Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Síða 11
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
Fréttir
DV
full búð af skemmtilegum
vörum fyrir áhugafólk
um hesta
og útiveru
á frábæru
verði
mm
7000
Arnar HU átti gott veiðiár:
Landaði fiski fyrir nærri
eitt þúsund milljónir króna
Mýrdalsiökull:
Yfir 50
skjálftar í síð-
ustu vikuna
Síðan á miðnætti aðfaranótt
sunnudags þar til síðdegis í gær
höfðu alls mælst rúmlega 50 skjálft-
ar í og við Mýrdalsjökul. Flestir
voru skjálftarnir litlir en þeir
stærstu af stærðargráðunni 2,5 á
Richter.
Eins og lengst af í vetur hafa flest-
ir skjálftanna mælst á svæði í vest-
urhlíðum Goðabungu við suðvestur-
brún Kötluöskjunnar. Fyrir helgina
hafa skjálftar mælst á svipuðum
slóðum, eða í jöklinum vestur af of-
anverðum Sólheimajökli og vestur
undir Fimmvörðuháls. Upptök
sjálftanna eru á dýpi allt frá 200
metrum og niður á 8 kílómetra und-
ir jöklinum. Er virknin nú heldur
minni en fyrir viku til hálfum mán-
uði og ekki virðast vera neinar vís-
bendingar um að stórir atburðir séu
í aðsigi.
Miðað við reynslu jarðfræðinga
síðustu ára ætti að fara að draga
mjög úr skjálftavirkninni um þess-
ar mundir. Venjan er sú að skjálftar
byrji aftur um mitt sumar er snjó-
fargi hefur létt af jöklinum eftir
sumarbráðnunina.
-HKr.
, DV-MYND HARI
Utreiðartúr í vetrarblíðu
Fjölmargir höfuðborgarbúar hafa nýtt sér veðurblíðuna að undanförnu til
útivistar. Enn skortir þó talsvert á að skíðafólk fái ósk sína uppfyllta
varðandi snjóinn en hestamenn láta góða veðrið ekki fram hjá sér fara.
SURJKl
■
Meira rými, meira afl,
meira útsýni, meira
öryggi, meiri gæði,
meira af því
sem gefur lífinu gildi..
og þar að auki
fjórhjóladrif!
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI
Frystitogarinn Arnar HU 1 frá
Skagaströnd bar að landi um 5.300
tonn í níu veiðiferðum á síðasta ári
og var verðmætið liðlega 980 millj-
ónir króna. Þetta er heldur minni
afli en árið á undan sem kemur til
af sjómannaverkfallinu en verð-
mætið er svipað.
Að sögn Jóels Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra Skagstrendings
hf. sem gerir Arnar út, hefur skipið
verið með aflahæstu frystitogurum
islenska flotans undanfarin ár. Ekki
er þó enn ljóst hvar skipið er í röð-
inni yfir þau sem skiluðu mestu
verðmæti að landi árið 2001. Auk
Arnars gerir Skagstrendingur út i
samvinnu við útgerð í Eistlandi
rækjufrystitogarann Örvar. Hann
veiddi um 2.500 tonn á síðastliðnu
ári. Örvar veiðir ekki á íslandsmið-
um en hluti áhafnarinnar er íslend-
ingar. Auk framantalinna skipa rek-
ur Skagstrendingur rækjuvinnslu á
Skagaströnd og frystihús á Seyðis-
firði. -ÖÞ
£*:
Frystitogarinn Arnar HU 1 frá Skagaströnd.