Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Blaðsíða 10
10 I>V LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugeró: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverð 200 kr. m. vsk., Helgarblað 300 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Nýtt fiskveiðiár Nýtt fiskveiðiár hefst í dag, fyrsta september, og er ekki nema að vonum að menn velti fyrir sér framvindu kvóta- kerfisins sem verið hefur við lýði hér á landi í ríflega hálf- an annan áratug. Mikil reynsla er komin á þetta kerfi og sýnist sitt hverjum hvort hún er góð eða slæm. Hér verð- ur ekki dvalið við þær deilur en þess heldur staldrað við stærð íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Það er nefnilega svo að þegar íslendingar blanda saman stærðum og at- vinnurekstri er útkoman einatt skrýtin. í umræðu um íslenska kvótakverfið, sem er einstakt í heiminum, hefur gjarna verið horft til þess að kvótinn hefur jafnt og þétt verið að safnast á færri hendur. Þessi þróun hefur verið einkar áberandi á allra síðustu árum og nú er svo komið að fimmtán stærstu fyrirtækin í þessari veigamestu atvinnugrein þjóðarinnar hafa yfir að ráða meira en helmingi kvótans. Þar af ber eitt fyrirtæki höf- uðið yfir önnur, Samherji hf. á Akureyri, en það ræður nú yfir nærri níu prósentum heildarkvótans. Umræða um islensk atvinnumál hefur um langt árabil verið i þá veru að smátt sé fagurt. Einhverra hluta vegna - og yfirleitt án nokkurs rökstuðnings - hafa stórfyrirtæki þótt fremur óæskileg og bjóða af sér lítinn þokka á meðan dáðst er að möguleikum og einhvers konar innri fegurð smáfyrirtækja. Af sama meiði er rómantíkin sem smá- bátasjómenn baða sig upp úr og ekki er ósvipað viðhorfið til einbúans til fjalla, Bjarts og hans líka. íslandssagan er reyndar saga þess smáa i baráttu við stóra náttúru. Ekki verður með nokkru móti séð að sú þróun sem hef- ur verið að gerast i kvótaeign landsmanna sé með nokkru móti óvænt. Þvert á móti er hún eðlileg afleiðing þess kerfis sem notað hefur verið frá því á níunda áratug síð- ustu aldar. Kerfið, með framseljanlegum aflaheimildum, hefur fest sig í sessi og hvort heldur menn eru sammála þessu kerfi eða ekki hljóta þeir að sjá að ein af öruggustu afleiðingum þess er að kvótinn safnast á færri hendur. Kerfið leitar einfaldlega sinnar mestu hagkvæmni. Á frjálsum markaði er eðlilegt að fyrirtæki sameinist til þess að vera betur í stakk búin til að mæta harðari sam- keppni, ekki síst frá útlöndum. Samherji hf. er gott dæmi um fyrirtæki sem hefur orðið að stórfyrirtæki vegna kvótakerfisins og sameinast æ fleiri félögum, heima og er- lendis, vegna eðlis sama kerfis. Það ræður nú yfir nærri 30 þúsund þorskígildistonnum, eða um 8,93 prósentum af heildarkvóta landsmanna. Að sumum setur hroll en svona er kerfið, svona eru frjáls viðskipti. Það er stórt nafn, Hákot, og Samherji hf. kann að þykja stórt fyrirtæki á sínu sviði. En í þessum efnum er stórt af- stætt. Samherji og önnur stór sjávarútvegsfyrirtæki á ís- landi, svo sem ÚA, Grandi, Þorbjörn, Fiskanes og Harald- ur Böðvarsson, eru að keppa á stórum markaði sem nær ekki einasta yfir allt norðanvert Atlantshafið heldur og yfir önnur úthöf. Keppnin um sölu á hvítfiski og öðru dýr- mætasta sjávarfangi heimshafanna er alþjóðleg og þar duga síður smáfyriræki ef arðs er krafist. í tæplega 300 þúsund manna þjóðfélagi súpa sumir hveljur yfir því að ekki fleiri en fimmtán fyrirtæki eigi um helming fiskveiðikvótans. Fimmtán sterk fyrirtæki í einni atvinnugrein er hins vegar talsverður fjöldi þegar sjávarútvegur er borinn saman við aðrar atvinnugreinar á íslandi. Spyrja má hvort aðrar atvinnugreinar, svo sem á sviði samgangna, matvöruverslunar og oliuviðskipta, státi af slikum fjölda stórra, áhrifamikilla og ráðandi fyr- irtækja í sínum geira. Svarið þekkja allir. Sigmundur Ernir Góður í bóklegu „Af hverju notarðu ekki þessar buxur, væni minn,“ sagði konan og benti á buxur sem höfðu hangið ónotaðar í skápnum um hríð. „Af þeirri einföldu ástæðu, mín kæra,“ sagði ég, „að þær eru vondar í sniðinu. Þær passa alls ekki á mig.