Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002
BV
Fréttir
Undirbúningur fyrir val á Reykjavíkurlistann:
mtmœm
Kurr hjá Framsókn
vegna framboðsmála
- komin fram kæra til laganefndar flokksins frá varaborgarfulltrúa
Nokkur kurr er meðal framsókn-
armanna 1 Reykjavik vegna þeirrar
ákvörðunar að
hafa skoðanakön-
un flokksins við
val á Reykjavík-
urlistann eins
lokaða og raun
ber vitni. Á kjör-
dæmaþingi á dög-
unum var sam-
þykkt að aðalfull-
trúar á kjör-
dæmaþingi
flokksins í Reykjavík, sem er hópur
um 350 manna, skuli velja fullltrú-
ana á Reykjavikurlistann í sérstakri
könnun sem fram á að fara um
næstu helgi. Þykir ýmsum sem
þetta séu heldur kaldar kveðjur til
almennra flokksmanna. Auk þess
hefur nú komið fram kæra til laga-
nefndar flokksins vegna þess að
kjördæmaþingið, þar sem ákvörð-
unin um að hafa könnunina í þess-
um þrönga hópi, hafi ekki verið lög-
legt. Það er Óskar Bergsson vara-
borgarfulltrúi sem kærði málið og
auk þess gerir hann athugasemdir
við það hvernig aðalfulltrúar á kjör-
dæmisþingi voru valdir.
Laganefnd ílokksins mun fjalla
um kæruna og úrskurða um hvort
nauðsynlegt sé að kalla saman fé-
lagsfund til að ákveða hvaða aðferö
eigi að nota við val fulltrúa á fram-
boðslistann, en kveðið er á um slíkt
í reglum flokksins. Ekki er ólíklegt
að á slíkum fundi myndi fyrri
ákvörðun verða tekin upp, enda
greinileg hreyfing í þá átt. Vigdís
Hauksdóttir, varaþingmaður og full-
trúi í samninganefndinni um sam-
starf á Reykjavikurlistanum, segir
það fyrir neðan allar hellur að hinn
almenni flokksmaður sem greiði sín
félagsgjöld samviskusamlega skuli
ekki fá tækifæri til að taka þátt í
vali á listann, heldur skuli einhverj-
ir 350 útvaldir fulltrúar fá einkarétt
til þess. Hún segist verða vör við
mikinn og víðtækan kurr meðal
flokksmanna vegna þessa máls og
vonast til að tækifæri gefist til að
taka þessa ákvörðun upp. Hún
bendir á að ekki sé einu sinni víst
að allir þessir 350 taki þátt í könn-
uninni og „það væri lélegt veganesti
inn í Reykjavíkurlistasamstarfið ef
það eru kannski 250 manns sem
ráða því hverjir skipa þar sætin,“
segir Vigdís og telur slíkt umboð
mjög veikt fyrir borgarfulltrúana.
-BG
Börnin fylgi
foreldrum á
Óvenjuleg vinnubrögð í Landsbankanum á Eskifirði:
Ekki alvöru íslendingur
- meinað að vera í ábyrgðum - vinnureglur, segir útibústjóri
DV-MYND: EMIL THORARENSEN
Aleksandra er ósátt
Meinað að vera í ábyrgðum á ávísanareikningi vegna 20 þúsund króna yfir-
dráttar enda ekki alvöru íslendingur. „Mér leið illa yfir því að fá þessi svör, “
sagði Aleksandra Janina Wojtowicz.
þorraböllin
„Bömin hafa fylgt foreldrum sín-
um árum saman á þorraböllin á
Klaustri og verið
sjálfum sér og
öðrum til sóma,“
segir Sveinbjörg
Pálsdóttir á
Kirkjubæjar-
klaustri. Hún
sendi bréf til
dómsmálaráðu-
neytis eftir að
Sýslumaðurinn í
Vík í Mýrdal, Sig-
urður Gunnarsson, auglýsti að
börnum innan 18 ára aldurs væri
bannað að fara með foreldrum sín-
um á þorrablót. „Það var mikil óá-
nægja meðal ibúa hér vegna þessa.
Ekkert hefur komið uppá á þessum
skemmtunum, sem gaf ástæðu til
að taka fram fyrir hendur okkar í
því að taka bömin með okkur
áfram.“
Sigurður Gunnarsson sýslumað-
ur sagði í samtali við DV að hann
hefði túlkað bamaverndar- og
áfengislög þannig að undanþága frá
lögum um aðgengi fyrir böm í fylgd
með foreldrum eða forráðamanni á
vínveitingastaði ætti eingöngu við
um matsölustaði.
