Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Page 27
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001
DV
Helgarblað
27
brenna húsið. Húsið var skemmt en
það var þó aldrei dæmt ónýtt af fag-
mönnum og vel hefði verið hægt að
drepa kvikindin með öðrum hætti en
að brenna húsið,“ segir Kristján og
nefnir aðferðir eins og kælingu eða
hitun sem drepa á dýrin.
Tjónið bætt úr opinberum
sjóðum
Þegar hér var komið sögu var ekk-
ert eftir af húsinu nema berstrípaður
grunnurinn og því ekki hægt að láta
kaupin á húsinu ganga tii baka. Með-
an þess var beðið að málið gengi
dómsleiðina, leitaði unga parið á
náðir Bjargráöasjóðs og Hafnarfjarð-
arbæjar.
„Þau keyptu húsið af mér á 8,2
milljónir. Frá Bjargráðasjóði fengu
þau 3,3 milljónir og eina milljón frá
Hafnaríjarðarbæ. Þar með var það
tjón sem þau töldu sig hafa orðið fyr-
ir löngu bætt,“ segir Kristján.
Styrkimir sem unga parið fékk úr
þessum sjóðum segja þau að hafi
fengist með þeim skilyrðum að húsið
yrði brennt. Um það eru hins vegar
skiptar skoðanir þar sem engin skrif-
leg gögn hafa fundist varðandi þau
skUyrði.
Á þessum tíma var parið mikið í
fjölmiölum og ávann sér samúð al-
mennings sem tók sig saman og efndi
„Það var strax komið
fram við mig eins og ein-
hvem stórglœpon sem
vitað hefði af þessu allan
tímann og ég var settur í
fjárhagslega gíslingu og
allar mínar eignir kyrr-
settar. “
til landssöfnunar fyrir parið þar sem
safnaðist ein og hálf mUljón króna.
Þar með var unga parið komið með
andvirði hins brennda húss aftur í
hendurnar. Þau byrjuðu upp á nýtt
og keyptu hús frá Kanada sem þau
skeUtu á grunninn. Nýlega var það
hús auglýst til sölu í Fasteignablaði
Morgunblaðisins og þá var auglýst
kaupverð tæpar 20 mUljónir.
„Ég er alls ekkert svekkktur út í
unga parið heldur miklu frekar út í
kerfið,“ segir Kristján með ró þegar
hann rifjar upp þetta mál. „Maöur
skUur bara ekki hvemig þetta er
hægt,“ segir hann og er þar með að
visa tU þess að unga parið fékk ekki
bara húsið bætt úr opinberum sjóð-
um heldur var Kristján einnig dæmd-
ur tU þess að greiða þeim bætur upp
á þrjár miUjónir.
Fjölmiðlafár
AUt í sambandi við málið er hið
furöulegasta að mati Kristjáns og það
er margt sem honum finnst Ulskiljan-
legt í því. í fyrsta lagi skilur hann
ekki af hverju ekki hafi verið reynt
að láta kaupin ganga til baka og af
hverju húsið hafi verið brennt áður
en búið var að dæma í málinu.
Einnig nær Kristján ekki hvers
vegna Bjargráðasjóður samþykkti
rök parsins um að hann hafi ekki
verið borgunarmaður fyrir tjóninu á
húsinu og á þeim forsendum hafi
parið fengið styrk út úr sjóðnum þeg-
ar hann var ekki einu sinni gjald-
þrota.
„Mér hefði bara fundist réttlátt að
málið hefði gengið dómsleiðina áður
en parinu voru dæmdir styrkir úr
opinberum sjóðum og áður en húsið
var brennt. Það er alveg fáránlegt að
húsinu hafi bara verið hent og ég lát-
inn bera skaðann," segir Kristján
sem er þess fuUviss að öll sú samúð
og umfjöllun sem parið fékk i fjöl-
miölum vegna málsins hafi ýtt undir
það hversu vel þeim sóttist mál sitt á
öUum vígstöðvum.
„Ég vil ítreka það að ég er aUs ekki
svekktur úr í parið. Þau voru bara að
bjarga sér en mér finnst furðulegt
hvernig þeim tókst í rauninni að fá
húsið bætt tvisvar," segir Kristján
sem selur nú sitt eigið hús til að geta
Hvað er
veggjatítla?
Veggjatítla er bjöUutegund sem
útbreidd er um aUa Evrópu. Hún
fmnst í hinum ýmsu viðartegund-
um, en kýs þó helst að koma sér
fyrir í mjúkum við. Viður, sem
farinn er að gefa sig vegna raka,
verður helst fyrir barðinu á
veggjatítlum en bjaUan þrífst best
við 20-23‘C og skiptir rakastig
viðarins miklu máli fyrir þroska
lifranna. Fullorðnar bjöUur eru
einungis á ferli yfir heitasta tíma
sumarsins og lifa þær í mesta lagi
í tvær vikur. BjöUumar verpa
aUt að 50 eggjum um ævina í göt
eða rifur á viði en ekki á sléttan
flöt. Lirfurnar klekjast úr eggjum
á 3-4 vikum og tekur það minnst
tvö ár fyrir þær að verða full-
vaxta. Á meðan þær eru að
þroskast halda þær sig inni í
viðnum en þegar fuUum þroska
er náð leita þær upp á yfirborðið
og skUja þannig eftir lítil hring-
laga göt um 3 mm í þvermál. Þá
leita títlumar að hentugum stað
til að verpa á og þar sem þær eru
fleygar geta þær fært sig töluvert
um set. Meö tið og tíma getur sá
viöur sem hefur hýst veggjatítlur
orðið eins og frauð að innan og
misst aUa burðargetu.
