Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Qupperneq 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
I3V
REUTER-MYND
Samba í Ríó
Bestu sambaskólar Brasilíu njóta mikillar athygli í Rio de Janeiro þessa
dagana en nemendur skólanna sýna dans á 700 metra löngu sviöi fyrir
framan 60 þúsund manns sem fylgjast með herlegheitunum.
REUTER-MYND
Eftir sjálfsmorðið
Buelani Vukwane liggur hér í sárum
sínum sem hann veitti sér sjálfur.
Byssuóöur mað-
ur drepur 11 í
Suður-Afríku
Suður-afrískur maöur, sem lenti
upp á kant við kærustu sína, drap 11
manns í East London í Suður-Afríku
um helgina, þar á meðal kærustu
sína, þrjú ættmenni hennar og sjálfan
sig eftir rifrildið. Aðrir sem urðu fyr-
ir barðinu á honum gerðu sig aðeins
seka um að verða á vegi hans.
Einnig þurfti að flytja nokkra til
viðbótar á sjúkrahús vegna alvarlegra
áverka.
Glæpir í Suður-Afríku eru mjög al-
gengir og er fjöldi morða, alls um 15
þúsund, þar í landi sá sami og í
Bandaríkjunum, þó svo að síðar-
nefnda landið sé sex sinnum stærra.
Óttast um öryggi
Pearls í Pakistan
Þar sem ekkert hefur heyrst að
undanförnu í mannræningjum þeim
sem rændu Daniel Pearl, bandarísk-
um blaðamanni, eru stjórnvöld í
Pakistan farin að óttast verulega
um heilsu hans.
11 dagar eru liðnir síðan mann-
ræningjamir létu síðast í sér heyra
en lögreglan fylgist þó grannt með
fjölskyldu Ahmeds Omars sem er
helst grunaður um verknaðinn.
Hann á að hafa hringt í frænku sína
sem hvatti hann til að gefa sig fram
en Omar sleit þá samtalinu um leiö.
Talið er að Pearl sé haldið í
Karachi þar sem nánast ómögulegt
sé fyrir mannræningjana að komast
meö hann í burtu óséðir.
__ Khatami hvetur
írana til mótmæla
Mohammed Khatami, forseti
írana, hvatti landa sína í gær til
þess að fjölmenna á 23 ára afmæli
írönsku byltingarinnar, sem er í
dag, og mótmæla yfirlýsingum Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseti að
undanförnu.
Bush hefur undanfarið í tvígang
gert atlögu að írönum í ræðum sín-
um þegar hann sakaði þá um að
styðja við bakið á hryðjuverknaði
og framleiða gereyðingarvopn og
vegna þess væri landið væri undir
smásjá bandarískra stjórnvalda.
Khatami gefur hins vegar lítið
fyrir yfirlýsingar Bush og sagði að
það væri mikilvægara fyrir írana
en nokkru sinni að þjappa sér
saman og mótmæla „þessum röngu
og móðgandi staðhæfmgum gegn ír-
an.“ í sjónvarpsávarpi sínu óskaði
forsetinn eftir að allar stéttir lands-
ins kæmu saman og sýndu bylting-
unni hollustu.
REUTER-MYND
Mohammed Khatami
hvatti alla írana til aö safnast sam-
an á 23 ára afmæli írönsku bylting-
arinnar og mótmæla ummælum
Bush Bandaríkjaforseta.
Bæði Bandaríkjastjórn og ísrael-
ar hafa grunað írana sterklega um
að koma vopnum til Palest-
ínumanna í baráttu þeirra gegn
ísraelum en lagt var hald á stóra
vopnasendingu í Rauðahafi í síðasta
mánuði en talið var að hún væri
komiö frá íran og verið ætluð
Palestínumönnum.
í gær sendi svo forseti Palestínu,
Yasser Arafat, bandarísku rikis-
stjóminni bréf þar sem hann full-
vissaði Colin Powell, utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna, um að tengsl
hans við íran væri engin og
Palestínumenn ætluðu alls ekki að
flytja inn vopn þaðan.
Arafat neitar allri vitneskju um
umræddan varning og vill með öll-
um tiltækum ráðum sannfæra bæði
bandaríska og ísraelska ráðamenn
um að tengsl hans við íran séu eng-
in og ekki sé ráðgert að taka upp
slíkt samband.
Talibanarnir að
sækja í sig veðrið
Abdullah Abdullah, utanríkisráð-
herra bráðabirgðastjómar Afganist-
ans, lét í gær í ljós áhyggjur sínar
þess efnis að talibanar væm að end-
urskipuleggja samtök sín með það
að leiðarljósi að koma höggi á nýju
stjómina í Kabúl.
Talið er að tvenns konar samtök
séu að myndast í Pakistan þar sem
víst þykir að helstu fyrirmenn tali-
bana haldi sig.
Ekkert er þó vitað um innviði
samtakanna.
Fyrirmenn pakistanskra stjórn-
valda fullvissuðu þó Abdullah um
það í heimsókn sinni til Islamabad
á föstudag að gripið yrði til aðgerða
gegn slíkri starfsemi.
Á sama tima fagnaði Abdullah
því að fyrrum utanríkisráðherra
talibanastjómarinnar gaf sig fram
en víst þykir að hann geymi mikil-
vægar upplýsingar um félaga sína.