Dómsmála- og félagsmálaráðu-
neyti fóru yfir erindi Sveinbjargar.
Þau telja að þorrablótin hafi sér-
stöðu í samanburði við annað
skemmtanahald. Þau séu öðrum
þræði fjölskylduhátíð með heimatil-
búnum skemmtiatriðum og sér-
stakri matarmenningu. Því geti for-
eldrar borið ábyrgð á því að börn á
aldrinum sextán til sautján ára fari
með þeim á þorrablót. Með þessu
snupra ráðuneytin í raun fyrri úr-
skurð sýslumannsins í Vík, þannig
að áfram verður þorri blótaður á
Klaustri á fjölskylduhátíð
„Það er fallist á mína túlkun,
nema að því leyti sem á við um
þorrablótin,“ sagði Sigurður Gunn-
arsson. Hann hefur óskað eftir
skýrum reglum varðandi aðgang
yngri en átján ára að vínveitinga-
húsum, fyrst túlkun hans á undan-
þáguákvæðinu eigi ekki við þorra-
blót. -NH /-sbs
„Bankastjórinn sagði að ég fengi
ekki að vera ábyrgðarmaður vegna
yfirdráttarheimildar upp á tuttugu
þúsund sem systir mín þurfti að fá á
ávísanareikning sinn. Ástæðan sem
mér var gefin var sú að ég væri ekki
alvöru íslendingur. Mér leið illa yfir
því að fá þessi svör,“ sagði
Aleksandra Janina WojtowiczÝá
Eskifirði í samtali við DV.
Hún leitaði til útibús Landsbank-
ans á staðnum og bauðst til að vera í
ábyrgðum vegna yfirdráttarheimild-
arinnar. Óskaði útibústjórinn þá ná-
kvæmlega eftir að vita hvemig systir-
in hygðist verja fénu og þar fram eft-
ir götunum. „Mér fannst honum ekk-
ert koma það við,“ sagði Aleksandra,
sem hefur dvalist hér í sex ár og búið
á Eskifirði siðustu þrjú ár. Islenskan
ríkisborgararétt öðlaðist hún á sl. ári.
Eiginmaður hennar er íslenskur og
saman eiga þau þrjú böm. Hjónin
hafa haft öll sín bankaviðskipti við
útibú Landsbankans á Eskifirði og
eru þar með allt sitt í skilum, sam-
kvæmt því sem Aleksandra segir.
„Ég hef heyrt um útlendinga sem
hafa fengið lán upp á meira en hund-
rað þúsund hjá Landsbankanum án
þess að þurfa ábyrgðarmann. Ef ég fæ
ekki sömu fyrirgreiðslu er þetta mis-
munandi frá einu útibúi til annars,“
segir Aleksandra. Hún segir að sig
langi lika að vita hvað séu „alvöru ís-
lendingar" í augum Landsbankans.
Háttsettur maður innan lagaheims-
ins segir engin fordæmi fyrir því ef
ríkið þarf að kaupa aftur bréfm sem
seld voru í hlutabréfaútboði Lands-
símans í fyrra. Hann segir að fram til
þessa hafi einkavæðing á ríkiseignum
gengið vel fyrir sig en í Símamálinu
hafi hvert klúðrið rekið annað. Eins
og DV greindi frá í gær gæti ríkið orð-
ið af allt að 2 milljörðum króna ef all-
ir sem keyptu bréf í Símanum í fyrra-
„Var hún að hringja í blöðin með
þetta? Mér finnst þetta alveg
stórfurðulegt,“ sagði Gísli Benedikts-
son, útibústjóri Landsbankans á Eski-
firði, í samtali við DV. Hann sagði
ákvörðun um að heimila Aleksöndru
ekki að vera í ábyrgðum fyrir yfir-
haust ákveða að leita réttar síns
vegna 90% reglunnar svokölluðu.
Reyndar var fyrirvari í útboðslýsing-
unni um óvissu varðandi kjölfestu-
fjárfesti, en nánast einróma skoðun
viðmælenda DV úr lagasérfræðinga-
stétt er að lögin séu fyrirvaranum
æðri.
í 26. grein hlutabréfalaganna segir:
„Ef hluthafi á meira en 9/10 hlutafjár
í félagi og ræður yfir samsvarandi at-
dráttarheimildinni vera i samræmi
við þær vinnureglur sem Landsbank-
inn hefði. Hverjar þær reglur ná-
kvæmlega væru vildi útibústjórinn
ekki segja, né að öðru leyti tjá sig um
þetta mál.