“ „Það er skrýtið," sagði konan. „Ég man ekki betur en þær væru í þinni stærð þegar ég keypti þær. Er sniðið á þér kannski vont frekar en á buxun- um?“ Hún horfði út undan sér á kviðinn á mér og mældi hann með augunum. „Þetta gengur ekki. Það fer þér alls ekki að safna bumbu. Þú verður að hreyfa þig, maður.“ Sixpakk „Bumbu, hvaða vitleysa er þetta í þér kona?“ sagði ég og dró inn kviðinn. „Maginn á mér er eins og sixpakk." Þetta orð lærði ég af sonum mínum sem stunda líkamsræktina betur en faðirinn. Þeir segja mér að stæltir maga- vöðvar þeirra séu þannig, sex þétt saman í kippu. Ég er þó ef- ins um að konan hafi skilið sam- líkinguna. „Þú lofar mér reglulega að fara út að ganga en svíkur það jafn- harðan," sagði konan. Hún hafði ekki lokið ræðunni því hún hélt áfram: „Þú nennir ekki í sund og leikfimi finnst þér bara fyrir konur. Fótbolti er aðeins í bernskuminningum þínum. Þú ert vonlaust keis.“ Hún taldi sig geta slett fyrst ég leyfði mér það. „Það er alls ekki rétt hjá þér, elskan mín,“ sagði ég og lokaði skápnum svo illa sniðnu buxurn- ar sæjust ekki. „Þú manst að ég hjólaði fjórum sinnum í vinnuna í fyrra og fór með ykkur mæðg- um í sund á Varmalandi í sum- ar.“ „Sér er hver hreyflngin," sagði konan, „þú sast í heita pottinum meðan við syntum 500 rnetra." Rykfallið golfsett „Hvernig var með þetta golfsett þitt?“ spurði konan eftir nokkra þögn. „Það gekk ekki svo lítið á þegar þú eignaðist það. Ég man ekki betur en þú hafir keypt þér bókina „Hvernig á að leika golf?“ um leið. Síðan hefur þetta sama sett rykfallið úti í bílskúr, nema þá rétt þegar strákarnir skjótast með það út á völl.“ „Jú, sjáðu til, mín elskaða," sagði ég. „Ég tók þetta með mínum hætti og er flnn í þessu bóklega. Ég kann sem sagt sveifluna, svona fræðilega séð. Verklegi þátturinn er svo annar handleggur." „Einmitt," sagði konan, „það eru hand- leggirnir sem eru notaðir í golf- sveifluna. Þú ættir að prófa það einhvern tímann og vita hvernig bóknámið nýtist þér.“ Sú góða kona lét ekki sitja við orðin tóm. Næsta dag tilkynnti hún mér að ég ætti að mæta til golfkennara á tilteknum tíma og hafa með mér rykfallna golfsett- ið. „Hann ætlar að sjá hvernig bóklega sveiflan er,“ sagði konan og glotti. „Reyndu nú að fá í þig bakteríuna svo þú farir að hreyfa þig. Þá kannski passarðu í buxurnar!" ma, um og vinnu,“ sagði meistarinn og skipaði mér í skotstellingu. „Rassinn út,“ sagði kennarinn eftir að hafa kennt mér að halda um kylfuskaftið. „Vinstra hné beygist að hægri fæti um leið og þú tekur bak- sveifluna og gætir þess að nota úlnliðina rétt. Mjaðmahnykkur Ég mætti aðeins of seint í fyrsta golftímann. Svipurinn á kennaranum sýndi að slíkt gera golfleikarar ekki. „Leyfðu mér að sjá sveifluna," sagði kennar- inn þegar hann teymdi mig út á æfingaflöt golfvallarins með fötu sér við hlið, fulla af golfboltum. Ég sveiflaði kylfunni fyrir fram- an hann og verð að viðurkenna að sveiflan var ekki tilþrifamik- il. „Ég er byrjandi," tautaði ég. „Það leynir sér ekki,“ sagði golf- kennarinn. „Ég las samt bók- sagði ég. „Hvaða bók?