Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Side 29
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
45
DV
EIR á mánudegi
Boginn
títuprjónn
Loks er aftur
hægt að fá bogna
títuprjóna í verslun-
um. Eru þeir í raun
grundvöllur þess að
hægt sé að gera
öskupoka almenni-
lega og festa í fólk.
Nýjar útgáfur af
títuprjónum hafa
verið án sveigjueig-
inleika og brotnað
ef reynt var að
beygja. Nú hefur
verslunin Virka í
Mörkinni 3 í
Reykjavík brugðist við og flutt inn
títuprjóna sem hægt er aö beygja.
Vekur framtakið víða gleði.
Títuprjónninn
Öskudeginum
bjargaö.
30 umsóknir
Þrjátíu sóttu um
starf útsölustjóra
ÁTVR á Sauðár-
króki sem losnar
þegar Stefán Guð-
mundsson lætur af
störfum i maí. Þyk-
ir það mikið á ekki
stærri stað en
Sauðárkróki þar
sem íbúar eru 4.713
og útsölustjóri fær
enga hlutdeild í því
áfengi sem á
boðstólum er. Um-
sækjendur eru: Atli
Hjartarson, Birkir
Ámason, Bjarni
Hákonarson, Björn
Bjömsson o.s.frv.
Vínlð
Vinsælt á
Króknum.
Þorri á
Karólínu
Kaffi Karólína
á Akureyri býð-
ur upp á þorra-
mat með nýju
sniöi með
skírskotun í mat-
arhefð á megin-
landi Evrópu.
Mandarlnugraf-
inn þorskhnakki
með engifer er á
þorrabakkanum
svo og wolksteikt hrossabjúgu.
Svo ekki sé minnst á harðfisk í
bjórdressingu og þorsk í banana.
Þorrinn á Karólínu stendur til
16. febrúar.
ijornm
Allt frosiö.
Svangur svanur
Dýravinir við Reykjavíkurtjörn
hafa áhyggjur af álft sem fær ekki
nóg að éta. Er það hald manna að
fæðuskortur sé farinn að hrjá íbúa
Tjamarinnar í frosthörkunum sem
verið hafa. Svo mjög hefur sorfið
að álftinni að hún er farin að berja
gogginum í gangstéttarhellur í leit
að æti með þeim afleiðingum aö
goggurinn er brotinn. Þykir álftin
hjálparþurfl.
Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að bolludagurinn er ekki hátíðis-
dagur offltusjúklinga.
Fímm ráð fyrir vikuna
NOTIÐ bíla-
stæðahúsin í
Reykjavík. Sér-
staklega ef þið
eruð utan af
landi. Eitt af því
fáa í höfuðborg-
inni sem minnir
á stórborg. Undarlega ódýrt miðað
við sektirnar úti við.
MEINLEG ör-
lög, smásögur eft-
ir W. Somerset
Maugham. Gefn-
ar út af Menning-
ar- og fræðslu-
sambandi alþýðu
skömmu fyrir
miðja síðustu öld. Klassísk lesning -
klassa fyrir ofan annað og nýrra. Til
á bókasafninu.
Jón Bragi viö spenann
Pensím eins og eldur í sinu um Skeiöin - vinnur á bjúg, stáima og júgurbólgu.
Undrameðalið pensím - nýir landvinningar:
Læknar júgurbólgu
og bílakóng
- hluthafar láta ekki bréf sín fyrir nokkurn pening
Húðáburðurinn pensím, sem Jón
Bragi Bjamason prófessor þróaði og
hóf framleiðslu á fýrir nokkrum árum,
heldur áfram að sanna gildi sitt og nú
á nýjum vettvangi. Bændur á Skeiðum
era famir að nota pensim gegn júgur-
bólgu með undraverðum árangri
„Ég fékk pensím fyrst til að nota á
eigin gigt en þá frétti ég að áburðurinn
hefði dugað vel á múkk í hestum. Datt
mér þá í hug að prófa áburðinn á júg-
urbólgu og nú má ekki á milli sjá
hvort ég eða kýmar era ánægðari,"
segir Valgerður Auðunsdóttir, bóndi á
Húsatóftum 1 á Skeiðum. „Pensímið
hefur einnig dugað vel á bjúg í kúnum,
svo og stálma." Valgerður á Húsatóft-
um er ekki eini bóndinn á Skeiðun-
um sem notar pensím á skepnur sin-
ar. Áburður Jóns Braga fer nú eins
og eldur i sinu mn sveitina, bæði
bændum og búfénaði til ánægju.
