Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Síða 40
48 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 Helgarblað I>V íbúafjöldi i Taílandi búa um 62 milljónir manna samkvæmt tölum frá janúar í ár og eru flestir þeirra eöa um 75% innfæddir Taí- lendingar. Opinbert tungumál í landinu er taílenska en einnig eru ýmsar mállýskur minnihlutahópa til í landinu. Trúarbrögð Stærsti hluti íbúa Taílands eöa um 95% aöhyllast búddatrú sem er meöal því mesta sem gerist f heiminum, 3,8% eru múslímar, 0,5% kristnir og 0,1% eru hindúatrúar. Taíland er 514.000 ferkílómetrar að stærö og liggur í hjarta Suöaustur-Asíu. I vestur og norður liggja landamæri þess aö Myanmar, Laos í norður og norðaustur, Kambódíu í austur og Malasíu f suöur. Landsvæði Taíland skiptist í fjögur landsvæöi, noröurhlutann þar sem fjallahérðuðin eru, miöhlutann þar sem höfuðborgina Bang- kok er meðal annars aö finna, noröaustur- hlutann þar sem sléttlendiö er og suður- hlutann þar sem til að mynda er að finna fjölda hreinna og fagurra stranda. Veðurfar Meöalhitinn í Taíland er 29' C en í Bangkok getur hitastigið sveiflast frá þvf aö vera 35' C í apríl niður í 17' C í des- ember. Veðráttan skiptist I þrjú tímabil, frá nóvember til febrúar er kalda tfmabiliö, frá apríl til maí er heita tímabiliö og frá júní til október er síöan rigningartíminn. Höfuðborgin Höfuöborg Taflands er Bangkok eöa Krung Thep (City of Angels) eins og Taf- lendingar kalla hana. Hún er 1.500 fer- kílómetrar aö stærö og var byggö af Rama I, fyrsta konungi landsins, áriö 1782. i Bangkok búa um 8 milljónir manna og þar er meðal annars aö finna allar stjórnsýslubyggingar auk höfuö- stööva hersins og lögreglunnar. Stjórnskipulag Taíland er þingbundiö kongungsríki og er konungur þess Bhumibol Adulyade. Hann er sá níundi f rööinni og er fæddur í desember 1927 f Bandaríkjunum. Bhumi- bol tók við konungdómi áriö 1946 og er því sá konungur sem lengst hefur setiö á valdastóli. Þjóðhátíðardagur landsins Afmælisdagur Bhumibol Adulyade kon- ungs sem er 5. desember er yfirleitt tal- inn þjóöhátíöardagur Taílands. Sá dagur er opinber frídagur. Fílaútreiðar, strandlíf og framandi menning Ferðamöguleikar Taílands eru fjölbreytilegir og þar er hægt að fara í golf, spennandi útivistarferð- ir af ýmsum toga, fjallaferðir, versl- unarferðir eða skreppa á ströndina svo eitthvað sé nefnt. Ferðamála- ráð Taílands, sem hefur aðsetur í Stokkhólmi í Svíþjóö, kynnti um síðustu mánaðamót hér á landi hvað þetta einstaka land í fjarska hefur upp á bjóða fyrir ferðamenn. Að sögn Louis Borgia, markaðs- stjóra Ferðamálaráðsins, heimsóttu niu milljónir ferðamanna landið á síðasta ári og var helmingur þeirra Asíubúar. Norðurlandabúar sækja líka mikið til Taílands og og voru þeir 415.000 talsins í fyrra. Besti ferðamannatíminn er frá janúar til mars en Borgia segir að hvaða árs- tími sem er sé góður til að ferðast um Taíland. Hin nútímalega Bangkok Bangkok er ein nútimalegasta borg Asíu og óhætt er að segja að borgin iði af lífi og fjöri allan sólar- hringinn. Hún er ólík flestum öðr- um stórborgum að því leyti að ekki er neinn einn miðkjami í henni heldur eru þeir margir. í hverjum þeirra er að fmna fjölda hótela, verslana og veitingastaða og sífellt er verið að reisa ný og ný háhýsi. Það er margt sem hægt er að skoða í Bangkok, til að mynda fagur- skreytt musteri, búddalíkneski úr skíragulli, skrautgarða og hallir. í borginni er einnig fjöldi skemmti- legra markaða sem hægt er að þræða og á kvöldin er upplagt að fara á veitingastað og snæða ósvik- inn taílenskan kvöldverð og horfa á þjóðdansa í leiðinni. Meðal þeirra staða sem allir ættu að skoöa í Bangkok er