Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Qupperneq 51

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2001, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 59 DV Tilvera Konur tefla Keppnin í kvennaflokki á Skák- þingi íslands í Hafnarflröi 2001 var hörð og spennandi og úrslit réöust ekki fyrr en í síðustu umferð. Guð- fríður Lilja náði sínum tíunda titli í höfn og það er auðvitað merkilegur áfangi. Guðlaug Þorsteinsdóttir náði ekki svo mörgum titlum, held ég, á sínum tíma. En hún hefur von- andi ekki sagt sitt síðasta orð á þessum vettvangi heldur. Harpa náði sinum fyrsta titli í höfn i fyrra og ugglaust eftir að ná í fleiri. Það er ekki mikill munur á þeim stöli- um, en Guðfríður Lilja hefur meiri reynslu. Þær tefla þó báðar vel, með þessi stig hefðu þær verið ofarlega í meistaraflokki hér áður fyrr. Lygn streymir Don, eins og meistararnir í taflfélaginu sögðu hér áður fyrr. Það er rétt, ekkert fær stöðvað tím- ans þunga nið. 43. Bf2 Be5 44. Bel f5 45. Bf2 Kc5 46. Bel Bh2 47. g3 Bgl 48. Ke2 Be3 49. Kd3 Kd5 50. Ke2 f4 51. gxf4 Bxf4 52. Bf2 g5 53. Kd3 gxh4 54. Bxh4 Be5 55. Bf2 Bf6 56. Bg3 h4 57. Bh2 Be5 O-l. Og áfram skal haldið á veiðar á ný! Ég reyni að láta þá sem áhuga hafa vita, hvar. Sævar Bjarnason skrifar um skák Mörk eru oft skoruð á síðustu mín- útu þó annað liðið liggi í sókn. Menn verða að vera vakandi i vörn- inni. Betra er að ræna peði en að drepa biskup!?! 16. Bd2 Dc5 17. Bf4 a5! 18. Hhel Ha6! Eidri en tvævet- ur! Hvítur er á undan í liðskipan, en svartur kemur mönnum sínum í gagnið á óvenjulegan hátt. Það er ekki ónýtt að tefla eins og unglamb kominn á áttunda áratuginn og þó steinlegið fyrir okkar manni, Jó- hanni Hjartarsyni fyrir 14 árum. Þá var Judit 11 ára. 19. Bd3 Dxc2+ 20. Bxc2 Rc5 21. Re5 Kg8 22. Bg3 Hd8 23. Rd3 Hc6 24. He2 Bf5! Vandamál franska kardínálans leysast núna. Hvar lék hvítur af sér? Sennilega í 21. leik, þá var sennilega best að leika 21. Rxd4 Bxh4 og hvítur hefur eitthvað fyrir peð sitt. Nú hefur úlfurinn platað Rauðhettu! 25. Rxc5 Hxc5 26. Bxf5 Hxf5 27. Kc2 Hc5+ 28. Kd3 a4 29. Hdel Kh7 30. He8 Hxe8 31. Hxe8 Hb5 32. He2 Kg6 33. f3 Hc5 34. Bf2 Hcl 35. Hel Hxel 36. Bxel Kf5 37. Bf2 Kf4 38. b3 axb3 39. axb3 h5 40. Ke2 Ke5 41. Kd3 Kd5 42. Bel g6. Það eru engin vandamál að landa þessu. Ætli við karlarnir séum betri í skák en? Hvítt: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (2053) Svart: Harpa Ingólfsdóttir (2017) Enski leikurinn. Úrslitaskák, Skákþing íslands 9.8. 2001 1. c4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5. e4 d6 6. Rge2 Bg4 7. h3 Bd7 8. 0-0 Dc8 9. Kh2 h5 10. f4 Rh6 11. d3 Rd4 12. Hbl b5 13. cxb5. Hér kemur sterklega til greina að fórna peöi og leika 13. Hb8 14. a4 h4 með skemmtilegri baráttu- stöðu. 13. - Rxb5 14. Be3 Rxc3?! Að leika 14. h4 er best til að tefla til jafnteflis og það dugöi Hörpu í þess- ari skák. Þegar jafntefli er nauðsyn- legt á að tefla af hörku, segi ég, en framfylgi því miður ekki alltaf sjálf- ur. 15. Rxc3 Bc6 16. d4 cxd4 17. Bxd4 Bxd4 18. Dxd4 0-0 19. b4 a6. Guðfríður Lilja hefur teflt vel og er með rýmri og aðeins betri stöðu. 20. a4 Hb8 21. Rd5 De8? Betra er aö leika 21. Db7 og bar- áttan er í algleymingi, þó hvítur standi betur. Það á ekki að þjappa í vörn, fyrr en síðar nær hvítur að brjótast í gegn. Hér er sennilega best að leika 22. Hfcl Bxd5 23. Dxd5 Dxa4 24. Dg5 Kg724. Dxe7 og hvítur stendur mun betur. Eftir næsta leik hvíts jafnast staðan nokkuð, þó hvítur hafi sennilega aðeins betra tafl. 22. a5?! Bxd5 23. Dxd5 Hb5 24. Dd4 f6?! Betra er 24. Db8 eða 24. f5 og baráttan er í fullum gangi, núna nær hvítur mun betri stöðu Guðfríöur Lilja Grétarsdóttir íslandsmeistari í skák 2001. aftur. 