Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Side 50
58 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 * Tilvera DV 1 1 f 1 rjmaam lÉÉS Birkidagurinn mikli í Elliðárdal Orkuveita Reykjavíkur efnir til dag til Birkidagsins mikla í Elliðárdal með dagskrá frá kl. 10 til 16. Boðið verður upp á spennandi dagskrá fyrir alla fjölskylduna og mannlífi í skjóli birkis gerð skil með listrænu ívafi og óvæntum uppákomum. Þá munu fjölmargir sérfræðingar á sviði skóg- og landgræðslu og garðræktar verða í dalnum og fræða áhugasama um birkið og fjölæringa sem í dalnum. Leikhús ■ ENGLABORN I HAFNARFJARP- ARLEIKHUSINU I Hafnarfjaröarlelk- húslnu verður leikritiö Englabörn sýnt í kvöld, kl. 20. Sýníngin er bönnuð börnum. ■ MEÐ VÍFH) í LÚKUNUM I kvöld verður í Borgarleikhúsinu sýnt leik- ritið IVIeö vífiö í lúkunum eftir Ray Cooney. Nokkur sæti laus. OFURHUGINN LIRO Snillingurinn og galdrameistarinn Liro veröur í Loftkastalanum í kvöld, kl. 20. Mögnuö sýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. ■ SYNGJANDI í RIGNINGUNNI Leikritið Syngjandi í rignlngunni verður sýnt í kvöld á stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikarar eru Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Pálmi Gests- son, Inga Maria Valdimarsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason. ■ TÖFRAFLAUTAN Töfraflautan verður sýnd í kvöld, kl. 20, í ís- lensku óperunni. Með aðalhlutverk fara Árný Ingvarsdóttir, Regína, Unnur Ólafsdóttir og Dóra Steinunn Ár- mannsdóttir. Opnanir ■ FRUMHERJAR I LISTASAFNINU A AKUREYRI I dag, kl. 16, verður opnuö sýning á verkum frumherja ís- lenskrar myndlistar í Listasafninu á Akureyri en sýningin er unnin í sam- vinnu viö Listasafn Islands. A sýn- ingunni Frumherjar í byrjun 20. aldar gefur að líta 37 verk eftir meöaj annars Þórarin B. Þoriáksson, Ás- grím Jónsson, Jón Stefánsson, Jó- hannes Kjarval, Júlíönu Sveinsdótt- ur, Kristinu Jónsdóttur, Guömund Thorstelnsson, Guömund Einarsson, Gunnlaug Blöndal, Jón Þorleifsson og Finn Jónsson. Sýningin stendur til 4. nóv. Fyrirlestur I FYRIRLESTUR JOHNS COTTING- - HAMS I HEIMSPEKIDEILD dag kl. 14.00 flytur John Cottfngham, pró- fessor í heimspeki við Háskólann í Reading, opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla íslands í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist „Modernist or traditiona- list? The place of God in Descartes' phllosophy". Fyrirlestur- inn er haldinn í samvinnu viö Hiö ís- lenzka bókmenntafélag og Félag áhugamanna um helmspekl. Fyrir- lesturinn verður fluttur á ensku og er öllum heimill aögangur. Klassík SINFONIUTONLEIKAR Níunda .. istarfsár Sinfóníuhljómsveitar • Noröurlands hefst með tónleikumj Glerárklrkju á morgun kl. 16.00. Á efnisskrá tónleikanna eru hljómsveitarverk, sönglög í útsendingum fyrir hljómsveit og ariur ; úr óperum. Sjá nánar: Lífiö eftir vlnnu á Vísi.is Fjöldi manns fagnaöi slökkviliðsmönnum á Uniontorgi: Þeir eru sönn hetjuímynd - sagði Evelin Kong sjónvarpsframleiðandi sem slapp úr brennandi turninum 0V. MANHATTAN: „Þessir menn eru hetj- urnar í lifi mínu. Þeir eru ímynd hinnar sönnu hetju,“ sagði Evelin Kong, útsendingarstjóri sjónvarps, við DV á Uniontorgi á Manhattan eftir að hún hitti slökkvi- liðsmenn og faðmaði þá. Fimm slökkviliðsmenn sem voru að koma af vakt sinni þar sem þeir börð- ust við eldinn í rústum World Trade Center. Þeir komu við á Uniontorgi þar sem mikill mann- fjöldi var samankominn til að minnast þeirra sem fórust eða er saknað eftir að tumar World Trade Center byggingarinnar hrundu til grunna. Alls staðar voru blóm og plaggöt til minningar um þá sem saknað er. Mann- fjöldinn fagnaði slökkvi- liðsmönnunum með lófataki og hvatningar- köllum. Margir gáfu sig á tal við slökkvUiðsmenn- ina. Þeirra á meðal var ungur drengur sem spurði hvort þeir könnuð- ust við tUtekna bræður sem væru slökkviliðs- menn: „Þeir eru frændur mínir og þeirra er sakn- að. Hafið þið eitthvað heyrt af þeim?