Berlingske Sondag birti í gær
könnun sem Gallup framkvæmdi í
Danmörku um ástand konungsfjöl-
skyldunnar dönsku, sér í lagi mál-
efni Hinriks, eiginmanns Margrétar
drottningu.
Hinrik finnst sér ekki nógu vel
sinnt og í könnuninni kom fram að
um 20% Dana vilja að Margrét af-
sali sér krúnunni til Friðriks, sonar
síns, þess að sinna eiginmanninum
betur.
Ljóst er að yfirlýsingar Hinriks
um síðustu helgi um sínu persónu-
legar krísur sínari höfðu mikil áhrif
á dönsku þjóðarsálina, þó svo að
67% þátttakenda í henni skilji ekki
undan hverju hann er að kvarta.
Sagnfræðingurinn Claus Bjorn
taldi þó í samtali við blaðið að
ótímabært væri fyrir Margréti að
afsala sér krúnunni þar sem fjöl-
skyldan þyrfti að sýna að hún gæti
yfirstigið vandamál sem þetta.
Margrét og Hinrik
67 þrósent Dana skilja ekkert í
kvörtunum Hinriks
;?fó k u sj
fjxjm
]leikur
Svona gerir þú:
Veldu þér töíu milli 10 og 1100. Skrifaðu si'flan
"lukka (og lukkunúmerið þitt, t.d. "lukka 999")"
og sendu á 1848 (Síminn, ekki Frelsi), 1415 (Tal)
eða farðu í "Clugginn" og "Nýtt" hjá Islandssíma.
Nú ert þú skráð/ur í Lukkuleikinn*.
A hverjum degi, næstu 5 vikur, íþættinum
70 mCnútur á PoppTíví er dregið út eitt lukkunúmer
og sá sem vaídi það lukkunúmer fær vinninginn.
I pottinum eru:
25 stk. 5210 Nokia GSM símar.
5 helgarferðir með Flugleiðum til Evrópu fyrír tvo.
5 x 10.000 kr. inneign í 10-11.
Þannig að það er til mikils að vinna.
Þú getur endurtekið leikinn eins oft og þú vilt,
ogaukið líkurnar með hverju lukkunúmeri.
Hvert SMS skilaboð kostar 79 kr.
ÍOé
Fimmti hver Dani
vill fá Friðrik strax
Þúsundir styðja Milosevic
■ Meira en 8000
Serbar söfnuðust
saman í Belgrad
og efndu til göngu
til stuðnings Slo-
bodan Milosevic,
fyrrum forseta
Júgóslavíu en
réttarhöld yfir
honum hefjast á morgun í Haag.
Milosevic er kærður fyrir stríðs-
glæpi.
Biblíusmyglara sleppt
Yfírvöld í Kína hafa sleppt Li
Guangqian sem var í maí síðastliðn-
um dæmdur í 2 ára fangelsi fyrir að
smygla Biblíum inn í landið.
Stutt í Evruna í Bretlandi
Samkvæmt könnun í Bretlandi
telja um 69% Breta aö stutt sé í aö
pundið verði lagt niður og Evran
tekin upp. Rúmlega helmingur
þeirra, um 42%, er fylgjandi upp-
töku Evrunar.
Mótmælt í Tel Aviv
Mikill fjöldi ísraela safnaðist
saman í Tel Aviv og mótmælti að-
gerðum Ariels Sharons, forsætisráð-
herra landsins, gegn Palestínu-
mönnum og afskipti ísraels af
heimastjórnarsvæði Palestínu-
manna.
Ættingjar gefi DNA-sýni
Læknisyfirvöld í New York hafa
beðið ættingja þeirra sem taldir
voru af í hryðjuverkaárásunum að
gefa DNA-sýni svo mögulegt sé að
bera kennsl á fórnarlömbin. Alls
hafa verið borin kennsl á 712 af
þeim 2843 sem taldir voru af.
Chavez áhyggjulaus
Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, ótt-
ast ekki að herinn
snúist gegn honum
og hrifsi af honum
völdin í kjölfar þess
að yfirmaður í flug-
hemum krafðist af-
sagnar hans og fékk
í lið með sér fjölda fólks í mótmæla-
göngu gegn forsetanum.
Verðmætri Biblíu stoliö
Landamæraverðir í Ungverja-
landi hafa hert gæsluna eftir að
einni elstu Biblíunni sem þýdd var
á ungversku var stoliö úr einni af
kirkjum landsins í gær.
Stressið er banvænt
Krónískt vinnustress og hjóna-
skilnaður geta verið banvæn blanda
fyrir karlmenn, samkvæmt nýrri
rannsókn sem heilsuyfirvöld i
Bandaríkjunum stóðu fyrir.
Glæpamaður til sýnis
Yfirvöld í Alsír hafa stillt upp fyr-
ir almenningi liki Antars Zouabri,
leiðtoga öfgasamtaka sem spilar
stórt hlutverk í borgarastyrjöldinni
þar í landi. Zouabri var drepinn af
öryggisliðum á heimili sínu á fóstu-
dag.
Múslímar og kristnir slást
Til handalögmála kom á milli
tveggja trúarhópa í bæ einum i suð-
urhluta Egyptalands í gær. Kristinn
söfnuður í bænum fékk nýja kirkju-
klukku og vildu múslímarnir meina
að hún væri of hávær. Alls meidd-
ust um 11 manns í uppþotinu, þó
enginn alvarlega.