Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2001, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2001 DV Helgarblað 27 brenna húsið. Húsið var skemmt en það var þó aldrei dæmt ónýtt af fag- mönnum og vel hefði verið hægt að drepa kvikindin með öðrum hætti en að brenna húsið,“ segir Kristján og nefnir aðferðir eins og kælingu eða hitun sem drepa á dýrin. Tjónið bætt úr opinberum sjóðum Þegar hér var komið sögu var ekk- ert eftir af húsinu nema berstrípaður grunnurinn og því ekki hægt að láta kaupin á húsinu ganga tii baka. Með- an þess var beðið að málið gengi dómsleiðina, leitaði unga parið á náðir Bjargráöasjóðs og Hafnarfjarð- arbæjar. „Þau keyptu húsið af mér á 8,2 milljónir. Frá Bjargráðasjóði fengu þau 3,3 milljónir og eina milljón frá Hafnaríjarðarbæ. Þar með var það tjón sem þau töldu sig hafa orðið fyr- ir löngu bætt,“ segir Kristján. Styrkimir sem unga parið fékk úr þessum sjóðum segja þau að hafi fengist með þeim skilyrðum að húsið yrði brennt. Um það eru hins vegar skiptar skoðanir þar sem engin skrif- leg gögn hafa fundist varðandi þau skUyrði. Á þessum tíma var parið mikið í fjölmiölum og ávann sér samúð al- mennings sem tók sig saman og efndi „Það var strax komið fram við mig eins og ein- hvem stórglœpon sem vitað hefði af þessu allan tímann og ég var settur í fjárhagslega gíslingu og allar mínar eignir kyrr- settar. “ til landssöfnunar fyrir parið þar sem safnaðist ein og hálf mUljón króna. Þar með var unga parið komið með andvirði hins brennda húss aftur í hendurnar. Þau byrjuðu upp á nýtt og keyptu hús frá Kanada sem þau skeUtu á grunninn. Nýlega var það hús auglýst til sölu í Fasteignablaði Morgunblaðisins og þá var auglýst kaupverð tæpar 20 mUljónir. „Ég er alls ekkert svekkktur út í unga parið heldur miklu frekar út í kerfið,“ segir Kristján með ró þegar hann rifjar upp þetta mál. „Maöur skUur bara ekki hvemig þetta er hægt,“ segir hann og er þar með að visa tU þess að unga parið fékk ekki bara húsið bætt úr opinberum sjóð- um heldur var Kristján einnig dæmd- ur tU þess að greiða þeim bætur upp á þrjár miUjónir. Fjölmiðlafár AUt í sambandi við málið er hið furöulegasta að mati Kristjáns og það er margt sem honum finnst Ulskiljan- legt í því. í fyrsta lagi skilur hann ekki af hverju ekki hafi verið reynt að láta kaupin ganga til baka og af hverju húsið hafi verið brennt áður en búið var að dæma í málinu. Einnig nær Kristján ekki hvers vegna Bjargráðasjóður samþykkti rök parsins um að hann hafi ekki verið borgunarmaður fyrir tjóninu á húsinu og á þeim forsendum hafi parið fengið styrk út úr sjóðnum þeg- ar hann var ekki einu sinni gjald- þrota. „Mér hefði bara fundist réttlátt að málið hefði gengið dómsleiðina áður en parinu voru dæmdir styrkir úr opinberum sjóðum og áður en húsið var brennt. Það er alveg fáránlegt að húsinu hafi bara verið hent og ég lát- inn bera skaðann," segir Kristján sem er þess fuUviss að öll sú samúð og umfjöllun sem parið fékk i fjöl- miölum vegna málsins hafi ýtt undir það hversu vel þeim sóttist mál sitt á öUum vígstöðvum. „Ég vil ítreka það að ég er aUs ekki svekktur úr í parið. Þau voru bara að bjarga sér en mér finnst furðulegt hvernig þeim tókst í rauninni að fá húsið bætt tvisvar," segir Kristján sem selur nú sitt eigið hús til að geta Hvað er veggjatítla? Veggjatítla er bjöUutegund sem útbreidd er um aUa Evrópu. Hún fmnst í hinum ýmsu viðartegund- um, en kýs þó helst að koma sér fyrir í mjúkum við. Viður, sem farinn er að gefa sig vegna raka, verður helst fyrir barðinu á veggjatítlum en bjaUan þrífst best við 20-23‘C og skiptir rakastig viðarins miklu máli fyrir þroska lifranna. Fullorðnar bjöUur eru einungis á ferli yfir heitasta tíma sumarsins og lifa þær í mesta lagi í tvær vikur. BjöUumar verpa aUt að 50 eggjum um ævina í göt eða rifur á viði en ekki á sléttan flöt. Lirfurnar klekjast úr eggjum á 3-4 vikum og tekur það minnst tvö ár fyrir þær að verða full- vaxta. Á meðan þær eru að þroskast halda þær sig inni í viðnum en þegar fuUum þroska er náð leita þær upp á yfirborðið og skUja þannig eftir lítil hring- laga göt um 3 mm í þvermál. Þá leita títlumar að hentugum stað til að verpa á og þar sem þær eru fleygar geta þær fært sig töluvert um set. Meö tið og tíma getur sá viöur sem hefur hýst veggjatítlur orðið eins og