Konungshöllin (Grand Palace) og hið einstaka musteri, Temple of the Emerald Buddha. Um 70 km norður af Bangkok er að finna hina fornu höfuðborg Ayutt- haya þar sem hægt er að skoða rústir hinnar föllnu borgar. Suður af Bangkok er svo Kanchanaburi sem er þekkt fyrir hina svokölluðu „Dauðalest", en það voru stríðs- fangar í seinni heimsstyrjöldinni Heimsfræg strönd Mayaströndin í suöurhluta Taílands þegar kvikmyndin The Beach var nokkrum árum. sem lögðu hina illræmu járnbraut, og svo Kwai-fljótið sem allir kann- ast við úr kvikmyndinni Brúin yfur Kwai-ftjótiö, þar sem hægt er að sigla á bambusflekum. Fjallahéruðin í noröri í norðurhluta Taílands upplifa menn allt annan heim en í öðrum hlutum landsins. Þar er að finna borg- ina Chiang Mai sem er fyrrum höfuðborg hins foma konung- dæmis Lanna. í Chi- ang Mai er að finna gömul hof allt frá 12. öld, vetrarhöll kon- ungsins og musteri sem býður upp á út- sýni yfir Chiang Mai dalinn. Norður af borginni er Chi- ang Rai þar sem löndin þrjú, Laos, Taíland og Burma, mætast og nefndur er Gullni þríhyrn- ingurinn. Fyrir vest- an er síðan Mae Hong Son sem er al- gjörlega einangrað af fjöUum. Þar er lika upplagt aö bregða sér i útreið- artúr á filsbaki sem er einstök upplifun hvort sem er í sól- skini eða grenjandi rigningu eða fara í fljótareið. Einnig er hægt aö heimsækja þau fjölda- mörgu fjallaþorp sem eru á svæðinu þar sem margir ættílokkar búa við frumstæðar aðstæður. varö heimsfræg tekin þar fyrir Bátafólklð Markaöur í Bangkok þar sem fólk kemur á bátum til aö selja varning sinn. Sól og fjör á Pattaya- ströndínnl Sóldýrkendur ættu að finna nóg við sitt hæfi á Pattayaströndinni sem er suðaustur af Bangkok. Þar er hægt að stunda aUavega sjósport, spila tennis, fara í hestaferðir, keyra go-kartbíl eða spUa golf á ein- hverjum af þeim fjölda golfvalla sem þar eru í boði og eru hannaðir af mönnum eins og Jack Nicklaus og Gary Player. Hið kristalstæra vatn við Lan eyjuna er vinsælt hjá köfurum og ef menn vilja bara liggja og gera ekki neitt eru sand- strendurnar við Samet eyju fuU- komnar til þess. Við Taíland eru líka margar fallegar eyjur þar sem er að flnna lúxus-hótel og fullt af af- þreyingu og má til að mynda benda á eyjur á borð við Phuket og Samui. Á Phuket eru til að mynda þrír al- þjóðlegir golfveUir auk þess sem þar er hægt að fara í margs konar sjósport. Hln forna hofuöborg Um 70 km noröur af Bangkok er aö finna hina fornu höfuöborg Ayutthaya þar sem hægt er aö skoöa rústir hinnar föllnu borgar. Fornminjar frá bronsöld Á áttunda áratugnum var unnið að fornleifauppgrefti í smáþorpinu Ban Chiang sem er í norðaustur- hluta landsins. Þar fundust ýmsar minjar sem eru óvíkjandi sannanir um menningu bronsaldarinnar svoköUuðu sem var rikjandi fyrir um 5000 árum. Ferðamenn sem eiga leið um svæðið geta því skoðað þessar minjar og meðal þeirra eru bein, handverk og skartgripir sem fundist hafa þar í kring. í næsta ná- grenni við Ban Chiang er Nakhon Ratchasima sem er yfirleitt kallað Khorat og heimsókn þangað er eins og heimsókn aftur i tímann. Fyrir þúsund árum var sá staðurinn hluti af Angkör-centred Khnmer keisara- dæminu og þar má enn sjá merki um klassískan Khnmer arkitektúr sem var ráðandi á þeim tíma. Til mynda eru Prasat Rung-hofið í Phimai og Phanom Rung dæmi um það. I norðausturhluta Taílands er líka að finna fjölda faUegra þjóð- garða eins og Khao Ya, Phu Kradung og Kaeng Tana þar sem hægt er skoða margbreytUegt lands- lag og blóm. Það má því með sanni segja aö allir geta fundið eitthvað fyrir sig í Taílandi hvort sem um er að ræða fjölskyldufólk eða einstak- linga. -MA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.