Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Síða 18
J
34
MANUDAGUR 11. FEBRUAR 2002
Skoðun
Spurning dagsins
Notarðu Netið mikið?
Pálmi Orn Pálmason nemi:
Já, til aö fá fréttir og annaö efni. Ég
fer iíka mikiö inn á formúluna.
Magnús Ragnarsson nemi:
Já, helst til upplýsingaöflunar,
fréttir og annaö.
Þórunn Hjartardóttir nemi:
Já, ég sendi mikinn póst.
Frans Fransson nemi:
Já, mjög mikiö, sæki tónlist og
myndir á Netiö.
Friðrik Þór Hjartarson nemi:
Nei, ekki neitt, ég nota ekki einu
sinni póstinn.
Jóhann Rúnarsson nemi:
Já, það má segja það.
Flutningurinn
frá Vífilsstöðum
Þórarinn Gíslason og Davíð Gíslason.
læknar LSH lungnadeild, sendu þennan pistil:
í viðtali við Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra í DV laugard. 2.
febr. sl. um starfsemina á Vífilsstöð-
um, undir fyrirsögnini Áratuga-
starfsemi á Vífilsstöðum hætt á ár-
inu, segir orðrétt: „Stefnt er að því
að hætta starfsemi á Vífilsstöðum á
síðara hluta þess árs þegar hinn nýi
barnaspítali Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss tekur til starfa, að sögn
Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra. Starfsemin á Vífilsstöðum
hefur farið minnkandi á seinni
árum, og sagöi Jón það aðkallandi
að taka ákvarðanir um framtíðar-
nýtingu þess.“
Hið rétta er að hjúkrunardeild
var flutt á Landakot sl. haust og
lungnadeild var nýlega flutt í Foss-
vog, en göngudeildin mun flytja i
Fossvog í apríl nk. Þessir flutningar
eru alis ótengdir því að bamaspítal-
inn veröi tekinn í notkun eins og
sést af tímasetningu flutninganna.
Hitt er svo annað mál, að fyrir sam-
einingu stóru spítalanna í Reykja-
vík var það yfirlýst stefna að flytja
starfsemina frá Vífilsstöðum á
Hringbrautina þegar bamaspítalinn
kæmi í gagnið.
Það sem farið hefur fyrir brjóstið
á starfsfólkinu á Vífilsstöðum, og
mörgum hefur sárnað, var sú full-
yrðing í blaðinu að starfsemin á Vif-
ilsstöðum hafi farið minnkandi á
seinni árum. Það er fjarri sanni.
Þannig fjölgaði innlögnum á
lungnadeild um meira en helming á
árunum 1992-2000, og aukning varð
einnig á starfsemi hjúkrunardeiidar
og göngudeildar. Mikii gróska hefur
veriö í vísindavinnu á staðnum,
Vífllsstaðir
- Innlögnum á lungnadeild fjölgaöi, segir m.a. í pistiinum.
„Flutningurinn frá Vífils-
stöðum er því eingöngu lið-
ur x þeirri endurskipulagn-
ingu sem á sér stað innan
Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss í kjölfar samein-
ingar stóru spítalanna
í Reykjavík. “
sem aö hluta hefur verið kostuð af
erlendu rannsóknarfé.
í viðtalinu við heilbrigðisráð-
herra segir að nauðsynlegt sé að
finna önnur verkefni fyrir Vífils-
staði af því að starfsemin hafi farið
minnkandi. Staðreyndin er hins
vegar sú, að allt húsnæði spítalans
var í fullri notkun þar til hjúkrun-
ardeildin var flutt á Landakot sl.
haust. Meira að segja hafði salerni
og tveimur ræstingaherbergjum
verið breytt í vinnuaðstöðu fyrir
rannsóknarfólk til að koma starf-
seminni fyrir.
Flutningurinn frá Vífilsstöðum er
því eingöngu liður í þeirri endur-
skipulagningu sem á sér stað innan
Landspítala - háskólasjúkrahúss í
kjölfar sameiningar stóru spítal-
anna í Reykjavík."
Misbeiting gegn neytendum
Jón Sigurðsson
skrifar:
í framhaldi af pistli mínum í DV
sl. þriðjudag undir fyrirsögninni
Misbeiting á samkeppnismarkaði?
lýk ég hér með áðurnefndum pistli,
þar sem hann rúmaðist ekki í heild
í dálkum þessum sl. þriðjudag.
