Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Side 2
2
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
Fréttir I>V
Nýr leiðtogi sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ, Ragnheiður Ríkharðsdóttir skólastjóri:
Ætlar að endurreisa
fána flokksins
DV-MYND HILMAR ÞÖR
Leiötoginn
Hér er Ragnheiöur Ríkharðsdóttir í faðmi fjölskyldunnar i gær ásamt Daða
Runólfssyni, eiginmanni sínum, og Heklu Ingunni, dóttur þeirra.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 52
ára skólastjóri, er nýr leiðtogi sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ. Hún
hlaut um helgina glæsilega kosn-
ingu í fyrsta sæti framboðslista
ílokksins fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Fimm efstu í próf-
kjörinu hlutu allir bindandi kosn-
ingu.
„Þetta kom mér sannarlega á
óvart," sagði Ragnheiður i gær. Hún
kveðst ákveðin í að endurreisa flagg
sjálfstæðisstefnunnar í bænum, en
síðustu átta árin hefur flokkurinn
setið í skugga minnihluta í bæjar-
stjórn. Fyrr á árum þótti Mosfells-
sveit og síðar Mosfellsbær eitt
hinna óhagganlegu virkja sjálfstæð-
ismanna.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir hlaut
456 atkvæði, en 882 kusu í Mosfells-
bæ. I öðru sæti varð Haraldur
Sverrisson og Herdís Sigurjónsdótt-
ir í því þriðja en hún er eini bæjar-
fulltrúinn sem gaf kost á sér í próf-
kjörinu. Öll þrjú kepptu að fyrsta
sætinu. Hafsteinn Pálsson lenti í
fjórða sæti og fékk bindandi kosn-
ingu eins og hin þrjú.
„Það er verk að vinna í bæjarmál-
um. Það þarf að taka á stjórnsýsl-
unni, bæjarfélagið fær á sig allt of
margar stjórnsýslukærur vegna
slælegra vinnubragða. Menn eru
ekki að vinna vinnuna sína. Hér er
lika hrikaleg miðstýring sem veitir
ágætum starfsmönnum bæjarins ná-
kvæmlega ekkert svigrúm, stjóm-
málamenn eiga að treysta sínum
mönnum," sagði Ragnheiður í gær.
Dæmi um þetta eru meðal annars
ráðning skólastjóra við Lágafells-
skóla sem dregin var til baka eftir
viku og var það ferli kært. Þá segir
Ragnheiður að klúður í lóðaúthlut-
unum hafi kostað aðra kæru. Ragn-
heiður segir að Sjálfstæðisflokkur-
inn muni koma fram með frábæran
hóp fólks sem bæjarbúar muni
treysta fyrir stjórntaumunum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir og
Lnga Jóna Þórðardóttir sem keppti
að leiðtogakjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík eru báðar Skagamenn og
raunar þremenningar. Afi Ingu
Jónu í fóðurætt og amma Ragnheið-
ar í fóðurætt voru systkini. Af þeim
er mikil knattspyrnuætt, og þeir
frændur Guðjón Þórðarson og Rík-
harður Daðason fengu í gær að vita
um sigur Ragnheiðar út til Stoke-
borgar. Faöir Ragnheiðar er Rík-
harður Jónsson, margfræg knatt-
spyrnukempa af Akranesi. -JBP
Nýjasta æðið
er „drottn-
ingarbollur"
íslendingar hesthúsa í dag, og hafa
reyndar verið að úða i sig síðan fyrir
helgi, kynstrum af rjómabollum og
öðrum bollutegundum í tilefni bollu-
dagsins. Kunnugir telja ekki óvarlegt
að áætla að framleiddar séu um ein
milljón rjómabolla þessa helgi af öllum
mögulegum sortum. Nú er meira að
segja hægt að fá bollur samkvæmt
smekk hennar hátignar Margrétar
Þórhildar Danadrottningar.