“ Fylgdu sveiflunni síðan vel eftir með sveigju i mjöðmum og snún- ingi á hægri fæti og horfðu stöðugt á boltann. Sveifla hand- leggjanna er stór en það eru mjaðmirnar sem gefa hnykk- inn,“ ítrekaði kennarinn. „Jú, ég kannast við það,“ sagði ég en kaus að ræða það ekki nánar þegar ég sá undirfurðulegan svipinn á golfmeistaranum. Hann hefur kannski ekki verið að hugsa það sama og ég. „Á ég að muna allar þessar hreyfingar í einu?“ spurði ég í örvæntingu eftir að hafa slegið hressilegt vindhögg, horft til himins í stað þess að góna á bolt- ann og hvorki hnykkt né hreyft mjaðmir hið minnsta. í raun taldi ég mig heppinn að hafa ekki slasað kennarann með högginu. „Þetta kemur,“ sagði kennarinn þolinmóöur. „Við skulum æfa sveifluna án þess að nota bolta.“ Stífur í sveiflunni spurði kennarinn. Ég nefndi golf- bókina góðu en þær upplýsingar virtust ekki styrkja stöðu mína í augum læriföðurins. „Golf bygg- ist á æfingum, þrotlausum æfing- „Er heppilegra að vera i golf- treyju til þess að ná árangri?“ spurði ég. Mér er það í barns- minni er amma mín gaf mér og öðrum barnabörnum svokallaðar golftreyjur. Þetta voru í mínum huga venjulegar peysur en þarna á golfveÚinum rann upp fyrir mér ljós. Auðvitað voru golftreyj- ur ætlaðar golfleikurum til þess að bæta sveifluna. „Vertu bara í flíspeysunni," sagði kennarinn. „Ég sé ekki að J Djörf hugmynd Pálmi Kristinsson og félagar hafa á undirbúningsferli að bygg- ingu Smáralindar farið i gegnum alla þessa umræðu. Hann segir höf- uðatriðið að Smáralind skili eig- endum sínum ásættanlegum af- rakstri, aö öðrum kosti hefðu menn aldrei farið í þetta verkefni. Hann bendir á að sömu rök og nú eru höfð uppi gegn Smáralind hafi líka verið notuð þegar Kringlan var byggð. Kringlan er nú einn helsti samkomustaður landsmanna. Ný verslunar- og þjónustumið- stöð, Smáralind í Kópavogi, verður væntanlega opnuð þann tíunda, tí- unda klukkan tíu mínútur yfir tíu. Þarna er um mikið mannvirki að ræða enda kostar það skildinginn, litlar tíu þúsund milljónir króna. Ýmsar spurningar hafa vaknað vegna þessarar framkvæmdar. Þar er m.a. um að ræöa líkleg neikvæð áhrif á aðra verslun á höfuðborgar- svæðinu. Mikil áhrif á umferð og spurninguna um þörfina á slíkri framkvæmd. Án efa má finna sterk rök gegn því að nokkru sinni hafi verið léð máls á því að hleypa þessu verkefni af stað. Nóg hafi þegar verið að gert í byggingu á verslunarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og stöðugt sé verið að bæta verslunareiningum í ný íbúðahverfi. Þvi sé hreinlega engin þörf á öðru eins risadæmi og menn eru nú að leggja síðustu hönd á í Smáralind. Raunhæft eða ekki Forsvarsmenn Smáralindar gera sér vonir um að fá fimm milljónir viðskiptavina í þessa verslunar- og þjónustumiðstöð. Þegar horft er til þess að íbúar íslands eru ekki nema ríflega 280 þúsund virðast þessar væntingar stjamfræðilegar. Ef litið er hins vegar til reynslunn- ar af Kringlunni er ekki eins víst að hugmyndir Pálma og félaga séu eins fjarlægar og virðist í fyrstu. Kringlan tekur til sín yfir flórar milljónir viðskiptavina á ári. í Smáralind er ýmsu bætt við sem ekki er til staðar í Kringlunni. Þar verður ráðstefnu- og sýningarað- staða sem lengi hefur verið talin mikil þörf fyrir á íslandi. Með sín- um fimm kvikmyndasölum að auki ætti að vera hægt að draga þar að mikinn fjölda fólks. Þá hafa íslend- ingar löngum verið taldir nýunga- gjarnir. Við tökum venjulega öllu sem að okkur er rétt með trompi. Þannig erum t.d. við heimsmeistarar í far- síma- og netnotkun, svo eitthvað sé nefnt. Miðað við það þyrfti enginn að verða hissa þótt áædanir þeirra Smáralindarmanna um aðsókn gangi upp. Þrátt fyrir fullyrðingar fólks sem í vandlætingartón segist aldrei ætla að fara þar inn fyrir dyr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.