“ spurði hann. Slökkviliðsmenn- irnir vissu engin deUi á — frændum drengsins. Þeir tóku í hönd hans og sögðu huggun- arorð. Gömul kona gekk til þeirra og kallaði þá hetjur og sagði aö þeir væru sómi þjóðar sinnar. Evelin Kong sagði þeim að hún hefði verið hætt komin þegar hryðjuverkamennirnir gerðu árás- ina á World Trade Center í síðustu viku. Einn mannanna vUdi vita hvort það væri virkilega tilfelliö að Slökkvllíösmónnum fagnaö Evelin Kong meö slökkviliösmönnunum á Uniontorgi á miövikudag. Hún, eins og almenningur allur, rómar hetjulund þeirra. öryggisþjónustan hefði aUýst hættu- ástandi í turni tvö skömmu áður en seinni þotan skaU á honum. Evelin gat ekki staöfest það en fréttamaður DV sagði slökkUiðsmönnunum að einmitt það atriði hefði komið fram í DV á Islandi þar sem kona lýsti flótta sínum út úr byggingunni. „Er það virkUega?" spurði slökkviliös- maðurinn og hristi höfuðið. Evelin slapp með naumindum af fertugustu og fjórðu hæð þar sem hún var þegar farþegaþota skall á seinni turninum. Hún sagði við DV að það hefði verið skelfUeg lífs- reynsla. „Okkur hcifði verið sagt að rýma bygginguna og ég var komin niður á fertugustu hæð þegar þotan skaU á byggingunni og í gegnum hana. Allt skalf og nötraði og ég tók á Uótta niður stigana í algjörri skelfmgu," segir Evelin. Hún segir gríðarlegan ótta hafa verið meðal þeirra sem hlupu í ang- ist út úr byggingunni. „Ég var heppin að komast út og mun ævinlega vera Guði þakklát fyrir það,“ segir hún. -rt Björgunarmaður í rústum World Trade Center: Vonin um líf nægir mér - kirkja við hlið rústanna er óskemmd ekki fundið lífsmark en það á von- andi eftir að gerast," segir Alvin Charles, 25 ára sjálfboðaliði, sem starfar við að grafa eftir fólki í rúst- um World Trade Center. í gær hafði aðeins verið staðfest um á þriðja hundrað látna en á rúmlega 6 þús- und manns er enn leitað. Flest líkin eru talin hafa brunnið til ösku. Von- in um að finna einhvem á lífi minnkar með hverjum degi sem líð- ur en Alvin telur möguleikana vera mikla. „Undir rústunum eru rangal- ar og margir litlir staðir þar sem fólk gæti verið á lífi. Það rekur fólk áfram í að grafa dag og nótt og eng- inn dregur af sér,“ segir hann. Alvin er frá Trínidad og ekki meö bandarískan ríkisborgararétt. Hann hefur búið í nokkur ár í New York og segir rikisborgararéttinn engu skipta. Hann starfar við að selja GAP-fatnað og eftir vinnu mætir hann í rústirnar með fótu og býður fram aðstoð sína. „Mitt fólk er týnt og því kem ég hingað til að hjálpa þegar stund gefst frá annarri vinnu,“ segir hann. Alvin segir að í hryllingnum þar sem þúsundir létu lífið megi sjá kraftaverk. „í miðjum rústunum fundum við fiskabúr með lifandi fiskum. Þá er athyglisvert aö að baki þeirrar hlið- ar sem fjölmiðlar mynda er kirkja. Hún er óskemmd og mér virtist sem engin rúða í henni væri brotin þrátt fyrir nálægðina við hamfarirnar," segir hann. dv.manhattan: miðju brakinu er 40 metra djúpur „Sú hlið sem snýr frá þeirri sem gígur og þarna er hræðilegt um að fjölmiðlarnir sýna er hræðileg. I litast. Enn sem komið er höfum við BJörgunarmenn Mörg þúsund manns vinna dag og nótt viö aö leita í rústum bygginganna sem hrundu til grunna eftir árás hermdarverkamanna. Fórnfús Alvin Charles notar hverja lausa stund til aö leita í rústum World Trade Center. Hann trúir því aö líf leynist undir þeim milljón tonnum af braki sem hryðjuverkaárásin skildi eftir sig. Sem dæmi um kraftinn þegar tumamir brotnuðu lenti minnisbók með hörðum kili á framrúðu bíls sem var í um 6 kílómetra fjarlægð frá slysstaðnum. Bókin var brunnin á jöðrunum og merkt American Ex- press sem var með rekstur sinn í öðrum turninum. Alvin Charles ætl- ar að grafa á meðan minnsta von er um að bjarga mannslífi. Hann segir engu skipta þótt hann sé svo þreytt- ur eftir vinnuna að hann eigi erfitt með að staulast heim. „Vonin um að líf leynist undir rústunum nægir mér,“ segir hann. -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.