi verið á Vopnafirði frá
því að vinningstölurnar komu upp, 1.
ágúst sl. Ýmsar sögur eru á kreiki og
síðast í gær hringdi kona í Guð-
björgu og var miður sín vegna þess
að hugsanlegur vinningsmiði hennar
hefði fokið. Eftir að hafa kannað tíma
Vopnfiröingar
eru á taugum þessa dagana vegna
glataös lottómiöa.
kaupanna komust Guðbjörg og kon-
an að því að ekki væri um vinnings-
miðann að ræða og létti konunni,
sem búsett er á Vopnafirði, mikið við
það. „Hún var alveg miöur sin þegar
hún hringdi," segir Guðbjörg.
DV-MYNDIR EIRlKUR JÓNSSON.
íslenskir þátttakendur
Hér má sjá þau Sigurjón Einarsson, Bjarna Jónasson, Hugrúnu Jóhannsdóttur, Svein Ragnarsson og Vigni Jónasson á
keppnisstaönum í Austurríki í gær.
HM í hestaíþróttum í Austurríki:
Er ekki hér til aö ná
í önnur verðlaun
- segir Hafliði Halldórsson sem sýndi mikið öryggi í töltinu
DV-MYNDIR JÚLÍA IMSLAND.
Til Reykjavíkur á menningarnótt
Landnámsmennirnir Ingólfur Arnar-
son til hægri og Hrollaugur Jarlsson
ásamt skapara sínum, listamannin-
um Ásgeiri Ásgeirssyni, tilbúnir í
feröalagiö til Reykjavíkur.
Menningarnótt:
Ingólfur og
Hrollaugur til
Reykjavíkur
DV, HORNAFIRÐI:
Menningarnótt Reykjavíkurborgar
er i kvöld og er venja að einhverjum
stað á lándsbyggðinni sé boðin þátt-
taka í henni. Að þessu sinni eru það
Hornflrðingar sem fyrir valinu urðu.
Listamaðurinn Ásgeir Ásgeirsson í
Víkingaeyjunni hefur gert tvo stóra
og stæðilega trékarla úr rekaviðar-
drumbum, landnámsmennina Ingólf
Arnarson og Hrollaug Jarlsson og í
tilefni menningarnæturinnar koma
gripirnir til Reykjavíkur.
Menningardagskrá Hornaíjarðar
hefst meö athöfn við Ráðhús Reykja-
víkur þar sem tákn Vatnajökuls, tíu
tonna jaki úr Jökulsárlóni, verður
settur framan við Ráðhúsið. Kl. 14
hefst formleg dagskrá Homflrðinga í
Ráðhúsinu þar sem Albert Eymunds-
son, bæjarstjóri Hornafjarðar, og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
flytja ávörp, karlakórinn Jökull verð-
ur með dagskrá og einnig verður flutt
efni eftir Þórberg Þórðarson. -JI
Slæm brunasár
Vinnuslys varð að bænum Ás-
brandsstöðum i Vopnafirði í gær-
morgun. Maður sem þar var að
brenna bíldekk og annað rusl varð
fyrir því að eldurinn náði að læsa
sig 1 buxur hans og brenndist hann
illa.Hann hlaut 2. stigs brunasár á
20% líkamans. Maðurinn var sam-
stundis fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur. -gk
DV, SADL PAURA: ~
„Eg keypti ekki farseðil til Aust-
urríkis til að ná i önnur verðlaun,"
sagði Hafliði Halldórsson kotrosk-
inn á heimsmeistaramótinu í hesta-
íþróttum í Austurríki. Til þessa hef-
ur hann staðið við stóru orðin því
hann reið í efsta sæti í tölti á Valí-
ant frá Heggsstöðum í forkeppninni.
Hafliði sýndi mikið öryggi í sýning-
unni og þarf að gera mörg mistök til
að tapa fyrsta sætinu. Úrslitin eru
eftir og verða spennandi. Þar er
Jolly Schrenk (Þýskalandi) í öðru
sæti á Laxness frá Störtal, Karly
Zingsheim (Þýskalandi) þriðji á
Dökkva frá Mosfelli, Þórarinn H.
Arnarson fjórði á Braga frá Allen-
bach og Stian Petersen (Noregi)
fimmti á Jarli frá Miðkrika. Ekki er
ólíklegt að Þórarinn Hlynur komist
ofar því sýning hans var nokkuð
gölluð. Ef honum tekst að laga gall-
ana nær hann í hagstæðara sæti á
kostnað Þjóðverjanna.
Ekki er enn ljóst við hvaða tíma-
töku verður miðað í 250 metra
skeiðinu. I gær brást raftímatakan í
síðasta spretti er Anna Skúlason fór
á Mjölni á 21,6 samkvæmt hand-
tímatöku. Gordon frá Stóru-Ás-
geirsá lá ekki hjá Sigurbirni Bárð-
arsyni í sama spretti. Fyrst var
ákveðið að þau færu annan sprett,
en svo var ákveðið að sleppa sprett-
inum og miða tíma allra keppenda
við handtímatöku. Yflrleitt eru tím-
ar í handtímatöku betri en raftíma-
tökutímar og getur munað allt að
sekúndubroti. Svo fréttist í dag að á
morgun verði miðað við raftíma-
töku. Það er svipað því að notast sé
við rangstöðu í knattspymu í einum
leik en ekki í öðrum. Ekki eru allir
ánægðir með þetta því Svíinn Magn-
ús Lindquist er kominn til að setja
heimsmet á Þór frá Kalfsvik og
hann vill nota handtímatöku og
auka líkurnar á heimsmeti. Sam-
kvæmt lögum FEIF, eigenda og vina
íslenska hestsins, gilda heimsmet
hvort sem notast er við handtíma-
töku eða raftímatöku og gerast þá
hlutimir flóknir.