Held ég þá áfram þar sem frá var
horfið.
Margir spyrja: Hvar fá íslensk
fyrirtæki á neytendamarkaði pen-
inga til að fjárífesta fyrir i útlönd-
um? Væntanlega úr vösum hinna
sömu íslensku neytenda. Er verð-
lagning þá svona há hér á landi að
menn geti hagnast óstjórnlega á
stuttum tíma og þar með fjárfest í
„Er verðlagning þá svona
há hér á landi að menn
geti hagnast óstjórnlega á
stuttum tíma og þar með
fjárfest í útlöndum ? Svo
virðist vera. “
útlöndum? Svo virðist vera. Eða
hvernig í ósköpunum skyldi t.d.
Baugur hf. hafa ætlað að fiármagna
hina ofurháu fiárfestingu i
Arcadia? Varla með því að hækka
verð í búðum Arcadia á Bretlandi!
Gera má fastlega ráð fyrir því að
það verði íslenskir neytendur sem
tækju þátt í þessu fiárfestingaræv-
intýri, með hærra verði á matvæl-
mn hér á landi, og sú hækkun yrði
þá útskýrð með hækkun krónunn-
ar, launa starfsmanna og/eða að
heildsalar hefðu hækkað verðið,
líkt og skýringar hafa hljómað hér
síðustu misserin.
Aldrei er sagt að skýringa sé að
leita í gífurlegum vaxtakostnaði og
afborgunum af lánum vegna fiár-
festinga i búðum hér á landi eða er-
lendis. Jafnvel Kaupás, sem er nú i
eigu verkalýðsfélaganna, hefur lát-
ið leiða sig út í þessar ofurfiárfest-
ingar fyrirtækja í alls kyns rekstri.
- Og því spyr ég enn og aftur:
Hvers eiga neytendur að gjalda?
í spegli eða spéspegli
Garri hefur verið að velta fyrir sér kenning-
unni um það að tveggja flokka kerfi í stjórn-
málum geti af sér höfuðflokka sem líkist hvor
öðrum meir og meir eftir því sem fram líða
stundir. Þeir verði eins og hjón, sem á löngum
ævivegi fara að draga dám hvort af öðru og
treysta hjónasvipinn eða skapa hann hafi hann
ekki verið fyrir hendi strax í upphafi. Þetta
hefur líka stundum verið kölluð pólitísk spegla-
kenning því annar flokkurinn í þessu tveggja
flokka kerfi hefur tilhneigingu tU að fylgjast
stíft með hinum og bregðast við öllu sem sá
gerir. Útkoman leiðir síðan til þess að flokkarn-
ir líta hvor um sig á hinn sem eins konar speg-
ilmynd sina - þó vissulega verði þessi spegil-
mynd nokkuð líkari spéspegli en hefðbundnum
spegli.
því að einn úr æðstu forustu flokksins, sjálfur
Bjöm Bjarnason, steig fram og gaf kost á sér til
forustu í borginni og gróf þannig undan sitj-
andi foringja með merkilegum hætti.
Skorað á hólm
Fordæmi sjálfstæöismanna
í Reykjavík er þessi kenning nú að koma
fram i þeim framboðsraunum, sem mest eru
áberandi. Það er ekki þörf á að fara mörgum
orðum um allan þann hamagang sem einkennt
hefur framboðsmálin hjá Sjálfstæðisflokknum
síðasta árið eða svo. Hann hefur einkennst af
Eftir aö hafa fylgst spenntur með þessu í
langan tíma hefur Samfylkingararmur Reykja-
víkurlistans nú brugðist við með spegilmyndar-
viðbrögðum sem einkenna svo oft tveggja
flokka uppstillingu. Sjálfur „Gettu betur-maður-
inn“ og formaður framkvæmdastjórnar, Stefán
Jón Hafstein, er kominn fram á sjónarsviðið og
skorar á hólm krýndan konung prófkjöranna,
Helga Hjörvar, forseta borgarstjórnar. Að vísu
er allur aðdragandi þeirra samfylkingarmanna
styttri og ferlið hreinlegra og opnara en það
var hjá sjálfstæðismönnum og menn eru hér
ekki að tala um borgarstjóraefni heldur þriðja
sæti á listanum þannig aö segja má aö þessi
spegill sé spéspegill. Engu að síður er það
þungavigt úr flokksforustunni sem skorar á
sitjandi leiðtoga í báðum tilfellum. Spumingin
núna er því hvort Samfylkingin muni í próf-
kjörinu gefa Stefáni Jóni ígildi þess lófaklapps
sem Bjöm fékk í Valhöll um daginn eða ekki.
