Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 13
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
13
I>V
Helgarblað
Súrrandi fullur
- Albert Mónakó-prins í miklu
Fyrir skömmu var minning
Grace Kelly heiðruð með sérstakri
athöfn í hinu smáa konungsríki,
Mónakó. Þar var auðvitað viðstadd-
ur prinsinn og íslandsvinurinn Al-
bert. Hann stoppaði þó stutt við því
hann þurfti að rjúka í einkasam-
kvæmi. Haft er eftir R. Couri Hay,
einum af ritstjórum Hamptons-tíma-
ritsins, að prinsinn hafi verið afar
góðglaður og snemma verið kominn
úr mestöllum fotunum og ofan í
sundlaug.
Þegar Hay gekk inn vildi prins-
inn endilega heilsa honum með
handabandi. Hay lét til leiðast en þá
vildi ekki betur til en svo að prins-
inn togaði hann, í öllum fötunum,
út í sundlaugina til sín. Þegar ofan í
var komið vissi Hay ekkert hvað
hann átti af sér að gera þannig að
hann spurði prinsinn hvort það
væri satt að hann hefði á afmæli
sínu verið- afklæddur af tveimur
konum. „Hann neitaði því og
glotti," sagði Hay.
Þegar Hay yfirgaf partíið var Al-
bert kominn í mjög nánar samræð-
ur við dökkhærða konu. „Ég gæti
sagt ykkur meira en ég geri það
ekki,“ sagði Hay, „en hafið ekki
áhyggjur, ímyndunaraflið sér um af-
ganginn."
Hafa skal það sem
sannara reynist
- Catherine Zeta Jones sættir sig illa við fátæktartal
Catherine Zeta Jones er búin
að fá nóg af umtali um erfiða fá-
tæktaræsku. Eiginmaður henn-
ar, Michael Douglas, var með
silfurskeið í báðum munnvikum
en hún ólst upp í Wales. Hún
segir að það þýði þó ekki að hún
hafi stritað eins og púlshestur í
námum landsins eða nærst á
kolum í barnæsku.
Staðreyndin er víst sú að
Catherine er komin af hefðbund-
inni millistéttarfjölskyldu sem
var Qarri því að vera auralaus.
„Ég veit að það er skemmtilegra
að skrifa um stúlkuna frá Wales
sem komst áfram í lífinu en
þetta er ekki eins og hlutirnir
voru,“ segir Catherine. „Ég varð
mjög reið þegar ég las sögur um
það að ég hefði ekki átt neina
skó þegar ég var lítil og hefði
þurft að ganga um sveitir
betlandi kökur því foreldrar
mínir voru svo fátækir. Foreldr-
ar mínir áttu fallegt hús og í því
ólst ég upp. Þau unnu hörðum
höndum við að koma því upp og
ég fékk þrjár máltíðir á dag.“
Samkvæmt þessu er Catherine
lukkunnar pamfill en þó mætti
halda því fram að miðað við
uppvöxt Tori Spelling hafi hún
nánast verið á götunni. En hafa
skal það sem sannara reynist
þótt annað hljómi betur.
Mike Tyson:
„Sigur“ í
nýjasta
nægja ofbeldið í hnefaleikahringn-
um. Munurinn er bara sá að utan
hringsins lemur hann konur og hef-
ur nokkrum sinnum verið kærður
fyrir barsmíðar og nauðganir.
Nýjasta dæmið er í Kaliforníu þar
sem fimmtug kona hefur kært hann
fyrir að hafa nauðgað sér á heimili
sínu í júlí.
Nú virðist málum þannig háttað
að saksóknari hafi ekki næg sönn-
unargögn í málinu til að sækja
Tyson til saka. Málinu hefur því
verið vísað frá. „Mér þætti gaman
að sækja hann til saka,“ segir sak-
sóknarinn.
í herbúðum Tysons er litið á frá-
visunina sem sigur. Þó er ólíklegt
að Tyson sé sloppinn að fullu þvi
fórnarlambið getur höfðað einkamál
gegn honum og þá eru ekki kröfur
um skynsamlegan vafa; þá er nóg
fyrir sækjandann að sýna fram á að
allt bendi til þess að hann hafi
nauðgað konunni. Og það gæti ver-
ið erfítt fyrir verjendur hans að
hrekja.
nauðgunar
Mike Tyson hefur ekki látið s
Nýr valkostur í sólarferðum yfír vetrartímann
64.390 kr. á mann m.v.
hjón með 2 börn 2 til 14 ára í
11 daga 12. nóv.
73.290
í tvíbýli í 17 daga 4. des.
kr. á mann
Limassol er lífleg og skemmtileg borg þar sem hagstætt verðlag og
spennandi verslunarmöguteikar fara saman.
Hátískuvarningur, gallerí og verstanir ásamt notalegum kaffihúsum og
góðum veitingastöðum mynda skemmtitegt umhverfi í iðandi mannlífinu í
þessari hreinlegu og öruggu borg. Á meðan dvalið er á Kýpur býður Sól
stuttar en spennandi skoðunarferðir frá Kýpur til Jórdaníu, Egyptalands,
Sýrlands og Líbanon.
AF HVERJU KÝPUR í VETUR?
• Vandaðir gististaðir Sólar
• Sumar allt árið
• Öryggi og gestrisni heimamanna
• Hagstætt verðlag
• Spennandi skoðunar- og skemmtiferðir
• Upphitaðar og loftkældar íbúðir
ð Skemmtidagskrá Silfurklúbbsins
ð Upphitaðar sundlaugar
ð Rómuð fararstjórn Sólar
Skelltu þér til Kýpur í vetur. Við ábyrgjumst
að þú verður ekki fyrir vonbrigðum.
^10 OOOKr. aísl. ai
>Lstu 100 sætunum
Ferðaskrifstofan Sól býður nú í fyrsta skipti á fstandi upp á vetrarsól á Kýpur
og það á einstöku verði. Aðalgististaður okkar er Ermitage Beach Hotel í
Limassol sem býður upp á vel búnar íbúðir með upphitun og loftkælingu.
Hótelið er einstaklega vel staðsett við ströndina og í stuttu göngufæri frá
úrvali verslana, veitinga- og skemmtistaða. Kýpur er þriðja stærsta eyja
Miðjarðarhafsins og býður upp á alls kyns spennandi afþreyingu.
Kynningarverð
á fyrstu 100 sætunum:
■ ■
Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensásvegi 22 • Sími 545® 900 • www.sol.is
-heitar ferðirí