Á Kaffi konditori Kaupmannahöfn á
Suðurlandsbraut hafa menn staðið
sveittir við bollubakstur síðan á
fimmtudag. Þar eru m.a. bakaðar eðal-
bollur samkvæmt ströngustu kröfum
dönsku hirðarinnar.
„Ætli við bökum ekki um tíu þús-
und bollur af ölllum mögulegum gerð-
um og þar á meðal þessar drottningar-
bollur," sagði Þormar Þorbergsson
konditorimeistari.
„Þetta eru vatnsdeigsbollur sem
fylltar eru með vanillukremi og hind-
berjum. Þær eru svolítið sætari en
venjulegar bollur. Það var bakarí í
Danmörku sem bjó þetta upphaflega til
fyrir drottninguna en nú er hægt að fá
þetta um alla Danmörku og lika hér
hjá okkur.“
Þótt Danadrottningu líki sætindin
þá baka Þormar og hans fólk líka boll-
ur af allt öðrum toga. Það eru sykur-
lausar bollur fyrir sykursjúka. -HKr.
DV-MYND E.ÓL.
Drottningarbollur að hætti hússins
Starfsfótk á Kaffi konditori Kaupmannahöfn hefur staöið alla helgina viö bollubakstur, líkt og flestir bakarar landsins.
Rjóminn i bollumenningunni aö þessu sinni er „drottningarbolla“ samkvæmt ýtrustu gæöakröfum Danadrottningar.
Hroð fæðing
Slökkviliðsmaöurinn Ólafur Ingi og
kona hans, Ingunn Þóra, ásamt syni
sínum, Axel Inga, og nýburanum
sem lá mikiö á aö komast i heim-
inn.
Fæðing í sjúkrabíl:
Loksins verkleg þjálfun
- sagði slökkviliðsmaður sem tók á móti eigin barni
„Þetta gekk allt eins og í lygasögu
og bæði móður og barni heilsast
vel,“ segir Ólafur Ingi Grettisson
sem tók á móti syni sínum í sjúkra-
bíl á laugardag. Sjálfur er Ólafur
Ingi ekki óvanur að athafna sig í
sjúkrabílum því hann starfar hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
og hefur því flutt ófáar ófrískar kon-
ur á sjúkrahús. Þegar kona hans,
leikskólakennarinn Ingunn Þóra
Hallsdóttir, fékk hríðir á laugardag,
einum degi fyrr en áætlað var, var
Ólafur Ingi í frii og hringdi hann
því eftir vinnufélögum sínum um
fjögurleytiö. Ingunn Þóra var hins
vegar varla fyrr komin inn í bílinn
en að allt fór í gang og kom 53,5 cm
langur strákur og 15 merkur i heim-
inn milli Garðabæjar og Kópavogs.
Ölafur Ingi tók einn á móti krílinu
því hann hafði beöið sjúkraflutn-
ingamanninn sem kom með bílstjór-
anum að keyra sinn bíl niður á spít-
ala. Á þeim sex árum sem Ólafur
Ingi hefur starfað hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins hefur hann
aldrei lent í því aö þurfa að taka á
móti bami en þrátt fyrir litla verk-
lega þjálfun þá gekk allt vel. „Þetta
eru innan við 10 tilfelli á ári þar
sem börn fæðast í sjúkrabílum,"
segir Ólafur Ingi sem varla er enn
búinn að ná sér eftir ævintýri helg-
arinnar. „Sem starfsmaður slökkvi-
liðsins er ég náttúrlega búinn að fá
þjálfun í því hvernig á að taka á
móti bami og í sjúkrabílnum er sér-
útbúnaður til að nota í svona tilfell-
um,“ segir hinn stolti faðir. Fyrir
eiga þau Ólafur og Ingunn fimm ára
gamlan son, Axel Inga, sem lá ekki
eins mikið á í heiminn eins og bróö-
ur hans. „Þetta er góð reynsla fyrir
starfið í slökkviliðinu," segir Ólafur
Ingi sem má segja að hafi svo sann-
arlega fengið verklega þjálfun í fæð-
ingarhjálp um helgina. -snæ
Neita flugmenn skoðun?
