Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Page 13
^-----
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
DV
Utlönd
13
Ekkert lát var um helgina á átökum ísraela og Palestínumanna:
l
Harkalegar loftárásir
ísraela á Gazaborg
Höfuöstöövar öryggissveita Yass-
ers Arafat, forseta Palestínu, voru
aftur skotmörk ísraelskra herþotna
í gærkvöld sem skutu flugskeytum
aö byggingunni sem er í Gazaborg.
Þykkur reykur steig upp í kjölfarið
og hermdu fyrstu fréttir að um 15
manns heföu orðið fyrir áverkum,
margir vegna fljúgandi glerbrota frá
byggingunni.
Nokkrum klukkustundum áður
höfðu tveir palestinskir menn skot-
ið til bana tvo ísraela og sært um 18
til viðbótar í bænum Beersheba sem
er í suðurhluta ísraels. Palestínskir
skæruliðar höfðu einnig skotið
nýrri gerð af heimagerðu flugskeyti
til ísraels frá Gazaströndinni. Eng-
inn hlaut skaða af í þeirri árás en
ísrealar sögðu hana alvarlegan vitn-
isburð um aukna hörku í hemaði
Palestínumanna.
Stuttu eftir árásirnar á Gazaborg
átti sér stað önnur árásahrina á
norðanverða Gazastrandlengjuna, í
REUTER-MYND
Særð dóttlr
Palestínsk kona fer meö særöa
dóttur sína á sjúkrahús í Gazaborg í
gær eftir árásir ísraela.
grennd við flóttamannabúðir í
Jabalya. ísraelskar herþyrlur skutu
minnst 10 flugskeytum á heimili
Palestínumanna og aðrar byggingar
samkvæmt vitnum.
Arafat hefur ekki verið í Gaza-
borg síðan í nóvember siðastliðn-
um. Meðan á árásunum stóð var
hann í Rammalla á Vesturbakk-
anum en hann hefur haldið sig þar
síöustu tvo mánuði.
í Beersheba svöruðu ísraelar
fljótt fyrir sig og drápu byssumenn-
ina tvo aðeins nokkrum mínútum
eftir skotárás þeirra en hún var
gerð til að hefna fyrir innrás ísra-
elshers í Nablus á Vesturbakkanum
þar sem um tugur Palestínumanna
voru særðir.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, er nýkominn úr ferð sinni
til Bandaríkjanna og safnaði saman
helstu ráðamönnum sínum til að
ræða nýjustu atburðina í átökum
ísrael og Palestínu.
REUTERTHYND
Komiö með kistu Margrétar prinsessu til Kensington Palace
Margrét, yngri systir Elísabetu Bretlandsdrottningar, lést snemma á laugardagsmorgun 71 árs aö aldri en banamein
hennar var hjartaáfall. Hún lá á Konunglega sjúkrahúsi Játvaröar sjöunda í Lundúnum þegar hún lést.
Afganskir fangar á Kúbu eru
Bandaríkjamönnum til trafala
George Bush Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir í síðustu viku að
bandarísk stjórnvöld hygðust fara
með fanga úr hryðjuverkastríðinu í
Afganistan samkvæmt Genfarsátt-
málanum.
Það átti þó aðeins við talibanana
en liðsmenn Al-Qaeda-samtakanna
teljast hryðjuverkamenn og því
ekki striðsfangar.
Það er hins vegar ekki heiglum
hent að bera kennsl á fangana sem
haldið er í Guantanamo-flóa á Kúbu
því fangamir vilja síður en svo gefa
upp hvort þeir eru talibanar eða
liðsmenn Al-Qaeda.
Alls eru nú 220 fangar komnir til
Kúbu frá Kandahar en bandaríski
herinn hefur á sínu valdi 237 til við-
bótar í Afganistan. Hermaður
bandaríska hersins sem stjórnar yf-
irheyrslum í Kúbu hefur viður-
kennt að þær gangi hægt.
REUTER-MYND
Talibanl eða llðsmaöur Al-Qaeda?
Ekki ætlar þaö aö reynast auövelt
aö bera kennsl á fangana á Kúbu.
„Stór hluti fanganna segist vera
talibanar, við höfum svo getað bor-
ið kennsl á fámennan hóp Al-Qaeda-
liðsmanna og þá eru nokkuð margir
þar á milli sem við vitum ekki hvor-
um hópnum tilheyra,“ sagði Mike
Lehnert sem stjórnar yfirheyrslun-
um.
Borin hafa verið kennsl á nokkra
Al-Qaeda-liðsmenn með utanaðkom-
andi hjálp en enginn fanganna hef-
ur viöurkennt að vera liðsmaður
samtakanna þar sem Osama bin
Laden stjómar lögum og lofum.
Samkvæmt Genfarsáttmálanum
er ekki heimilt að yflrheyra stríðs-
fanga og því er vandinn mikill fyrir
Bandaríkjamenn. Bush vildi treg-
lega flokka talibanana sem stríðs-
fanga en eftir mikinn þrýsting
mannréttindasamtaka þar í landi
sem og frá fyrirmönnum í Evrópu
lét hann undan.
Vikulegt flug til
Rimini
í sumar
frá 39.805*
fyrstu 300 sætin
Rimini
Perlan vlð Adrlahaflð
Heimsferðir bjóða í sumar dvöl á hinum geysivinsæla
strandstað Rimini á Ítalíu. Rimini við Adríahafíð er
einn stærsti og vinsælasti sumarleyfísstaður í Evrópu
enda sækja hingað ferðamenn alls staðar að úr heim-
inum til að njóta þess sem staðurinn hefúr að bjóða.
Heimsferðir bjóða þér vinsælustu gististaðína á Rim-
ini, frábærlega staðsetta við ströndina og örugga þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða, sem bjóða þér spennandi
kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Fyrstu 300
farþegamir tryggja sér ótrúleg kjör á ferðinni til Rim-
ini og stórlækkun á verði ferðar frá því í fyrra.
Heimsferðir störlækka verðið til Rimini
Yfir 20.000 kr. verðlækkun á mann frá því f fyrra
Fyrstu 300 sætin á sértilboði
Frábærir gististaðir
Heimsferðir bjóða þér topp gististaði í hjarta Rimini,
rétt við fallega ströndina.
Verðkr. 39*805
M.v. bjón mcð 2 böm, 23. maí,
Auriga Apartmenls. 5 nætur mcó
8.000 kr. a&Jætti.
Verðkr. 58*950
M.v. 2 í stúdíó. Auriga, 12 nætur.
20. júní, með 8.000 kr, afslxtti.
Kynntn þér ItaHubækling
Heimsferða
Beint flug alla fimmtudaga
Brottför frá Keflavfk kl. 17.30
Hug heim á þriðjudagsmorgnum
c?
V-/ Heimsferðir
Skógarhlíð 18, símí 595 1000. www.heimsferdir.js