Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Helgarblað
61 *
DV
Olafur Olafsson, fyrrverandi landlæknir.
Með lífið í
lúkunum
- gamansögur af íslenskum læknum
Með lífið í lúkunum geymir mik-
inn fjölda gamansagna af nafn-
greindum íslenskum læknum. Út-
gefandi: Bókaútgáfan Hólar. Rit-
stjórar: Guðjón Ingi Eiríksson og
Jón Hjaltason Verða hér gripnar
upp nokkrar sögur en fyrst minnt á
afstæði allra hluta og vitnað í borg-
arskáldið, Tómas Guðmundsson:
„Frá sjónarhóli bakteríunnar er
heilbrigðið alvarlegur sjúkdómur."
Læknír þjóðarinnar
Árið 1974 lagði Ólafur landlæknir
það til við heilbrigðisráðuneytið að
byggt yrði 30 rúma sjúkrahús í
kaupstað úti á landi. Bírókratarnir í
ráðuneytinu voru á hinn bóginn
haldnir mikilli steypugleði um þess-
ar mundir og létu byggja þar helm-
ingi stærra sjúkrahús. Kaupstaðar-
búarnir undruðust mjög stærð þess-
arar byggingar og þegar einn þeirra
kom að máli við Ólaf og sagði að
heimamenn myndu aldrei fylla upp
í öll þessi rúm varð landlækni að
orði: „Nú! Þið verðið þá bara að
auglýsa eftir sjúklingum." * Þegar
Sighvatur Björgvinsson var heil-
brigðisráðherra fóru hann og Ólafur
landlæknir eitt sinn saman á Evr-
ópuþing Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar. Þar voru áfengis-
varnir efstar á baugi og fluttu marg-
ir af þingfulltrúunum áhrifaríkar
ræður um nauðsyn þess að berjast
af eldmóði gegn Bakkusi. Eftir eina
slíka ræðu hvíslaði Ólafur að Sig-
hvati: „Nú gerum við tillögu um að
sett verði vamaðarorð á brennivíns-
flöskurnar." Sighvatur varð hugsi
um stund en svaraði siðan: „Ólafur
minn, heldurðu að það væri nú rétt?
Þú manst nú hvernig fór þegar þú
settir vamaðarorðin á sígarettu-
pakkana. Þurftirðu þá ekki að hætta
að reykja?"
Læknisráðið
Kona kom til læknis og kvartaði
undan kvölum í mjöðminni og sagð-
ist hreinlega ekki geta legið á hliö-
inni. Læknirinn sagði það nú ekk-
ert mál því hún gæti þá að sjálf-
sögðu legið á bakinu. „Nei, það
gengur ekki. Þá kemur Júlíus
minn.“
Jónas Rafnar
Kona Jónasar Rafnars, læknis á
Akureyri, fæddi barn og sat maður
hennar yfir henni. Kona nokkur i
bænum kom til vinkonu sinnar dag-
inn eftir og sagði frá fæðingunni með
þessum' orðum: „Nú er Jónas læknir
búinn aö eignast barn og hafði gert
allt sjálfur, trúi ég.“
Hvaða asi er þetta?
Bjarni Guðmundsson, sem var
læknir á Selfossi fyrir nokkrum ára-
tugum, var einhverju sinni beðinn að
koma i hvelli upp í Grímsnes og líta
þar á nýlátinn mann. Þetta var um
kvöld og læknirinn latur til eftir eril-
saman vinnudag. Hann afsakaði sig í
bak og fyrir og spurði síðan hæversk-
lega hvort það mætti ekki bíða morg-
uns. Viðmælandi hans tók aftur á
móti engar röksemdafærslur gildar og
sagði grafalvarlegur að hann yrði að
koma ekki seinna en strax. Bjarni sat
hins vegar fast við sinn keip og svar-
aði fremur snúðugt: „Er þessi maður
ekki örugglega dáinn, eða hvað?“
Jónas Franklín hrósar konu
Hún átti erindi við Jónas Frank-
lín, kvensjúkdómalækni á Akureyri.
Það var þessi venjubundna skoðun,
ekkert alvarlegt, en samt. Betra að
líta þokkalega út, vera hrein og lykta
vel. Nauðsynlegt að fara í sturtu, úða
yfir sig ilmefni, jú, og kannski setja
örlítinn ilm á hana líka. í fötin og
svo af stað. Fimm mínútur þangað til
Jónas myndi kalla hana inn. Úff, rétt
náði. Skemmtilega skær rödd Jónas-
ar, hlý og vingjamleg: „Gerðu svo
vel.“ Nakin. Leggst á bekkinn og set-
ur fæturna upp á standana. Vel snyrt
yfirvaraskegg læknisins hverfur nið-
ur á milli fóta henni. Það sér á svart-
an kollinn. Svo, eilítið undrandi en
glaður: „Mín er bara fín í dag.“
Læknirinn lítur upp með drengja-
legu brosi. Fer svo um hana var-
fæmum höndum, já, raunar var-
fæmari en nokkru sinni fyrr. „Bú-
inn.“ Eitt orð og hún dregur sig sam-
an, lokar skauti sínu, klæðir sig,
þakkar fyrir og kveður. Fer að hugsa
mn það í bílnum: „Hvað átti hann
annars við með þessu, þú ert bara
fin í dag?“ Á baðherberginu heima
verður henni ljós sannleikur orða
hins fmgerða læknis. í flýtinum að
komast af stað hafði hún gripið
glimmer dótturinnar á heimilinu í
staðinn fyrir ilminn.
Sími:
544 4656
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJDKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
Ron Thompson vöðlur. Votnsheldir veiðiiakkor Sérhönnuð vöðlutaskn.
Fró 13.995. með öndun. Frú 9.995. Aðeins 4.595.
Ron Thompson veiðitöskur.
Fró 1.995.
Ron Thompson hanskar. Scierra fleece buxur
Fró 1.495. undir vöðlur
Jólatilboð 9.995.
Spúnasett
Fró 1.295.
i tölvuna þína. 3.485.
Allt til fluguhnýtingu
! H.Y-F15I UNO |
!EQuimeNTSstuusi
Mikið úrval af bókum
og videospólum ó gjafverði.
Stonefly hnýtingasett.
6.995.
Oasis hn'
fró 6.451
Danvise. Áóskalista
larans.
Stangafestingar ó bílinn 7.995,
Sætaóklæði i bílinn 4.595.
Barnaveiðivesti 1.595.
Fullorðins veiðivesti fró 3.995.
Reykofnar 6.990.
Reyksag 590.
oa margt ,margt fleira v ,
VEIÐIHORNIÐ
Veiðihornið er í Hafnarstræti 5
og nú líka í Síðumúla 8
(beint á móti Máli og menningu).
Símar 551 6760 og 568 8410
Gott úrval af gjafavöru
opnEUi voiúimonnsins
cJ\ bítjnrtns bestn verði
^lltnf meirfl úrvfll - ^lltflf bett'fl verð
Veiðihornið er í Hafnarstræti 5 og nú líka í
Síðumúla 8 (beint á móti Máli og menningu).
Vönduð
kaststöng ásamt
með 5 ára ábyrgð. Fullt verð
Jólatilboð aðeins kr.
kaststöng ásamt
með 5 ára ábyrgð. Fullt verð
Jólatilboð aðeins kr.
kaststangir frá
ábyrgð frá
Vönduð
] ásamt diskabremsuhjóli með
i i
. * mm I I V