Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2001, Side 20
32
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001
Tilvera
I>V
Giulliani maöur
ársins hiá Time
Rudolph Giulliani, borgarstjóri
New York, var á dögunum valinn
maður ársins hjá vikuritinu Time,
fyrir að hafa sýnt „ofurmannlegan
styrk“ þegar mest reyndi á þolrifin
eftir hryðjuverkaárásirnar á New
York þann 11. september sl.
„Þetta snýstu um 11. september og
hverning einn maður gat axlað alla
byrgðina, eins og Giulliani gerði á svo
einstakan hátt,“ sagði Jim Kelly rit-
sjóri Time. „Hann stjórnaði af mikilli
tilfinningasemi og á tilfinninga-
þrungnu ári eins og þessu á hann
heiðurinn skilinn," sagði ritstjórinn.
Sjálfur sagðist Giulliani vera
hrærður yfir valinu. „Heiðurinn er
allra New York-búa, þeir eru menn
ársins,“ sagði Giulliani.
Kór Menntaskólans á
Akureyri gefur út plötu:
Skólasöngurinn
á plötu
í fyrsta sinn
Jólaóratóría eftir John A. Speight frumflutt í Hallgrímskirkju:
Nú kemur heimsins hjálparráð
Á sunnudaginn kl. 17 veröur
frumflutt Jólaóratóría fyrir ein-
söngvara, tvo kóra og litla hljóm-
sveit eftir tónskáldiö og söngvarann
John A. Speight. Verkiö er samió fyr-
ir Hörö Áskelsson og kóra Hall-
grímskirkju. Mun Höröur stjórna
flutningnum, Schola cantorum og
Mótettukór Hallgrímskirkju sjá um
kórsönginn en einsöngvarar eru Elín
Ósk Óskarsdóttir sópran, Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir alt, Garöar
Thór Cortes tenór og Benedikt Ing-
ólfsson bassi. Kammersveit Hall-
grímskirkju leikur með, konsert-
meistari er Una Sveinbjarnardóttir.
Texti úr biblíunni
„Fyrir nokkrum árum fór ég að
leika mér að hugmyndinni um að
skrifa stórt verk um efni sem tengdist
jólunum," segir John A. Speight.
„Tækifæri til að fá slíkt verk flutt
gafst þó ekki og því varð ekkert úr
þessum áformum um sinn. Af hreinni
tilviljun nefndi ég þessa hugmynd
kvöld eitt þegar við Hörður Áskelsson
áttum tal saman og hann sýndi henni
strax áhuga. Við ákváðum að ýta
verkefninu úr vör og láta ráðast
hvernig því yndi fram.
Hörður stjórnar tveimur af ágæt-
ustu kórum á íslandi. Mér þótti því
kjörið að skrifa verk fyrir þá báða og
DV-MYND ÞÖK
John A. Speight tónskáld
Hefur leikiö sér að hugmynd um jólaóratóríu í mörg ár.
fjórum einsöngvurum var bætt við
með það i huga að láta þá leika per-
sónur í sögunni. Hljómsveitinni, sem
er skipuð strengjum, óbóum, ensku
horni og slagverki, er ætlað að ljá tón-
listinni hæfilegan „sveitablæ". Mér
var nokkur vandi á
höndum að velja
texta, enda er jóla-
sagan í Lúkasarguð-
spjalli mjög stutt.
Það kom sér því vel
að meðal nemenda
minna um þetta leyti
var Benedikt Ingólfs-
son sem lagði einnig
stund á nám í guð-
fræði. Við urðum
ásáttir um að notast
eingöngu við texta
úr biblíunni og nið-
urstaðan var að
smíða mætti sterkan
ramma utan um
verkið sem hér segir:
ákall-huggun; fyrir-
heit-fæðing Krists;
fagnaðarerindi. Þetta
form gerir verkið
næstum sinfónískt
og þess vegna ákvað
ég að nota ekki stak-
ar aríur, dúetta,
kóra o.s.frv., heldur
skrifa hvern hluta verksins sem eina
heild, rétt eins og í hljómkviðu."
