Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Page 4
4
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
Fréttir
DV
Styttist í tímamörk Vinstri-grænna, Framsóknar og Samfylkingar um samstarf:
Enn ekkert rætt
um uppstillingu
- flóknasta úrlausnarefnið, að sögn Steinunnar Valdísar. Viðræðum miðar hægt
Algjör óvissa ríkir enn um R-list-
ann í Reykjavík þrátt fyrir viðræður
hlutaðeigandi í allt sumar. Fram-
sóknarmenn og samfylkingarsinnar
vilja áfram breiðfylkingu til höfuðs
Sjálfstæðisflokknum en Vinstri
grænir eru á báðum áttum. Tals-
menn aflanna þriggja hafa komið
5-6 sinnum saman til að ræða hvort
grunnur sé fyrir sameiginlegu starfi
en nú er hlé á viðræðunum. Aðeins
tvær vikur eru til stefnu til að kom-
ast að niðurstöðu.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir stýr-
ir viðræðunum fyrir hönd Samfylk-
ingarinnar. Hún segir að þeim miði
hægt en örugglega. „Ég er hæfilega
vongóð um að aðilar muni ná sam-
an.“
Hins vegar
hafa engar við-
ræður farið um
uppstillingu eða
kosningaform og
DV spurði Stein-
unni Valdísi
hvort það væri
flóknasta úr-
lausnarefnið og
svaraði hún að
það gæfi auga-
leið.
Sigríður Stefánsdóttir, formaður
Reykjavíkurfélags Vinstri-grænna,
segir að hlé hafi verið gert á viðræð-
unum þar sem fólk sé að bíða eftir
upplýsingum. Hún vill ekki svara
hvers konar upplýsingar um er að
Sigtidu, |-ii.1 -T t.| [■■
Stefánsdóttir. lagsmanna. Við
verðum bara að
sjá hverju fram vindur næstu tvær
vikur,“ segir Sigríður, aðspurð um
framhaldið.
Að sögn Sigríðar bíða mörg úr-
lausnarefni enn, bæði einfaldir og
flóknir hlutir, og hún segist ekki hafa
spádómsgáfu til að sjá úrslitin fyrir.
En er hún vongóð um að aðilar nái
saman? „Við fengum umboð til könn-
unarviðræðna og erum í þeim af fullri
einurð. Við erum að skoða hvort mál-
efnum Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs sé betur borgið í sam-
starfi en utan þess. Út á það gengur
dæmið."
Sem dæmi um ágreining má nefna
að deildar meiningar eru milli Vinstri
grænna og Samfylkingar um orkumál
og rekstrarform Orkuveitu Reykjavík-
ur. Steinunn Valdís segist þeirrar
skoðunar að ekki verði komist hjá því
að breyta núverandi rekstrarformi
vegna samninga sem búið sé að gera
við Akranesveiturnar en Sigríður ít-
rekar að ákveðin grunnþjónusta verði
að vera í almannaeigu. -BÞ
Göngugatan á Akureyri:
Tilboðum
hafnað og
tekið á víxl
Bæjarráð Akureyrar hefur
ákveðið að fram fari lokað útboð
í framkvæmdir við göngugötuna
í miðbænum milli þeirra tveggja
aðila sem boðið höfðu í verkið
áður. Þau tilboð þóttu hins vegar
of dýr, eins og fram hefur komið
í DV, og var í framhaldi af þeim
ákveðið að bjóða verkið út aftur.
Sú afgreiðsla olli talsverðri
óánægju hjá kaupmönnum í mið-
bænum enda sýnt að þá myndi
framkvæmdin tefjast verulega.
Á fundi framkvæmdaráðs bæj-
arins í vikunni var síðan ákveð-
ið, í ljósi viöræðna við hags-
munaaðila, að ganga til við-
ræðna við lægstbjóðanda í verk-
ið, G. Hjálmarsson ehf., um fram-
kvæmdir við göngugötuna.
Þeirri ákvöröun var því snúið
við af bæjarráði og báðir aðilar
fá tækifæri til að bjóða í verkið á
ný.
-BG
Glaðar í dúkkuleik dv-mynd bg
Gleðin var við völd hjá þeim Rut Matthíasdótiur (t.v.) og Mörtu Grétu Magnúsdóttur þar sem þær voru með dúkkurnar
sínar í síðsumarsgöngutúr á Akureyri.
Rússneskur ryðkláfur
Omnya við Slippkantinn. Skipið hef-
ur verið í Akureyrarhöfn en þess er
vænst að styttist í þrottför.
