Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Qupperneq 36
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Bílar
n>v
pfiilll
Land Rover
meö þríggja
ára ábyrgö
Framleiðendaábyrgð Land
Rover hefur verið lengd úr einu
ári í þrjú eða að 100.000 km fyrir
allar gerðir. Að sögn fram-
kvæmdastjórnar Land Rover er
ákvörðunin liður í að auka tiltrú
markaðarins á framleiðslu fyrir-
tækisins ásamt ánægju viðskipta-
vina. Jafnframt hefur verið ákveð-
ið að framleiðendaábyrgð Land
Rover nái einnig til lakkþekju og
ryðvarna. Hinn 1. janúar nk. tekur
gildi ný tilskipun Evrópusam-
bandsins um tveggja ára ábyrgð
framleiðenda eftir að vöruvið-
skipti eiga sér stað. Með ákvörðun
sinni hefur Land Rover því ákveð-
ið að ganga mun lengra í neyt-
endavernd en reglur ESB gera
kröfu um.
Ný kynslóö Toyota
Corolla kynnt á næstunni
Ný kynslóð af Toyota Corolla
verður kynnt hér á landi í byrjun
næstu viku. Þetta er níunda kynslóð
þessa mesta selda bíls í heimi, en
hann kom fyrst á markaðinn árið
1966. Fjölmargar nýjungar og breyt-
ingar líta dagsins ljós í þessum nýja
Corolla, þar á meðal gjörbreytt
hönnun, ný efni og ný tækni. Hann
verður strax fáanlegur í öllum út-
gáfum sínum, bæði sem þriggja og
fimm dyra hlaðbakur, langbakur,
Verso fjölnotaútgáfa og T-Sport
sportútgáfa. Kynning þessi mun
nota allt það nýjasta í tækniheimin-
um í dag og sem dæmi má nefna
sérstaka heimasíðu
(www.corolla.is) og í umboðinu get-
ur fólk nálgast upplýsingar um bíl-
inn á sértöku snertiskjáviðmóti sem
eru íslensk hönnun. Ný Corolla var
hönnuð í Evrópu og mjúkar linur og
sérhannaður undirvagn gera það að
verkum að loftmótstaða Corolla er
með því besta sem gerist, aðeins
0,29. í Corolla Verso er svo boðið
upp á fjölbreytilega röðun sæta.
Sæti í afturröð má leggja niður
60/40, brjóta saman, velta, halla eða
fjarlægja. Þá eru 22 geymsluhólf í
Corolla Verso sem samanlagt bjóða
upp á 56 lítra geymslurými.
Veruleg lækkun kostnaðar
í nýjum Corolla er ný lausn sem
vafalítið mun vekja mikla athygli.
Með snjallri hönnun og verkfræði-
lausnum hefur tekist að draga
verjulega úr viðgerðarkostnaði,
eða um 50%, ef til árekstrar kem-
ur á litlum hraða. Staðreyndin er
sú að minni háttar árekstrar eru
ekki aðeins þeir algengustu, held-
ur er tjón vegna þeirra oft hlut-
fallslega mjög hátt þrátt fyrir að
óverulega sjái á bílum. Oft beygl-
ast grill og vélarhlíf við einfaldan
árekstur á stuðara. Lausnirnar í
nýrri Corolla eru m.a. fólgnar í því
að festingar gefa fyrr eftir eða
brotna, þannig að áhrif af árekstri
dreifast síður. Sem dæmi má
nefna að festingar á framljósum
hafa verið hannaðar á þann veg að
við árekstur brotna þær áður en
lampinn skemmist sjálfur. Þá hef-
Björn Víglundsson prófar hér Corolla-kynninguna á nýrri snertiskjálausn þar sem hægt er aö nálgast allar upp-
lýsingar um nýja Corollu.
Vél: Hestöfl: Hámarkshraði: Hröðun í i 100 km: Eyðsla á 100 km:
1,4 lítra 97 185 12 6,7
1,6 lítra 110 190 10,2 7
1,8 lítra 136 185 9,9 7,6
1,8 lítra T-Sport 192 225 8,4 8,3
ur krumpusvæðið verið fært fram-
ar á grindarbitann. Þessar breyt-
ingar eru til þess gerðar að lág-
marka líftímakostnað bílsins. Líf-
tímakostnaður er notaður víða á
meginlandi Evrópu til að raða bíl-
um í tryggingarflokka. Með þeim
breytingum sem gerðar hafa verið
á nýjum Toyota Corolla kemst bíll-
inn í flokk 11, en til samanburðar
má nefna að þeir keppinautar sem
hafa náð bestum árangri hingað til
eru í flokki 13. Þessi flokkun hefur
mikil áhrif á iðgjöld bílatrygginga.
í Þýskalandi lækkar ársiðgjald á
Corolla t.d. um 40.000 kr. af þess-
um ástæðum.
-NG
GODIR BILAR
MMC Lancer stw, 4x4,1600,
f.skr.d. 08.04.1997, ek. 115 þ.
km, 5 d,, bsk.
Verð 890.000.-
TILBOÐ 760.000.-
Alfa Romeo 156, 2000,
f.skr.d. 20.06.2000, ek. 13 þ.
km, 4 d., bsk., 16“ álf.,
leðurinnrétting o.fl.
Verð 1.790.000.-
Suzuki Baleno 1600, f.skr.d
30.07.1997, ek. 87 þ. km,
sjálfsk.
Verð 790.000.-
TILBOÐ 590.000.-
Toyota Land Cruiser VX-100,
f.skr.d. 22.01.2001, ek. 15 þ.
km, sjálfsk., leðurinnrétting
o.fl.
Verð 5.990.000,-
MMC Carisma GLX 1600,
f.skr.d. 27.08.1997, ek. 68 þ,
km, sjálfsk.
Verð 910.000.-
TILBOÐ 780.000.-
Laugavegur 170-174 • Sfmi 590 5000 • Helmasföa www.hekla.is • Netfang bilathing@hekla.is • Opnunartfmar: Mánud.-föstud. kl. 10-18 og laugard. 12-16.
Núwcr eiH~ í ncrtv?vrtf bflvnil
ll^>
r íZ'. twj W “Si'
-
If'' y