Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 45
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001 53 Tilvera Undrabarn í „bridge- heiminumcc Nokkrar af bestu bridgeþjóðum heimsms eru nú önnum kafnar við undirbúning bridgelandsliða sinna sem keppa munu um heimsmeist- aratitilinn á eyjunni, Bali, seinni hluta októbermánaðar. Meistaramót S-Ameriku var haldið fyrir stuttu og sigraði sveit Argentínu sveit Brasilíu með 48 impum í 64 spila úrslitaleik. Sveit Argentínu mun því spila um Bermúdaskálina sem eru í sjálfu sér ekki miklar fréttir því að Argentínumenn hafa um árabil átt góða bridgemenn. Það sem er hins vegar fréttnæmt er að í sveit Argentinu er ungur piltur, að nafni Augustin Madala, aðeins 14 ára gamall, en sakir mikilla hæfi- leika má tala um hann sem undra- barn í íþróttinni. Madla er á öðru ári í gagnfræða- skóla og þykir afburða námsmað- ur. Reikningskunnátta hans er samt rómuð umfram annað náms- efni og hún kemur sér áreiðanlega vel við græna borðið. Oft er talað um, að aldur sé af- stætt hugtak I bridgeheiminum enda eru dæmi um það að öldung- ar á níræðisaldri hafi unnið heims- meistaratitil. Madala náði einnig öðru sæti í tvímenningskeppni S- Ameríku, en makker hans var Car- los Cabanne, sem hefir verið í fremstu röð bridgemeistara í S- Ameríku I meira en hálfa öld. Cabanne er 82 ára. Madala spilar mikið á vefnum, eða á OK-bridge, og telur það góða æfingu. Hann þarf þó að laumast til þess og bíða eftir því að mamma hans sé sofnuð. Miklar vonir eru bundnar við þennan unga bridgemeistara og ég býst við að viö eigum eftir að heyra meira frá honum í náinni framtíð. Að lokum skulum við skoða eitt dæmi frá S-Ameríku-meistaramót- inu með Madala í aðalhlutverkinu. A . *KDG8 ♦ D986 ♦ 98653 4 ÁDG ♦ 1093 ♦ ÁG532 4 ÁD * K8732 V 63 * K107 * K104 4 109654 4» Á752 ♦ 4 4 G72 Með Madala í suður gengu sagnir á þessa leið: Norður Austur Suður Vestur 1 4- pass 1 4 pass 2 grönd pass 3 * pass 34 pass 44 pass pass pass Madala gaf hjartakóngsútspilið og drap síðan hjartadrottninguna. Síð- an svínaöi hann laufdrottningu og austur drap á kónginn. Hann spilaði trompi og blindur átti slaginn. Nú tók Madala tígulás, trompaði tígul, lauf á ásinn og trompaði annan tígul. Síðan tók hann laufgosa, kastaði hjarta úr blindum og tromp- aði síðan hjarta með trompásnum í blindum. Austur varð að undir- trompa og enn var tígli spilað. Austur átti engra kosta völ, en trompaði með sjöunni. Madala yfir- trompaði með niunni, spilaði síð- asta hjartanu og trompaði með drottningunni í blindum. Austur yf- irtrompaði með kóngnum, en Madala átti tíunda siaginn á tromp- tíuna. Laglega spilað hjá unglingnum! Un^Smáauglýsingar byssur, ferðalög, ferðaþjónusta, fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn, gisting, golfvörur, heilsa, hesta- mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt, safnarinn, sport, vetrarvörur, útiiegubúnaður... tómstundir Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍV.ÍS 550 5000 Myndasögur Það stendur hérna í þessum almanna- tryg0íngabasklingi að ég hefði það mjög gott ef ég fasri á eftiríaun núna! tn BUili (Siggi, Slggi.l N hjónabandi verður/ maður að sýna j málamiðlunL .—' /Húnvill það) 1 ekki, prestur. H Þaö er HÚN sem segist ALLTAF'’ hafarétt J ? fyrir sér! J G"ÍÍ*U’ ( Éghitli ) ,,.:lur :U: '! " (gx í Þegar yfirkennanrinn sagði þér að þetta væri síðast aðvörunin sem hann gæfi þér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.