Talið er hugsan-
legt að flugmenn í Fé-
lagi íslenskra at-
vinnuflugmanna
neiti að mæta í lækn-
isskoðun á meðan
Þengill Oddsson stýr-
ir þeim fyrir Flug-
málastjóm. Lögmað-
ur félagsins og Qugmanns, sem brotið
var á, segir að mikill trúnaðarbrestur
sé enn á milli félagsins og Flugmála-
stjómar. - RÚV greindi frá.
Innbrot í Rugskóla íslands
„Þetta er tjón upp á tvær milljón-
ir,“ segir Össur Brynjólfsson, yflr-
kennari við Flugskóla íslands við
Reykjavíkurflugvöll, um það tjón
sem skólinn varð fyrir þegar inn-
brotsþjófar létu þar greipar sópa um
helgina. Alls hurfu þrir skjávarpar
og tvær fartölvur úr kennslustofum
skólans og unnu þjófamir, sem lík-
lega komust inn um glugga, einnig
mikið tjón á innihurðum. „Það er
greinilegt að þama hafa verið menn
á ferð sem þekktu aðstæður," segir
Össur. Hann gmnar þó alls ekki
nemendur skólans um verknaðinn
þar sem ekki var hreyft við náms- og
prófgögnum. Þjófnaðurinn mun ekki
skerða kennsluna í skólanum en mál-
ið er í rannsókn.
Þyrstur þjófur
Brotist var inn í verslun ÁTVR í
Spönginni um helgina og stolið það-
an einhverju magni af áfengi. Að
sögn Lögreglunnar í Reykjavik tók
þjófurinn eða þjófamir einungis
rauövín og bjór með sér, en einhverj-
um mun liklega þykja það illa valið
þegar hægt var að velja úr öllu því
sem ÁTVR býður upp á. Innbrotið í
ÁTVR er eitt af átta innbrotum helg-
arinnar en önnur fyrirtæki sem urðu
fyrir óvæntri heimsókn var m.a Sjó-
mannaskólinn, verslun við Laugaveg
og verslun við Eddufell.
Sameining felld
Aðalfundir hestamannafélaganna
Léttis og Funa felldu tillögu þess efnis
að sameina félögin á fundi að Hrafna-
gili á laugardag, en 2/3 hluta atkvæða
þurfti til að samþykkja tillöguna. Að-
eins eitt atkvæði felldi tillöguna hjá
Létti og tvö atkvæði hjá Funa. - Eid-
faxi.is greindi frá.
íslensk sniglaræktun
Jakob Narfi Hjaltason, tómata- og
blómabóndi í Laugagerði í Biskups-
tungum, hefur fengið leyfi til þess að
flytja inn og rækta snigla til manneld-
is en sniglar þykja á finni veitingahús-
um flottir forréttir.
Imiflutningurinn þurfti blessun
landbúnaðarráðuneytis, sérfræðinga-
nefhdar um framandi lífverur, Nátt-
úruvemdar ríkisins og yfirdýralækn-
is. Næsta skref er að afla fram-
kvæmdaleyfis en að því búnu getur
Jakob Narfi útvegað sér snigla til
ræktunar en hann ætlar að framleiða
250 tonn á ári. - RÚV greindi frá.
Netverðlaun kennara HÍ
Menntamálanefnd Stúdentaráðs Há-
skóla íslands veitti í síðustu viku net-
verðlaun kennara. Að þessu sinni var
það Anna Dóra Sæþórsdóttir, kennari
í ferðamálafræði i jarð- og land-
fræðiskor, sem hlaut verðlaunin sem
vom frá Nýherja.
Lést í slysinu í Hamarsfirði
Konan sem lést í
umferðarslysinu í
Hamarsfirði við
Djúpavog á fóstu-
dag hét Ágústa Eg-
ilsdóttir. Hún var
45 ára og lætur eftir
sig eiginmann og
fjögur böm. Ágústa
vann við harðfiskverkunina Sporð á
Eskifirði. -snæ