Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Síða 33
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 33 I>V Helgarblað Allt í sjóinn á einu bretti „Söfnun ljósmynda á íslandi hófst 1908 og sumt er varðveitt á Þjóðminjasafni en annað á byggðasöfnum eða skjalasöfnum," segir Inga Lára sem rekur í bók- inni nokkur kaldranaleg dæmi um það hvernig stór söfn ljós- mynda glötuðust. Þannig fór nær allt plötusafn Eyjólfs Jónssonar ljósmyndara á Seyðisfirði á einu bretti í sjóinn árið 1945 eftir ára- tuga starf en yfirvöld sýndu engan áhuga á að halda því til haga. AIl- ar ljósmyndaplötur Kjartans Guð- mundssonar frá Eyrarbakkaárum hans voru notaðar til uppfyllingar í húsgrunn og plötusafn Lárusar Gíslasonar, sem starfaði i Vest- Andlit listamanns Jón Kaldal er án efa einn frægasti portretljósmyndari landsins á tuttug- ustu öld og margar mynda hans af frægum samferöamönnum hrein listaverk. Hér er það listmálarinn Finnur Jónsson sem situr fyrir hjá Kaldal áriö 1925. mannaeyjum í áratugi í upphafi aldarinnar, var notað tO uppfyll- ingar i stakkstæði. „Mér finnst viðhorf fólks vera að breytast rnikið," segir Inga Lára. „Til marks um það er til dæmis að hægt skyldi vera að koma þess- ari bók út en hún hefur verið til- búin alllengi. Menn eru að verða meðvitaðri um gildi ljósmyndar- innar sem menningarlegrar heim- ildar. Margar þær myndir frá fyrri tíð sem við sjáum í ljós- myndabókum og sagnfræðibókum eru ofnotaðar vegna þess að þær eru einu myndirnar sem til eru.“ Elstu myndir sem vitað er um að hafi verið teknar á íslandi tók franskur ljósmyndari á ferð í Reykjavík árið 1845. Frá svipuð- um tíma eru elstu mannamyndir af íslendingum sem varðveist hafa en þær eru flestar teknar erlendis. Þegar fer að líða á nítjándu öldina fjölgar ljósmyndurum sem leggja leið sína til landsins og íslending- ar fara sjálfir að fást við að taka myndir. Útlendingar mynda fólk en Islendingar framfarir „Það má eiginlega skipta þessu í tvennt," segir Inga Lára. „Útlendingar taka myndir af fólki og forvitnilegum en hvers- Sigfús Eymundsson Hann var ótvírætt einn merkasti frumkvöðull meöal íslenskra Ijós- myndara. Andlit holdsveikinnar Þessar óhugnanlegu myndir tók Karl Grossman á Laugarnesspítala áriö 1904. Þetta eru elstu litmyndir sem til eru af Islendingum og sýna holdsveikt fólk. dagslegum hlutum. íslenskir ljós- myndarar eru alltaf að mynda framfarir. Þeir mynda ný hús, mannvirki og merka atburði sem til framfara horfa en sjá ekki eins vel hið daglega líf. Þannig er til dæmis vel skrásett öll uppbygging í Kvosinni með ótal myndum frá ýmsum tímum og frá seinni árum skemmtilegar myndir sem t.d.sýna uppbyggingu Vogahverfisins en hafa íslenskir ljósmyndarar skráð uppbyggingu eins og þá í Grafarvogi t.d.“ Inga Lára segist vona að bókin veki fólk til umhugsunar um gildi þess að taka myndir af daglegu lifi fólks og skrásetja með þeim hætti líf það sem íslendingar lifa hverju sinni. „Ég vil að fleiri ljósmyndarar fari að skoða ljósmyndina frá sögulegu sjónarhomi." PÁÁ Smáauglýsingar aa visir.is DESEMBER „fþg. nýt jica.a. ivýá (jtcSii/.iaa.Ui iuie.iclacÍ 'i a,ti Dtitin jiccjax ccj. mcð . síðasti skiladagur fyrir jólapakka innantands Það er gaman að senda jólapakkana tímanlega. Þá vinnst að minnsta kosti tvennt: Þér líður vel að loknu góðu verki og þú gleður viðtakandann sem fær pakkann sinn í tæka tíð. Við ráðleggjum þér að senda jólapakkana innanlands í síðasta lagi 17. desember ef þú vilt að þeir berist til viðtakanda í tæka tíð fyrir jól. POSTURINN rkesðjóLdcwðjus «) w o Q. i % 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.