Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Qupperneq 2
2 LAUGARÐAGUR 22. SEPTEMBER 2001 Fréttir Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi RKÍ, til Pakistans: Viðbúnir því sem kann að gerast „Það er óvissuástand og menn verða einfaldlega að vera viðbúnir þvi sem kann að gerast," sagði Þórir Guð- mundsson, upplýsingafulltrúi Rauða kross íslands, við DV áður en hann hélt til Pakistans i gær. Þar mun hann starfa í hálfan mánuð en snúa að því búnu aftur heim. Þórir sagði að allir alþjóðlegir starfsmenn Rauða krossins sem ynnu að verkefni varöandi Afganistan væru staddir í Pakistan nú. Sjálfur verður hann á vegum Alþjóðasambands Rauða kross-félaga. Alþjóða Rauði krossinn skiptist í tvennt, Alþjóðaráð, sem starfar beint á átakasvæðum, svo og Alþjóðasamband landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem starfar að hjálpar- starfsemi sem beinist að t.d. flótta- mönnum. Þórir mun gegna staríi upplýsinga- fulltrúa Alþjóðasambands Rauða kross-félaga í Pakistan. Það beinist einkum að því að hafa samskipti við pakistanska Rauða hálfmánann. „Þetta felst aðallega í því að fylgjast með þvi sem fram vindur og taka þátt í ákvarðanatöku um aögerðir," sagði Þórir. „Af því að við vitum ekki hve ástandið getur orðið alvarlegt og hver fjöldi flóttamanna frá Afganistan er snýst þetta einfaldlega um að vera á staðnum og taka þátt í ákvörðunum um hjálparstarf. Þetta er komið tO vegna þess spennuástands sem ríkir á þessu svæði. Þvi þarf að hafa fólk á staðnum sem getur tekið ákvarðanir fljótt.“ Til Pakistans Þórir Guömundsson, upplýsingafull- trúi Rauða krossins, er á leiö til Pakistans þar sem hann mun starfa í hálfan mánuö. Þórir kvaðst ekki eiga von á að ferð- in yrði sérlega áhættusöm. Menn fylgdust mjög náið með ástandinu og gætu gert það sem þyrfti til að tryggja öryggi starfsmanna. -JSS mmmam hættir Þorgils Óttar Mathiesen gefur ekki kost á sér til fram- boðs við bæjarstjóm- arkosningar næsta vor. Þorgils Óttar hefur setið i bæjar- stjóm fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Þá mun varabæjarfulltrúinn Skarphéðinn Orri Bjömsson einnig vera á fórum úr póli- tíkinni. Áður hafa samfylkingarmenn- imir Ingvar Viktorsson og Tryggvi Harðarson tilkynnt að þeir verði ekki í framboði í vor. Tryggingafélögin græða VÍS, Sjóvá-Almennar og Trygginga- miðstöðin. sem era stærstu trygginga- félög landsins, hafa hagnast um 2 millj- arða króna á síðustu tólf mánuðum. Hjá tveimur fyrirtækjanna hefur dreg- ið úr tjónum og iðgjaldagreiðslur hafa hækkað meira en bókfært tjón. RÚV greindi frá. Þorgils Ottar Sjúkraliðar: Allt útlit fyrir verkfall „Það miðar ekkert og eins og staðan blasir við nú verður vart komist hjá verk- falli,“ sagði Krist- ín Á. Guðmunds- dóttir, formaður Sjúkraliðafélags íslands, í samtali við DV í gær- kvöld. I gær fundaði samninganefnd sjúkraliða í húsakynnum ríkissáttasemjara en fundarhlé var gert síðdegis og næsti fundur ekki boðaður fyrr en á þriðjudaginn. Kristín segir mikið bera í milli og langt í land með að samningsaðilar nái saman. Hún átti í gær fund með félagsmönnum og sagði samstöðuna mikla þeirra á meðal. „Þaö er gríð- arleg samstaða og eindrægur vilji félagsmanna að ná fram kjarabót- um,“ sagði Kristín. Náist ekki samningar skellur verkfall sjúkra- liða á um mánaðamótin og mun bitna mjög á starfi spítalanna. -aþ Kristín Á. Guömundsdóttir. Erlendur maður vakti illan grun hjá farþegum í Grænlandsflugi: Var með hníf og myndir af bin Laden - reyndist vera kokkur