Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2001, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001
DV
7
Fréttir
24 hafa látist í umferðarslysum á þessu ári:
166 slösuðust alvarlega
fýrstu 11 mánuðina
- og geta átt við örkuml eða aðrar afleiðingar ævilangt
Umferðin hefur tekið stóran toll
á þessu ári. Fjöldi látinna, þegar
fiórir dagar eru eftir af árinu, er 24
í 19 slysum. Haldist sú tala óbreytt
er íjöldi banaslysa árið 2001 reynd-
ar eins og í meðalári með tveimur
látnum fyrir hvern mánuð ársins.
Árið í fyrra var hins vegar sérstak-
lega slæmt með 32 látnum í 23 slys-
um.
Þeir eru einnig margir sem lifað
hafa umferðarslys en hlotið alvar-
leg meiðsl og munu eiga við afleið-
ingar þeirra um óákveðinn tíma,
oft ævilangt. Fyrstu 11 mánuði
þessa árs höfðu 166 slasast alvar-
lega í umferðarslysum á árinu. Það
jafngildir því að tæplega 14 hafl
slasast alvarlega í umferðarslysum
á mánuði eða allt að því ein mann-
eskja annan hvern dag allt árið um
kring.
Sama var uppi á teningnum í
fyrra þegar 167 slösuðust alvarlega í
umferðarslysum. Við þessar tölur
má örugglega bæta ótal minni hátt-
ar meiðslum og andlegum áfóllum
sem fólk getur átt mislengi í.
En hvað eru alvarleg meiðsl? Öm
Þ. Þorvarðarson hjá Umferðarráði
segir að þegar meiðsl eru flokkuð sé
stuðst við alþjóðlega staðla. Eftirfar-
andi flokkast því sem alvarleg
meiðsl: beinbrot, heilahristingur,
innvortis meiðsl, kramin líffæri, al-
varlegir skurðir og rifnir vefir, al-
varlegt lost (taugaáfall) sem þarfnast
læknismeðferðar og sérhver önnur
alvarleg meiösl sem hafa í fór með
sér nauðsynlega dvöl á sjúkrahúsi.
Afleiöingar umferðarslysa oft alvarlegar
Á fyrstu 'ellefu mánuöum ársins höföu 166 slasast alvarlega í
umferðarslysum á árinu. Fjöldi látinna er 24 þegar fjórir dagar eru til ársloka.
Maður telst látinn af völdum um-
ferðarslyss ef hann deyr af afleið-
ingum þess innan 30 daga.
Ef einstaklingur deyr eftir að 30
dagar eru liðnir frá því að slys varð
telst hann ekki hafa látist í umferð-
arslysi heldur er hann talinn í hópi
mikið slasaðra. I ár hefur orðið eitt
slíkt tilvik og einnig árið 2000.
-hlh
■ #'
FIU&EIDAMARKADIR
EJORGUKARSVEITANHA
Fyrst skjótast upp kulur sem springa úl i
stórglœsilega blóa og hvita hulu. Svo tckur viö
glampandi regn sem fer því nœst yfir í glitrandi
pálmastjörnur. Kakan endar meö trukki og
stórglœsilegu gullregni. Þessi er alveg rosaleg!
Þyngd: 17 kg Tími: 1 mínúta
Smaauglysingar
bækur, fyrirtækí, heildsala, hljóðfæri,
Internet, matsölustaðir, skemmtanir,
tónlist, tölvur, verslun, verðbréf,
vélar-verkfæri, útgerðarvörur,
landbunaöur.markaðstorgið
DV
Skoðaðu smáuglýsíngarnar á VÍSIf.lS 550 5000
31.12.2001
Gamlárskvöld
VICTOR
Staður og staff skreytt í tilefni kvöldsins
Öll heitasta FM957 tónlistin á neðri hæð
// DJ Gunni Tútti // DJ Joey Love
'70 Disco / '90 / Funk og partýgír á efri hæð
// DJ Gummi Gonzalez // DJ Austin Powers
Allt flæðandi í Asti Gancia
FRÍTTINN Á GAMLÁRSKVÖLD!
- í Boði Asti Gancia