Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2001, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 9 DV Norðurland Gjaldþrot Skinnaiðnaðar: 70 nýir á atvinnu- leysisskrá Um 70 manns sem áður störfuðu hjá Skinnaiðnaði hafa skráð sig atvinnu- lausa undanfama daga. 260 eru atvinnu- lausir á Norðurlandi eystra skv. skrán- ingu hjá vinnumiðlun svæðisins. Sú tala er þó ekki nema tæpur þriðjungur þess atvinnuleysis sem var fyrir nokkrum árum. „Gjaldþrot Skinnaiðnaðar breytir töluverðu en ástandið hefur verið gott og við erum ekki svartsýn. Það er slæmt að þetta skuli gerast en hugsanlega verður áframhaldandi rekstur hjá Skinnaiðnaði ef marka má nýjustu frétt- ir og eins vantar í störf hjá sumum öðr- um,“ segir Helena Þuríður Karlsdóttir, forstöðumaður Svæðisvinnumiölunar Norðurlands eystra. Hún segir að þegar svæðisvinnumiðlunin hóf rekstur sinn á vormánuðum ‘98 hafi 600-700 manns verið á atvinnuleysisskrá. -BÞ Menntasmiðja: Eykur atvinnu- þátttöku Könnun sem unnin var fyrir Menntasmiðju kvenna á Akureyri sýn- ir að þátttaka í námskeiðum mennta- smiðjunnar eykur mjög atvinnuþátt- töku kvenna. 16% kvennanna sem hófu námskeið voru á atvinnumarkaði en 54% að námskeiðinu loknu. Menntasmiðja kvenna hefur verið starfrækt á Akureyri síðan 1994. Það ár var atvinnuleysi kvenna í sögulegu hámarki og kom frumkvæði að stofn- uninni frá Valgerði Bjarnadóttur, þá- verandi fræðslu- og jafnréttisfulltrúa. Námið byggist á hugmyndafræði og reynslu frá lýðháskólum og kvenna- dagskólum og skiptist í tvær annir um vor og haust. Útskrifaðir nemendur eru alls 276. Þorbjörg Ásgeirsdóttir er forstöðu- freyja. -BÞ Aukin samvinna er lykill árangurs í ferðaþjónustu í dreifbýli: Getum margt lært af Nýsjálendingum - „bragðið“ af þjóðinni mikilvægt. Landbúnaðarsvæðin vannýtt á íslandi? Colin Michael Hall, heimsþekktur fyrirlesari um ferðamál, telur að ís- lendingar og Nýsjálendingar eigi ótrúlega margt sameiginlegt þegar kemur að ferðaþjónustu. Hall flutti erindi á ráðstefnu á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og Ferðamálaset- urs íslands í Háskólanum á Akur- eyri sl. fóstudag. Fram kom i máli hans að samnýting landbúnaðar og ferðaþjónustu getur verið lykilatriði. Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, setti stefnuna og gat þess að ferðaþjónusta væri sá iðnaður sem yxi nú hvað hraðast. Greiðar sam- göngur væru ein undirstaða mögu- leikanna en samvinnan skipti ekki síður máli. Yfirskrift stefnunnar var einmitt „Samstarf fyrirtækja í ferðaþjónustu - fræði og framkvæmd“ og sýndi Hall fram á samband árangurs og samstarfs hjá Nýsjálendingum und- anfarið. Þar hefur sums staðar orðið bylting í tekjum af ferðamönnum undanfarið. „Efnahagur okkar situr á baki sauðkindarinnar," sagði Hall enda er landbúnaðurinn órofa tengd- ur ferðaþjónustunni hjá Nýsjálend- ingum. Hall sagði enn fremur: „Mál- ið er ekki fjöldi ferðamanna. Málið er hve lengi þeir dvelja og hvað þeir gera.“ Telja má víst að landbúnaðar- svæðið í nágrenni Eyjafjarðar sé vannýtt tekjulind samkvæmt er- indi Hall. Hann sér möguleika í samstarfl milli býla og leggur áherslu á fjölbreytni í mat og drykk. „Þegar ég kem til íslands þá smakka ég á landinu. Ef áhrifin eru jákvæð er ég líklegur til að kaupa íslenskar vörur í útlöndum og mæla með þeim og landinu við annað fólk,“ sagði Hall. Hann segir sem dæmi frábær tækifæri felast í því fyrir íslend- inga að geta boðið upp á íslenska fjallalambið og íslenskan lax í nátt- úrulegu uppvaxtarumhverfi afurð- anna. Einnig þurfi að skapa rétta stemningu í kringum tilurð rétt- anna og þá sé góð þjónusta hreint lykilatriði. -BÞ Miðbær Akureyrar: Hósannavagn um helgar Hósannahópurinn hefur fengið vilyrði bæjarráðs Akureyrar fyrir því að hafa strætisvagn í eigu hóps- ins I miðbæ Akureyrar um helgar. Hósannahópurinn er sérislenskt fyrirbrigði og samanstendur af ein- staklingum sem byggja líf sitt á kristilegum grunni og vilja vinna í þágu þeirra sem hafa villst af leið. í hréfi Hósannahópsins til bæjar- yfirvalda segir að hópurinn vilji staðsetja vagninn spölkorn frá þeim svæðum þar sem talið er að aðstoð- ar geti verið þörf. „Við munum einnig vera íkæddir sérmerktum Hósanna-úlpum og þannig vekja at- hygli á okkur með þvi að ganga um svæðin. Ætlunin er að þeir sem koma í vagninn til okkar komi af fúsum og frjálsum vilja, að eigin frumkvæði. Við höfum ákveðið að bjóða upp á kaffi, kakó og kleinur í vagninum og skapa þannig góða og þægilega stemningu fyrir alla. Stundum verður boðið upp á heita súpu og brauð“ segir i erindi Hósannahópsins. Andrés Guðbjartsson, talsmaður hópsins, sagði i samtali við DV að sams konar vagn væri þegar á höf- uðborgarsvæðinu, i miðbæ Reykjavíkur, Árbæjarhverfi, Breið- holti og Grafarvogi, og þá sé farið hálfsmán- aðarlega til Akraness, Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar. Hann segir að hvar sem vagnar hópsins eru staðsettir séu allir velkomnir sem vilji ræða málin, og skipti þá ekki máli hvert umræðuefnið sé. -gk Frá miðbæ Akureyrar Hósannahópurinn ætlar að bjóöa fram aöstoö sína um hetgar. imimuu VIRKIR DAGAR SKJAR EINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.