Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
Útlönd
Grunaöur um sjö morð
Adam Moss, 23 ára maður, er í
haldi lögreglu í lowa vegna gruns
um að hafa framið sjö morð.
Meintur morðingi
sjö manns í haldi
lögreglu í lowa
Lögreglan í Sioux City í Iowa í
Bandaríkjunum hefur handsamað 23
ára gamlan karlmann sem leitað var
að vegna hugsanlegrar aðildar hans
að morðum á sjö manns, tveimur
fullorðnum og fimm bömum.
„Við erum að ræða við hann,“
sagði Joe Frisbie, lögreglustjóri Si-
oux City, við fréttamann CNN um
miðjan dag í gær.
Fyrr um daginn hafði verið gefin
út handtökuskipun á manninn, jafn-
framt því sem hann var ákærður
fyrir þjófnað.
Á fimmtudagskvöld fann barna-
pía lík konu og fimm barna hennar
á aldrinum 5 til 12 ára. Á svipuðum
tíma fannst lík karlmanns annars
staðar í bænum.
Hinn grunaði þekkti alla þá sem
vom myrtir.
Sektir fyrir að
kasta rjómatertu
Þrír Finnar, karlmaður og tvær
konur, sem köstuðu rjómatertu í
höfuðið á James D. Wolfensohn,
bankastjóra Alþjóðabankans, í
Helsinki í mars hafa verið dæmdir
til að greiða sekt fyrir óspektir á al-
mannafæri. Fólkinu er gert að
greiða fjörutíu dagsektir upp á 40
frnnsk mörk hverja, eða sem svarar
rúmum sex hundruð krónum.
Sakborningarnir kvörtuðu yfir
því að dómurinn væri of þungur.
Þeir sögðu að með tertukastinu
hefðu þeir viljað mótmæla starfsað-
ferðum Alþjóðabankans. Wol-
fensohn gerði ekki kröfu um að fólk-
ið yrði sótt til saka.
Rifrildi viö þingiö
Makedónskur lögregluþjónn deilir við
mótmælanda við þinghúsið í Skopje.
Þingmenn Make-
dóníu ræða um
framtíð landsins
Boris Trajkovski, forseti
Makedóníu, varaði þingmenn lands-
ins i gær við því að hætt væri á alls-
herjarstriði ef þeir samþykktu ekki
áætlun um að binda enda á upp-
reisn albanskra skæruliða. Áætlun-
in nýtur stuðnings NATO.
Forsetinn ílutti þingmönnum
boðskap þennan við upphaf um-
ræðna um að veita albanska minni-
hlutanum í landinu aukin réttindi.
Fundurinn tafðist um rúmar sex
klukkustundir vegna mótmælaað-
gerða við þinghúsið.
I>V
Flóttamannastofnun SÞ ræðir norska flóttamannaskipið:
Afganarnir fái leyfi
til að fara frá borði
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna skoraði i gær á áströlsk
stjórnvöld að leyfa afgönsku flótta-
mönnunum um borð í norsku flutn-
ingaskipi í ástralskri landhelgi að
fara frá borði á Jólaeyju. Landgang-
an yrði fyrsta skrefið til lausnar
deilunni um hvað gera skuli við
flóttamennina.
Stjórnvöld i Ástralíu og
Indónesíu hafa til þessa neitað að
taka við flóttamönnunum, þrátt fyr-
ir að afstaða þeirra hafi verið for-
dæmd á alþjóðavettvangi.
Fulltrúum Ástralíu, Indónesíu,
Noregs og Nýja-Sjálands var kynnt
áætlun Flóttamannastofnunar SÞ i
aðalstöðvum samtakanna í Genf í
gær. Þar er gert ráð fyrir að af-
gönsku flóttamennimir fái að fara í
land á Jólaeyju, ástralskri eyju
skammt frá Indónesíu, um stundar-
sakir. Þar verði siðan farið yfir mál
hvers flóttamanns fyrir sig og þeir
loks sendir til landa sem vilja taka
við þeim.
Styöur flóttamennina
Lin Gaff, íbúi á Jólaeyju, vill að af-
gönsku flóttamennirnir í norska
fraktskipinu undan ströndum eyjar-
innar fái að koma í land, eins og sjá
má á boðskapnum á maga hennar.
Karsten Klepsvik, talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins,
sagði við Aftenposten i gær að
hreyfing væri komin á málið og að
líkega yrði tillaga Flóttamanna-
stofnunarinnar endanleg niður-
staða.
Talsmaður Flóttamannastofnun-
arinnar sagði að á fundinum hefði
verið „breiður stuðningur" við til-
lögur um að þjóðir heims tækju
sameiginlega ábyrgð á flóttamönn-
unum 433.
Fundinum í Genf verður fram
haldið í dag og gera menn sér vonir
um að hann leiði til farsællar lausn-
ar fyrir flóttamennina.
Norska flutningaskipið bjargaði
flóttamönnunum úr sjávarháska um
síðustu helgi úr indónesiskri ferju
sem var að því komin að sökkva.
Sumir flóttamannanna lögðu upp
frá heimalandinu fyrir átta mánuð-
um og þeir eru staðráðnir í að kom-
ast til Ástraliu.
Díönu prinsessu minnst í París
Gestir og gangandi í París vottuðu Díönu prinsessu virðingu sína í gær, þegar fjögur ár voru liðin frá því hún lét lífið í
umferðarslysi í frönsku höfuðborginni. Unnusti Díönu, Dodi Al Fayed, sonur eiganda stórverslunarinnar Harrods í
London, lét einnig lífið í slysinu. Engin opinber minningarathöfn var um Díönu í Englandi á dánardægri hennar.