Dýrð sé Guði í upphæðum
Fyrsti hluti verksins hefst á hæg-
um inngangi í strengjahljóðfærum. Þá
syngur einsöngvari (bassi) „ákallið úr
djúpinu" og því næst kórinn og
sópraneinsöngvari. Hlutanum lýkur á
friðsaman hátt með sálminum „Nú
kemur heimsins hjálparráð", en á því
stefi er allur kaflinn byggður.
Upphaf annars hluta líkir eftir
blaki vængjá sem hefjast á loft og
mynda inngang að sálminum „Af
himnum ofan“ sem tenórar í kórnum
syngja. Þá taka einsöngvarar við.
Sópraninn syngur spádóminn um
Emanúel sem fæðast skuli af meyju og
bassinn segir frá þjóðinni sem gengur
í myrkri og muni sjá ljós.
í þriðja hluta heyrast báöir sálm-
arnir „Nú kemur heimsins hjálpar-
ráð“ og „Af himnum ofan“ og tenór-
inn flytur tónles sem segir af því að
engillinn Gabríel hafi verið sendur á
fund Maríu. „Þytur" í strengjunum
boðar komu hans.
Að lokum er sagt frá skrásetningu
heimsbyggðarinnar, ferðinni til Bet-
lehem og fæðingu Jesú. Engillinn
Gabríel birtist hirðunum og ber þeim
tíöindin. Englakór syngur „Dýrð sé
Guöi í upphæðum..." og tónlistin nær
smám saman hámarki en deyr síðan
hægt og rólega út.
Verkið var samið með fjárstuðningi
frá Tónskáldasjóði Rikisútvarpsins.
Leikarinn Danny Glover þakkar
Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna, útlit sitt í nýjustu mynd
sinni The Royal Tenenbaums, sem
nýlega var tekin til sýninga i Banda-
ríkjunum. „Ég kynnti Wes Anderson
leikstjóra myndarinnar fyrir Annan
og eftir að Anderson hafði hitt aðal-
ritarann var hann ákveðinn í að láta
mig lýkjast honum sem mest,“ sagði
Glover. „Ég sótti líka ákveðna taka í
hlutverkið úr mínu eigin lífi, þegar ég
var ungur og feiminn," sagði Glover,
en í myndinni fer hann með hlutverk
feimins endurskoöanda sem lendir i
vandræðum með kvenmann sem
leikin er af Anjelicu Huston.
Komin er út geislaplata með söng
Kórs Menntaskólans á Akureyri. Á
þessari nýju geislaplötu eru upptökur
sem Sigurður Rúnar Jónsson, hljóð-
meistari í Studio Stemmu, hefur gert
við lok starfsárs kórsins síðustu 3 vor
svo þarna er ekki um einn óbreyttan
kór að ræða, alltaf eru töluverð
mannaskipti frá ári til árs. Hverju
sinni hafa verið valin nokkur lög af
söngskrá vetrarins. Á diskinum eru af
þessum sökum sýnishorn af helstu
viðfangsefnum kórsins undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar, is-
lensk þjóðlög í gömlum og nýjum út-
setningum, sönglög islenskra tón-
skálda frá ýmsum tímum, bæði í
gömlum útsetningum og nýjum. Þá er
á plötunni Skólasöngur MA, lag Páls
ísólfssonar við ljóð Davíðs Stefánsson-
ar, sem nú er í fyrsta sinn gefinn út á
plötu.
Starfsemi Kórs MA er afar öflugt í
vetur. 1 kórnum eru nú ríflega 50 nem-
endur en kórinn kemur fram við ýmis
tækifæri í skólanum. Meðal annars
flutti hann nokkur lög á glæsilegri
árshátíð MA 30. nóvember síðastlið-
inn. Þá hefur Kór MA komið víða
fram á aðventunni og ílutt jólalög og
fleiri sönglög. Fyrr í haust kom kór-
inn fram á tónleikum ásamt Kór
Flensborgarskóla sem kom norður í
heimsókn. Þá má nefna söngferðir, en
Kór MA hefur sungið í Færeyjum, og
á síðasta vori var farið í tónleikaferð
til Edinborgar. Á þessu starfsári er
stefnt að söngferðum innanlands.