Garri er trúaður á mátt spegilkenningarinnar
og spáir því Stefáni stórsigri.
<Xxffi
Aösetur Flugumferðarstjórnar
- Einkavæöing besti kosturinn.
Flugmálastjórn
einkavædd
Magnús Kristjánsson skrifar:
Enn einu sinni erum við landsmenn
háðir duttlungum flugumferðarstjóra.
Flug liggur niðri hér innanlands, ýmist
vegna „veikinda" stjóranna eða yfir-
vinnubanns. Ástandið er að sjálfsögðu
óviðunandi. Og hvað á þetta að ganga
lengi? Auðvitað á að setja lög til að
stöðva yflrvinnubannið. En þetta leiðir
hugann að því hvað ríkið sé að vasast í
flugumferð yfirleitt. Flugmálastjórn á
skilyrðislaust að einkavæða með
beinni sölu. Það myndu áreiðanlega
margir verða til að bjóða í hana. Einka-
vædd Flugumferðarstjóm sérstaklega
er mjög raunhæfur kostur og myndi
leysa áralanga áþján vegna deilna og
óreiðu í flugstarfsemi okkar.
Besta lausnin
S.K.J. skrifar:
Besta lausnin vegna sýninga leikja
á HM-mótinu í knattspyrnu er loks í
höfn. Nú þarf enginn að rífast um að
sífellt sé verið að rjúfa fréttir og aðra
þætti á RÚV, sjónvarpi eða hljóðvarpi.
Norðurljós hefur fengið réttinn og það
er vel. Að vísu verða áhorfendur að
greiða fyrir það en það hljóta þeir að
gera með glöðu geði. Við, hin sem
ekki vorum hrifin af þessum sífelldu
kappleikjum, erum líka ánægðir.
Þetta sýnir hins vegar að RÚV er al-
gjörlega ófært um að halda úti nokk-
urri dagskrá þegar heimsviðburðir
eru á dagskrá eins og HM. Og þótt ég
horfi ekki á kappleiki þá gera það þús-
undir annarra landsmanna. Sjónvarp-
ið er búið að vera að mínu mati, og
Stöð 2 og Sýn hafa vinninginn. Og
senn kemur enn ný sjónvarpsstöö,
Stöð 1, og þá á að loka Sjónvarpinu að
mínu mati. Því fyrr því betra fyrir
okkur skattborgarana.
Skólameistari suður
Tryggvi
Gíslason.
Akureyringur hringdi:
Ég las stutta frétt
í DV nýlega þar
sem greindi frá því
að skólameistari
Menntaskólans á
Akureyri hygðist
hætta störfum á
næsta ári og myndi
þá flytja úr bænum.
Og hvert? Nema
höfuðborgarsvæðisins! Ég
beint til
hefði haldið að maður sem bæði hefur
setið i bæjarstjórn og haft margvísleg
afskipti af bæjarbrag hér, og ekki ver-
ið beint talsmaður þéttbýlissvæðisins
við Faxaflóann, myndi ekki fýsa að
ílendast á höfuðborgarsvæðinu. En
svo bregðast krosstré ... Það fara allir
suður jafnskjótt og þeir geta því við
komið, svo einfalt er það.
Grænmetislækkun?
Sigrún Pétursdóttir skrifar:
Grænmetisnefnd og aðrar nefndir
sem skipaðar hafa verið til að kanna
verð á grænmeti og reyndar landbún-
aðarafurðum gegnum árin hafa reynst
gagnslausar með öllu. Ekki er nokkur
von til þess að grænmetisverð lækki
til neytenda enda hafa svokallaðir
„grænmetisbændur" líka haft tögl og
hagldir í samskiptum við alla land-
búnaðarráðherra hér um áratuga
skeið. Beingreiðslur til garðyrkju-
bænda er skandall. En nú segjum við
neytendur nei. Við kaupum ekkert ís-
lenskt grænmeti með afarkostum.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
^enaittttk