Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Síða 28
44 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 > Tilvera ÐV lí f iö Tónleikar í Sigurjónssafni Tónlistardeild Listaháskóla ís- lands heldur tónleika í Lista- safni Sigurjóns kl. 20 og tilheyra þeir tónleikaröðinni Myrkum músíkdögum. Flutt verða verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Áskel Másson, Jónas Tómasson, Karólínu Eiríksdóttur, Oliver Kentish og Pál ísólfsson. Krár 1 bÍNGO Á KAUPFELAGINU Það er - *• tilvalið aö styrkja gott málefni í kvöld og skella sér á bingó á Kaupfélag- inu. Allur ágóöi bingósins rennur til langveikra barna og nú þegar hefur Kaupfélaginu tekist að safna 300 , þúsund krónum á 6 bingókvöldum. I kvöld eru sérlega glæsilegir vinning- ar í boöi, m.a tveir 20 þús kr. far- símar, 15 þúsund króna fataúttektir í Sautján og út aö boröa á Argent- ínu. Bingóstjórar kvöldsins veröa aö þessu sinni þrír talsins, fóstbræðra- systkinin þau Helga Braga, Þor- steinn og Sigurjón. Bingóið hefst stundvíslega á slaginu kl. 21. v Fundir og fyrirlestrar Kynningarfundur um Víetnam veröur haldinn í Versölum aö Hallveigarstíg 1 i dag. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Utflutningsráös íslands, setur fundinn og síðan hefjast erindi um Víetnam. Nguyen Trong Hue viðskiptafulltrúi talar um stofnun viðskiptasambanda, Vilhjámur Guömundsson, forstööumaöur Útflutningsráös, fjallar um sjávarútveg og fiskvinnslu, Sveinn Baldursson framkvæmda- stjóri um upplýsingatæknigeirann, Lárus S. Ásgeirsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaösmála hjá Marel, talar um reynslu Marel í Víetnam, Einar Magnússon um lyfjaiönaöinn og Guöný Helga Gunnarsdóttir kennari um menningarmun Víetnams og <r. Islands. Fundurinn er opinn öllum. Sýningar ■ NINNY I SPARISJODI GARÐABÆJAR Nú stendur yfir málverkasýning í Sparisjóönum í Garöabæ, á verkum eftir myndlistarkonuna Ninný, Jónínu Magnúsdóttur. ■ UÓSBLÁ Á KAFFI MÍLANÓ Helga Erlendsdóttir myndlistarkona, „Ljósblá", hefur opnaö sýningu á olíumálverkum í Kaffi Mílanó í Faxafeni. Þaö eru abstraktverk og fígúratívar landslagsmyndir. ■ KONUR SJÁ RAIITT Rautt er nafniö á samsýningu átta kvenna sem var opnuð í Húsi málarans um helgina. Myndefni verkanna eru ólík n en allar eiga myndirnar þaö þó sam- eiginlegt aö vera í rauöum tón. Sýn- ingin stendur í 3 vikur. ■ SVONA VARO BREHöHOLTIÐ TIL Sýning hefur veriö opnuð í Hafnar- húsinu á sögu Breiðholtsins en sýn- ingin hefur fengið nafniö Byggt yfir hugsjónir, Breiöholtiö frá hugmynd aö veruieika. ■ ÞRJÁR í LISTASAFNI ASÍ Listasafni ASI, Asmundarsal viö Freyjugötu, er samsýning þeirra Ingu Þóreyja Jóhannsdóttur, Rögnu Siguröardóttur og Sigríöar Ólafsdóttur. Þar eru þrívíð verk, verk _ unnin meö tölvutækni og fleira fallegt. ■ MYNDHÖGGVARASÝNING Níels Hafstein og Sólveig Aöalstelnsdóttlr sýna verk sín í miörými Kjarvalsstaöa um þessar mundir. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.ls DV-MYNDIR EINAR J. Aldursforsetinn Borghildi Indriöadóttur þótti námskeiöiö áhugavert. Teiknimyndafólk framtíöarinnar Ólöf Vignisdóttir, Daníel Björn Sigurbjörnsson og Þorgrímur Óli Viktorsson. Einbeitingin á fullu Ragnhildur Kristjánsdóttir kvaöst ekki alltaf skilja kennarann en það kæmi ekki aö sök því aö sumir krakkarnir gætu túlkaö. Teiknimyndanámskeið í Norræna húsinu: Allt verður að vera í smáskrefum Bíógagnrýni Smárabíó/Regnboginn/Laugarásbíó - Tölur sem Það er timafrekt en skemmtilegt að gera teiknimyndir. Það kom þeim saman um, krökkunum fimmtán sem í síðustu viku sátu námskeið í þeirri iðju í Norræna húsinu. Þeir voru á lokasprettinum þegar DV-fólk hitti þá. Einn hópurinn af þremur var byrjaður aö setja hljóð inn á klippi- mynd sem hann hafði unnið í samein- ingu, að sjálfsögðu með hjálp kennar- ans, Hönnu Pedersen frá Danmörku. Hinir tveir hópamir biðu eftir sama verkefni en voru að teikna örmyndir á meðan. „Lengstu myndimar sem við höfum gert eru einnar mínútu langar og það tók fjóra klukktíma að mynda þær,“ sagði Hlín Önnudóttir, einn þátttakenda. Sjálf var hún með eina örmynd á 16 blöðum sem hún bjóst viö að yrði svona fimm sek- úndna löng! Þegar haft var orð á að lítið væri á hverju blaði kom skýring- Myndin komin á skjáinn Þau voru aö setja hljóöiö inn á: Olaf Bragi Thor Eyþórsson frá Noregi, Hanna Pedersen kennari frá Dan- mörku. Herborg Árnadóttir, Isak Toma frá Japan og Lea Hvargaard Nielsen frá Danmörku. 1 t S "f • Hilmar skipta mali in: „Þetta er ósýnilegur maður að leita að gleraugunum sínum og þaö sjást bara í honum augun!