Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2001, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 13 Neytendur 33"V Réttindi og skyldur kaupenda og seljenda bifreiða: Oft misbrestur á upplýsingagjöf segir Björn Pétursson hjá FÍB Fyrir nokkrum dögum keypti Guðlaugur Guðmundsson notaðan Nissan Primera-bíl hjá Bílahúsinu, Ingvari Helgasyni, fyrir son sinn. Þegar kaupin voru frágengin og Guðlaugur á leið heim í bílnum sá hann að bíllinn var óskoðaður, reyndar með grænan endurskoðun- armiða síðan í júní. Það kom hon- um á óvart því hann hafði staðið í þeirri trú að notaðir bílar sem keyptir væru hjá umboðunum væru yfirfarnir og ættu að vera í þokkalegu standi. Hann fór því á skoðunarstöð og fékk útprent af því sem í ólagi var. Reyndust það vera fjögur atriði. Guðlaugur var að von- um ósáttur við'það og fór á bílasöl- una með bílinn sem var tekinn á verkstæðið og gert við þessi fjögur atriði. Að því loknu fór hann með bilinn í skoðun. Þá komu í ljós önn- ur íjögur atriði sem þörfnuðust lag- færingar en þrátt fyrir það fékk bíllinn skoðun. Þvi lá leiðin aftur í bílasöluna og var bíllinn aftur sett- ur á verkstæði til að kippa þessum hlutum í lag. Guðlaugur hefur þurft að snúast mikið í kringum þessi bílakaup, m.a. þurft að skilja bílinn tvisvar eftir á verkstæðinu, og er ósáttur við að bílasalinn skyldi ekki upplýsa hann um þessa ann- marka bílsins. Auk þess var bíllinn skráður sem leigubíll og gjöld af honum ógreidd. Guðlaugur leitaði aðstoðar Félags íslenskra bifreiða- eigenda í þessu máli og segir hann að mun verr hefði farið hefði þeirra aðstoðar ekki notið við. Við þessa sögu vaknar sú spurning hver rétt- ur bílkaupenda sé við svona að- stæður og hver sé upplýsingaskylda seljenda. Ýmislegt athugavert Gunnlaugur leitaði til FÍB með sitt mál og segir Bjöm Pétursson, starfs- maður felagsins, að reynsla Guðlaugs sé ekki dæmigerð fyrir bílasöluna hjá Ingvari Helgasyni, heldur virðist sem allt hafl farið á fleygiferð við útsöluna og bílasalinn sem annaðist málið ekki passað upp á að allt væri i lagi. „Hins vegar hafi a.m.k. þrjú atriði hafi verið athugunarverð við framgöngu bílasal- ans sem seldi Guðlaugi bílinn. „í fyrsta lagi var bíllinn ekki með fullnaðar- skoðun og frestur tO að ljúka bótum á honum útrunninn. í öðru lagi er hér um dísilbíl að ræða og af honum hafði verið greiddur þungaskattur fyrir hálft árið en ekki hafði hann verið gerður Guðlaugur Guðmundsson við bílinn bilaða Bílakaupunum hafa fylgt ótal snúningar sem hægt hefði verið að komast hjá hefði bílasalinn upp- lýst kaupandann um ástand bílsins og skráningu eins og honum ber. Eins hefði Guðlaugur átt að kynna sér betur ástand bílsins áður en hann var keyptur. upp fyrir seinni hluta ársins. Þar af leiðandi var áhvílandi þungaskattur á bílnum en ekki er hægt að umskrá bíla fyrr en hann hefúr verið gerður upp. í þriðja lagi var bíllinn skráður sem leigubíll og þá er þungaskattsgjaldið 25% hærra. Þessi þrjú atriði voru mis- tök af hálfu bifreiðasalans." Bjöm seg- ir að einnig hafl vantað skráða ástands- yfirlýsingu seljanda sem samkvæmt lögum á að vera til staðar við sölu. Mistök Kjartan Baldursson, starfsmaður hjá Bílahúsinu, segir að fyrirtækið leitist við að gefa viðskiptavinum sínum sem bestar upplýsingar um þá bíla sem til sölu séu hveiju sinni. „Hins vegar er ekkert óeðlilegt að þegar keyptir em gamlir, mikið keyrðir bíla að eitthvað geti verið að þeim. Við erum með mörg hundmð bfla og farist hefur fyrir að koma þessu eintaki í skoðun, því mið- ur.“ Kjartan segir að einhver mistök hafl átt sér stað þegar Guðlaugi var seldur bfllinn án þess að vera fræddur um ástand hans. Mikið hafi verið að gera og því kannski meiri likur á að slík atvik ættu sér stað. „En við erum að leiðrétta þessi mistök, ég veit ekki betur en að búið sé að gera við öll þau atriði sem gerð var athugasemd við í skoðun bílsins og meira tfl.