Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 Helgarblað I>V Blaðamenn DV á vaktinni í tuttugu ár - 3 Stóra jólabóka- styrjöldin - Hagkaup opnaði frjáls viðskipti með baekur fyrir 21 ári. Bónus bætti um betur og fór niður fyrir öll mörk með jólabaekurnar Það er smekksatriði hvar menn kaupa bækur, hvort það er af borð- um sem eru í næsta nágrenni við rúsínur, hveiti og hangikjöt - eða fara i sérverslanir þar sem bækur eru í öndvegi. Flestir spyrja um verðið. Fyrir rúmum tuttugu árum var verslun landsmanna svo háttað að félagsskapur bókaútgefenda taldi sig ráða því hverjir máttu og hverjir máttu ekki selja bækur. Þeir töldu sig vera útgefendur „bóksöluleyfa". DV hefur í tuttugu ár tekið virkan þátt í því bóksölu- stríði sem upphefst ævinlega rétt fyrir jólaföstuna og stutt hag neyt- enda. Stríösyfirlýsing Hagkaups Það var fimmtudagsmorgun einn í byrjun jólafóstu 1980 að Einar Ólason, blaðaljósmyndari Dag- blaðsins, og Elin Albertsdóttir blaðamaður mættu til leiks í Hag- kaupi í Skeifunni. Þar var hafið eins konar stríð sem segja má að geisi enn og af enn meiri krafti en þó kannski í meiri vinsemd en var í fyrstu. Dagblaðið og Vísir og síð- ar DV eftir sameininguna ári eftir þennan atburð í bókaheiminum, studdu vel við bakið á neytendum sem siðan hafa notið þess að fá bækur á viðráðanlegra verði en áður, þegar bækur kostuðu upp á krónu það sama í öllum bókabúð- DV-MYND EINAR ÓUSON Vildu stöðva Hagkaup Þessir heióursmenn komu og skoö- uöu nýju bókadeildina í Hagkaupi: Gunnar Þorleifsson frá bókaútgáf- unni Hildi, Runólfur Runólfsson, kaupmaður í Bókabúö Safamýrar, Gísli Óiafsson, framkvæmdastjóri Félags bókaútgefenda, og Sturla Ei- ríksson frá Fjölva. um landsins. Verðlækkun bóka hef- ur að margra dómi leitt til meiri sölu og meiri hagnaðar á sama tíma og endalokum bóka er ítrekað spáð. Guðjón Guðmundsson var eins konar hershöfðingi í liði Pálma í Hagkaupi, ungur maður sem stýrði hinni nýju bókadeild. Hann sagði við Dagblaðið þennan örlagaríka morgun að hann teldi að ekki væri einkasala á bókum í landinu. Versl- unin hefði beðið í þrjú ár eftir að fá bóksöluleyfi en nú þótti ekki tækt að bíða lengur. „Það er ófært að stærsta verslun á landinu skuli ekki selja bækur,“ sagði Guðjón. Með þessari ðkvörðun hjó Hagkaup á hnútinn. Deila fyrirtækisins við bókaútgefendur hafði farið fyrir samkeppnisnefnd sem aðhafðist ekkert í þessu óþægilega máli. Guð- jón gat ekki upplýst þá hvaðan bækumar voru fengnar en ljóst þótti að þær kæmu ekki frá forlög- unum. Afsláttur Hagkaups á bók- um var 10%. Síðar er vitað að fjöl- mörg forlög afgreiddu Hagkaup með bækur í laumi en stóran hluta fékk verslunin frá hinni virðulegu Bókaverslun Snæbjarnar Jónsson- ar. Oliver Steinn, formaður Bók- salafélagsins, var ekki hress og sagði á forsíðu DB daginn eftir opn- un bóksölu Hagkaups: „Ég get glatt ykkur með því að málið er upplýst og bóksala Hagkaups verður stöðv- uð jafnsnögglega og hún byrjaði." Bókastríö barst næstu daga til Suðurlands, þar sem Kaupfélag Ár- nesinga hóf að gefa 10% afslátt af öllu í búðum sínum, þar á meðal af bókum. Þetta setti bóksala í Hvera- gerði og Þorlákshöfn á hausinn sögðu fyrstu fréttir sem síðar voru dregnar til baka. Bókaútgefendur afgreiddu KÁ athugasemdalaust með bækur en Hagkaup ekki. Þó virtist búðin luma á nógu af bókum í sinni bókadeild sem var nokkuð sérkennOegt. Greinilega voru margir lekar hjá bókaútgefendum. Hagkaup meö tána inn fyrir dyrnar Fyrsta orrustan í þessu langa og mikla bókastríði stóð í raun aðeins eina viku. Þá kvað samkeppnis- nefnd upp þann úrskurð að geð- þóttaákvarðanir bókaútgefenda um bóksöluleyfi væru ólöglegar. Nefndin sagði að í lögum Félags bókaútgefenda væri að finna „ákvæði sem fælu í sér skaðlegar hömlur á samkeppni." Hagkaup varð þó að bakka með afsláttinn af bókunum en fyrirtækið var komið