frauð að innan og misst aUa burðargetu. „Öllum þeim gögnum sem við lögðum fram, var hafnað. Það var varla lit- ið á þau, þó vorum við ekkert síðra fólk en þetta unga par. Það var bara eins og fyrirfram vœri búið að ákveða að dœma œtti þessu fólki í vil. “ staðið undir málskostnaði. „Þau fóru strax af stað með miklar kröfur sem maður heföi haldið að þeim væri ekki stætt á en annað kom nú á daginn. Ég var nú svo bláeygð- ur að halda að svona sprikl og læti í fjölmiðlum hefðu ekki áhrif á dómar- ana en annað hefur komið í ljós Það var gengið fram af slíku offorsi í þessu máli og mér fmnst ótrúleg framganga hjá dómurum landsins að elta svona. Dómstólarnir áttu að átta sig á því að tjónið var þegar greitt af opinberum sjóðum og af hverju þá að dæma mig tU að borga tjón sem þeg- ar hafði verið greitt?" spyr Kristján og hikar ekki við að halda því fram að dómararnir hafi verið litaðir af fjölmiölaumfjöllum um málið og ekki unnið heimavinnuna sína og kafað ofan í málið. „Öllum þeim gögnum sem við lögðum fram, var hafnað. Það var varla litið á þau, þó vorum við ekkert síðra fólk en þetta unga par. Það var bara eins og fyrir fram væri búið að ákveða að dæma ætti þessu fólki í vU þar sem þau voru búin að blása þetta upp í fjölmiðlum,“segir Kristján svekktur og segist vera algjörlega bú- inn að missa trúna á réttarkerfi landsins. Málaferli gegn fyrri eiganda Sjálfur stendur Kristján í málaferl- um gegn eigendum þeim sem hann keypti veggjatítluhúsið af. Hann tap- aði því máli fyrir héraðsdómi en hef- ur áfrýjaöi tU Hæstaréttar og verður málið tekið fyrir í haust. Auk bót- anna til unga parsins, sem hann var dæmdur að greiða, hefur Kristján mátt punga út miklum fjárhæðum í lögfræöinga og annað. Þannig má segja að veggjatítlurnar hafi nú þeg- ar étið upp sjö miUjónir. „Ég hef nú ekki mikla trú á þessu ágæta réttarkerfi okkar eftir þess meðferð þannig að ég er ekki bjart- sýnn á það að Hæstiréttur eigi eftir að dæma mér i vU,“ segir Kristján og bendir á að þar sem búið sé að farga húsinu sé líka alveg ómögulegt að kafa almennUega í málið. Húsgögnin brennd Fyrir dyrum standa flutningar hjá þeim hjónum Kristjáni og Helgu og meðal þess sem verður pakkað eru húsgögn sem prýddu stofur veggja- títluhússins á sinum tíma. Þrátt fyr- ir að unga parið hafi brennt allar sín- ar mublur af ótta við að títlurnar leyndust í þeim munu tréhúsgögn Kristjáns og Helgu áfram fylgja þeim. „Þetta var svo stórkostleg sýning hjá parinu á sínum tíma, þegar þau brenndu mublurnar sínar, enda jók það mjög á samúð almennings. Það er hins vegar sannað að þessi dýr verpa ekki í svona harðan og sléttan við, þannig að þetta uppistand var al- gjör óþarfi," segir Kristján og hristir hausinn. Þrátt fyrir það sem á undan er gengið segjast þau hjón vel geta hugs- að sér að búa aftur í timburhúsi. „Það er ekkert stórmál að losa sig við þessi dýr, sérstaklega ekki núorðið þar sem hægt er að eitra fyrir þeim á einfaldan hátt, Ég tel að veggjatítlur séu miklu algengari í íslenskum hús- um en fólk heldur. Bara á Bretlandi finnast þessi dýr í 70-80% húsa. Lík- lega hafa títlurnar verið í húsinu á Langeyrarveginum frá upphafi en það var byggt árið 1927. Þær hafa sennUega komið með timbrinu," seg- ir Kristján. „Þetta er hvorki mér, unga parinu né fyrri eiganda að kenna. Þetta er bara eitthvað sem er í náttúrunni og það er í rauninni ekki hægt að draga neinn tU saka fyrir svona lagað.“ -snæ Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. Suzuki Baleno GL, 3 d., ssk.Skr. 3/98, ek. 53 þús. Verð kr. 750 þús. Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk. Skr. 7/97, ek. 51 þús. Verð kr. 740 þús. Suzuki Baleno Wagon, bsk. Skr. 12/97, ek. 74 þús. Verð kr. 860 þús. VW Vento GL 2,0, ssk. Skr. 7/94, ek. 87 þús. Verð kr. 670 þús. Hyundai Accent GLSi, ssk. Skr. 7/97, ek. 37 þús. Verð kr. 650 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk. Skr. 5/97, ek. 11 Verð kr. 990 Suzuki Wagon R+ 4wd, 5 d. Skr. 3/00, ek. 14 þús. Verð kr. 1090 þús. Suzuki Jimny, 3 d., bsk. Skr. 12/98, ek. 36 þús. Verð kr. 1090 þús. Subaru Impreza Wag. 4x4 Skr. 7/96, ek. 71 þús. Verð kr. 1020 þús. Sjáöu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---✓///........... SUZUKI BÍLAFt HF. Skeifunni 17, simi 568-5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.