Forseti Suður-Afríku ómyrkur í máli á ráðstefnu um rasisma:
Heimurinn skiptist milli ríkra
hvítra og fátækra svertingja
Thabo Mbeki, forseti Suður-Afr-
íku, dró upp heldur dökka mynd af
heiminum við upphaf ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um kynþátta-
hatur í Durban í gær. Mbeki sagði
heiminn skiptast milli ríkra hvítra
manna og fátækra svertingja.
Mbeki, sem tók við forsetaembætt-
inu af Nelson Mandela árið 1999, tal-
aði enga tæpitungu frammi fyrir sex
þúsund fulltrúum frá 150 löndum.
„Það reyndist nauðsynlegt að viö
kæmum saman af þvi að við viður-
kenndum þá staðreynd aö margir
mega þolu vanvirðu og auðmýkingu
af því að þeir eru ekki hvítir,“ sagði
Mbeki í ræðu sinni.
Allt að tíu þúsund manns hróp-
uðu slagorð gegn ísrael og Banda-
ríkjunum á götum Durban og til
átaka kom þegar mótmælendur
reyndu að dreifa bænaskjölum til
ráðstefnugesta.
Thabo Mbeki
Forseti Suöur-Afríku talaði enga
tæpitungu á ráðstefnu SÞ um kyn-
þáttahatur í Durban í gær.
Fidel Castro Kúbuforseti, Yasser
Arafat, forseti Palestínumanna, og á
annan tug Afríkuforseta sitja ráð-
stefnuna.
Hins vegar eru engir þungavigt-
armenn frá Evrópu, Norður-Amer-
íku eða Asíu.
Flest Evrópulönd sendu aðstoðar-
ráðherra eöa embættismenn vegna
ótta við að vera sett á sakamanna-
bekkinn fyrir viðskipti með afríska
þræla allt fram á miðja 19. öld.
Bandaríkin, Kanada og Israel
sendu öll lágt setta embættismenn
vegna fjandskapar í garð Israels í
uppkasti að lokayfirlýsingu ráð-
stefnunnar. Arabaríkin vilja að ísr-
ael verði stimplað rasista- og her-
námsveldi.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, sagði að ísraelar gætu ekki not-
að helfórina sem afsökun fyrir því
að líta aldrei í eigin barm.
Skuldugri námsmenn
Skuldir breskra
háskólanema hafa
nánast þrefaldast á
undanförnum
þremur árum og nú
er svo komið að eft-
ir þriggja ára nám
eru meðalskuldir
þeirra hátt í tvær
milljónir króna. Ástæðan fyrir
skuldaaukningunni er meðal ann-
ars sú að stjórn Tonys Blairs hefur
afnumið styrki til stúdenta en tekið
upp lánakerfi í staðinn, að sögn
franska blaðsins Libération.
Aukatekjur í dagsljósiö
Meirihluti danskra þingmanna
krefst þess að þingmenn verði að
gera grein fyrir allri vinnu sinni og
efnahagslegum hagsmunum utan
þingsins, svo sem setu i stjórnum
fyrirtækja og stofnana.
Kannski kosið aftur
Kjell Magne Bondevik, fyrrum
forsætisráðherra Noregs, segir ekki
útilokað að endurtaka þurfi póst-
atkvæðagreiðslu fyrir þingkosning-
arnar 10. september næstkomandi
þar sem alvarlegar villur hafa kom-
ið fram í hluta gagnanna sem send
voru út.
Fundur hugsanlegur
Hugsanlegt er að Yasser Arafat,
forseti Palestínumanna, og Shimon
Peres, utanríkisráðherra ísraels,
hittist á óformlegum fundi á Ítalíu í
næstu viku til að ræða friðarhorfur.
í forsetann
Hillary Clinton,
öldungadeildar-
þingmaður og fyrr-
verandi forsetafrú,
segist ekki ætla að
bjóða sig fram til
forsetaembættisins
árið 2004. „Það er
ekki inni í mynd-
inni,“ segir Hillary sem var kjörin
til öldungadeildar Bandaríkjaþings
á síðasta ári.
Óhress með plötu Bjarkar
Nýjasta plata Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Vespertine, fær heldur slaka
dóma í breska blaðinu The Sunday
Times. Gagnrýnandinn Dan Cairns
segir að platan falli kylliflöt og sé
beinlínis þreytandi. Þá segir gagn-
rýnandi The Washington Post að
Björk sé alveg húmorslaus og kvart-
ar undan hreim hennar á enskunni.
Mette-Marit vinsæl
Mette-Marit, ný-
bökuð krónprinsessa
Noregs, nýtur gífur-
legra vinsælda með-
al norsku þjóðarinn-
ar. Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun telja
85 prósent Norð-
manna hana verða
fina drottningu.
Nikítín fær styrk
Bandarísk stjórnvöld hafa veitt
rússneska umhverfíssinnanum Al-
exander Nikítín fimm mánaða styrk
til að stunda rannsóknir vestra.
Vill fá að deyja
Dauðvona bresk kona vann í gær
áfanga í baráttu sinni fyrir því að
maður hennar geti aðstoðað hana
við að svipta sig lífi, án þess að
verða lögsóttur fyrir.
Hillary ekki
g
I