-sbs
kvæðamagni getur hver einstakur af
minni hluta hluthafa krafist innlausn-
ar hjá hluthafanum." í þessu tilfelli á
ríkið enn 95% hlut, því ekkert varð af
kaupum kjölfestufjárfestis. Þannig
virðist reglan eiga við Landssímann.
Helstu sérfræðingar á þessu sviði eru
tregir til að koma fram undir nafni
þar sem þeir sitja í ýmsum ráðum og
nefndum sem gætu gert þá vanhæfa
til opinberra yfirlýsinga. -BÞ
Réttur einkahluthafa til að láta Símann kaupa bréfin aftur:
Fordæmislaust mál hjá ríkinu
Blaöiö í dag
Fyrirmynd
Lísu í
Undralandi
Hlynnt aga
Ragnheiöur Rik-
harösdóttir
Á Bankabygg
Bokasiöa
Kolbrunar
DV-matur
Handbolti
á heimsvísu
Innlent fréttaljós
Eins og að
leika sér með
eiturlyf
Kjartan Ragnars-
son
Úr kerfiskalli í
þjóðernissinna
Erlent fréttaljós
Kraftaverk að
komast aftur
á svið
David Warner
Kaupþing hagnast
Kaupþing hagn-
aðist um 850 millj-
ónir króna eftir
skatta á sl. ári.
Þessi afkoma er í
samræmi við
markmið félagsins
um arðsemi eigin
fjár sem var 14,6%.
Hagnaður Frjálsa fjárfestingar-
bankans nam 460 milljónum króna
og arðsemi eigin fjár var riflega
22%.
Lampaþjófar
Brotist var inn í gróðurhús í
Hveragerði í fyrrinótt og stolið það-
an sex lömpum sem notaðir eru við
skammdegislýsingu í húsunum.
Lögreglu var tilkynnt um þjófnað-
inn og er málið í rannsókn. Sam-
kvæmt heimildum DV þykir ósenni-
legt að garðyrkjubændur steli lömp-
um hver frá öðrum - og er getum að
því leitt að fikniefnafólk ætli sér að
nota þá við ræktun kannabis-
plantna.
Hækkanir til baka
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar hef-
ur samþykkt að draga tU baka
lækkanir á dagvistargjöldum í
bænum. Þá lækka daggjöld á
gæsluvöllum, í heimaþjónustu
aldraðra og í félagsstarfi þeirra
um 5%. Sama gildir einnig um
sundmiða. Þetta er innlegg ísfirð-
inga í verðhjöðnunarstríðið.
Skemmtanabann
Lögreglan i Reykjavík hefur á
vefsíðu sinni gefið út upplýsingar
um að allt skemmtanahald verði
fortakslaust bannað frá miðnætti á
skírdag fram til jafnlengdar að
kvöldi föstudagsins langa. Þá er al-
gjört skemmtanabann frá kl. 3 til
kl. 24 á páskadag.
Staðardagskrárverðlaun
Siv Friðleifsdótt-
ir umhverfisráð-
herra afhenti í gær
Akureyrarbæ Stað-
ardagskrárverð-
laun ársins. Ráð-
stefna um Staðar-
dagskrá 21 var sett
á Akureyri í dag.
Borgarbyggð hlaut hvatningarverð-
laun við sama tilefni.
Stórtap hjá Tæknivali
Rekstur Aco-Tæknivals eftir síð-
asta ár er gerður upp með 1.082
milljóna króna tapi. í frétt frá fé-
laginu segir að þessu valdi meðal
annars niðursveifla í efnahagslif-
inu sem hafi valdið samdrætti í
tölvusölu og eins hafi gengislækk-
un krónunnar mikið aö segja. Gert
er ráð fyrir betri afkomu í ár.
Til Palestínu
Fulltrúar Hjálparstarfs kirkj-
unnar, Aðalsteinn Þorvaldsson
guðfræðingur og Svala Jónsdóttir
blaðamaður, verða í eftirlitshópi í
átökum Palestínumanna og ísra-
ela. Þau munu ásamt fulltrúum
dönsku kirkjunnar dveljast í Isra-
el og á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna næstu fimm mán-
uði.
Mistök í heilsuþorpi
Landbúnaðar-
ráðuneytið gerði
þau mistök þegar
það leigði Knúti
Bruun 8 hektara
lands undir heilsu-
þorp að hluti þess
var leigður út til
Heilsustofnunar
NLFÍ. Sá samningm- er rétthærri
og rennur út eftir tvö ár. Viðræð-
ur standa yfir við Náttúrulækn-
ingafélagið um málið. -sbs