Höfuðborgarbúar era einnig að gera
sér grein fyrir gildi pensímsins og hef-
ur landsþekktur bílakóngur fengið bót
meina sinna fyrir tilstilli þess. BOa-
kóngurinn hefur þjáðst af exemi á fæti
svo árum skiptir og leitað sér lækn-
inga hér heima sem og erlendis. Allt
kom fyrir ekki þar til hann prófaði
pensímið. Hvarf exemið þá eins og
dögg fýrir sólu. Á heimili hans flokk-
ast árangurinn undir kraftaverk.
Pensím Jóns Bjama er unnið úr
þorskenshnum og eingöngu borið á út-
vortis. Mjög lítið þarf af efninu en
meira skiptir að nudda því vel inn.
Verið er að gera samninga við stórfýr-
irtæki erlendis og sjá hluthafar í pens-
ímfyrirtækinu fram á gífurlegan arð af
fjárfestingu sinni ef svo fer fram sem
horfir. Til að mynda er ógjömingur að
fá hlutabréf í fýrirtækinu keypt því að
enginn vill selja. Þykir það með ein-
dæmum.
GEFIÐ blóð í
Blóðbankanum.
Þar bíður ykkar
glæsilegt kaffi-
hlaðborð að lok-
inni blóðgjöf.
Flottara en á hót-
elum. Ókeypis.
SPARIÐ fyrir
áskrift að Stöð 2
og Sýn fyrir sum-
arið. Þá eigið þið
fyrir fótboltan-
um. Kostar sitt
en hverrar krónu
virði. Gleðilegt
sumar.
FARIÐ snemma
að sofa. Ekkert
jafnast á við að
vakna úthvíldur.
Vansvefta fólk er
óþolandi - rugl-
andi og buliandi allan daginn sjálfu
sér og öðrum til ama.
Friðrik Þór flytur úr landi
Friðrik Þór Guð-
mundsson, sem und-
anfarin misseri hefur
sinnt flugöryggismál-
um á eigin vegum,
hyggst flytja úr landi
..flugmálayfirvöldum
til mikils léttis,“ eins
og hann orðar það
sjálfur. Fylgir hann
eiginkonu sinni, Krist-
ínu Dýrfjörð, til
Rétta myndin
Friörik Þór
Meö konunni til Ameríku.
Bandaríkjanna þar
sem hún ætlar að
sinna rannsóknum í
fagi sínu, en Kristín er
lektor í leikskólafræð-
um.
Þau hjónin misstu
sem kunnugt er son
sinn í kjölfar flugslyss
í Skerjafirði í lok
verslunarmannahelg-
arinnar í ágúst 2000.
Með áramóta-
sprengju í vasanum
- í gegnum þrjú vopnaleitarhlið
Opinber embættismaður á
leið til útlanda. Kalt í lofti og
því greip hann gamla úlpu og
fór í. Ætlaði til Berlínar á fundVÁ
en þurfti að millilenda í Kaup- *
mannahöfn. Fór fyrst í gegnum
vopnaleit í Leifsstöð, svo í Kaup-
mannahöfn og loks í Berlín. Stóð þar
í flugstöðinni og beið eftir töskunni
sinni við færiband. í gömlu úlpunni.
Æór í vasann og fann þar áramóta-
tsprengju frá því á gamlárskvöld.
j Svona eldspúandi hjól sem frassar
'logum og glæringum í aOar áttir.
'Hefði nægt til að rústa farþegarými
Boeing-þotu. Embættismanninum var
brugðið. Hann hefði getað lent í fang-
elsi. Síðar varð hann hugsi yfir
virkni vopnaleitar á þremur alþjóða-
flugvöllum.
Forvitni í Gallup:
Hvert fórstu
Gallup hefur
sent 750 Reykvík-
ingum skjal þar
sem þeir era beðn-
ir um að skrá allar
ferðir sínar ákveð-
inn vikudag og
gera grein fýrir til-
ganginum með
þeim. Ekki er þó
beðið um skýring-
ar á ferðum innan-
húss. Skjalið er fiög-
urra dálka þar sem
tilgreina á ákvörðunarstað, tilgang ferð-
ar, nákvæma tímasetningu komu og svo
brottfarar. Og svo koll af kolli. Það era
forstjóri Strætó
bs. og borgarverk-
fræðingur sem
standa að könn-
uninni ásamt
Gallup og er til-
gangurinn að
bæta umferðina í
höfuðborginni.
Þar sem um er
að ræða persónu-
legar upplýsingar
verður farið með
þær sem trúnaðar-
mál og þess gætt að ekki verði hægt að
rekja svör til þátttakenda. Hefúr Per-
sónuvernd veriö tilkynnt um framtakið.
- og til hvers?
Skjaliö
Ekki á aö skrá feröir innanhúss.
Lelkur
Þau iyfta sér létt í frostinu - hrossin.
DV-MYND: HARI