„Öllum þeim gögnum
sem við lögðum fram, var
hafnað. Það var varla lit-
ið á þau, þó vorum við
ekkert síðra fólk en þetta
unga par. Það var bara
eins og fyrirfram vœri
búið að ákveða að dœma
œtti þessu fólki í vil. “
staðið undir málskostnaði.
„Þau fóru strax af stað með miklar
kröfur sem maður heföi haldið að
þeim væri ekki stætt á en annað kom
nú á daginn. Ég var nú svo bláeygð-
ur að halda að svona sprikl og læti í
fjölmiðlum hefðu ekki áhrif á dómar-
ana en annað hefur komið í ljós Það
var gengið fram af slíku offorsi í
þessu máli og mér fmnst ótrúleg
framganga hjá dómurum landsins að
elta svona. Dómstólarnir áttu að átta
sig á því að tjónið var þegar greitt af
opinberum sjóðum og af hverju þá að
dæma mig tU að borga tjón sem þeg-
ar hafði verið greitt?" spyr Kristján
og hikar ekki við að halda því fram
að dómararnir hafi verið litaðir af
fjölmiölaumfjöllum um málið og ekki
unnið heimavinnuna sína og kafað
ofan í málið.
„Öllum þeim gögnum sem við
lögðum fram, var hafnað. Það var
varla litið á þau, þó vorum við ekkert
síðra fólk en þetta unga par. Það var
bara eins og fyrir fram væri búið að
ákveða að dæma ætti þessu fólki í vU
þar sem þau voru búin að blása þetta
upp í fjölmiðlum,“segir Kristján
svekktur og segist vera algjörlega bú-
inn að missa trúna á réttarkerfi
landsins.
Málaferli gegn fyrri eiganda
Sjálfur stendur Kristján í málaferl-
um gegn eigendum þeim sem hann
keypti veggjatítluhúsið af. Hann tap-
aði því máli fyrir héraðsdómi en hef-
ur áfrýjaöi tU Hæstaréttar og verður
málið tekið fyrir í haust. Auk bót-
anna til unga parsins, sem hann var
dæmdur að greiða, hefur Kristján
mátt punga út miklum fjárhæðum í
lögfræöinga og annað. Þannig má
segja að veggjatítlurnar hafi nú þeg-
ar étið upp sjö miUjónir.
„Ég hef nú ekki mikla trú á þessu
ágæta réttarkerfi okkar eftir þess
meðferð þannig að ég er ekki bjart-
sýnn á það að Hæstiréttur eigi eftir
að dæma mér i vU,“ segir Kristján og
bendir á að þar sem búið sé að farga
húsinu sé líka alveg ómögulegt að
kafa almennUega í málið.
Húsgögnin brennd
Fyrir dyrum standa flutningar hjá
þeim hjónum Kristjáni og Helgu og
meðal þess sem verður pakkað eru
húsgögn sem prýddu stofur veggja-
títluhússins á sinum tíma. Þrátt fyr-
ir að unga parið hafi brennt allar sín-
ar mublur af ótta við að títlurnar
leyndust í þeim munu tréhúsgögn
Kristjáns og Helgu áfram fylgja þeim.
„Þetta var svo stórkostleg sýning
hjá parinu á sínum tíma, þegar þau
brenndu mublurnar sínar, enda jók
það mjög á samúð almennings. Það
er hins vegar sannað að þessi dýr
verpa ekki í svona harðan og sléttan
við, þannig að þetta uppistand var al-
gjör óþarfi," segir Kristján og hristir
hausinn.
Þrátt fyrir það sem á undan er
gengið segjast þau hjón vel geta hugs-
að sér að búa aftur í timburhúsi.
„Það er ekkert stórmál að losa sig við
þessi dýr, sérstaklega ekki núorðið
þar sem hægt er að eitra fyrir þeim á
einfaldan hátt, Ég tel að veggjatítlur
séu miklu algengari í íslenskum hús-
um en fólk heldur. Bara á Bretlandi
finnast þessi dýr í 70-80% húsa. Lík-
lega hafa títlurnar verið í húsinu á
Langeyrarveginum frá upphafi en
það var byggt árið 1927. Þær hafa
sennUega komið með timbrinu," seg-
ir Kristján.
„Þetta er hvorki mér, unga parinu
né fyrri eiganda að kenna. Þetta er
bara eitthvað sem er í náttúrunni og
það er í rauninni ekki hægt að draga
neinn tU saka fyrir svona lagað.“
-snæ
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno GL, 3 d.,
ssk.Skr. 3/98, ek. 53 þús.
Verð kr. 750 þús.
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 7/97, ek. 51 þús.
Verð kr. 740 þús.
Suzuki Baleno Wagon, bsk.
Skr. 12/97, ek. 74 þús.
Verð kr. 860 þús.
VW Vento GL 2,0, ssk.
Skr. 7/94, ek. 87 þús.
Verð kr. 670 þús.
Hyundai Accent GLSi, ssk.
Skr. 7/97, ek. 37 þús.
Verð kr. 650 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 5/97, ek. 11
Verð kr. 990
Suzuki Wagon R+ 4wd, 5 d.
Skr. 3/00, ek. 14 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Jimny, 3 d., bsk.
Skr. 12/98, ek. 36 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Subaru Impreza Wag. 4x4
Skr. 7/96, ek. 71 þús.
Verð kr. 1020 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---✓///...........
SUZUKI BÍLAFt HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100