Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Page 58
62
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Helgarblað
r>v
en mannslíf
- brot úr sögu móöur Steinars Braga sem lést á
Litla-Hrauni rétt fyrir tvítugsafmælið.
Vigdís Stefánsdóttir blaðamaður
’iefur skrifað bók sem ber heitið
Steinar er dáinn. Þar rekur Vigdís
sögu Steinars sonar síns sem átti
erfiða ævi og féll fyrir eigin hendi
i Litla Hrauni tveimur dögum fyr-
ir 20 ára afmælið sitt. Vigdis lýsir
æsku Steinars og átökum hans við
/traífífar
í kvöld kemur til byggða
Pottasleikir
l/ÖSBi/j
ar
Á morgun kemur til byggða
Askasleikir
Uús*~n
foreldra sína og átökum þeirra við
hann. í hreinskilnum eftirmála
bókarinnar segir:
„Hún var dýr þessi kennslustund
sem kenndi mér hvað líflð er dýr-
mætt. Meira að segja líf sem veldur
öðrum vandræðum með tilveru
sinni. Ég lærði það á henni að hér
eftir treysti ég innsæi mínu varð-
andi fólk og umgengni við það,
ekki áliti sérfræðinga eða annarra
og mér er alveg sama þó mér sé
sagt að þessi eða hinn sé að not-
færa sér góðsemi mina og hrekk-
leysi,
Ég ætla aldrei aftur að láta neinn
hafa áhrif á það hvort ég læt fólk
sem mér þykir vænt um komast
upp með framkomu sem öðrum
finnst að eigi ekki að líðast. Ég vil
frekar óþekkan lifandi einstakling
en dáinn.
Þetta kenndi mér líka að það
verður að taka unga afbrotaung-
linga og vímuefnaneytendur allt
öðrum tökum en gert hefur verið.
Eitthvaö hefur verið reynt í rétta
átt og má nefna Götusmiðjuna sem
gott dæmi en því miður er talið of
dýrt að láta peninga í það sem máli
skiptir. Það er betra að reisa falleg-
ar byggingar og minnismerki og
sjá ekki vandamálin. Ráðamenn
virðast halda að vandamálið fari af
sjálfu sér ef augunum er lokað
nógu lengi. Gallinn er sá að vanda-
málið veit ekki af þessari ágætu
lausn og fer ekki hætishót. Það
bara stækkar.
Allt of oft benda kennarar, um-
sjónarmenn eða foreldrar á böm
sem eru í hættu, böm sem bera það
með sér að eiga eftir að klessu-
keyra á samfélagið en enginn hlust-
ar, því ef það er hlustað, þá þarf að
borga og það þýðir að peninga þarf
að taka frá einhveiju öðru, ein-
hverju sem er meira virði en
mannslíf að sumra mati.
En það er ekkert meira virði en
mannslif."
Bókin er gefin út af Stoð og styrk
til styrktar Götusmiðjunni og for-
vamarstarfí IOGT meðal bama.
Lokaorð bókarinnar frá Vigdísi
em:
„Það eitt út af fyrir sig að vita að
aðrir hafa reynt það sama og mað-
ur sjálfur getur verið huggun.
Verður vonandi einhverjum hugg-
un. Með það í huga skrifa ég þetta
sem í fyrstu var ætlað mér einni,
bara til að létta á hjarta mínu og
reyna að koma sorginni og van-
mættinum í orö.“
Samviskuleysi
Við grípiun niður í 12. kafla bók-
arinnar um Steinar sem heitir
Samviskuleysi:
„Snemma kom í ljós að Steinar
virti lítils eignarrétt annarra.
Hann var tæplega sjö ára þegar ég
stóð hann að hnupli í Austurveri,
hann hafði stolið íspinnum. Ég fór
með hann í verslunina og hitti
verslunarstjórann að máli. Lét
strák biðjast afsökunar og bjóðast
til að greiða vöruna. Á leiðinni
heim spurði ég hann svo hvort
honum liði ekki betur að hafa af-
greitt málið svona. Hann horfði
hissa á mig og sagði:.
Nei.
Fannst þetta hreinasti óþarfi og
það vottaði ekki fyrir samviskubiti
hjá honum. Seinna komst ég að því
að hann stundaði það að hnupla úr
fJP ■ >-v
Steinar Bragi á fyrsta ári
Honum er lýst svo í bókinni að hann hafi veriö afar fjörmikiö og forvitiö
barn og fátt óhutt á heimilinu eftir aö hann fór aö ganga.
búðum og notaði þýfið meðal ann-
ars til að kaupa sér vináttu ann-
arra barna sem hann langaði mjög
til að eignast.