“ Víöa misbrestur Ef bflasalinn veit af bilunum í bíln- um ber honum skylda að tilkynna kaupandanum það. í lögum og reglu- gerðum er sérstaklega tiltekið að „hafi bifreiðasali ástæðu til að ætla að ástand ökutækis sé ábótavant ber hon- um að vekja athygli kaupanda á þeim annmarka." Eins segir „bifreiðasali skal afla upplýsinga sem staðfestar skulu skriflega af seljanda um akstur og ástand skráningaskylds ökutækis, svo og annarra þeirra upplýsinga sem kaupanda era nauðsyiflegar vegna kaupanna. Gögn þessi skulu fylgja af- sali og skal bifreiðasali jafnframt varð- veita þau í eitt ár.“ í reglugerð sem fylgir lögunum um bifeiðakaup segir jafnframt „Bifreiðasaji skal staðfesta að seljandi hafi gefið fuflnægjandi ástandslýsingu á ökutækinu." Þeir sem lenda í að kaupa bfl af aðila sem ekki fylgir þeim ættu að tilkynna það lög- reglu því innan lögreglunnar er deild sem hefur eftirlit með leyf- ishöfum til bfla- sölu. „Það er ansi víða misbrestur á að farið sé eft- ir þessum regl- um,“ segir Björn. „Þó em margir bílasal- ar með alla hluti í stakasta lagi en aðrir sinna þeim ekki á neinn hátt. Á þetta bæði við um umboðin sem og aðrar bflasölur. Og þar skilur á mflli kaup- manna og prangara." Skyldur kaupenda Kaupendur hafa einnig skyldum að gegna við bif- reiðakaup. Þeim ber skylda að skoða bflinn vel áður en gengið er til afsals. Geri þeir athuga- semdir við ástand bílsins skal undan- tekningalaust skrá þær á afsalið. Hið sama gildir um upplýsingar sem bfla- sali gefur kaupanda, þær á að skrá á af- salið. Með því móti má koma í veg fyr- ir misskilning af ýmsu tagi. Bjöm vill ítreka fyrir fólki að fara með bfla sem það hyggst kaupa í ástandsskoðun til að koma í veg fyrir að því yfirsjáist bil- anir og gallar. Ekki nægi að bíllinn hafi verið yfirfarinn af t.d. umboðinu. „Að minum dómi er um þrenns kon- ar skoðun að ræða,“ segir Bjöm. „Þær em hin lögbundna skoðun sem er skoð- un á öryggistækjum, ástandsskoðun sem kaupendur notaðra bíla geta nýtt sér og er ástandsmat á bilnum, og svokölluð söluskoðun hjá umboðunum sem er ekkert annað en mat á verðgildi bflsins. Ekki er verið að meta bflinn til að hægt sé að gera við hann. Einstaka umboð yfirfara þó bfla og er þá sérstak- lega auglýst að bflamir séu yfirfamir. En hafa ber í huga að umboðin fara yflr bíla til að sjá hvað er aö þeim en ekki er þar með sagt að gert sé við þá“. -ÓSB Kringlan: Gestir fá happ- drættismiða Allir gestir Kringlunnar munu sjálfkrafa taka þátt í happdrætti í sept- embermánuði. Þeir sem eiga viðskipti við einhverja af verslunum eða þjónustuaðilum Kringlunnar í mánuðinum fá happ- drættismiða í pokann sinn. Gildir þá einu hvort keypt er fyrir 200 krónur eða fyrir 20.000 krónur. Kringlugestir fá vitanlega happ- drættismiða í hvert sinn sem þeir versia. Vinningslíkur má því auka með því að koma oft í Kringluna. Happdrættismiðinn er í raun póst- kort en á hverju póstkorti er happ- drættisnúmer. Vinningsnúmer verða dregin út þann 1. október og birt á vef Kringlunnar www.kringlan.is og við þjónustuborð Kringlunnar. Meðal vinninga í póstkortahapp- drætti Kringlunnar eru vikuferð fyr- ir tvo til Portúgals með Úrvali-Útsýn, Canon Ixus II myndavél frá Hans Pet- ersen, 3330 farsími frá Tali, Kringl- unni, og gjafabréf frá Kringlunni. Auk þess verða dregnir út vinningar frá Leonard, Nanoq, Byggt og búið, Auganu, Japis, Aveda og kvenfata- versluninni Iðunni. Sepfember tilbeð blöndunartæki frá TSica SANITED TECHNIK FM Mattsson í Mora, Sviþjóð Eínnarhandar blöndunartækí fyrir eldhús. frá kr. 4.690,-st0r. handlaug m. lyftitappa. frá kr. 4.890,- sigr. Hitastýrð verð frá kr. 8.900,- sigr. Vib Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.ls OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18 _____taugord. kl. 10-14___ e e ÞRIÐJUDAGAR I KVOLD 19.30 Everybody Loves Raymond 20.00 Providence 21.00 Innlit/Útlit 21.50 Fréttir og Málið 22.00 Law & Order 22.50 Jay Leno SKJARE/NN ■imiUimmmuitiiiiUimmmiiimitumiiUiiiiiiiiiiuiiiiiiinuiiiuiii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.