.tiarnarylirvold Akureyri:
Omnya ófarin
- langeyg eftir brottför
Rússneski ryðkláfurinn Omnya
er enn í Akureyrarhöfn en áður
höföu hafnaryfirvöld og eigendur
skipsins í Murmansk náð sam-
komuiagi um að það yrði á brott fyr-
ir 24. ágúst. „Nú eru eigendurnir
búnir að syndga upp á riáðina í
heila viku en ég trúi að þeir hafi þó
fullan vilja til að leysa málið,“ sagði
Hörður Blöndal hafnarstjóri í sam-
tali við DV í gær.
Hafnaryfirvöld hafa ekki ljáð
máls á öðru en því að skipið verði
fiarlægt. Samkvæmt þvi vinna eig-
endurnir „... sem vilja gera sér eins
mikil verðmæti úr skipinu og hægt
er, hvort sem það yrði fiarlægt eða
því fargað," segir Hörður. Hann seg-
ir eigendurna nú leita samstarfs við
aðra aðila vegna Omnyu en á með-
an bíða hafnaryfirvöld langeyg eftir
því að skipið, sem hefur verið í Ak-
ureyrarhöfn í rétt fiögur ár, fari á
brott. -sb
KEA á Akureyri:
Miklir vextir og
vond afkoma
Kaupfélag Eyfirðinga tapaði 439
milljónum kr. á fyrri helmingi lið-
andi árs. Vergur hagnaður sam-
stæðu KEA er um 194 milljónir
króna. Skýringar á verri heildaraf-
komu félagsins liggja m.a. í gengis-
falli krónunnar og háum vöxtum.
Kaupfélagsstjórinn kveðst hafa
áhyggjur af háu vaxtastigi. -sbs.
Breytingar
Frá og með 1. september verður
áskriftargjald DV kr. 2.200,- á
mánuði. Verð í lausasölu verður 200
krónur á virkum dögum en
Helgarblaö DV kostar 300 krónur.
Veðrið \ kvöld
©
- s* v ur-
ILQi'-' .'S*',
V«
A° , jíb p?.
c-jopí
1!»~-
Rigning einkum austantil
Austan og norðaustanátt, 10 til 15 m/s allra
nyrst en annars heldur hægari, rigning,
einkum austantil og hiti 7 til 13 stig.
Sólargangur og sjávarfóii
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 20.44 20.31
Sólarupprás á morgun 06.13 05.52
Síðdegisflóð 18.05 22.38
Ardegisfloð á morgun 06.19 10.52
Skýringat á veðwrfáknum
KviNDÁTT 10V-HITI lsj -10°
Nvindstyrkur í metrum á sekúndu ^FROST HEIÐSKÍRT
ö
LETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAO
SKÝJAÐ
©
RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓKOIYIA
W h? ir =
ÉUAGANGUR RRUMU- SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
Léttskýjað á Suður- og Vesturlandi
Fremur hæg norölæg átt. Smáskúrir norðaustantil léttskýjað á Suður- og
Vesturlandi. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á Suöurlandi.
Manuda
Þriftjjuda m Mióvíkud
Vindur: F
8-13 IKA'*'
Hiti 7“ til 13”
Norðvestan 8 til 13 m/s
og smáskúrlr meö
norðausturströndlnni en
annars hæg vestan og
norðvestanátt og viða
láttskýjað.
Vindur:
3-8 m/s
Hiti 9° til 14”
Hæg sunnanátt og skýjað
vestantll á landlnu en
léttskýjað austantil. Hlti 9
tll 14 stlg.
mm
Vindur: . /
3-8 m/á—1'
Híti 9° til 14°
Sunnan og suövestanátt,
vætusamt og fremur mllt
veöur.
AKUREYRI léttskýjaö 10
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 10
EGILSSTAÐIR hálfskýjaö 10
KIRKJUBÆJARKL. skörir 10
KEFLAVÍK skýjaö 12
RAUFARHÖFN léttskýjaö 10
REYKJAVÍK skýjaö 12
STÓRHÖFÐI skýjaö 11
BERGEN skýjaö 14
HELSINKI skýjaö 16
KAUPMANNAHÖFN skýjað 20
ÓSLÓ alskýjaö 17
STOKKHÓLMUR 18
ÞÓRSHÖFN skúrir 11
ÞRÁNDHEIMUR rigning 12
ALGARVE léttskýjaö 20
AMSTERDAM úrkoma 20
BARCELONA skýjaö 25
BERLÍN alskýjað 19
CHICAGO hálfskýjaö 19
DUBLIN skúrir 16
HALIFAX léttskýjað 18
FRANKFURT skýjaö 19
HAMBORG skýjaö 18
JAN MAYEN alskýjað 5
LONDON skýjaö 18
LÚXEMBORG skúrir 14
MALLORCA hálfskýjað 25
MONTREAL alskýjaö 20
NARSSARSSUAQ skýjaö 8
NEW YORK mistur 24
ORLANDO alskýjað 24
PARÍS skúrir 15
VÍN rigning 15
WASHINGTON þokumóöa 19
WINNIPEG heiöskírt 3