Hann varö líka fljótt illa séður í
Verslunarskólanum, en við bjugg-
um um tíma í nágrenni hans. Hús-
vörðurinn var ekki hrifinn af þess-
um strák sem var að þvælast í
byggingunni öllum stundum og
safna flöskum og sjálfsagt ein-
hverju fleiru. Þaö sama gilti um
Kringluna sem var þá nýbyggð. Um
tíma var honum útskúfað þaðan
með öllu og voru öryggisverðir
ekki hrifnir af því að hitta hann
þar. Honum þótti gaman að leika
sér í rúllustiganum og átti auðvelt
Steinar Bragi var fæddur 23. mars 1978
Hann vantaöi tvo daga í tvítugt þegar hann dó. Hann dvaldist síöustu
mánuöina í fangelsinu á Litla-Hrauni eins og hann haföi gert meira og
minna frá 16 ára aidri.
Treystu okkur...
...fyrir jólamatnum og jólagjöfunum!
' Við sækjum póstinn eða pakkann til
Ipín og komum honum heim að dyrum
samdægurs
1 Forgangsmeðhöndlun hraðsendinga
• Kæli- og frystiklefar
' Fjöldi ferða
Hraðþjónusta - ódýrari en þig grunar!
FLUGFELAG ISLANDS
Akureyri 460 7060 • Egilsstndir 4711210 • ísufjördur 456 3000 • Höfn 478 1250 • Reykjavtk 570 3400
Flugfrakt - gott forskot!
með að finna upp á ýmsu sem ör-
yggisvörðum og verslunareigend-
um var illa við.
En svæðið sem hann fór um var
stórt. Hann hikaði ekki við að fara
í bæinn, þá á aldrinum 7-11 ára, og
margar stundimar fóru í að aka og
leita að honum i bænum. Þegar ég
ek um miðbæinn kemur enn þann
dag í dag upp minning um þennan
endalausa akstur og leit og minn-
ingin verður enn sterkari þegar við
bætist að eftir að hann fór að verða
háður eiturlyfjum og var farinn frá
okkur aö mestu hélt hann sig í mið-
bænum.
Lítill krakki í stórum líkama
Af því hvað hann varð snemma
stórvaxinn taldi fólk hann yfirleitt
tveimur til þremur árum eldri en
hann var og kom fram við hann
samkvæmt því. En hann var auð-
vitað bara lítill krakki í stórum lík-
ama.
Steinar var orðinn 12 ára þegar
hann var greindur ofvirkur. En þá
var það eiginlega orðið of seint.
Hann var kominn á þá braut sem
hann átti ekki afturkvæmt af og þó
svo við heföum flutt úr bænum,
upp á Kjalames, meðal annars til
að seinka þeirri þróun sem við
sáum fyrir, kom allt fyrir ekki.
Steinari var útvegaö lyfið Ritalin,
eins og áður sagði. Það er am-
fetamínafbrigði og hefur gefið
nokkuð góða raun. Lyfið verkar
þannig að allt fram til kynþroska-
aldurs róar það böm. Ofvirk börn
geta því um stundarsakir, meðan
lyfið hefur áhrif, setið kyrr og not-
ið kennslu eða sinnt verkefnum
sem þau geta ekki annars unnið.
Steinari féll illa við lyfið. Hann
missti matarlystina, þessi mikli
matmaður sem hann var og fannst
sér alltaf hálfómótt. Hann fékk lyf-
ið að morgni og svo aftur klukkan
tvö. Þegar áhrifum þess lauk, á
milli klukkan fimm og sex, var eins
og tappi væri tekinn úr gosflösku
sem búið var að hrista. Hann var
hálfu stjómlausari en áður og helg-
amar vora hrein martröð, en fyrir-
mælin vora að hvíla hann um helg-
ar. Það þýddi einfaldlega að heimil-
ið var í umsátursástandi allar helg-
ar og skap Steinars eins og jójó.
Ákaflega lítið þurfti til að koma
honum úr jafnvægi og í sex manna
fjölskyldu er slíkt ástand eins og að
sitja á virku eldfjalli. Maöur veit
aldrei hvenær það gýs og býst sí-
fellt við því.
Ritalin er kannski ágætislyf en
nýjustu rannsóknir sýna að það
hentar ekki öllum og Steinar hefur
greinilega verið í þeim hópi. Mér
þótti bæði gott og erfitt að hann
skyldi fá lyf. Fannst að nú væri
verið að frnna lausn en sá um leið
að drengnum leið ekki vel og fann
auðvitað fyrir því þegar áhrifum
lyfsins sleppti. Var þannig í úlfa-
kreppu þvi skólinn var mjög með-
Ekkert meira
virði