“ Borghild- ur Indriðadóttir, 14 ára, var aldursfor- setinn í hópnum. Hún lýsti vinnuferli klippimyndanna. „Við semjum fyrst söguþráð, teiknum persónur, klippum þær út úr pappa og limum þær svo saman á liðamótunum með kenn- aratyggjói.” Ragnhildur Kristjáns- dóttir botnaði frásögnina. „Þegar við fórum að mynda þá hreyfum við þær pínulítið. En það verður allt að vera i smáskrefum. Svo þegar þetta er sýnt hratt verður þetta eins og alvöru- teiknimynd." Þorgrímur Óli Viktors- son kvaðst ákveðinn í að leggja fyrir sig teiknimyndagerð þegar hann yrði stór. „Það er búinn að vera draumur minn mjög lengi,“ sagði hann. í sama streng tók Daníel Björn Sigurbjörns- son en Ólöf Vignisdóttir sagðist ætla að sjá um bakgrunna í slíkum mynd- um. Greinilegt var að Hönnu Peder- sen hafði tekist að kveikja áhuga sumra barnanna á þessari listgrein og efla hana hjá hinum. -Gun Don’t Say a Word + + Neita aö tala Michael Douglas í hlutverki sálfræöingsins og Brittany Murphy í hlutverki stúlkunnar sem geymir leyndarmáliö. Don’t Say a Word er ein þeirra mynda sem hefði átt að hafa alla burði til að vera afbragðs sakamála- mynd. Hún er gerð eftir skáldsögu Andrews Klavans sem valin var besta sakamálasaga ársins og þar vantar ekki fléttur samfara ágætum persónu- lýsingum. Handritið er einnig ágæt- lega skrifað og með Michael Douglas i fremstu víglínu hefði átt að vera auð- velt fyrir góðan leikstjóra að þjappa efninu í pottþéttan sálfræðitrylli. Svo er nú samt ekki. Leikstjórinn Gary Fleder (Kiss the Girls) nær ekki að binda endana saman þannig að eftir því sem liður á myndina verður hún æ lausari í böndum bg einstaka per- sónur vafra inn og út án þess að hafa tilgang. Upphafsatriðið gerist 1991. Verið er aö ræna bankahvelfingu þar sem geymdur er 10 milljóna dollara gim- steinn. Ránið fer í vaskinn og for- kólfarnir lenda í steininum. Síðan er farið í nútímann, við kynnumst sál- fræðingnum Nathan Conrad (Michael Douglas) sem fenginn er til að líta á unga stúlku sem hefur einangrað sig frá umheiminum og viröist vera á leiðinni á geðveikrahæli. Það eina sem hann fær upp úr henni er að hún muni ekki segja frá. Conrad telur hana ekki eiga mikla von og heldur til síns heima þar sem eiginkona, bundin við rúm vegna beinbrots, bíður hans, ásamt dóttur þeirra. Það sem hann ekki veit er að ræningjarnir frá árinu 1991 eru komnir á stjá, búnir að af- plána sinn dóm og eru á eftir gim- steininum góða. Þeir hafa hreiðrað um sig í íbúð í það mikilli nálægð við Conrad að þeir geta fylgst með öllu sem hann og fjölskylda hans gerir. Þeir ræna dóttur hans og lausnar- gjaldið er tölur sem geymdar eru í minni stúlkunnar sem hann rannsak- aði. Hefst nú kapphlaup við timann þar sem hver sekúnda er dýrmæt. Helsti kosturinn við Don’t Say a Word er tengingin á milli miskunnar- lausra glæpamanna og saklausrar fjöl- skyldu Conrads. Þeir eru inni á teppi hjá honum og fylgjast með ferðum hans. Hann getur hvorki hreyft legg né lið án þess að þeir viti hvar hann er. Þetta skapar rafmagnað andrúms- loft sem hverfur síðan þegar nálægðin er ekki eins mikil eins og í lokaatrið- um myndarinnar. Þá eru atriðin góð þar sem Conrad reynir allt sem hann getur til að fá stúlkuna til að segja frá þeim tölum sem skipta öllu máli. Michael Douglas er, eins og vænta mátti, virkilega góður í hlutverki Conrads. Hann hefur kraftinn til að geta einn haldið uppi mynd og segja má að hlutverkið sé klæðskerasniðið fyrir hann. Sean Bean er einnig góður í hlutverki hins miskunnarlausa Koster sem við fáum allt of lítinn bak- grunn á. Það dúkkar upp lögreglu- kona (Jennifer Epostio) sem er á hæl- unum á honum (ein þeirra persóna í myndinni sem virðast óþarfar) og er að tengja hann við fleiri morð sem við fáum ekkert að vita um. Það eru fleiri slíkir angar í myndinni sem lítinn til- gang hafa og tefja fyrir eins og teng- ing annars sálfræðings (Oliver Platt) við glæpahópinn. Það má sem sagt finna margt að Don’t Say a Word hvað varðar stíl. Á móti kemur að sum atriðin eru vel gerð, til að mynda þau sem tengjast bamsráninu og spennan er mikil í fyrrihluta myndarinnar. Leikstjóri: Gary Fleder. Handrit: Anthony Peckham og Patrick Smith Kelly eftir skáldsögu Andrew Klavan. Kvikmynda- taka: Amir Mokri. Tónllst: Mark Isham. Aóallelkarar: Michael Douglas, Sean Bean, Brittany Murphy, Famke Janssen, Oliver Platt og Jennifer Eposito.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.