Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 51
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
59
DV
Tilvera
Reiðhöllin Svaðastaðir
-0CHJÍII Ch
RWWERKTA
inn eftir. Mættust þar útverðimir i
skagfirskri hestamennsku, það er að
segja þeir sem fóru fyrir reiðinni af
ystu svæðunum, s.s. af Skaga og úr
Fljótum.
Reiöhöllin Svaðastaðir er hin glæsi-
legasta, en með nafngiftinni er öðrum
þræði verið að heiðra frumherjana í
skagfirskri hrossarækt. -ÞÁ.
DV, SKAGAFIRÐI;
Talið er að um 800 manns hafi verið
við vígslu reiðhallarinnar Svaðastaða
á Sauðárkróki sl. fóstudagskvöld, en
fullt var út úr dyrum og ríkti mikil og
góð stemning. Mörg glæsileg sýningar-
atriði fóru fram við vígsluna, en að
margi-a mati var hápunktur kvöldsins
þegar Karlakórinn Heimir söng „Þú
komst í hlaðið á hvítum hesti“. Kom
þá Bjöm Sveinsson á Varmalæk ríð-
andi á Hrímni sínum og þótt klárinn
sé orðinn 27 vetra var hreint eins og
þeir Bjöm svifu um á Svaðastöðum og
í kjölfarið fylgdi dúndrandi lófaklapp.
Það var Guðbjörg Jóhannesdóttir
sóknarprestur sem vígði húsið og í
kjölfarið fylgdu ávörp. Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra flutti hátíð-
arræðu og var hún á léttu nótunum að
vanda, svolítið góðlátlegt skens á Skag-
firðinga. Ráðherrann lýsti yfir hrifn-
ingu sinni vegna þessa framtaks og
taldi sýnt að Svaðastaðir myndu efla
hestamennsku í Skagafirði enn frekar
auk þess sem reiðhöllin myndi gagnast
vel öðra íþróttafólki.
Sem fyrr segir vora margar glæsi-
legar sýningar og m.a. var tilkomu-
mikil reið ungmenna þar sem sýnt er
að Skagfirðingar eiga marga mjög efni-
lega knapa. í sama flokki var munstur-
reið átta knapa á glæsifákum. Páll
Bjarki á Flugumýri sýndi merina Sif,
hæst dæmda kynbótahross landsins á
þessu vori fyrir hæfileika, og allar
þessar sýningar bera vott um þá
grósku sem er í hrossarækt og tamn-
ingu reiðhesta í héraðinu. Einnig var
kyndilreið og þar sýndur forsmekkur
að brennureiðinni sem fram fór dag-
DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Heiöursvörður
íslenski heiöursvöröurinn, skipaöur skagfirskum hestamönnum, viö vígslu Svaðastaða.
Drecið
MÁNAÐARLECA
FRAM TIL JÓLA!
SkeKunnl 17 og Furuvðllum 5, Akureyri
BR ÆDURNIR
^QEMSSON
Lágmúla 8 • Slmi 530 2800
Lágmúla
Sjónvarpsmiðstöðin
Viöurkenning
Magnús Jóhannesson, formaöur
Skógræktarfélags íslands, Þor-
valdur S. Þorvaldsson, Ólafur Sig-
urðsson og Jóhann Pálsson.
Heiðursmenn
í skógrækt
Á aðalfundi Skógræktarfélags ís-
lands sem haldinn var dagana 24.-26.
ágúst afhenti Magnús Jóhannesson,
formaður félagsins, þremur einstak-
lingum viðurkenningar fyrir störf í
þágu skógræktar og stuðning við starf-
semi skógræktarfélaganna. Þorvaldur
S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri í
Reykjavík, hlaut viðurkenningu fyrir
áratuga störf að félagsmálum skóg-
ræktarhreyfmgarinnar. Þorvaldur hef-
ur setið í stjóm Skógræktarfélags Is-
lands sl. 15 ár og gegndi formennsku í
Skógræktarfélagi Reykjavíkur um 10
ára skeið.
Ólafi Sigurðssyni arkitekt var veitt
viðurkenning fyrir störf í skógræktar-
hreyfingunni en hann hefúr verið í
stjóm Skógræktarfélags Reykjavíkur
frá 1988, þar af formaður í þrjú ár.
Ólafúr beitti sér mjög til að afla nýs
landrýmis fyrir félagið til skógræktar
og í formannstíð hans var gengið frá
samingi um land í Hvammsvík en auk
þess átti Ólafur frumkvæði að því að
Skógræktarfélag Reýkjavíkur fengi
svæði í landi Mógilsár f Esjuhlíðum til
skógræktar og útivistar.
Jóhann Pálsson, fyrrverandi garð-
yrkjustjóri í Reykjavík, fékk viður-
kenningu fyrir liðveislu sina við skóg-
rækt í landinu. Jóhann hefur verið
mikill talsmaður tegundafjölbreytni í
skóg- og garðrækt og haft mikil áhrif í
að auðga tegundafjölda í trjárækt inn-
an borgarlandsins. Jóhann hefur
einnig unnið að fræðistörfum á þess-
um vettvangi, m.a. verið virkur félagi
í Gróðurbótafélaginu og lagt áherslu á
vandvirkni og fagmennsku í skógrækt.
SiiYtíUii r jg[
SialmpMtmiiuni .',SW
Misstu ekki af
verðlaunapottinum!
Veglegir vinningar, þar á meðal
ferðatölvur, geislaspilarar
og margt, margt fleira.
Hringdu núna í síma 55& 5000
'ÁÐALVIN NINC l