frá Kanaríeyjum í orlofi Erlendur farþegi, sem kom með vél Flugfélags íslands frá Kulusuk á Græn- landi í fyrrakvöld. vakti illan gran hjá öðrum farþegum vélarinnar á leiðinni fyrir dularfulla framkomu sina. Höfðu þeir séð að hann var m.a. með hnifa í fórum sínum, svo og myndir af hryðju- verkaleiðtoganum alræmda Osama bin Laden. Lögregla og tollverðir tóku manninn til rannsóknar þegar vélin lenti á Reykjavíkurflugvelli. Reyndist allt í lagi með skilríki hans og var hon- um sleppt að skoðun lokinni. Þarna reyndist vera á ferðinni sérvitur kokk- ur ffá Kanaríeyjum, sem var á ferðalagi í orlofi sínu. „Hann var með einn lítinn vasahníf á sér, sem er ekki óalgengt, þótt það sé kannski farið að taka öðravísi á þvi núna,“ sagði Friðrik Gunnarsson að- Frá Kulusuk stoðaryfirlögregluþjónn þeirrar deildar lögreglunnar sem fer með málefni út- lendinga hér á landi. „Hann var með myndir af bin Laden í fórum sínum og alls konar furðuiegu fóki. Hann var líka með mikið af myndum af kettlingum og nokkrar af öðram dýram. Hann hafði vakið athygli með dularfullri fram- komu sinni, enda sagðist hann vera sér- vitringur. Vegabréfið hans þótti eitt- hvað skrýtið í upphafi. En þegar það var tekið í almennilega skoðun í kerf- unum okkar reyndist allt vera í lagi. Þetta er ekta Spánverji, einhver kokkur á Kanaríeyjum sem leggst í ferðalög á sumrin þegar hann þarf ekki að vera að elda ofan í íslendinga." Maðurinn hafði farið með Fl til Grænlands fyrir nokkram dögum. Far- þegi með Grænlandsfluginu til baka í fyrrakvöld sagði við DV, að kvisast hefði meðal farþega vélarinnar að hníf- ar hefðu verið teknir af manninum í Kulusuk. Þá hefðu þeir séð myndir af bin Laden í fórum hans. Farþegunum hefði alls ekki staðið á sama, enda hefðu þeir ekkert vitað um manninn. Þeir hefðu verið því mótfallnir að hann færi um borð, en hann hefði síðan ver- ið hafður aftast í vélinni. Lögreglan hefði beðið eftir honum á Reykjavíkur- flugvelli til að rannsaka hann. -JSS Skipverjar fá bætur Héraðsdómur i Reykjavík kvað í gær upp dóm þar sem Samskipum er gert að greiða tveimur fyrrver- andi skipverjum á ms. Amarfelli bætur vegna ólög- legí'ar uppsagnar. Mennirnir smygluðu spíra hingað til lands en skipafélagið stóð ekki rétt að uppsögnum þeirra. Landfylling í Arnarnesvogi Skipulagsstofnun hefur lagt blessun sína yfir fyrirhugaða landfýllingu í Amamesvogi í Garðabæ. Fyrirhugað er að koma fyrir tæplega 2000 manna íbúðarbyggð á svæðinu. Úrskurð Skipulagsstofnunar er hægt að kæra til umhverfisráðherra og rennur frest- ur út 26. október næstkomandi. Óvenjumikil ýsa í Eyjafirði veldur vandræðum: íhuga nú að flýja í land undan ýsunni - ógnar atvinnuástandi í Hrísey. Kerfið virkar ekki, segir sveitarstjórinn Atvinnu ógnað Atvinnuástandi í Hrisey er ógnaö þessa dagana af mikilli ýsugengd í Eyjafiröi. Sérkennileg staða er nú komin upp í Hrísey en fyrirtækið sem gerir út línubátinn Sigga Gísla, er þessa dag- ana alvarlega að íhuga að leggja bátn- um vegna óvenjumikiflar ýsugengdar fyrir Norðurlandi og í Eyjafirði. Segja má að sjómenn íhugi að flýja í land undan þessari miklu ýsugengd. Þó þetta hljómi öfugsnúið og jafnvel hálfspaugilega er þetta grafalvarlegt mál fyrir Hríseyinga því Siggi Gísla og vinnsla á þeim afla sem hann kemur með aö landi er mikilvægt atvinnufyr- irtæki í eynni sem skapar um 15 manns vinnu. Það munar um minna í plássi sem hefur átt undir högg að sækja í atvinnumálum. Að sögn Péturs Bolla Jóhannessonar era það nýjar reglur um kvótasetningu