með tána inn fyrir dyrnar. Afslátt- ur átti eftir að aukast og samkeppn- in á þessum markaði var oft hömlulítil. Kjöt og bók Guöbjörg Jakobsdóttir seldi bækur en gaf kjötiö. Bónus býöur betur Þegar Bónus í Holtagöröum fór aö slá af veröi jólabókanna færöist líf í leikinn. Hér eru viöskiptavinir að kaupa bækur um leið og þeir kaupa inn matvöruna. Allar götur síðan, í 22 jól, hefur dregið til tíðinda á jólabókamarkaði. Bókabúðir hafa horft á ýmsa keppi- nauta setja upp bókaborð og hillur síðustu dagana fyrir jólin en hverfa síðan af markaðnum fljótlega eftir hátíðina. Verulega dró til tíðinda fyrir jólin 1994, þegar Bónus í Holtagörðum hóf bóksölu og kveikti nýja elda á bóka- markaði. Fyrirtækið var á þessum tíma í samkeppni við Hagkaup og fleiri verslanir - var enn ekki orð- inn eigandi Hagkaups og fleiri versl- ana. Bónus byrjaði með sölu á 10 söluhæstu bókunum samkvæmt lista DV. Afsláttur Bónuss var 15% af viðmiðunarverðinu. Svo virtist sem vopnahlé hefði ríkt í bókastríð- inu, bóksalar og stórmarkaðir höfðu samráð sin á milli árin á undan, að mati Jóns Ásgeirs í Bónus. En nú tóku Hagkaupsmenn harðan kipp og verðstríð stórmarkaðanna varð harðara en nokkru sinni. Ungur stríösmaöur Guöjóni Guömundssyni, ungum af- komanda bókaútgefanda i Reykjavík, var faliö aö hefja veröstríö á bóka- markaöi. Hagkaup bauö 10 pró- senta afslátt af bókunum. Sumir útgefendur „hikstuðu" þeg- ar til þeirra var leitað af Bónus- mönnum er haft eftir Jóni Ásgeiri Jóhannssyni í Bónus, en á endanum fengust allar tíu efstu bækumar I búðina. Þar með hófst síðari bóka- styrjöldin. Jóhann Páll Valdimars- son, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, sagði í DV aö félagið gerði ekki athugasemd við bókasölu Bónuss, ekki á þessu stigi málsins. Formaður bóksalafélagsins, Arn- björn Kristinsson í Setbergi, var ekki eins ánægöur: „Bókmenntir eru ekki eins og sykur og hveiti. Slíkar vörur seljast allt árið en bæk- ur nær eingöngu fyrir jólin. Hundr- að bókaverslanir eru hins vegar að rembast við að selja bækur allt árið,“ segir Ambjöm í DV. Kjöt og bók Margar sprengjur hafa fallið i bókastríðunum, hver annarri bók- skæðari. Eru striðsminningar þess- ar mergjaðar og ættu frekar heima i stórri jólabók en lítilli blaðagrein. En rifjum upp eitt stórskemmtilegt herbragð sem varð til þess að orr- ustuvöllurinn nötraði um sinn: Um miðjan desember 1994 greinir DV frá svari bóksalans í Bókabúð Árbæjar. Með því að kaupa bók, bækur eða heilu ritsöfnin fengu viðskiptavinir búðarinnar mjög ódýrt kjöt. „Bónus selur kjötið á fullu verði. Ég gef frekar kjötið og sel bækur,“ segir Guðbjörg Jakobsdóttir versl- unarstjóri í DV sem býður ódýra jólasteik gegn því að fólk kaupi bók í bókabúðinni. Kjötið var síðan af- hent í 10-10-búðinni við hliðina. „Mér fannst að bóksalar ættu að gera eitthvað í því sem gerðist um helgina út af afslættinum í Hag- kaupi og Bónus. Mér fannst bóksal- an orðin nánast engin," segir Guð- björg í blaðinu. Bókastríðið er harðara nú fyrir þessi jól en nokkru sinni. Það má lesa auglýsingar í blöðum, síðast í gær, þar sem ljóst má vera að marg- ir taka þátt í þessu afsláttarstríði. Jólabækumar fást nánast allar með miklum afslætti, allt frá 25% upp i 60%, að þvi er virðist. Frjáls sam- keppni á þessu sviði viöskipta er al- gjör og að því hefur DV unnið blaða best eins og greina má í gömlum blöðum. -JBP I frjálsu falli Umgjörðin um jólasteikina Þórunn Hrefna skrifar Ég heyrði á tal nokkurra jóla- barna um daginn. Eins og vant er þegar jólabörn tala um jólin fóru þau aö segja frá jólasiðum á sínu heimili, með einhvern árstiða- bundinn glampa í augunum: „Ég drekk aldrei heitt súkkulaði nema á jólunum. Á aðfangadag, klukkan ellefu, byrja ég að bræða sírí- ussúkkulaðið og tek mjólkina út úr ísskápnum og set hana á borð- ið. Þegar ég er búin að hita súkkulaðið og þeyta rjómann mátulega stífan setjast allir í kringum stóra eikarborðið og drekka súkkulaðið og borða smákökurnar." Annað jólabarn segir: „Mér finnst ekki vera jól nema ég fái skerpukjöt frá Færeyj- um,“ og það þriðja: „Ég vil hafa skötuna mína vel kæsta og með henni drekk ég undantekningar- laust Tuborg-bjór í gleri. Þá eru nú aldeilis jólin.