Síðari tveir sprettirnir í 250
metra skeiði fara fram í dag, laugar-
dag, en staðan fyrir síðustu sprett-
ina er sú að Anna Skúlason (Sví-
þjóð) og Mjölnir frá Dalbæ eru með
21,6 sekúndur, Sigurbjörn Bárðar-
son og Gordon frá Stóru-Ásgeirsá
með 21,7 sekúndur, Sprengi-Hvellur
frá Efstadal og Reynir Aðalsteins-
son eru með 22,0 sekúndur, Hösk-
uldur Aðalsteinsson (Austurríki) og
Ketill frá Glæsibæ II eru með 22,3
sekúndur og Kristine Segall (Dan-
mörku) og Kjarni frá Tyrevoldsdal
eru með 22,3 sek. Það má því búast
við kærum á morgun vegna skeiðs-
ins á báða bóga. Einnig verður yfir-
litssýning kynbótahrossa í dag og B-
úrslit í nokkrum greinum. Á morg-
un verða úrslit og verðlaunaafhend-
ingar. -EJ
Apar og menn
DV í bíó
Færeyjar eru
flottar
Aóalsteinn
Ingólfsson
MONTON2001
Háskakvendið
og saklausa
stúlkan
Kynþokki og
íþróttir
Teygir sig til
Kanada
Gjaldþrot Thermo
Plus
Vilja rannsóknarnefnd
Þingmenn Sam-
fylkingarinnar vilja
að Alþingi skipi
rannsóknarnefnd
sem hafi það hlut-
verk að rannsaka
alla þætti máls
Árna Johnsens,
fyrrum þingmanns
Sjálfstæðisflokksins. Eins og mál
standa nú er það ætlun Samfylking-
arinnar að beita sér fyrir því á Al-
þingi að rannsóknarnefndin verði
skipuð.
Hassmenn lausir
Fjórmenningarnir, sem handtekn-
ir voru á Austurlandi í fyrradag
vegna tilraunar til smygls á umtals-
verðu magni á hassi til landsins,
voru látnir lausir í gær og málið er
upplýst. Hassinu var varpað frá
borði ferjunnar Norrænu í Seyðis-
firði og einn fjórmenninganna tók
það upp úr sjónum og geystist með
það á sjóþotu til Mjóafjarðar. Á Mjóa-
fjarðarheiði var svo setið fyrir smygl-
urunum og þeir handteknir, sem og
sá sem var um borð í ferjunni. Starfs-
menn Landhelgisgæslunnar komu að
málinu með því að elta sjósleða-
manninn úr Seyðisfirði og láta vita
að hann tæki land í Mjóafirði.
Lokafrestur Omnyu
Hafnaryfirvöld á Akureyri hafa
gefið eigendum rússneska ryðdalls-
ins Omnyu frest til loka næstu viku
að fara með skipið frá Akureyri en
þar hefur togarinn legið í óþökk
bæjarbúa í tæp fjögur ár. Fari skip-
ið ekki innan þessara tímamarka
verður gripið til harðra ráðstafana
til að koma því af svæðinu en skip-
ið liggur á athafnasvæði Slippstöðv-
arinnar og tekur þar verðmætt
bryggjupláss
Samþykktu samning
Hjúkrunarfræðingar sem vinna
hjá ríkinu hafa samþykkt nýgerðan
kjarasamning sinn. í atkvæða-
greiðslu, þar sem um 60% þeirra
greiddu atkvæði, sögðu 78% já við
nýja samningnum en 21% var á
móti því að samþykkja hann.
Bryggjusigling í Eyjum
Nótaskipið Antares VE sigldi á
nótaskipið Sigurð VE í Vestmanna-
eyjahöfn í gærkvöldi.og hafnaði síð-
an á Nausthamarsbryggju.
Skemmdir urðu litlar á skipunum
tveimur en meiri á bryggjunni en
undanfarna mánuði hefur verið
unnið að lagfæringum á henni.
Allir víki
Lögmaður Alþýðusambands Is-
lands hefur farið fram á það að allir
skipaðir dómarar Hæstaréttar víki
úr dómnum þegar mál ASÍ gegn rík-
inu vegna lagasetningar gegn sjó-
mönnum í vor verður tekið fyrir i
Hæstarétti.
Líka menning fyrir norðan
Það er ekki bara í höfuðborginni
sem menningarnótt verður haldin
næstu nótt. Á Akureyri gangast Mið-
bæjarsamtökin fyrir menningamótt
í þriðja skipti og verður mikið um að
vera í miðbænum, verslanir t.d. opn-
ar til miðnættis og mikið um uppá-
komur. Leikurinn mun einnig berast
á Glerártorg en þar verður mikfl
djassveisla í kvöld og svokallaður
djangojass í fyrirrúmi. -gk