á ýsunni sem valda þessum vandræðum. Siggi Gísla hefur engan ýsukvóta og erfitt er að fá leigukvóta í ýsu. Þess utan er verð á ýsu lágt um þessar mundir, þannig að það svarar engan veginn kostnaði að landa ýsunni og fá fyrir hana um 130 krónur og þurfa að borga um 120 krón- ur fyrir kílóið í leigukvóta Vandinn er hins vegar sá að ekki er hægt að leggja línu til að veiða þorsk og koma um leið í veg fyrir að ýsan bíti á, þannig að menn era að fá ailt upp í 1/3 hluta afl- ans í ýsu. Slíkt getur verið ansi dýr- keypt. „Menn standa náttúrlega frammi fyrir erfiðum valkostum eftir að ýsan fór inn í kvótann," segir Pétur Bolli. „Annaðhvort verða menn að henda þessum aukaafla eða koma með hann að landi og kaupa leigukvóta dýr- um dómum. Það er nú bara einfaldlega þannig að menn hér fá sig ekki til þess að henda kannski 1-2 kílóa ýsu í hafið aftur og kasta þar með á glæ miklum verðmætum. Því hafa þeir verið að koma með þetta að landi. Auðvitað væri miklu einfaldara fyrir útgerðar- aðilann að leggja bara bátnum og leigja kvótann burt, og lifa góðu lífi á því,“ segir Pétur og bætir við að slíkir kostir séu nú til alvarlegrar skoðunar. Pétur Bolli segir að það kerfi sem nú sé búið að koma upp sé mjög fjandsam- legt þessum litlu sjávarbyggðum og steininn taki úr með breytingunum sem gengu í gildi nú 1. september þeg- ar aukategundir, s.s. ýsan sem var utan kvóta, hafi verið kvótasettar. Hann segir Hríseyinga ekki vera eina á báti hvað þetta varðar því svipuð staða sé víðar uppi og ástandið sé ekki síður slæmt víða fyrir vestan. „Kerfið hreinlega virkar ekki og það verða einfaldlega að koma til einhveij- ar lausnir sem verða til þess að byggð- imar haldi velli," segir Pétur Bolli Jó- hannesson, sveitarstjóri í Hrísey. -BG Blaðið í dag ms Spumingum Ara er auðvelt að svara Auöveld svór vlð erfiðum spumlngum Talibanar til alls líklegir í heilögu stríði Erlent fréttaljós Pressa á Skaganum Innlent fréttaljós Myrkraprinsinn Nepölsku kóngsmorðln „Það verður að sýna þeim hnefann" Heilagt stríð bln Ladens Ráðskast ekki með goðsagnir Vigdís Jakobsdóttir Humar Sannkölluð kóngafæða Götumarkaður fyrir stóra stráka Um helgina bryddar Bílabúð Benna upp á þeirri nýbreytni að efna til götu- markaðar fyrir stóra stráka og stelpur. Auk þess verða Fornbílaklúbburinn, Kvartmíluklúbburinn og Ferðaklúbb- urinn 4x4 með aðstöðu þar sem fólk getur komið með gamla varahluti og boðið til sölu. Þarf að rffa viðbyggingu Húseiganda viö Heiðargerði í Reykjavík hefur verið gert að rifa við- byggingu við hús sitt. Það var Hæsti- réttur sem kvað svo á í gær en áður hafði borgarráð veitt manninum bygg- ingarleyfi. Dómarar víkja ekki sæti Dómarar við Hæstarétt hafa hafn- að kröfú ASf um að skipaðir dómarar við réttinn víki sæti þeg- ar tekið verður íýrir mál sambandsins gegn íslenska ríkinu, en það fjallar um lagasetningu Alþingis í þeim tilgangi að stöðva verkfall sjómanna síðastliöið vor. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að þar með sé þessum þætti máls- ins lokið. Frá þessu var greint á mbl.is. Handfrjáls veröur skylda Þann 1. nóvember verður ökumönn- um skylt að nota handfijálsan búnað þurfi þeir að eiga simtöl við akstur. Ekki verður sektað við brotum fyrr en að ári liðnu. Fangelsi fýrir þjófnað og árás Héraðsdómur Vestíjarða dæmdi í gær tæplega fimmtugan karlmann til tveggja mánaða fangavistar fyrir lík- amsrárás og þjófnað bæði á ísafirði og í Rúmfatalagemum í Kópavogi. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.