“ Mér finnst og ég vil. Þegar við fórum að geta gert kröfu um jól eins og við viljum hafa þau er sér- viska hvers og eins orðin ritúal eða siðareglur sem komið hafa í staðinn fyrir kristnina. Fróandi áhrif endurtekningarinnar koma í staðinn fyrir trúarhitann. Og helgiathafnirnar tengjast flestar mat, drykk og gjöfum. Glæpurinn viö jólatréö Ég man þegar vinkona mín sagði mér frá því hvernig vinkona hennar hefði það á aðfangadags- kvöld. Á heimili vinkonunnar væri þetta helgasta kvöld ársins á svo lágu siðferðisplani að gjöfun- um undir jólatrénu var ekki út- deilt eftir algengustu siðareglum (höfuð fjölskyldunnar les: Til Kötu frá ömmu og réttir pakkann) held- ur sótti hver sína pakka undir tréð og settist með þá út í sitt horn til þess að opna. Ég man að ég fylltist hrolli og mér leið eins og þessi fjöl- skylda hefði brotið lög. Sósíalismi aðfangadagskvöldsins - þegar allir fá gjafir og allir deila með sér og allir sjá hvað allir fengu - var eyðilagður. Þetta var brot á siða- reglunum. Mér finnst og ég vil. Þeg- or við fórum að geta gert kröfu um jól eins og við viljum hafa þau er sér- viska hvers og eins orðin ritúal eða siðareglur sem komið hafa í staðinn fyr- ir kristnina. Fróandi áhrif endurtekningarinn- ar koma í staðinn fyrir trúarhitann. Og helgiat- hafnimar tengjast flestar mat, drykk og gjöfum. Vinkona mín varð svo álíka hneyksluð á mér þegar ég sagði að heima væru jólakort opnuð þegar þau bærust. Mamma þyrði ekki að hætta á að einhver sendi henni kort sem hún sendi ekki á móti og opn- aði því kortin og setti þau í þartil- gerðan kortapoka sem fylgt hafði ættinni frá því hún bjó enn í torf- kofum. Hjá vinkonu minni voru kortin opnuð við kertaljós og konfekt seint á aðfangadagskvöld og lesin upphátt og henni þótti það ruddalegasti glæpur að opna þau fyrr. Ég reyndi að halda uppi vöm- um fyrir þetta frumhlaup fjölskyldu minnar en varð lítið ágengt. Þetta var svívirðilegur glæpur gegn siða- reglunum. Presturinn er kjöthitamælir Áður en íslendingar urðu rík þjóð var hugsunin ekki „Ég vil“ eða „Mér finnst" heldur „Ég vona að fjölskylda mín deyi ekki úr hungri á jólunum." Guð var sá sem stjóm- aði því og sálmasöngur og bæna- hald var stundað af meiri krafti en aðra daga ársins. Langur vetrn- var fram undan og „Guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól.“ Trúnni er nú þvingað inn í siða- reglur nútímajólanna - ekki af trú- arhita heldur stendur einhvers staðar í óskrifuðum reglum að „maður eigi nú allavega að fara í kirkju á jólunum". Þessi undursam- lega von okkar allra um fyrirgefn- ingu og framhaldslíf er ekki í hug- um okkar lengur heldur liggur hún uppi á hillu ásamt jólasveinum og bústnum englum. Jesúbarnið er bara jólaskraut. Kirkjur hafa auglýst styttar messur til þess að þær passi milli þess sem steikin er sett í ofninn og þar til steikin er tilbúin. Presturinn er þá nokkurs konar kjöthitamælir - og ef hann heldur ræðu má hann ekki hafa hana of langa og alls ekki með neinum truflandi siðaboðskap. Poppsöngvarar eru fengnir til þess að syngja Ó helga nótt allt upp á stemninguna og ef það er ekki djúp- ur snjór eins og á amerísku jóla- korti þá er ekki alveg eins gaman. Aðrir fara ekki i kirkju en hafa messuna í útvarpinu undir borð- um. Ekki vegna þess að þeir séu að hlusta á innihald jólaguðspjallsins heldur til þess að búa til umgjörð utan um jólasteikina samkvæmt siðareglunum. Guðs lambið hefur breyst í svín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.