25. Hfcl Da8 26. Bfl! Hbb8 27. Bc4+ Kg7. um mann sem sótti okkur heim, hér, einu sinni, og hætti ekki að tefla fyrr en dauðinn kom og sótti hann, kominn vel á tíunda áratuginn. Kortsnoj á a.m.k. 20 góð ár eftir í skákinni. Nú er hvítur kominn með vinn- ingsstöðu. Og er það ekki merkilegt, í skák á milli skákdrottninga er það önnur drottningin sem lendir í miklum vandræðum? Eftir næsta leik hvíts er skákinni í raun lokið. 28. Bd5! e5 29. De3 exf4 30. gxf4 Rf5 31. Hc7+ Kh6 32. Dd3 1-0. Það jaðrar við karlrembu að birta næstu skák! En hvað eigum við karlarnir að gera þegar hver dísin á fætur annarri mátar okkur? Ég hef verið iðinn við að birta skákir þar sem Judit Polgar hefur leikið aðal- hlutverkið. Nú get ég sýnt fram á að aldur og reynsla skipta máli líka, eins og það viti ekki allir? En Kortsnoj, sem er sjötugur, hefur seint verið talinn með skemmtilegri mönnum. En hann getur teflt enn þá í hæsta gæðaflokki og það er af- skaplega virðingarvert. Ég var á sínum tima í bekk með miklum íþróttasnillingum sem spiluðu í landsliði íslands í knattspyrnu og handbolta. En þeir eru allir hættir. Ég og Kortsnoj erum rétt að byrja!? Og skákin er tefld á minningamóti Hvítt: Judit Polgar (2686) Svart: Viktor (gamli) Kortsnoj (2617) Frönsk vörn. Minningarmót Najdorfs, Buenos Aires, Argentínu (6), 9.9. 2001 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 dxe4 5. Rxe4 Rbd7. Afbrigði Capablanca sjálfs. 6. Rf3 Be7 7. Rxf6+ Bxf6 8. h4 0-0 9. Bd3 c5. Hér bregður Judit út frá afbrigði karlrembunnar sjálfrar, holdi klæddur, Kasparov - Anand (Reykjavík, 2000) og Kasparov - Shirov (Frankfurt, 2000) þar sem Kaspi lék 10. De2 cxd4 11. De4 g6 12. 0-0-0 og hvernig haldiö þið að hafi farið í þessum skákum? 10. c3 cxd4 11. cxd4 e5 12. Dc2 h6. Hér hefur ýmislegt verið reynt, 13. Bxf6 og 13. 0-0-0 en 13. leikurinn er erfiður fyr- ir hjátrúarfulla! 13. Bh7+ Kh8 14. 0-0-0 Da5 15. Kbl exd4. Ekki í fyrsta skipti sem sá gamli rænir peði og kemst upp með það! „ALLT HEFUR VERiÐ FUNDIÐ UPP SEM HÆGT ER AÐ FINNA UPP“ Charles H. Duell, Stjórnarformaður bandarísku einkaleyfisskrifstqfunnar, 1 899 Er ekki full Ás ÆÐA TIL ÞESS AÐ FYLGJAST MEÐ? Myndbandarýni Legalese *** í gin Ijónsins Legalese hefur margt við sig, per- sónur eru skemmtilegar og sérstak- ar, myndin er fyndin og stundum spennandi og handritið vel skrifað. Það er nú samt svo að ég haföi það alltaf á tilfínn- ingunni að það hefði mátt gera betur. í stað þess að taka létt á sögunni tel ég að þarna sé saga sem hefði getað orðið svört kómedía af bestu gerð. Myndin segir frá ungum metnað- arfullum lögfræðingi, Roy Gutton (Edward Kerr). sem kemur því þannig fyrir að goöið í lögfræðistétt- inni, Norman Keene (James Gam- er), tekur eftir honum. Keene sem er með mál sem hann er í vandræð- um með, þar sem þekkt kvikmynda- stjarna (Gina Gershon) er réttilega grunuð um morð á elskhuga sínum, sér tækifæri til að losa sig úr klíp- unni og fær hinum unga lögfræð- ingi málið. Gutton heldur að framtíðarhorfur hans séu bjartar, kominn með stór- mál, en kemst fljótt að því að ekki er allt sem sýnist og áður en lýkur er hann músin sem kötturinn leikur sér að. Legalese er vel leikin og er sérlega gaman að sjá hvað James Garner heldur sér alltaf vel og er hann í fínu formi hér. Gina Gershon hefur meiri kynþokka en flestar aðrar og þá er Kathleen Turner f lítlu en góðu hlut- verki sjónvarpsfréttakonu. -HK Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Glenn Jor- "*■ dan. Leikarar: James Garner, Gina Gers- hon, Edward Kerr og Kathleen Turner. Bandaríkin, 2000. Lengd: 94 mín. Bönn- uö börnum innan 16 ára. Helgi Snorrason s: 863 5757 helgisn@binet.is V_____________- J w / / / A'íKHir fAHBIMI 511 6622

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.