Guðmundur Óli Gunnarsson hefur
stjórnað Kór MA frá árinu 1997. Hann
er einn af kunnustu kór- og hljóm-
sveitarstjórum landsins, hefur meðal
annars verið aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands frá árinu
1992 og fastur stjórnandi Caput-hóps-
ins frá 1992.
Horft á árangurinn
Nokkrir krakkanna horfa á útkomuna í sjónvarpi.
Syngjandi námsmenn
Hér má sjá kór MA sem hefur gefiö út plötu þar sem meöal annars er aö
finna skólasöng MA eftir Davíö Stefánsson og Pái ísólfsson.
Holly að skilja
Kvikmyndagerðarmaðurinn Janusz
Kaminski, eiginmaður leikkonunnar
Holly Hunter, hefur nýlega farið fram
á lögskilnað við konu sína fyrir rétti í
Los Angeles og ber við ósættanlegum
ágreiningi eftir sex ára barnalaust
hjónaband. Bæði eru þau Óskarsverð-
launahafar, Holly, sem er 43 ára, fyrir
leik sinn í myndinni Piano og Kam-
inski, sem er 42 ára Pólverji, fyrir tök-
ur á myndunum Saving Private Ryan
og Schindlers List. Holly er einnig
þekkt fyrir leik sinn í myndunum
Raising Arizona og 0 Brother, Where
Art Thou? Eftir áramótin mun hún
hefja leik í myndinni Levity, en þar
mætir hún fyrir þeim Billy Bob
Thornton, Morgan Freeman og Kirst-
en Dunst.
Glover þakkar
Kofi Annan
DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Nemar og leirbrúður
Hluti skólanema meö leirbrúöurnar sínar ásamt Lars Olsen Cristiansen frá Animations Verkstædet í Viborg i Dan-
mörku, sem er verktaki viö gerö myndanna og fer í nokkra fámenna skóla hér á landi, í Grænlandi og Danmörku.
Krakkarnir á Hofsósi gera myndir fyrir sjónvarp:
Grettissaga túlkuð frjálslega
Sköpunargleðin var í algleymingi
í grunnskólanum á Hofsósi í desem-
ber þegar nemendum í 5.-8. bekk
gafst kostur á að taka þátt í gerð
hreyflmynda. Það er danskur aðili
sem vinnur að gerð mynda fyrir
börn sem væntanlega verða sýndar
í sjónvarpi á Norðurlöndunum. Þær
eru unnar í samvinnu við grunn-
skóla á minni þéttbýlisstöðum, auk
skólans á Hofsósi, Hólmavík, Hvols-
velli og í Ámesi i Biskupsstungum,
auk skóla í Grænlandi og Dan-
mörku.
Það var með fremur skömmum
fyrirvara að boð komu á Hofsós um
að taka þátt í þessu verkefni og
Björn Björnsson skólastjóri segir aö
þetta hafi verið mjög kærkomið
tækifæri, enda hafi nemendurnir
þarna fengið hver um sig 37
kennslustundir i upplýsingatækni,
sem slagi upp í að vera vetrar-
skammturinn á þessu sviði í skólan-
um.
I þessum hreyfimyndum er aðal-
lega unnið með brúöur úr leir og
klippimyndir og litamyndir notaðar
í bakgrunn sem sviðsmyndir. Nem-
endunum var skipt í þrjá hópa og
hvor þeirra samdi sögu og mótaði
persónumar. Einn hópurinn var að
fjalla um Málmey og þau álög sem
fylgja búsetu i eynni og var þar m.a.
stuðst við atburði úr lífi langömmu
eins nemandans, sem var meðal síð-
ustu ábúenda Málmeyjar. Annar
hópurinn gerði Grettissögu skil og
fjallaöi um hana á nokkuð frjálsleg-
an hátt. Sá þriðji samdi jólasveina-
sögu, þannig að fjölbreytninni var
fyrir að fara hjá krökkunum á Hofs-
ósi.
Áhuginn skein úr hverju andliti
þar sem nemendurnir voru að
vinna með Lars Olssen Cristjansen
frá Animations Verkstædet í Viborg
í Danmörku en Lars er nokkurs
konar verktaki við gerð þessarar
myndar og nýtur til þess stuðnings
danskra menningarsamtaka og Nor-
ræna hússins í Reykjavík.
-ÞÁ